Skessuhorn - 30.11.2005, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 30. NOVEMBER 2005
31ESSUII0BKI
Jöfii kynjahlutföll í skautsmiðju
Norðuráls á Grundartanga
Kvennastörf eru ekki það fyrsta
sem mönnum dettur í hug þegar
störf í álverksmiðjum eiga í hlut.
Því vakti það óneitanlega athygli í
síðustu viku þegar Norðurál á
Grundartanga auglýsti eftir starfs-
fólki vegna stækkunnar fyrirtækis-
ins að lögð var áhersla á jafna
möguleika karla og kvenna til starfa
á þeim vettvangi. A undanförnum
árum hefur konum farið fjölgandi í
störfum hjá Norðuráli og er nú svo
komið að til dæmis í skautsmiðju
fyrirtækisins eru hlutföll kynja jöfh.
I skautsmiðjum álvera eru skaut
úr kerskálanum endurnýjuð og slík-
ir vinnustaðir voru löngum ein-
göngu mannaður körlum. Starfs-
menn skautsmiðju Norðuráls eru
nú 24 að tölu en þeim verður fjölg-
að nokkuð fyrir áramót. Sveinn
Snæland framkvæmdastjóri
skautsmiðjunnar segir ákvörðun
hafa verið tekna á sínum tíma að
fjölga konum í smiðjunni. „Þegar
fyrsta konan kom hér til starfa kom
í ljós að þrátt fyrir að störf hér séu
eðli málsins vegna frekar óþrifaleg
hentaði starfið konum mjög vel.
Ekkert í starfinu sem slíku segir að
konur geti ekki
unnið það. Einnig
höfðu konurnar
mjög góð áhrif á
vinnustaðinn í
heild bæði vinntma
sjálfa og einnig
vinnuandann og
því höfum við
markvisst stefht að
því að hafa kynja-
hlutföll hér jöfh,“
segir Sveinn.
Eins og fram
hefur komið í
fréttum hefur að
undanförnu staðið
yfir stækkun ál-
versins og hefur
það haff mikil áhrif
á starfsaðstæður í
skautsmiðjunni.
„Olíkt öðrum
deildum fyrirtækis-
ins hefur stækkunin haft mikil áfrif
á dagleg störf starfsmanna í smiðj-
unni þar sem starfsemi hennar
mátti ekki stöðvast. Hafa starfs-
mennirnir staðist þá raun með
miklum sóma og nú sér sem betur
fer fyrir endann á þeim fram-
kvæmdum,“ segir Sveinn.
Við stækkun fyrirtækisins verða
nokkrar breytingar á daglegri starf-
semi skautsmiðjunnar sem varð til
þess að nokkrir starfsmenn þurftu
að færa sig til innan fyrirtækisins og
því hafa verið ráðnir nokkrir nýir
starfsmenn umfram þann fjölda
sem stækkun verksmiðjunnar
krefst.
Nýtt vaktafyrirkomulag
I skautsmiðjunni standa einnig
fyrir dyrum athyglisverðar breyt-
ingar á vaktafyrirkomulagi. Nú er í
undirbúningi að taka í notkun
vaktakerfi af sænskum uppruna sem
heitir „Time care.“ I því kerfi geta
starfsmenn sniðið vaktir sínar að
sínum eigin þörfum. Kerfi þetta
hefur meðal annars verið nýtt í
heilbrigðiskerfinu en að sögn
Sveins verður Norðurál fyrsta fyrir-
tækið af þessari gerð sem nýtir það.
Sveinn segir að með þessu sé reynt
að laga vaktavinnukerfi að þörfum
hvers og eins þar með talið fjöl-
skyldufólks. Sumum hentar til
dæmis að vinna tvö kvöld í viku
einn mánuð en fleiri annan. Þarfir
manna og geta er svo misjöfti og
erfitt hefur reynst að mæta þeim í
hefðbundnum
vaktavinnukerfum.
„Þótt ótrúlegt sé þá
er það reynsla þessa
kerfis að ríflega
75% óska starfs-
fólks fást uppfylltar
í hvert skipti og því
þarf einungis að
púsla saman milli
fimmtungs og
fjórðungs hvers
tímabils. Það er
gert með aðstoð
tölvukerfis. Með
því að taka að sér
óvinsæla daga til
vinnu geta menn á-
unnið sér rétt til
þess að hafna vinnu
síðar. Einnig geta
menn unnið af sér
ákveðinn tíma og
einnig skuldað
vinnutíma allt eftir aðstæðum
hverju sinni,“ segir Sveinn. Hann
kveðst mjög bjartsýnn á að þetta
nýja kerfi verði vinsælt því með því
eru aðstæður hvers og eins starfs-
manns settir í öndvegi. I upphafi
verða vaktir ákveðnar einn til tvö
mánuði ffam í tímann með þessu
nýja fyrirkomulagi.
Aðspurður hvort hann telji að
þetta kerfi verði notað í öðrum
deildum fyrirtækisins segir hann að
tíminn verði að leiða það í ljós.
Verði reynslan af því jafn góð og
hann telji þá muni fleiri deildir án
efa taka það upp. Skautsmiðjan hafi
hins vegar orðið fyrst vegna þess að
breyta þurfti vaktafyrirkomulagi
þar í kjölfar stækkunar verksmiðj-
unnar.
„Að undanförnu hefur verið mik-
ið álag á starfsmenn skautsmiðjunn-
ar og þeir hafa staðið saman sem
einn maður. Því er nú gleðilegt að
geta boðið nýju starfsfólki vinnu á
vinnustað þar sem glaðværð, sam-
staða og jafnrétti ríkir auk þess sem
hlúð er að aðstæðum hvers og
eins,“ segir Sveinn að lokum.
HJ
I byggingu eru tvö einbýlishús og tvö parhús (4 íbúðir)
við Stööuisholt nr 1, 3,2-4 og 6-8 í Borgarnesi:
Húsin eru boðin til sðiu
á byggingarstiginu:
Fulibúin að utan með
grófjafnaðri lóð.
Að innan: Tiibúin undir
mátningu og með
milliveggjum, raf-og
hitalögnum.
Afhendingartími á ofangreindu byggingarstigi er
mars 2006. Allar nánari upplýsingar Hjá
Lögfræðistofu Inga Tryggvasonar sími 4371700
Söfuaðili:
Lögfræöistofa Inga
Byggingaraðili:
Framkvæmdaaðiíi:
Hönnun:
Nýhönnun
M2 Ráðgjöf
Hús og Hönnun
I as- Mmsstt 1
[ff \ \ \ I % I V I V I V I