Skessuhorn - 30.11.2005, Side 19
19
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
Lára María Karlsdóttir fer með hlutverk litlu stúlkunnar með eldspýtumar.
Lida stúlkan með eld-
spýtumar í
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
stendur um þessar mundir fyrir
sýningu á atriðum úr söngleiknum
„Litla stúlkan með eldspýturnar,"
sem byggð er á sögu H.C. Ander-
sen.
„Tónlistarskólinn vill minnast
200 ára afmælis ævintýraskáldsins
og er þessi sýning líka mjög jólaleg
þannig að það hentar vel að vera
með hana nú á aðventunni. Nem-
endurnir sem taka þátt í sýningunni
eru allir á grunnskólaaldri, koma
allsstaðar að úr héraðinu og eru að
læra á hin ýmsu hljóðfæri," segir
Theodóra Þorsteinsdóttir skóla-
stjóri í samtali við Skessuhom.
Tónlistin í söngleiknum er effir
Keith Strachan og íslenska þýðing-
in eftir Gísla Rúnar Jónsson.
Theodóra Þorsteinsdóttir stýrir
bæði tónlist og leik, Jónína Erna
Arnardóttir leikur með á píanó og
Borgamesi
einnig leika nokkrir nemendur á
hljóðfæri í sýningunni.
„Það er búið að vera líf og fjör í
tónlistarskólanum undanfarna
daga og stefnum við að því að hafa
fimm sýningar. A morgun,
fimmtudaginn 1. desember klukk-
an 20:00 verður frumsýning, tvær
sýningar verða á föstudaginn
klukkan 18 og kl. 20, á sunnudag-
inn 4. desember kl. 17 og síðasta
sýningin verður svo á mánudaginn
kl. 18. Við vonum að Borgfirðing-
ar og aðrir komi og sjái þessa
skemmtilegu sýningu sem verður í
sal Tónlistaskóla Borgarfjarðar að
Borgarbraut 23 í Borgarnesi,“ seg-
ir Theodóra.
Þetta er þriðja sýningin sem sett
er upp í Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar frá því að skólinn fékk nýtt
húsnæði fyrir tveimur ámm.
MM
Almannavamir o g
hópslysaáædun
Sýslumaðurinn
Akranesi og yfirlög-
regluþjónn sátu í vik-
unni fund með for-
ráðamönnum SHA þar
sem farið var yfir
reynslu af hópslysaá-
ædun SHA og ffam-
kvæmd hennar.
Farið var jafnframt
yfir helstu þætti sem
lúta að viðbrögðum og samstarfi
viðbúnaðaraðila á þjónustusvæðinu
og rýnt í þær aðstæður sem upp
kunna að koma á Akranesi og í ná-
grenni í tengslum við hópslys. Þar
var einkum horft til umferðar-
þunga á vegum í grennd við bæinn
og ekki síður hinna stóm atvinnu-
fyrirtækja á svæðinu. Fram kom á
fundinum að bylting hafi orðið í
fjarskiptamálum viðbúnaðaraðila
með uppsetningu Tetra kerfis sem
lauk snemma á þessu ári og að ör-
yggi björgunaraðila í störfum sín-
um sé nú stóraukið. Samræming
aðgerða og markviss viðbrögð séu
mun auðveldari nú en fyrr, það hafi
komið glögglega í ljós á stórri
hópslysaæfingu sem haldin var í
Hvalfjarðargöngum um miðja apríl
s.l. Akveðið var að efna til annars
samráðsfundar með embættti
sýslumanns og forráðamönnum
SHA í janúar og í ffamhaldi af því
að stefna að svokallaðri skrif-
borðsæfingu í samstarfi við Al-
mannavarnarnefnd ríkislögreglu-
stjóra en beiðni þess efnis hefur
legið fyrir um skeið.
Sha.is
Ovenju hár loft-
þiýstingur á landinu
A síðasta föstudag stóð loftvogin
óvenju hátt hér á landi. Þannig
mældist loftþrýstingur 1048 hPa (-
hektó-paskal) í Bolungarvík. Er
það hæsta staða loftvogar hérlendis
frá því í apríl 1991, en þá sýndu
loffvogir allt að 1050 hPa. Dagleg-
ar loftþrýstingsmælingar hafa verið
hér á landi ffá 1820 og þar af nær
samfellt og daglega í Stykkishólmi
frá árinu 1845. Lofvægið hefur
sárasjaldan farið yfir 1050 hPa á
þessum 185 árum sem mælingamar
ná til. Hæsta gildið er 1058,4 hPa
ffá árinu 1841 og í Stykkishólmi
mældist í desember 1917 1054,2
hPa. Síðan þá hefúr aðeins í þrí-
gang gerst að loffvægið hefur farið
yfir 1050 hPa, árið 1962, 1977 og
1991.
Hár loftþrýstingur að þessu sinni
er af völdum öflugs og víðáttumik-
lis háþrýstisvæðis sem undanfarna
daga hefur verið suðvestur og vest-
ur af Islandi.
MM
^oícitred a ^yÍLra torcj i
tendruo
.loóin
cJdaucjardaCjinn 3. de áember n. b. IJ: 16:00
()a fioáin tendru<t
ueröa IjoáLn lenaruö a
fatrénu a^ydbratorcji.
dóicdréJer cjjöf^djónder, vinatœjar^jjLraneóó í <LJ>anmörlm.
^Juíitrui fírá Lorrcenabéiajinu á^dLraneói ajenclir tréJ
o<ý mun (juxtmunclur pátf donóóon, tœjarótjóri, i/eita
jo i/i viðtöLu fyir Lönd^dL raneóLaupótadar.
yiLraneóó iítitur ióiaiöq undir ótu
raneóó fltjtur jótalocj undir óljorn
^JJe Jrimar^Jdám undardóttur.
JóL
óueinarmr
Loma í LeimóóLn.
ylt raneábaupátadur - ^drnarda Íi
ur
r
Akraneskaupstaður
Auglýsing
um deiliskipulag á Akranesi
Tillaga að deiliskipulagi í Skógarhverfi á Akranesi
- 1. áfanga.
Með vísan til 25.gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi Skógarhverfis - 1. áfanga.
1
Svæðið er skipulagt á grundvelli nýs aðalskipulags Akraness 2005-2017 sem er einnig í kynningu.
Deiliskipulagið nær yfir svæði norðan við Flatahverfi og austan Þjóðbrautar og kallast Skógarhverfi.
Fyrsti áfangi Skógarhverfis er um 12,2 ha að flatarmáli.
Ibúðabyggðin í þessum áfanga er tvískipt, annars vegar eru 94 íbúðir í einnar og tveggja hæða
einbýlis- par- og raðhúsum og hins vegar 178 íbúðir í tveggja til fjögurra hæða fjölbýlishúsum.
Hverfið verður s.k. 30 km svæði með hámarksökuhraða 30 km/klst. og miðast gerð gatnakerfis
og útfærsla við það.
Tillögurnar liggja ffammi á skrifstofu tækni- og tunhverfissviðs Akraneskaupstaðar
að Dalbraut 8, Akranesi, frá 30. nóvember 2005 til og með 28. desember 2005.
Þeh sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefmn kostur á að gera skriflegar athugasemdir.
Frestux til að skila inn athugasemdum er til 11. janúar 2006 og skulu þær berast á bæjarskrifstofur
Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
I Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Akranesi 24. nóvember 2005,
ÞorvaldurVfestmann - sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs Akmneskaupstaðar