Skessuhorn - 30.11.2005, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 30. NOVEMBER 2005
Dragnótaafli
dregst saman
FAXAFLOI: Á árinu 2004 var
afli dragnótabáta rúmlega 1.901
tonn í Faxaflóa og er það nokkur
minnkun frá árunum á undan.
Þetta kemur fram í svari Einars
K. Guðfinnssonar sjávarútvegs-
ráðherra við fyrirspum Guðjóns
Guðmundssonar á Alþingi. Á ár-
inu 2003 var aflinn tæplega 2.857
tonn, á árinu 2002 var hann
3.093 tonn og á árinu 2001 var
aflinn 2.551 torm. Af einstökum
fisktegundum má nefha að mest
hafa bátamir aflað af sandkola. Á
síðasta ári var aflinn tæp 1.137
tonn. Af dragnótaraflanum komu
tæp 147 tonn til löndunar á
Akranesi í fyrra, árið 2003 var
aflinn 190 tonn, árið 2002 var
aflinn 195 tonn og árið 2001 var
aflinn tæp 79 tonn. -hj
Nýtt togskip á
leiðinni
GRUNDARFJÖRÐUR: Guð-
mundur Runólfsson hf. í Grund-
arfirði festi fyrir skömmu kaup á
29 metra löngu togskipi í
Skotlandi. Undanfamar vikur
hefur skipið verið í breytingum í
Póllandi og leggur það af stað
heimleiðis í dag. Að sögn Guð-
mundar Smára Guðmundssonar
ffamkvæmdastjóra fyrirtækisins
kemur skipið í stað togarans
Hrings SH-535 sem fyrirtækið
hefur gert út frá árinu 1996.
Áhöfn Hrings flyst á hið nýja
skip sem fer til togveiða fljótlega
eftir heimkomu þess til Grundar-
fjarðar. Nánar verður sagt frá
hinu nýja skipi síðar. -hj
Öll tilboð undir
kostnaðaráætlun
SNÆFELLSBÆR: Síðastliðinn
miðvikudag vom opnuð tilboð í
dýpkun í höfhunum í Olafsvík og
Rifthöfh. Verkinu skal lokið eigi
síðar en 1. apríl í vor. Gert er ráð
fyrir að dýpka u.þ.b. 26.000 m3 í
Ólafsvíkurhöfh og u.þ.b. 20.000
m3 í Rifehöfh. Tilboðin vom
opnuð samtímis á skrifstofu
Hafharsjóðs Snæfellsbæjar og
skrifstofu Siglingastofnunar í
Kópavogi og bárast alls 3 tilboð.
Gáma- og tækjaleiga Austurlands
áttd lægsta boð eða 16,9 milljónir
króna en það var 71,6% af kostn-
aðáráætlun Siglingastofnunar.
Björgun bauð 18,2 milljónir sem
var 77,3% af kosmaðaráædun, en
Hagtak ehf. bauð 19,8 milljónir,
eða 83,9% af kosmaðaráædun
sem alls hljóðaði upp á 23,56
milljónir króna. -mm
Bæjarblað
til sölu
STYKKISHÓLMUR: Nýlega
var rekstur Stykkishólmspóstsins
auglýsmr til sölu, en það er Elín
Bergmann Kristinsdóttir sem
gefið hefur blaðið út undanfarin
ár. Auk þess að reka Stykkis-
hólmspóstinn felst reksturinn í
ýmsum verkefhum sem tengjast
tölvuuppsemingu, ljósrimn,
prentun, plösmn og fleiru. -mm
Veg-
tenging
Klifhrauns
Nýi vegurinn um Klifhraun við
Arnarstapa er nú við það að tengj-
ast þjóveginum við rætur Stapa-
fells. Myndin er tekin sl. sunnu-
dag.
MM
Sýslumenn fluttir til
Dómsmálaráðherra hefur ákveð-
ið að Anna Birna Þráinsdóttir,
sýslumaður í Búðardal, verði flutt í
embætti sýslumannsins í Vík. Jafh-
framt hefur ráðherra ákveðið að
Áslaug Þórarinsdóttir, sýslumaður
á Hólmavík, verði flutt í embætti
sýslumannsins í Búðardal. Öðlast
ákvarðanirnar gildi frá og með 1.
janúar 2006. Embætti sýslumanns-
ins í Vík losnaði á dögunum við
skyndilegt brotthvarf sýslumanns
þaðan. Að sögn Þorsteins Davíðs-
sonar aðstoðarmanns dómsmála-
ráðherra verður staða sýslumanns á
Hólmavík auglýst laus til umsóknar
á næstunni.
