Skessuhorn - 30.11.2005, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 30. NOVEMBER 2005
■ HV.IIH...
Menntaskóla
Borgarfjarðar fagnað
Hús Verkalýðsfélags Borgamess.
Hugmyndinni um stofnun
Menntaskóla Borgarfjarðar var
fagnað þegar hún var kynnt fyrir
stjóm Verkalýðsfélags Borgamess
sl. fimmtudag og tekið var undir
óskir tun að hann rísi sem allra
fyrst. „Stjórnarmenn vora því sam-
mála að það væri fyllilega tímabært
að slíkur skóli tæki hér til starfa og
ætti hann að njóta góðs af nágrenn-
inu við tvo vaxandi og glæsilega há-
skóla í Borgarfirði. Menntaskóli
myndi fylla vel upp í þá mynd sem
Borgarfjörður er að skapa sér sem
forystusvæði í mennta- og menn-
ingarmálum á landsvísu," segir
Sveinn G Hálfdánarson, formaður
verkalýðsfélags-
ins.
Af þessu tilefni
samþykkti stjórn
Verkalýðsfélags
Borgarness ein-
róma svohljóð-
andi ályktun:
„Fundur stjómar
Verkalýðsfélags
Borgarness, hald-
inn í Alþýðuhús-
inu 24. nóv. 2005, fagnar fram-
komnum hugmyndum um stofnun
Menntaskóla Borgarfjarðar. Stjórn
félagsins leggur jafnffamt á það
áherslu að skólagjöld íþyngi ekki
nemendum meira en gjöld í sam-
bærilegum ríkisreknum skólum.
Jafnrétti til náms verður að vera
tryggt óháð efhalegri getu.“
MM
Kynningarfundur um haf-
og fiskirannsóknir
Þriðjudagskvöldið 22. nóvember víðsvegar um landið í tilefni 40 ára rannsóknir á sandsílum við Island.
var haldinn í samkomuhúsi Grund-
arfjarðar opinn kynningarfundur
um haf- og fiskirannsóknir á vegum
Hafrannsóknastofnunarinnar.
Fundurinn er einn af fjölmörgum
fundum sem stofnunin gengst fyrir
afmælis síns á árinu.
A fundinum flutm erindi þeir Jó-
hann Sigurjónsson forstjóri Haffó,
Bjöm Ævarr Steinarsson sem fjall-
aði um ástand hrygningarstofns
þorsks og Valur Bogason sem kynnti
Fundinn sóttu um 50 manns af
öllu Snæfellsnesi og reyndar víðar
og vom töluverðar umræður og fyr-
irspurnir um haffannsóknir og mál-
efni tengd starfsemi Haffó.
MM/ Ijósm: Sverrir Karlsson.
Mikill samdráttur
í aflaverðmæti í ágúst
í ágúst var landað 2.840 tonnum
af sjávarfangi til vinnslu á Vestur-
landi að verðmæti rúmar 127,6
milljónir króna. I sama mánuði í
fyrra var landað 6.272 tonnum að
verðmæti tæpar 265,7 milljónir
króna. Samdrátmr í afla er því um
54,7% á milli ára og tæp 52% í
verðmætum talið. Mikill samdrátt-
ur er í öllum helstu fisktegundum
Afinæli
Föstudaginn 2. desember nk.
verð ég fimmmgur. Af því tilefni
verðum við Sigrún J. Þórisdóttir
kona mín og börn, með opið hús í
Félagsheimilinu í Bolungarvík,
þann dag og er húsið opnað kl.
20.00. Okkur þætti mjög vænt um
að hitta þar sem flesta; frændfólk,
vini og félaga og samstarfsfólk
fyrr og síðar.
Að lokinni afmælisdagskrá
verður slegið upp balli í Félags-
heimilinu.
Einar K. Gnðfinnsson,
sjávarútvegsrdðherra.
en aukning er í löndun rækju og
norsk-íslenskri síld.
A fyrsm átta mánuðum ársins
hefur einnig mikill samdráttur
orðið. I lok ágúst hafði verið land-
að 54.863 tonnum af sjávarfangi á
Vesturlandi að verðmæti tæpar
1.815 milljónir króna. Asama tíma
í fyrra hafði verið landað 111.328
tonnum að verðmæti 3.473 millj-
ónir króna. Þessi mikli samdráttur
í aflaverðmæti hefur bein áhrif á
tekjur hafna á svæðinu auk fleiri
aðila. Á fyrstu átta mánuðum árs-
ins má ætla að tekjutap hafiia á
Vesturlandi vegna minnkandi afla-
verðmætis geti verið á þriðja tug
milljóna króna. Eins og áður hefur
komið fram í fréttum Skessuhorns
hefur orðið mikill samdráttur í
löndum uppsjávarfisks. Af tölum í
bolfisktegundum má einnig ráða
að löndunum frystitogara hafi
fækkað.
