Skessuhorn - 30.11.2005, Page 7
utruuiar
SVO MIKLU MEIRA
EN HEFÐBUNDIN ORÐABÓK
Þetta er afar yfirgripsmikið
verk sem veitir einstaka
leiðsögn um orðaval í ræðu
og riti. Efnisskipan bókarinnar
tryggir fjölþættari og virkari
aðgang að orðabókarlýsingu
en notendur hafa hingað
til átt kost á.
Bókin gerir rækilega
grein fyrir notkun orða
og orðasambanda í
margvíslegu samhengi
og birtir um leið skýra
mynd af íslenskum
orðaforða og innra
samhengi hans.
Rafræn útgáfa á geisladiski
fýlgir bókinni og veitir margvíslega
leitarmöguleika og nýja innsýn í efnið.
Samfelldur flettiorðalisti með orðum og hugtakaheitum.
Orðin birtast í efnislega flokkuðum samsetningum.
Hugtakaheiti sameina merkingarlega samstæð
orð og orðasambönd.
Sérstök orða- og orðasambandaskrá veitir beinan
aðgang að einstökum orðasamböndum.
Skrár með enskum, dönskum og þýskum hugtakaheitum
vísa erlendum notendum veginn að orðabókartextanum.
Stóra orðabókin sameinar alhliða lýsingu á íslenskri
málnotkun, þar sem orðin birtast í margs konar notkunarsamhengi,
til dæmis orðasamböndum af ólíku tagi og samsetningum
og er jafnframt samheitaorðabók.
7*$
r'
Yfirgripsmesta verk
sem út hefur komið um
íslenska málnotkun.
Bökin er yfir 1600 bls.
í stóru broti.