Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2005, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 30.11.2005, Blaðsíða 7
utruuiar SVO MIKLU MEIRA EN HEFÐBUNDIN ORÐABÓK Þetta er afar yfirgripsmikið verk sem veitir einstaka leiðsögn um orðaval í ræðu og riti. Efnisskipan bókarinnar tryggir fjölþættari og virkari aðgang að orðabókarlýsingu en notendur hafa hingað til átt kost á. Bókin gerir rækilega grein fyrir notkun orða og orðasambanda í margvíslegu samhengi og birtir um leið skýra mynd af íslenskum orðaforða og innra samhengi hans. Rafræn útgáfa á geisladiski fýlgir bókinni og veitir margvíslega leitarmöguleika og nýja innsýn í efnið. Samfelldur flettiorðalisti með orðum og hugtakaheitum. Orðin birtast í efnislega flokkuðum samsetningum. Hugtakaheiti sameina merkingarlega samstæð orð og orðasambönd. Sérstök orða- og orðasambandaskrá veitir beinan aðgang að einstökum orðasamböndum. Skrár með enskum, dönskum og þýskum hugtakaheitum vísa erlendum notendum veginn að orðabókartextanum. Stóra orðabókin sameinar alhliða lýsingu á íslenskri málnotkun, þar sem orðin birtast í margs konar notkunarsamhengi, til dæmis orðasamböndum af ólíku tagi og samsetningum og er jafnframt samheitaorðabók. 7*$ r' Yfirgripsmesta verk sem út hefur komið um íslenska málnotkun. Bökin er yfir 1600 bls. í stóru broti.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.