Skessuhorn - 30.11.2005, Qupperneq 22
22
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
aii£89UllUu.
*
Bókaveisla í Klifi
Það var sannkölluð
bókaveisla í Klifi í
Ólafsvík sl. miðvikudag
en þá var lesið uppúr
fjórum nýútkomnun
bókum. Þeir höfundar
sem lásu voru þau Sús-
anna Svavarsdóttir en
hún las úr bók sinni
Dætur hafsins, Þor-
steinn frá Hamri las úr
ljóðabók sinni Dyr að
dauðum. Þá las Arni
Þórarinsson úr bók
sinni Tími nornarinnar og í forföll-
um Þorsteins Vilhjálmssonar las
Þorgrímur Þráinsson úr bók hans
Guðni Bergs - fótboltasaga. A milli
þess sem höfundar lásu þá kynnm
nemendur úr 10. bekk Grunnskóla
Snæfellsbæjar höfundana. Enn-
ffemur sáu þau um sölu á vöfflum
og heitu súkkulaði í hléi og rann á-
góði í ferðasjóð þeirra. Fjöldi fólks
úr bæjarfélaginu kom og naut
góðrar stundar á Klifi þetta kvöld.
Það voru Framfarafélag Ólafevíkur
og lista- og menningarnefnd Snæ-
fellsbæjar sem sáu um framkvæmd-
ina og er þetta árlegur og skemmti-
legur liður í starfsemi þeirra er líð-
ur að jólum. PSJ
Smekkleg gjöf
Nú í nóvember komu starfsmenn
Islandsbanka á Akranesi færandi
hendi til yngstu barnanna á Vallar-
seli en þá færði Svala Pálsdóttir
starfsmaður bankans leikskólanum
50 Georgs-smekki ffá bankanum.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd voru börnin ánægð með nýju
smekkina enda afar smekklegir.
MM
Dansað inn í aðventuna
Danskrakkarnir úr Borgarfjarð-
arsveit kepptu á Jóladansmóti á
Broadway um helgina. Þetta var
óvenjulegt dansmót að því leyti að
dómarar voru þjóðþekktir Islend-
ingar. Ber þar fyrsta að telja Dorrit
forsetafrú, Þorgerði Katrínu
menntamálaráðherra, Davíð Smára
Idolstjörnu, Róbert Wessmann for-
stjóra Actavis og Svövu Johansen
framkvæmdakonu. Fimm pör úr K-
hópnum kepptu á þessu móti og
náðu þau sannarlega að heilla dóm-
nefndina því þau komust öll í úrslit
og tvö pör í verðlaunasæti. Hjálm-
ur Arnason og Katrín Sigurðar-
dóttir í 2. sæti og Gunnar Ingi
Friðriksson og Bergþóra Bergs-
dóttir í 3. sæti.
Það er í ýmsu að snúast hjá þeim
dönsurunum og er stefnt á að þau
komi fram á næsta körfuboltaleik í
Borgarnesi fyrir leik og í hléi.
EA
Ljósakrossar á leiði
Síðastliðinn laugardag hófu fé-
lagar í Lionsklúbbi Akraness af-
greiðslu á ljósakrossum til uppsem-
ingar á leiðum í kirkjugarðinum á
Akranesi. Um er að ræða upplýsta
krossa sem leigjast frá fyrsta í að-
venm til og með síðasta dags jóla, á
þrettándanum. Þetta er sjötta árið í
röð sem félagsmenn bjóða slíka
krossa til leigu og er hefð þessi orð-
in aðal fjáröflunarleið klúbbsins
síðan Ijósaperusalan lagðist af
vegna dræmrar sölu. Agóði leig-
unnar rennur svo óskipmr til líkn-
armála en síðastliðin ár hefur
klúbburinn til að mynda afhent
Sjúkrahúsi Akraness nauðsynlegan
tækjabúnað af einhverju tægi. BG
Heiðar valinn fþróttamaður
Grundaríjarðar
Heiðar Geirmundsson meiI verðlaunabikar og blóm.
