Skessuhorn - 26.04.2006, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006
Sektaður
fyrir
ýmislegt
Héraðsdómur Vesturlands
hefur dæmt bifreiðarstjóra í 120
þúsund króna sekt fyrir að hafa
ekið vanbúinni flumingabifreið
og einnig að hafa verið án öku-
skírteinis. Þá var biffeiðastjór-
anum einnig gert að greiða 102
þúsund krónur í málskostnað. I
dómnum kemur fram að bif-
reiðastjórinn hafi ekið vörubif-
reið sinni norður Vamaleið og
austur Snæfellsnessveg. Stöðu-
ljós festivagns vom óvirk og 6
hjólbarðar hans voru svo slitnir
að ófullnægjandi mynsmr var á
dekkjunum. Þá var heildar-
þyngd bíls og vagns um 60 tonn
en mátti aðeins vera um 44
tonn. Þá var ákærða einnig gefið
að sök að hafa hunsað fyrirmæli
lögreglu með því að aka fyrir-
varlaust á brott þegar lögregla
var að skoða bifreiðina.
HJ
Til minnis
Skessuhorn vill minna á Öld-
ungamót BLÍ sem haldið verð-
ur í Snæfellsbæ dagana 28. -
30. apríl. Vafalaust frábært
fjör, enda munu um þúsund
manns víðsvegar af landinu
mæta.
VefhYrftorftYr
Það verða vestlægar áttir ríkj-
andi á fimmtudag og föstudag
með lítilsháttar þokusúld. Suð-
læg átt og rigning um helgina
og á mánudag, þá einkum
sunnan- og vestantil. Það verð-
ur milt í veðri og vonandi er
sumarið þar með komið fyrir
alvöru.
SptYrniw) viKnnnar
Spurt var í síðustu viku á vef
Skessuhorns hvort einstakling-
ar telji von á björtu og góðu
sumri. 79,2 % svarenda eru
bjartsýnir á gott sumar, 12,3 %
segjast ekki geta spáð til um
það og 8,5 % svarenda voru
heldur svartsýnir og telja að
sumarið verði ekki bjart og
gott. Nú skulum við vona að
meirihlutinn hafi rétt fýrir sér.
í næstu viku spyrjum við:
„Er bíllinn þinn
kominn á
sumardekk?"
Svaraðu án undanbragða
á www.skessuhorn.is
VestlendintjiYr
vikiYnnar
Að þessu sinni veljum við
Borghildi, forystuhænu Stykk-
ishólms, Vestlending vikunnar.
Þarf hún ásamt priksystrum
sínum sökum meintrar
fuglaflensu að flytja sig um set
í annan fjórðung þar til tekist
hefur að komast fyrir
óværuna.
Dalabyggð styrkir
byggingu reiðhaJlar
Á aukafundi sem haldinn var í
sveitarstjóm Dalabyggðar í síðustu
viku var samþykkt samhljóða að
veita 15 milljóna króna styrk tdl
byggingar reiðhallar í Búðardal og
einnig að veita 400 þúsund króna
árlegan styrk til rekstrar reiðhallar-
innar í fimm ár. Það er Hesta-
mannafélagið Glaður sem standa
mun fyrir byggingunni og mun
sækja um 30 milljóna króna styrk til
landbúnaðarráðuneytisins. Eins og
fram hefur komið í fféttum Skessu-
horns ákvað ríkisstjórnin fyrir
nokkra að styrkja gerð reiðhalla og
reiðskemma í öllum landshlutum. I
kjölfarið hefur hafist mikið kapp-
hlaup milli hestamannafélaga og
sveitarfélaga um byggingu slíkra
húsa.
A fundi sveitarstjórnar kom ffam
að nú þegar liggi fyrir viljayfirlýs-
ingar ffá Grunnskólanum í Búðar-
dal, Ungmenna- og tómstundabúð-
um á Laugum og Hjúkranarheimil-
inu Fellsenda um notkun á húsinu.
