Skessuhorn

Útgáva

Skessuhorn - 13.12.2001, Síða 8

Skessuhorn - 13.12.2001, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001 Ingi Steinar Gunnlaugsson, skólastjóri Brekkubæjarskóla, er gestur Skráargatsins að þessu sinni. Hörpuútgáfan er nú fyrir jólin að gefa út þriðju ljóðabók Inga Steinars og ber hún nafnið, Með öðrum orðum. Ingi Steinar hefur stundað ritstörf þegar að tími hefur til gefist og vill hann meina að enn um sinn verði skáldskapurinn aðeins tómstundar- starfið hans, það sé þó aldrei að vita nema hann snúi sé í ríkari mæli að ritstörfunum í framtíðinni. Nafh: Ingi Steinar Gunnlaugsson Fœðingadagur og ár: Eg erfæddur 21. febrúar 1947 Starf: Skólastjóri Brekkubæjarskóla Fjölskylduhagir. Ég er kvæntur Helgu Guómundsdóttur og við eigurn tvo uppkomna syni Hvemig bíl áttu: Lítinn Susuki jeppa Uppáhalds matur: Þessa stundina langar mig mest í glænýja hráa bleikju með sojasósu og vorlauk Uppáhalds drykkur: Malt og appelsín Uppáhalds sjónvarpsefni: Eg er íþróttafre'ttajykill og horfi á allt sem tengist þeim Uppáhalds sjónvarpsmaður: Eg er skotin í Olöfii Rún Uppáhalds leikari innlendur: Ingvar Sigurðsson Uppáhalds leikari erlendur: Júlía Roberts Uppáhalds íþróttamaður: Carlos hjá Real Madrid Uppáhalds íþróttafélag: IA Uppáhalds stjómmálamaður: Eg á engan uppáhaldsstjómmálamann Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Kristján Jóhannsson Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Pavarotti Uppáhalds rithöfundur: Halldór Laxness Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjóminni: Eg er hvorki með né móti ríkisstjóm. Eg tek ofanjyrir henni þegar mérfinnst hún gera góða hluti en get verið hundóánægður með hana þess á milli. Hvað meturðu mest ífari annarra: Heiðarleika og kurteisi Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra: Oorðheldni Hver erþinn helsti kostur: Ég er jafnlyndur, þolinmóður friðsetndarmaður Hver er þinn helsti ókostur: Ég er óskipulagður trassi og langrækinn Hvetuer komfyrsta Ijóðabókin þín út: Hún kom út 1996 og heitir Sólskin Má eiga von áfrekari Ijóðabókum frá þér í framtíðinni: Eg vona að svo verði Jólanasl fyrir 13. desember Zsuzsanna Budai ásamt móður sinni Ilona í eldhúskróki í Ungceijalandi. Það er Zsuzsanna Budai, tónlistarkennari og kórstjórnandi með meiru, frá Ungverjalandi sem sýn- ir okkur hvað hún bardúsar í eldhúskróki sínum að þessu sinni. Hún gefur okkur uppskrift að Tejfölös pogácsa (Nasl með sýrðum rjóma) sem hún segir að sé mjög algengur réttur í Ungverjalandi, einmitt 13. desember ár hvert. Zsuzsanna kemur frá Szeged sem er í um 20 km fjarlægð frá Júgóslavíu. I hennar ungdæmi voru smápeningar settir inn í sumar af naslkökunum sem bakaðar voru á hennar heimili til skemmtunar fyrir börnin. Deig: Hálft kg hveiti 100 gsmjör 20 g pressuger Ein dós sýrður rjómi Ein eggjarauða Ein teskeið salt já þetta á að vera salt) Einn dl volg mjólk Ger er sett út í volga mjólkina og síðan er allt hnoðað saman í deig. Látið hefast í um tvo tíma. Degið er flatt út í 1 1/2 cm þykkt lag og mótað með formum eins og um piparkökur væri að ræða. Sett á bökunarplötur og penslað með eggjarauðum. Gott er að setja kúmen eða rifinn ost yfir, eða hvoru tveggja. Bakað við háan hita þangað til þær eru orðnar fallega gullnar. Zsuzsanna segir að afar gott sé fyrir fullorðna að drekka öl með naslinu en kakó fyrir bömin Ólafsvík Sögu- og memiingar- félag stofiiað Á dögunum var á Hótel Höfða í Olafsvík stofnað nýtt sögu- og menningarfélag. Er félaginu ætlað að halda utan um rekstur leikritsins Fróðárundrin, auk þess að vinna að hinum ýmsu málum er varða sögu og menningu bæjarins. I stjórn félagsins völdust Eygló Egilsdóttir, Sveinn Elínbergsson og Sigurbjörg Kristjánsdóttir og hafa nú þegar 24 félagar verið skráðir í félagið. Fyrsta verkefni fé- lagsins var stofhun leshrings sem kemur saman á Hótel Höfða einu sinni í viku, á mánudögum kl.20:30, og les saman. Tilhlýðilegt þótti að byrja á því að lesa Eyr- byggju og verður Sæmundur Krist- jánsson til leiðbeiningar. Er les- hringurinn opinn en greiða þarf fyrir kaffið. smh Tvær mffljónir til SHA Sjúkrahúsi Akraness hafa verið veittar tvær milljónir króna af Heil- brigðis- og tryggingaráðuneytinu, sem eru eyrnamerktar til fjölgunar krossbands- og gerviliðaaðgerðum. Sjúkrahúsið hefur undanfarið ffamkvæmt sautján krossbandsað- gerðir en biðtími eftir þesskonar aðgerðum getur verið á bilinu 3-5 mánuðir. Guðjón Brjánsson, ffam- kvæmdarstjóri Sjúkrahúss Akra- ness, sagði í samtali við Skessuhorn að SHA hefði sótt sérstaklega eftir þessari aukafjárveitingu. „Það er yfirlýstur vilji heilbrigðisráðherra að stytta biðtímann effir bæklunar- aðgerðum og þessi fjárveiting er einn liðurinn í því markmiði. Nán- ari útfærsla og umfang á þessum aðgerðum hefur ekki verið ákveð- inn en þó er búið að ákveða það að ráða annan bæklunarlækni til við- bótar þeim eina sem fyrir er,“ sagði Guðjón. HJH Andlát: Jón Þórisson Látinn er á 82. aldursári Jón Þór- isson, bóndi og kennari í Reyk- holti. Frá barnsaldri bjó Jón og starfaði í Reykholti, var íþrótta- kennari og almennur kennari við Héraðskólann í Reykholti um ára- tugaskeið. Hann kom víða við í fé- lagsmálum, var m.a. oddviti Reyk- holtsdalshrepps og starfaði að fé- lagsmálum á vettvangi ungmenna- félagshreyfingarinnar og að slysa- varnamálum. Sín efri ár nýtti Jón dyggilega til að sinna hinum ýmsu félags- og fræðistörfum og ber sér- staklega að nefna skráningu hans á ömefnum í Borgarfirði auk sögu Reykholtsskóla. Effirlifandi eigin- kona Jóns er Halldóra Þorvalds- dóttir húsmóðir og fv. símstöðvar- stjóri. Þau eignuðust 4 börn. Útför Jóns verður gerð ffá Reykholts- kirkju nk. laugardag og hefst hún klukkan 11. MM

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.