Skessuhorn - 26.04.2006, Page 31
■..Aiim...
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006
31
Bárður Eyþórsson kveður Hólminn
Bárður Eyþórsson, sem þjálfað
hefur karlalið Snæfells í körfu-
bolta við góðan orðstír síðatliðin
fimm ár, gekk á dögunum til liðs
við ÍR. Bárður hafði verið orðað-
ur við nokkur lið í borginni og
Ijóst mátti þykja að félagaskipti
voru yfirvofandi. Samningurinn
er til fögurra ára og tekur Bárður
við þjálfun liðisins á næstu leik-
tíð.
Eíéttaritari kom að máli við
Bárð Eyþórsson og í Ijósi frétta af
vistaskiptum hans lá beint við að
spyrja hversvegna hann ákvað
að skipta um félag? „Mig langaði
að breyta til en ekki að hætta í
körfubolta strax. ÍR er spennandi
félag og ég tel mig eiga góða
möguleika á að gefa af mér það
sem liðinu hefur vantað upp á.“
En verður ÍR liðið í toppbarátt-
unni strax á næstu vertíð? „Það
stefna auðvitað allir þjálfarar að
því að vera með sín lið í efri hlut-
anum. Þar er ég engin undan-
tekning." En ertu þá ánægður
með árangur Snæfells í vetur?
„Já ég get ekki sagt annað. Við
fórum auðvitað ekki alla leið
einsog stefnt var að en það vant-
aði bara herslumuninn upp á
þetta hjá okkur. Ég get þvi ekki
kvartað. Mér finnst ég skila liðinu
vel af mér og í ágætis málum. Og
ég get því skilið sáttur.“
En hvað finnt Bárði um að flytja
suður, heldur hann að grisling-
arnir hans geti gengið „sjálfala" í
Breiðholtinu einsog þeir gera í
Hólminum? „Nei, þau verða bara
lyklabörn. Nei, án gríns þá erum
við bara venjuleg fjölskylda, við
þurfum bæði að vinna fyrir okkur
og hljótum að geta aðlagast nýju
umhverfi einsog aðrir hafa gert.“
Bárður Eyþórsson þjálfari og stýrimaður.
Verður þú áfram titlaður stýri-
maður í símaskránni? „Ætli mað-
ur fari nokkuð að breyta því úr
þessu. Þetta er ágætis titill að
bera og þó ég hafi kannski lítið
verið á sjó undanfarin ár get ég
alveg eins borið þennan titil í
Breiðholtinu," segir Bárður en
bætir við: „Ég vil bara þakka
bæjarbúum og stuðningsmönn-
um fyrir þennan góða tíma.
Hólmarar þurfa ekkert að kvíða
framtíðinni. Það er líf í körfubolt-
anum eftir mig en það er mikil-
vægt að standa þétt við bakið á
þeim þjálfara sem verður ráðinn.
Það er fullt af efnilegum strákum
að koma upp í meistarflokkinn á
næstu árum. Framtíðin hlýtur því
að vera björt hvað varðar körfu-
bolta í Stykkishólmi.“
JTA
Skagamenn féllu
út úr deildar-
bikarkeppninni
Síðastliðinn fimmtudag mætti
m.fl. ÍA ( knattspyrnu liði Kefla-
víkur í deildarbikarnum á Ásvöll-
um í Hafnarfirði. Skagamenn
þurftu á sigri að halda til að
halda áfram í keppninni en Kefl-
víkingum nægði jafntefli. Keflvík-
ingar voru sterkari fyrstu 20 mín-
útur leiksins og komust yfir eftir
15 mínútna leik þegar að boltinn
fór af markmanni Skagamanna,
Páli Gísla Jónssyni, í eigið mark
eftir hornspyrnu inn í markteig.
Skagamenn tóku vel við sér eftir
mark andstæðinganna og tóku
völdin smám saman á vellinum.
Arnar B. Gunnlaugsson jafnaði
leikinn fyrir Skagamenn eftir
stutta sendingu frá Ellerti Jóni
Björnssyni. Þrátt fyrir að lið
Skagamanna hafi verið meira
með boltann í stðari hálfleik náðu
þeir ekki að skora og lauk leikn-
um því með 1 -1 jafntefli. Því voru
það Keflvíkingar sem að komust
áfram í deildarbikarkeppninni.
SO
Skallagrímur og
Snæfell með
fimm verðlaun á
lokahófi KKÍ
Glæsilegt lokahóf Körfuknatt-
leikssambands íslands var hald-
ið sl. föstudag á Hótel Sögu að
viðstöddu fjölmenni. Þar voru
leikmenn og þjálfarar sem skar-
að hafa fram úr í vetur í lceland
Express deildinni heiðraðir.
Vesturlandsliðin Skallagrímur
og Snæfell fóru ekki tómhent
heim og hlutu samtals fimm
verðlaun. Þjálfari Snæfells,
Bárður Eyþórsson, sem nýlega
gekk í raðir ÍR-inga, var valinn
besti þjálfari tímabilsins og I.
Magni Hafsteinsson leikmaður
Snæfells var valinn besti varnar-
maður deildarinnar. Magni var
einnig valinn í úrvalslið karla sem
samanstendur af færustu
körfuknattleiksmönnum lands-
ins. Skallagrímsmenn fengu
þrenn verðlaun en það voru þeir
Christopher Manker sem fékk
viðurkenningu fyrir bestu
þriggjastiga nýtinguna, George
Byrd fékk verðlaun fyrir flest frá-
köst að meðaltali í leik og Pálmi
Sævarsson var valinn prúðasti
leikmaður deildarinnar.
KÓÓ
Andri valinn
í U 21 landsliðið í
knattspyrnu
Andri Júlíusson, 21 árs, sem
spilar með Knattspyrnufélagi (A
hefur verið valinn í 18 manna leik-
mannahóp U-21 landsliðs íslands
en liðið mætir Andorra í und-
ankeppni Evrópukeppninnar sem
fram fer þar ytra þann 3. maí nk.
Andri er eini leikmaðurinn úr röð-
um ÍA sem er í þessum hópi.
KÓÓ
B-listinn opnar kosningaskrifstofu 28. apríl
B-listinn á Akranesi opnar kosningaskrifstofu við Sunnubraut 21
föstudaginn 28. apríl kl. 17:00-18:00. Heitt á könnunni og
tónlistaratriði.
Vertu með frá byrjun!
Frambjóðendur Framsóknarflokksins á Akranesi
www.xb.is/akranes
* *■
Sendum dyxfxfum ó tudninyðfnetimtm,
ótyHÍdxvuid ilum ay aðuim aelunnwuun
aMuvt áeötu þakkvt þyxvt
þtáðœum ótuðniny í aetwt.
fffi
trji
I«
ftt
rtk
s»
■i.
«