Síðastliðinn laugardag var lýst
kjöri íþróttamanns Grandarfjarðar
á fjölskyldusamkomu í Samkomu-
húsinu sem kvenfélagið Gleim mér
ei stóð fyrir. Meðal annarra dag-
skrárliða má nefna jólabasar og svo
gám allir gætt sér á kaffi og rjúk-
andi vöfflum. Það er íþrótta- og
tómsmndanefnd Grundarfjarðar
sem velur íþróttamann Grandar-
fjarðar að undangengnum tilnefn-
ingum frá íþróttafélögunum. Að
þessu sinni var íþróttamaður bæjar-
félagsins kjörinn Heiðar Geir-
mundsson UMFG fyrir ffjálsar í-
þróttir.
Heiðar er einn fremsti íþrótta-
maður sem Grandfirðingar eiga í
dag. Hann er búinn að eiga frábært
keppnisár og slá nokkur met. Hann
tvíbætti héraðsmetið í sleggjukasti í
sumar um rúma 7 metra og bætti
síðan 30 ára gamalt kúluvarpsmet
um 16 cm. Hann kom heim með
tvö gull af Héraðsmóti HSH og á
Steinþórsmóti UMFG var hann
stigahæsti einstaklingurinn og setti
þar stigamet. A þessu ári hefur
Heiðar einnig keppt í kraftlyftmg-
um og staðið stig frábærlega. Hann
hefur í sumar tekið þátt á hálanda-
leikunum og verið þar á meðal efstu
manna á öllum mótum. Heiðar er
einstaklega prúður íþróttamaður og
mörgum yngri mikil fyrirmynd.
AS þessu sinni var óvenju margtfólk mœtt á fjölskyldusamkomu kvenfélagsins í Sam-
komuhúsinu. Hérfylgjast gestir meS kjirri íþróttamanns ársins.
Aðrir sem tilnefnir voru:
Jóhann Kristinn Ragnarsson af
Hesteigendafélagi Grundarfjarðar •
fyrir hestaíþróttir.
Jóhanna Steinþóra Gústafsdóttir af
UMFG fyrir sund.
Pétur Vilbergur Georgsson afGolf-
klúbbi Vestarr fyrir golf
Sædís Karlsdóttir af UMFG fyrir
blak
Tryggvi Hafsteinsson af UMFG
fyrir fótbolta. MM/ Ijósm: SK
Fimm ára afmæli Hymutorgs
Um liðna helgi var afmælishátíð í
verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi í
Borgarnesi en þá vora liðin 5 ár ffá
því húsið var tekið í notkun. 10
verslunar- og þjónustuaðilar era
þar nú til húsa. Nokkrar breytingar
hafa á þessum áram orðið á safhi
þjónustuaðila í húsinu. Þeir sem
uppranalega vora og era enn era
Blómabúð Dóra, Vís, Skóbúðin
Borg og ÁTVR. í nokkram versl-
unarrýmum hafa nýir aðilar tekið
við af öðram og má þar nefna Sóló
hársnyrtistofu, Borgarsport,
Knapann, Lyfju, Ljóshraða og
Samkaup Urval sem er í stærsta
hluta hússins þar sem uppranalega
var Kaupfélag Borgfirðinga.
Mikið var um að vera á föstudag
og laugardag í tilefni afmælisins.
Skemmtidagskrá og ágæt af-
mælistilboð í verslunum. Á laugar-
dag var boðið upp á kökur og kaffi,
Freyjukórinn söng, Bjartmar
Hannesson kynnti nýútkominn
disk sinn, Maggi í Ási áritaði bók
sína og fleira var gert til hátíðar-
brigða, enda var margt um mann-
irm og hlýleg aðventustemning í
Borgarnesi. MM
{