HJ
Mótmæla harðlega
skerðingu á
starfsemi lögreglu
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness
hefur sent ffá sér ályktun þar sem
mótmælt er harðlega fyrirhugaðri
skerðingu á starfsemi lögreglunnar
á Akranesi. Telur stjórnin varhuga-
vert með hliðsjón af stærð bæjarfé-
lagsins að flytja rannsókn mála í
annað umdæmi. Alyktun sína styð-
ur félagið með því að vísa í fyrri
samskipti félagsins við lögregluyf-
irvöld í Borgarnesi, en orðrétt seg-
ir: „Samskipti félagsins við lög-
regluyfirvöld í Borgarnesi vegna
atvika á starfssvæði félagsins á
Grandartanga styrkja þessa skoð-
un.“
Telur stjóm félagsins mun eðli-
legra að starfsemi lögreglunnar á
Akranesi verði efld og umdæmi
hennar stækkað og látið m.a. ná til
Grundartanga, en mikill meirihluti
þeirra sem þar starfa býr á Akra-
nesi.
„Það er mat stjórnar félagsins að
tillögur um skerðingu á löggæslu á
Akranesi sé mjög svo óeðlilegar. Sé
tekið mið af því að í næsta nágrenni
við umdæmi lögreglunnar á Akra-
nesi er mesta umferðarsvæði lands-
ins bæði á sjó og landi. Einnig hef-
ur á síðustu áram orðið gríðarleg
aukning á allri starfsemi á stóriðju-
svæðinu á Grundartanga.“
í lok ályktunar verkalýðsfélagsins
segir: „Stjórn Verkalýðsfélag Akra-
ness skorar á dómsmálaráðherra
sem og þingmenn Norðurvestur-
kjördæmis að tryggja að fyrirhuguð
skerðing á löggæslu máltnn Akur-
nesinga verði ekki að veruleika.
Einnig skorar stjórn Verkalýðsfé-
lags Akraness á dómsmálaráðherra
og þingmenn Norðvesturkjördæm-
is að beita sér fyrir því að lögreglan
á Akranesi verði efld til muna og
umdæmi hennar stækkað.“
MM
Styðja breytingar
á lögregluembættum
Bæjarstjórn Borgarbyggðar hef-
ur lýst yfir smðningi við tillögur að
breytingum á skipan lögreglumála
sem kynntar vom fyrir nokkm.
Eins og fram hefur komið í frétmm
er gert ráð fyrir að embætti lög-
reglustjórans í Borgamesi verði eitt
svokallaðra lykilembætta. I því felst
meðal armar að rannsóknardeild
lögreglunnar á Akranesi verður
lögð niður og ný stofnuð í Borgar-
nesi. Það hefur ekki fallið lögreglu-
stjóranum á Akranesi vel í geð né
bæjarstjórn Akraness.
A fundir bæjarstjórnar Borgar-
byggðar þann 17. nóvember var
samþykkt samhljóða svohljóðandi
bókun: „Bæjarstjórn Borgarbyggð-
ar tekur undir tillögur fram-
kvæmdanefndar um nýskipan lög-
reglumála. I kynningu á þeim til-
lögum era færð málefnaleg rök fyr-
ir því að lykilembætti fyrir Vestur-
land og hluta Vestfjarða sé staðsett
í Borgarnesi. I umdæmi sýslu-
mannsins í Borgarnesi er starfandi
mjög öflugt lögreglulið með mikla
reynslu og þekkingu og hefur jafh-
framt átt í góðu samstarfi við önn-
ur lögregluembætti á Vesturlandi.
Það er því álit Bæjarstjórnar Borg-
arbyggðar að tillögurnar muni ná
þeim markmiðum sínum að þjón-
usta við íbúa landshlutans í heild
sinni verði enn betri en áður og að
tekið sé tillit með þessu til ffamtíð-
aruppbyggingar á Vesturlandi öllu.
Jafnframt tekur Bæjarstjórn
Borgarbyggðar undir ábendingar
nefndarinnar um að hugað verði að
því að flytja verkefni til þeirra
sýslumannsembætta sem ekki
munu sinna lögreglustjórn í kjölfar
breytinganna. A Vesturlandi eru
samfélögin víða vel til þess fallin að
taka við fleiri opinberum verkefn-
um. Mikilvægt er að slíkar tillögur
verði unnar sem fyrst og í tengslum
við fyrirhugaðar breytingar á lög-
gæslumálum og komi til fram-
kvæmda samhliða breyttri skipan
löggæslunnar." HJ
Skuldir bænda aukast
Skuldir bænda hafa aukist meira
en tekjur. Astæðan er fyrst og
ffemst kaup á kvóta og tækjum.
Samkvæmt skýrslu Hagþjónustu
landbúnaðarins vora búgreinatekj-
ur meðalbús í fyrra 10,8 milljónir
króna, en árið á undan rétt um 10
milljónir. Hér er átt við hefð-
bundnar búgreinar, það er sauðfjár-
rækt og mjólkurframleiðslu. Af-
koman í fyrra, fyrir launagreiðslur
var svipuð eða 1,6 miljónir króna.
Eignir búanna jukust á síðasta ári
um liðlega 7%, vom um áramótin
18,6 milljónir en vom ári áður 17,3
millónir. Skuldirnar jukust líka og
bókhaldslega séð var eiginfjárstað-
an orðin neikvæð um síðustu ára-
mót. Meðalbúið skuldaði þá um 19
miljónir en árið á undan skuldaði
meðalbúið 17,2 milljónir.
MM