Jafnframt var lögð fram yfirlýsing
ffá Saurbæjarhreppi þar sem fram
kemur að sveitarstjórn hreppsins er
meðmælt því að sveitarstjórn Dala-
byggðar samþykki styrkveitinguna
og að einnig verði veittur árlegur
rekstrarstyrkur ffá sveitarfélaginu
en sem kunnugt er hefur sameining
Saurbæjarhrepps og Dalabyggðar
verið ákveðin.
Styrkveiting Dalabyggðar er háð
því skilyrði að styrkveiting ríkis-
sjóðs fáist. HJ
Vilja fiskmarkað og veitingastað
við Faxabraut
Faxaflóahafnir sf. hafa í undir-
búningi byggingu húss á lóðinni nr.
3 við Faxabraut á Akranesi. I bréfi
ffá Gísla Gíslasyni hafnarstjóra til
bæjarráðs Akraness kemur ffam að
hugmyndin sé sú að á lóðinni rísi
tveggja hæða hús. A neðri hæðinni
yrði Fiskmarkaður Islands hf. með
aðstöðu og á effi hæðinni gæti ver-
ið veitingastaður eða önnur starf-
semi. I bréfi hafnarstjórans kemur
fram að ef afstaða bæjarins til verk-
efnisins verði jákvæð sé næsta skref
í málinu að vinna frekar að innrétt-
ingum á neðri hæð með Fiskmark-
aði Islands og leita eftir samstarfs-
Tölvuteikning af væntanlegu húsifyrir fiskmarkað og veitingastað.
aðila „sem myndi eiga efri hæð þykkti að boða hafnarstjóra Faxa-
hússins,“ eins og segir í bréfinu. flóahafna til viðræðna um málið.
Bæjarráð tók vel í málið og sam- HJ
Nýtt stjómsýsluhús brátt
vígt í Borgamesi
Iðnaðarjnenn legg/a lokahönd á fi-amkv<e?ndirnar.
Páll S Brynjarsson, hæjarstjóri gerir ráð
fyrir að annan fóstudag verði flutningi í
húsið að mestu lokið.
Gamla hús Sparisjóðs Mýrasýslu
við Borgarbraut 14 í Borgarnesi
hefur heldur betur fengið andlits-
ljrftingu innan dyra en brátt mun
bæjarskrifstofa Borgarbyggðar
flytja þangað. Húsinu hefur verið
mikið breytt og lögð áhersla á gott
aðgengi fatlaðra. Lyfta er í húsinu,
en á gömlu skrifstofunni var að-
gengi ábótavant. Afgreiðsla, fund-
arsalir og skrifstofur era á hæðun-
um tveimur en kjallarinn er að
mestu óbreyttur en mvm nýtast vel
sem slíkur. Aætlað er að iðnaðar-
menn ljúki framkvæmdum um
næstu helgi en eftir á að koma fyrir
rampi utandyra við aðalinnganginn
fyrir hjólastóla. SO
Borgfirðingahátíð á vegum UMSB
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar hefur tekið að sér að sjá um
Borgfirðingahátíð þetta árið. Er
þetta sjötta árið sem hátíðin er
haldin og hefur hún vaxið með
hverju árinu. Hátíðin er alltaf aðra
helgina í júní og ber hún því upp á
9. til 11. júní að þessu sinni. Hún
hefst á fimmtudagskvöldi en er
formlega sett á föstudeginum með
baðstofukvöldi, en það hefur verið
frá upphafi og jafnan með fjöl-
breyttri skemmtidagskrá. Fleira
sem haldist hefur á dagskrá Borg-
firðingahátíðar er á dagskrá og má
þar nefna fjallgöngu, útidansleik,
skemmtiatriði á laugardegi með
markaði og leiktækjum og svo hinn
rómaði morgunverður í Skallagrís-
garði á sunnudagsmorgni og úti-
Frá morgunverði í Skallagrívisgarði ífyrra.
