Skessuhorn - 26.04.2006, Blaðsíða 7
SSBSSgiW^lBIM
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006
7
KB banld í nýtt hús
"GÆÐAKERfí
v; '
Vorboðinn
ljúfi
Lóan er komin. Þessa mynd tók
Jón Torfi Arason, fréttaritari
Skessuhorns í Stykkishólmi sl.
mánudag. Heldur var kuldalegt
um að litast í bænum og vafalítið
hefur farið hrollur um farfuglinn,
en spáin lofar góðu fyrir fugla og
menn.
Síðastliðinn föstudag flutti starfsemi útibús
KB banka í Borgarnesi í nýtt og glæsilegt
húsnæði að Brúartorgi 4. Af þessu tilefni var
mikið um dýrðir, kökur og veitingar í boði og
sumarhátíð á laugardeginum þar sem í bland
fór skemmtun, leikir og íþróttir.
Meðal armarra gesta mætti Björgvin Frans
Gíslason og sá um skemmtidagskrá og kynnti
dagskrárliði, Idol stjarnan Snorri Snorrason
tók nokkur lög og hafði mikið að gera í eig-
inhandar áritunum og grunnskólabörn sáu
um andlitsmálningu og fluttu atriði úr
Ávaxtakörfunni. Söguhlaup KB banka og
UMSB var í fyrsta skipti hlaupið en það er
tæplega þriggja kílómetra skemmtiskokk fyr-
ir alla aldurshópa. Þátttakendur í hlaupinu
voru 45 og sigurvegari í því varð
Axel Om Ásbergsson, en hann er
10 ára gamall.
Almennt mál manna er að húsið,
sem er ný viðbygging við húsnæði
Framköllunarþjónustannar, hafi
heppnast mjög vel að innan sem
utan en þegar inn er komið virkar
það mun rúmbetra en menn áttu
von á.
MM/ Ijósm. SO
----7-----------------------
Atakgegn
umferðar-
lagabrotum
Lögregluliðin á suðvesturhorn-
inu hafa staðið að sameiginlegu
átaki sem ffiiðar af því að koma í
veg fyrir umferðarlagabrot og þá
hættu sem þeim fylgir.
Lögreglan á Akranesi sinnti um
hundrað verkefnum í liðinni viku
og þar af vora 47 sem sneru að
umferðareftirliti. Fjórtán öku-
menn voru kærðir fyrir of hraðan
akstur og mældist sá sem hraðast
ók á 130 km/klst. hraða þar sem
hámarkshraði er 90 km/klst. Fjórir
umráðamenn vörubifreiða voru
kærðir fyrir að leggja bílum sínum
inn í íbúðarhverfum sem er með
öllu bannað. Þá eiga tíu ökumenn
von á sektum fyrir að nota ekki ör-
yggisbelti og aðrir fimm voru
kærðir fyrir að tala í farsíma við
akstur án þess að nota handfrjálsan
búnað eins og skylda er.
Nýlega var maður dæmdur til
þrjátíu daga fangelsisvistar og til
greiðslu fimmtíu þúsund króna í
málskostnað vegan réttindaleysis
við akstur en hann hefur ítrekað
verið tekinn fyrir ölvunarakstur og
sviptur ökuréttindum. Maðurinn
hefur áður hlotið 60 daga fangelsis-
dóm vegna brota af þessu tagi og
því óhætt að segja að honum virðist
erfitt að læra af reynslunni. KOO
Hluti starfrfólks bankans. Frá vinstri eru: Sigríóur, Dóra, Gerður, Inga, Skúli, Iris,
Hrönn og Gylfi útibússtjóri.
Se?n hluti afhömmn húsnœðisins er árstiöabundnar skreytingar á veggjum áber-
andi. Hægt er að skipta aðahnyndunum á veggjunum út eftir árstímum eóa af
öórum ástæóum og breyta þannig yfirbragói eftirþví sem henta þykir.
IST ISO 9001
Nú er tími vorverkanna.
Fyrstu skrefin aö sælureit fjölskyldunnar liggja í Fornalund.
Landslagsarkitekt okkar aðstoðar þig við aS breyta garðinum
þínum í sannkallaÖan sælureit.
Hringdu í 585 5050 og fáöu tíma í ráSgjöf.
ÞaS kostar ekki neitt.
BM-VAIIA
Söludeildir BM*Vallá: í Fornalundi 110 Reykjavík Sími: 585 5050 • Suðurhrauni 6 210 GarSabæ Sími: 585 5080
V/Súluveg 600 Akureyri Sími: 460 2200 • Ægisgötu 6 730 ReySarfirði Sími: 477 2050 • HöfSaseli 4 300 Akranes Sími: 433 5600