Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2005, Qupperneq 9

Skessuhorn - 26.10.2005, Qupperneq 9
^kduunuiu! '■ ' MIÐVIKUDAGUR 26: OKTOBER 2005 9 broste m ymis M! tilboð á gjofavöru www.skessuhorn.is hitablásarar ^ • í bílskúrinn © í hesthúsið Á vinnustaðinn STILLHOLT116-18 • AKRANESI SÍMI 431 3333 • model.ak@simnet.is Fráfaert úrvaf af nifjmu vörtwtc títtu' vfð fwwaZu' úrvaffó. 10% afsláttur af öllum vörum og ýmis TILBOÐ í tilefni dagsins Hestavöruverslun Opið Borgarbraut 58-60 • Borgamesi mánud.-fÖStud. kl. 10:00-18:00 simi 437 0001 & 840 3801 laugard. kl. 10:00-16:00 MÍA LINGA RDA GA Ft 30% afsláttur af hágæða íslenskri innimálningu " I tí!«— Slippfélagið LITALAND Sjávarútvegsráðherra vill endur- skoða reglur um byggðakvóta Við flytium! Einar K GuSfinnsson, sjávarútvegsráS- herra. Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra telur rétt að endurskoða reglur um úthlutun byggðakvóta sem veittur er vegna hruns fiskistofna. Hann telur það nauðsynlegt vegna þess að vandi sá sem sum fyrirtæki glíma við nú sé meiri en búist var við þegar reglur voru samdar í upphafi. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns hafa rækju- vinnslur ein af annarri hætt rekstri með tilheyrandi uppsögnum starfsfólks. Að hluta til er vanda- mál rækjuiðnaðarins tengt hruni veiða á rækju við Island. A það bæði við um innfjarðaveiði og út- hafsveiði. Eitt af þeim fyrirtækjum sem glíma við þennan vanda nú er Sigurður Agústsson ehf. í Stykkis- hólmi. I kjölfar hrrms í skelfisk- veiðum í Breiðafirði fjárfesti það fyrirtæki í veiðiheimildum í rækju sem nú eru ekki lengur til staðar vegna hruns stofna. I lögum um stjórn fiskveiða er gert ráð fyrir úthlutunum tíma- bundinna bóta til þeirra er verða fyrir skerðingum vegna minnkandi stofna. Þessar bætur eru veittar tímabundið og fara stigminnkandi væntanlega með það í huga að brestur í einstökum fiskistofnum sé einungis tímabundinn. Síðustu fréttir af skelfiskstofnum og rækju- stofnum gefa ekki ástæðu til bjart- sýni með uppbyggingu þeirra stofna. Því hafa vaknað spurningar um hvort ekki sé rétt að endur- skoða reglur þær sem unnið er eft- ir við úthlutun bóta. Einn þeirra sem rætt hefur þessi mál í gegnum árin er Einar Kristinn Guðfinns- son sem nýverið tók við stöðu sjáv- arútvegsráðherra. Nauðsynlegt í ljósi aðstæðna Einar Kristinn segir að annar hluti þeirra byggðakvóta sem hef- ur verið úthlutað á undanförnum árum eigi rætur sínar að rekja til þess, sem hann hefur kallað „þegar náttúran tekur burm veiðiréttinn." „Þar á ég við aðstæður eins og þær sem við þekkjum í innfjarðarækju- veiði og skelveiði. Það sem gerist er að aðstæður breytast og menn hafa ekki lengur veiðirétt, af því að stofninn er ekki til staðar. Það sjá auðvitað allir að mönnum eru allar bjargir bannaðar. Þeir eiga ekki möguleika. Þess vegna er ég því mjög fylgjandi að við úthlutum aflabótum til manna við þessar að- stæður. Og í rauninni hefur mér fundist ágætis sátt um það mál, af því að menn skilja aðstæðurnar og úthlutunin er efnisleg. Það er ekk- ert því matskennt við úthlutun- ina,“ segir hann. Aðspurður hvort skerðingar vegna hruns fiskistofna séu ekki meiri og þungbærari en miðað var við í upphafi segir hann svo vera. „Vandinn sem við glímum við er miklu meiri en við bjuggumst við þegar við vorum að móta reglurn- ar. Fyrst var þessum reglum beitt í Húnaflóanum, meðal annars fyrir mína áeggjan, en ég tók málið upp á Alþingi utan dagskrár á sínum tíma. A þeim tíma héldum við að úr rættist fljótlega, en annað kom því miður á daginn. Þess vegna var viðmiðunartíminn lengdur úr þremur í tíu ár, sem við héldum þá að dygði vel og það hjálpaði sann- arlega. Núna stöndum við hins vegar frammi fyrir nýjum vanda. Við vitum einfaldlega ekkert hvenær þessir innfjarðarstofnar hressast. Þess vegna ætla ég mér að fara ofan í þessi mál og endur- skoða þau, með það að markmiði að menn hafi meiri vissu fyrir ffarnan sig. Þessi óvissa er óþol- andi og veikir svo fyrirtækin og kemur í veg fyrir möguleika þeirra til að byggja sig upp að nýju. Eg tel að vel sé hægt að gera þetta innan þess byggðakvóta sem við erum með í dag. Og mín áform ganga út á það að vinna að þessari endur- skoðun innan þess ramma,“ sagði sjávarútvegsráðherra að lokum. HJ Föstudaginn 28. október nk. verður verslunin lokuð vegna flutnings. Opnum aftur laugardaginn 29. október í Hyrnutorgi, (áður útibú SPIU) SnœfeUsbœr -þar sem lökulinn ber viö loft Auglýsing um breytt deiliskipulag fyrir vistvænar þyrpingar á Hellnum, Snæfellsbæ. í samrœmi við 25. gr.skipulag- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum auglýsist hér með tillaga að breyttu skipulagi fyrir vistvœnar þyrpingar á Hellnum, Snœfellsbœ. Deiliskipulagssvæðið er 6,63 ha. í landi Brekkubæjar og hefur áður verið gengið frá deiliskipulagi svæðisins í heild. Nú er sótt um breytingar á hluta svæðisins. Gert er ráð fyrir viðbyggingu við hótelið, gestahús nyrst á svæðinu eru felld niður og í stað þeirra gert ráð fyrir sambyggðu gistirými með sér inngangi í hverja einingu. BreytingartiIIagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar, Snæfellsási 2 frá og með 27. október nk. til 17. nóvember. 2005. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til 1. desember. 2005. Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar, Snæfellsási 2. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. Smári Björnsson Skipulags- og byggingarfulltrúi Snœfellsbœjar.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.