messu að honum loknum. Síðan
bætist við þessa dagskrárliði fjöld-
inn allur af uppákomum um allt
héraðið. Ekkert kostar inn á hátíð-
ina nema Baðstofukvöldið, en þar
verður gjaldi stillt í hóf. MM
*
Askrífit hækkar
SKESSUHORN: Frá 1. maí nk.
hækkar bæði áskriftar- og lausa-
söluverð á Skessuhomi. Einkum
er tvennt sem kemur tdl. Þyngst
vegur að ýmsir kostnaðarhðir við
útgáfuna hafa verið að hækka
umtalsvert á umliðnum vikum og
mánuðum og ljóst að hækkandi
verð aðfanga, svo sem pappírs,
vegur þungt í rekstrinum. Annað
sem veldur þessari hækkun er sú
ákvörðun að halda blaðinu að
jafnaði í 24 síðum, en það er 50%
stærra blað en héraðfréttablöð
oftast eru. Undanfama mánuði
höfum við gert tilraunir með að
halda útgáfunni í þetta stóru og
efnismiklu blaði og hefur það
mælst mjög vel fyrir af lesendum
Skessuhorns. Efnismeira blað
kallar hinsvegar á að fleiri þurfa
að koma að skrifum og efnis-
vinnslu með tilheyrandi kosm-
aði. Aður en ákvörðun um hækk-
un var tekin var gerð úttekt á
áskriftarverði annarra héraðs-
fréttablaða hér á landi og reynd-
ust þau nær öll vera dýrari. Þrátt
fyrir hækkun nú verður áskriftar-
verð í kringum meðalverð ann-
arra héraðsfréttablaða. Eftir
hækkunina kostar almenn mán-
aðaráskrift 13 00 krónur, þeir sem
greiða með greiðslukorti greiða
1200, en elli- og örorkulífeyris-
þegar greiða 950 krónur. Lausa-
söluverð hækkar í 400 krónur frá
1. maí. -ritstj.
Vígsla íþrótta-
hússins
REYKHÓLAR: Nýja íþrótta-
húsið á Reykhólum verður vígt
nk. laugardag, 29. apríl og hefst
dagskráin klukkan 13. Þar mtm
Einar Thorlacius, sveitarstjóri
bjóða menn velkomna, Karl
Kristjánsson á Kambi, formaður
byggingarnefndar rekur bygg-
ingarsögu hússins, Sr Sjöfn Þór
vígir það og gestir flytja ávarp. Þá
verður brugðið á leik í húsinu en
að athöfn lokinni býður hrepps-
nefitd upp á veitingar sem kven-
félagið Katla sér um. Allir
hreppsbúar og aðrir velunnarar
og gestir eru velkomnir. -mrn
Fundur um nor-
rænt samstarf
BORGARNES: Norræna félag-
ið á Islandi og félagsdeildimar í
Borgarfirði, Stykkishólmi og á
Akranesi halda opinn firnd að
Hótel Hamri í Borgamesi mið-
vikudaginn 26. apríl kl. 20.00.
Þar eru allir velkomnir til fundar
við Norræna félagið til að heyra
um ijölbreytt tækifæri fyrir alla í
norrænu samstarfi, ræða um
hlutverk Norrænu félaganna og
hugmymdir að nýjum og áhuga-
verðum verkefnum og ekki síst
þiggja gott kaffi, te og meðlæti.
-nim
Þörungaverk-
smiðjan stækkar
REYKHOLAR: Skipulags- og
bygginganefnd Reykhólahrepps
samþykkti fyrir nokkru beiðni
Þörangaverksmiðjunnar hf. um
stækkun á verksmiðjuhúsnæði
félagsins í Karlsey á Reykhólum.
Um er að ræða 236 fermetra
stálgrindarhús. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Þörungaverksmiðj-
unni verður nýjum pökkunar-
búnaði komið fyrir í viðbygg-
ingunni. Framkvæmdir munu
hefjast innan skamms. -hj