Skessuhorn - 30.11.2005, Blaðsíða 11
11
akUsunuij
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
Vita nú hvemig tímanum líður
Fyrir leik ÍR og Skallagríms í
körfunni sl. sunnudag afhenti
Steinunn Guðmundsdóttir skrif-
stofustjóri í Sparisjóði Mýrasýslu
íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi
stigatöflu að gjöf. Þetta er svoköll-
uð útstöð sem tengd er aðalstiga-
töflu hússins til þess að varamenn
og þjálfarar sjái stigaskor og tíma
og þurfi ekki að fara inn á völlin til
þess eins og verið hefur. „Þessi út-
stöð hefur verið draumur okkar
lengi og rætist nú auk þess sem
klukka sem verið hefur utan á
gamla sparisjóðnum fer nú upp á
gervigrasvöll til að menn sjái
hvernig tímanum líður þar. Stiga-
taflan sem sett
var upp í íþrótta-
salnum er gamla
klukkan úr í-
þróttamiðstöð-
inni í Njarðvík
þannig að það er
aldrei að vita
nema að henni
fylgi meistara-
heppni,“ sagði
Indriði Jósafats-
son íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi
sem veitti klukk-
unni viðtöku.
MM/ Ijósm: IJ
ftfíVT
Nýja stigataflan i IþróttamiSstöðinni í Borgamesi. Gaman ad
geta vígt töfluna og sýnt yfirburöi heimamanna ífyrsta leiknum
sem töflunnar naut við (jáfrétt hls 23)
Góður árangur skákkrakka í UMSB
Helgina 19.-20. nóvember fór
fram Unglingameistaramót í skák
fyrir 20 ára og yngri á Akureyri.
UMSB sendi fjóra keppendur
þangað. Tefldar voru 7 umferðir
og náði Tinna Kristín Finnboga-
dóttir 3. sæti í telpnaflokki með 4
vinninga. Bestum árangri drengja
náði Jóhann Óli Eiðsson og var
hann í 8.-9. sæti í opnum flokki
með 4,5 vinninga. Keppendur á
mótinu voru 37.
Islandsmót unglingasveita 15
ára og yngri var haldið laugardag-
inn 26. nóvember. Ein sveit fór á
vegum UMSB en hana skipuðu
Tinna Kristín Finnbogadóttir á 1.
borði, Jóhann Óli Eiðsson á 2.
borði, Fjölnir Jónsson á 3. borði
og Auður Eiðsdóttir keppti á 4.
borði auk varamannsins Gunn-
laugar Birtu Þorgrímsdóttur. 17
sveitir kepptu, flestar af höfuð-
borgarsvæðinu en einnig voru
keppendur frá Akureyri og Vest-
mannaeyjum. Það var Taflfélagið
Hellir A-sveit sem bar sigur úr
býtum með 22,5 vinninga af 28
mögulegum. I öðru sæti var Taflfé-
lag Reykjavíkur A-sveit en hana
skipuðu norðurlandameistarar
Laugalækjarskóla og fékk sveitin
20 vinninga. Sveit UMSB náði 14
vinningum af 28 í 7 umferðum
sem jafngildir annarri hverri skák
unninni en það er nákvæmlega
sami árangur og á Islandsmótinu
síðasta vetur. Besta árangri náði
Jóhann Óli en hann vann 6,5 skák
í 7 umferðum.
MM
BM Vallá ehf. auglýsir eftir
stöðvarstjóra í starfsstöð
fyrirtækisins á Akranesi en þar
er rekin steypustöð.
Við erum að leita að einstaklingi
- iðnlærðum, með reynslu úr byggingariðnaði og af meðhöndlun
steypu
- sem getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi
- sem hefur góða framkomu, á auðvelt með samskipti ogsamstarf
við aðra, bæði viðskiptavini og samstarfsfólk
- sem er skipulagður, duglegur og vinnusamur
- með tölvuþekkingu
Um er að ræða lifandi og krefjandi framtíðarstarf.
Starfið felst í almennri verkstjórn á staðnum, samskiptum við
viðskiptavini fyrirtækisins, skipulagningu á útkeyrslu og
afhendingu steypu o.fl. Mikil áhersla er lögð á skipulögð vinnubrögð
og árangur í starfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst og sé eldri en 35 ára.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Arnason í síma 860 5010.
Vinsamlegast sendið umsóknir á sigurdur@bmvalla.is en þar þarf
að koma fram upplýsingar um menntun, fyrri störf, aldur og annað
sem viðkomandi vill taka fram.
BM Vallá ehf.
BM-VALIÁ Bíldshöfða 7
www.skessuhorn.is
kynnið ykkur atvinnumöguleikana í rafiðnaði
Rafiönaðarsamband Islands, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík, sími: 560 5200, bréfasími: 580 5220, rsi@rafis.is