Skessuhorn - 13.12.2001, Síða 7
§SiSSi}H©£KI
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001
7
Jólasveinninn kvartar og kveinar
Nú ætla ég
að ljóstra upp
eldgömlu og
vel varðveittu
leyndarmáli.
Eg er jóla-
sveinn. Ekki
bara einn
jólasveinn;
nei ég er
hvorki meira
né minna en
allir jólasveinarnir einn og átta
plús hinir fjórir. Að minnsta
kosti á mínu heimili. Þetta er
mikil tímamótauppljóstrun því
til þessa heíur þetta. leyndarmál
verið varðveitt jafn kyrfilega og
uppskriftin að kókakóla.
Ástæða þess að ég gríp til þess
óyndisúrræðis nú er gróflegt brot
íjölskyldunnar á vinnuréttarlög-
gjöf og kjarasamningum verka-
lýðsfélagsins BJÁNAR (Bandalag
Jólasveina, Álfa, Nátttrölla og
Annarra Rugludalla). Fjölskyld-
an mín, þessir utanaðkomandi
aðili, leyfír sér að hlutast til um
starfshætti okkar jólasveinanna
án þess að hafa nokkra innsýn í
innsta eðli starfa okkar, hvað þá
faglegan memað.
Deilan snýst um það hvenær
hinu allt of stutta sumarfríi okkar
jólasveinanna ljúki. Eg vil meina
að ég, Stekkjastaur, komi til
byggða að kvöldi hins 12. desem-
ber og hefji störf þá um nóttina,
aðfararnótt 13. dags desember-
mánaðar. Aðeins þannig gengur
það upp ég, Kertasníkir, komi til
byggða á aðfangadagskvöld og
sinni óeigingjörnu starfi mínu á
heimilinu á jólanótt. Máli mínu
til stuðnings hef ég jólavísur Jó-
hannesar úr Kötlum ásamt þjóð-
sögum Jóns Árnasonar og fleiri
fornum heimildum sem ég hef
viðað að mér með aðstoð virtustu
fræðimanna Borgarfjarðar-
héraðs; Axels í Safnahúsinu og
Bergs í Snorrastofu.
Fjölskyldan vill hinsvegar
meina að ég eigi að stytta sumar-
fríið mitt og þræla mér út heila
fjórtán daga þótt ég sé bara 13
jólasveinar. Eg á að þeirra áliti
að hefja störf nú í kvöld, 11. des-
ember. Þetta kalla ég bæði arðrán
og vinnuréttarlega kúgun. Svona
vinnuþrælkun á sér enga stoð í
fornum hefðum okkar jólasvein-
anna en fjölskyldan leyfir sér að
vitna í barnatíma sjónvarpsins.
Barnatíma sjónvarpsins!
Fussumsuss og svei! Eiga nú
Ásta Hrafnhildur og kötturinn
Keli að hafa meira vit á íslensk-
um þjóðháttum heldur en Axel á
Byggðasafninu og Bergur í
Snorrastofu samanlagt? Hert
stefnir þjóðfélagið þegar heilu
kynslóðirnar leyfa sér blákalt að
fullyrða að fremstu sérffæðingar
héraðsins í fornum fræðum séu
bara gamlir rugludallar, síst
skárri en ég? En binda þess í stað
trúss sitt við bandvitlaust stelpu-
fiðrildi sem ég ólst upp í ná-
grenni við suður í Garðabæ og
steindauðan uppstoppaðan kött
sem er ekki einusinni hreinrækt-
aður eins og hún Kleópatra okk-
ar! Hverju má maður eiga von á
næst? Verður rökfræðilegri
skírskotun í rannsóknir Árna
Björnssonar þjóðháttafræðings
kannski svarað með tilvitnun í
Gunna og Felix?
Þegar ég var orðinn eldrauður í
framan eins og jólasveinabún-
ingu í æsingi yfir þessu máli dró
konan mig afsíðis og tók mig á
eintal. "Hvað eiga þessi bann-
settu læti eiginlega að þýða svona
rétt fýrir jólin?" spurði hún mig.
"Það er nú ekki eins og þú þurfir
að síga niður strompinn eins og
alvöru jólasveinn. Allt of sumt
sem þú þarft að gera er að læðast
framúr þegar litla barnið er
sofnað og gauka að því lítilræði
sem ég er sjálf búin að kaupa fýr-
ir mína eigin peninga. Er það til
of mikils mælst?".
Það er greinilegt að konan skil-
ur ekki að rétt skal vera rétt.
Setjum sem svo að við gefum eft-
ir á þessu sviði, hvað tekur þá
við? Jólapakkar á Þorláksmessu?
Uthlutun páskaeggja á skírdag?
Sautjándi júní í maí? Svona má
ekki gerast. Svona lætur alvöru
jólasveinn ekki líðast! "Láttu nú
ekki svona Stekkjastaur minn,"
heldur konan áfram. "Litla
barnið er búið að hlakka til þess-
arar stundar í margar vikur en af
því þú þarft endilega að spila þig
upp í að vera tilfinningalaus,
harðsvíraður þjóðháttaofstækis-
maður ætlar þú að hafa það af að
græta litla barnið. Þá held ég að
þú þú eigir fátt eftir sameiginlegt
með alvöru jólasveini annað en
það að þið eruð báðir of feitir, já
vel á minnst hvar er
suðusúkkulaðið sem ég ætlaði að
baka úr í kvöld?".
Jólasveinninn kemur og heim-
sækir litla barnið í kvöld. Litla
bamið má ekki fara að gráta því
litla bamið er búið að vera svo
þægt og gott. Litla barnið er á
sextánda ári.
BÆNDUR ■ MEÐ OTO
Við buðum fyrstir fjölkorna áburðl
Við bjóðum bestu verðin í dag!
Við tryggjum samkeppni!
Verðin gilda út desember 2001 og eru án vsk.
Vöruheiti Köfn.efni Fosfór Kalíum Kalk Bren. Verð
N P205 K20 Ca S per tonn
Fiölkorna
26-14-00 26 14 0 1,50 1,00 18.990
26-07-00 26 6 0 4,00 4,00 17.990
15-15-15 15 15 15 2.00 1.50 19.490
20-10-10 20 10 10 3,00 2,50 18.490
20-12-08 20 12 8 2,50 2,50 18.690
24-09-08 24 9 8 3,00 2,50 18.390
20-14-14 20 14 14 1,00 1,00 20.390
27-00-00 27 0 0 4,50 3,00 16.990
Afgreiðslustaðir: Grundartangi og Þorlákshöfn
Búaðföng ehf. - Stóróifsvöllum - 861 Hvolsvöllur - Sími: 487-8888 - Fax: 487-8889