HJ
Nýtt veðurskilti vígt í Hólminum
Páll Bergþórsson, Trausti Jónsson, Lárus HalljreSsson formaður Lionsklúhhsins og Gunn-
laugur Amason, formaður nefndarinnar sem stóð að vinnunni við skiltið.
Síðasdiðinn laugardag var vígt
nýtt veðurathugunarskilti í Stykkis-
hólmi. Er það staðsett á íþróttavell-
inum og blasir við umferð í báðar
áttir. Það er Lionsklúbbur Stykkis-
hólms sem nú hefur afhent Stykkis-
hólmsbæ skiltið að gjöf.
Var þetta stórt verkefni fyrir lít-
inn Lionsklúbb og eins og formað-
urinn sagði við afhendinguna í
Norska húsinu að lokinni formlegri
vígslu skiltisins, hefðu þeir aldrei
lagt út í þetta ef þeir hefðu gert sér
fulla grein fyrir kostnaðinum.
Svona skilti er stórmerkileg farm-
kvæmd; sýnir vindátt og styrk, loft-
þrýsting og rakastig og sækir og
birtir nýjar veðumpplýsingar á 10
mínútna ffesti. Eiga Hólmarar effir
að verða montnir af þessari fram-
kvæmd og vel við hæfi að minnast
160 ára afmælis veðurathuguna í
Stykkishólmi með þessum hætti.
Frá Veðurstofu Islands kom
Trausti Jónsson og kveikti hann á
skiltinu. Einnig mætti Páll Berg-
þórsson, fyrrverandi veðurstofu-
stjóri. I Norska húsinu var síðan
fjölbreytt dagskrá og fluttu þeir
Trausti og Páll erindi um þýðingu
veðurathuguna Árna Thorlaciusar
og fleira. DSH
Sanngimisástæður mæla með
niðurfellingu virðisaukaskatts
Halldór Jónsson, hæstaréttarlög-
maður hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að skýrar forsendur samn-
ings Spalar ehf. og ríkisins sem og
sanngirnisástæður mæli með því að
íslenska ríkið hlutist til um að
skylda til að innheimta virðisauka-
skatt af veggjaldi í Hvalfjarðar-
göngum verði felld niður og kveðið
verði á um að aðgangur að vega-
mannvirkjum verði undanþeginn
virðisaukaskatti. Þetta kom ffarn í
álitsgerð sem Halldór vann fyrir
stjórn Spalar og kynnt var á aðal-
fundi fyrirtækisins fyrir skömmu.
Eins og fram hefur komið í
fréttum Skessuhorns hefur tölu-
verð umræða farið fram um hugs-
anlega niðurfellingu virðisauka-
skatts af veggjöldum og einnig
niðurfellingu veggjaldanna í heild.
Hefur umræða meðal annars farið
fram um málið á Alþingi. Á aðal-
fundi Spalar greindi Gísli Gísla-
son, stjórnarformaður fyrirtækis-
ins frá því að stjórnin hefði í des-
ember 2004 sent fjármálaráðherra
erindi og spurst fyrir um hvort
vænta mætti breytinga á inn-
heimtu virðisaukaskatts af
veggjaldinu í Hvalfjarðargöngum.
I samningum Spalar ehf. og ríkis-
ins væri ákvæði um að virðisauka-
skatmr af veggjaldi skyldi vera
14% eða hið sama og af fólksflutn-
ingum. I ljósi þess að ekki væri
innheimtur virðisaukaskatmr af
fólksflutningum hefði stjórn Spal-
ar jafnframt óskað eftir áliti lög-
fræðings á framkvæmd og efni
þessa ákvæðis í samningnum við
ríkið og varð niðurstaðan eins og
að framan greinir.
Þess má geta að senn líður að því
að greiddur virðisaukaskatmr af
veggjöldum í göngunum nemi
sömu upphæð og endurgreiddur
var þegar framkvæmdir stóðu yfir.
Sú staðreynd hefur einnig verið
vam á myllu þeirra sem leggja vilja
af virðisaukaskattinn. HJ
Vegagerðin setur upp ljósastaura
ofan HeUissands
Vegagerðin hefur ákveðið að setja
upp 11 ljósastaura á þjóðveginn ofan
Hellissands en það hefur verið bar-
átmmál íbúa þar um langt skeið.
Þegar komið er til Hellissands ffá
Ólafsvík er nú lýsing á þjóðveginum
að söluskála Esso en síðan hefur
myrkrið tekið við. Á þessum vegi er
töluverð umferð gangandi fólks og
hefur oft legið við slysum. Að sögn
Kristins Jónassonar bæjarstjóra hafa
íbúar oft kvartað við bæjaryfirvöld
vegna málsins og hefur þeim kvört-
unum verið komið til veghaldarans
sem er Vegagerðin. Þar hefur nú
verið tekin sú ákvörðun að setja upp
11 ljósastaura og er kostnaður áætl-
aður tæpar 2 milljónir króna. HJ
Fjárveiting til
menningar-
samnings
ALÞINGI: Meirihluti fjár-
laganefndar Alþingis gerir það
að tillögu sinni að framlag til
samnings við sveitarfélög á
Vesmrlandi um menningarmál
verði hækkað á næsta ári um 15
milljónir króna. Samningur
þessi var undirritaður nýlega og
samkvæmt honum munu
menntamálaráðuneyti og sam-
gönguráðuneyti beita sér fyrir
25 milljóna króna framlagi árið
2006, 27 milljóna króna ffarn-
lagi árið 2007 og 28 milljóna
króna framlagi árið 2008.
-hj
Von á tíu millj-
ónasta bflnum
HVALFJ ÖRÐUR: Ef að lík-
um lætur mun tíumilljónasti
bíllinn aka um Hvalfjarðargöng
eigi síðar en í mars á næsta ári.
Sem kunnugt er vom göngin
opnuð sumarið 1998 og hefur
umferð um þau verið margfalt
meiri en áæltað var í upphafi og
hafa nú um 9,3 milljónir bíla
farið þar um. Á síðasta rekstrar-
ári Spalar var meðalumferð um
göngin 4.460 bílar á sólarhring
sem var 14% aukning ffá fyrra
ári. I upphafi vonuðust Spalar-
menn eftir að 1.700 bílar færa
um göngin á sólarhring og þótti
það töluverð bjartsýni. -hj
Fjölskyldustefna
í mótun
GRUNDARFJÖRÐUR:
Nefnd um mótun fjölskyldu-
stefriu boðar til opins fundar í
samkomuhúsinu í Grundarfirði
í kvöld, miðvikudag. Ætlunin
er að vinnu við mótun fjöl-
skyldustefnu komi aðilar frá
stofnunum bæjarins, aðrir
hagsmunaaðilar og sem flestir
íbúar. Fyrsta skrefið í vinnu
með íbúum og hagsmunaaðil-
um er þessi fundur þar sem
kallað verður eftir því sem helst
brennur á íbúum varðandi mál-
efni fjölskyldunnar. Reynt
verður að draga ffam áherslur
og forgangsraða þeim. Fundin-
um stýrir Sigurborg Kr. Hann-
esdóttir frá Alta og starfemaður
nefndar um mótun fjölskyldu-
stefhu. -mm
Tvær vatns-
veitubilanir
GRUNDARFJÖRÐUR: Það
óhapp átti sér stað sl. fimmtu-
dag þegar vinnuflokkur RARIK
í Grundarfirði var að vinna við
plægingu jarðstrengs að stofn-
vamslögn bæjarins fór í sundur.
Önnur bilun átti sér einnig stað
sama dag þegar vatnslögn í
Fagurhól gaf sig. Bráðabirgða-
viðgerð lauk sama dag en á
laugardag var lokið við fullnað-
arviðgerð á lögninni við Fagur-
hól.
-mm
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgamesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þribjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriöjudögum.
Blabið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánubi en krónur 900
sé greitt meb greiöslukorti. Verö í lausasölu er 300 kr.
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DACA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaöamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritarar: Gfsli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhórn.is
Ófeigur Gestsson 892 4383 sf@simnet.is
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Gubrún Björk Friöriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is