Fréttablaðið - 07.09.2019, Side 12

Fréttablaðið - 07.09.2019, Side 12
BRETLAND Nýliðin vika er algjör- lega fordæmalaus í breskum stjórn- málum. Nýr forsætisráðherra, Boris Johnson, tapaði sínum fyrstu kosn- ingum í þinginu. Tapaði svo aftur. Og svo aftur. Meirihluti ríkisstjórn- arinnar féll á meðan Johnson hélt ræðu um styrka stjórn. Þingmenn með áratuga reynslu og fyrrverandi ráðherrar voru reknir úr flokknum. Bróðir forsætisráðherra sagði af sér ráðherraembætti. Breska þingið er orðið að apasirkus. Undir öllum venjulegum kring- umstæðum væri búið að leysa upp þing og boða til nýrra kosninga. Eftir niðurlægingu eins og sást í vik- unni ætti sitjandi forsætisráðherra ekki möguleika á að sigra í slíkum kosningum og yrði steypt af stóli af eigin flokksmönnum. En Brexit eru engar venjulegar kringumstæður. Brexit hefur gjörbreytt hinu Herkænska eða hrunadans Johnsons Bresk stjórnmál eru í uppnámi og almenningur getur lítið gert annað en að fylgjast agndofa með. Líkt og í House of Cards er ráða- brugg að tjaldabaki og Boris Johnson horfir marga leiki fram í tímann. Ætlunin gæti verið sú að ná fram samningi án ábyrgðar. Eftir hasarinn í þinginu skrapp Johnson til Skotlands þar sem hann kynnti sér landbúnað. NORDICPHOTOS/GETTY pólitíska landslagi, þá sérstaklega Íhaldsflokknum. Tilfinningar eru í spilinu og rista djúpt. Fólk er tilbúið til að fórna pólitískri framtíð sinni. Mörgum brá í brún þegar fregnir bárust af því að Johnson hefði geng- ið á línuna og rekið 21 þingmann úr flokknum á stalínískan máta. Þar á meðal tvo fyrrverandi fjármálaráð- herra og barnabarn sjálfs Winstons Churchill. Þessir þingmenn eru ekki róttæklingar heldur grandvarir og frekar óspennandi menn með ára- tuga hollustu við flokkinn að baki. En þetta kom þeim sjálfum ekki á óvart. Johnson hafði hótað þessu ef þeir hlýddu ekki en þeir voru til- búnir að fórna sinni pólitísku fram- tíð fyrir málstaðinn. Í dag spyr fólk sig hvað sé í gangi og hvað muni gerast. Hvert er planið hjá Boris Johnson og aðal- ráðgjafa hans, Dominic Cummings? Cummings er enginn bjáni. Hann skipulagði útgönguherferðina sem leiddi til þess að Brexit var sam- þykkt sumarið 2016. Enginn hafði trú á honum þá en Cummings hugs- ar marga leiki fram í tímann. Í dag virðist Boris Johnson með óvinn- andi stöðu á borðinu en kannski er þetta allt saman úthugsað og sam- kvæmt áætlun. Enn hefur ekki verið samið við Brussel, Jeremy Corbyn er ekki orðinn forsætisráðherra og þó að þingf lokkurinn sé orðinn fámennari þá er hann samheldnari. Kenningar hafa verið uppi um að Boris Johnson sé að berjast fyrir útgöngu án samnings, hörðu Brexit, til þess að fá samning. Efnahags- þrengingar muni fylgja útgöngunni með tilheyrandi niðurskurði og það er ekki öfundsvert að vera forsætis- ráðherra á slíkum tímum. Johnson og Cummings hafi því kokkað það upp að hótunin um hart Brexit sé svo slæm fyrir Brussel að Merkel, Macron og félagar muni gefa eftir og leita eftir samningi hagstæðum Bretlandi. Hvort þetta sé snilldar herbragð eða voðaskot mun koma í ljós. Pólitíski pistlahöfundurinn Jonathan Freedman sagði Johnson vera eins og bankaræningja sem heldur byssu upp að eigin höfði. En hvað gerist næst? Nokkuð ljóst er að kosningar verða haldnar á næstu mánuðum. Boris hefur sagt að hann ætli ekki aftur til Brussel til að biðja um frekari frest og aðrir í ríkisstjórninni hafa talað á sömu leið. Þeir segja ekki víst að lögunum sem þingið setur verði fylgt eftir. Þar að auki hefur ríkisstjórnin ekki meirihluta og stjórnarandstaða margra f lokka og brottrekinna Íhaldsmanna virðist ekki líkleg til að mynda bandalag í kringum Cor- byn. Rætt hefur verið um að mynda tímabundna stjórn til að koma á samningi. Ken Clarke, einn hinna brottreknu, hefur verið nefndur til sögunnar sem forsætisráðherra í því samhengi. Ef Johnson vinnur kosningar eftir að samningur hefur verið gerður getur hann þvegið hendur sínar af honum og jafn- f r a mt not ið ávaxtanna. kristinnhaukur@ frettabladid.is Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Hefur fyrirtæki þitt áhuga á að leggja sitt af mörkum til að ná heimsmarkmiðunumum sjálfbæra þróun og á sama tíma sækjast eftir nýjum viðskiptatækifærum og aukinni samkeppnishæfni? Samstarfssjóðurinn skapar ný tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf. Allt að 200 milljónir króna verða til úthlutunar. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu. Markmiðið er að draga úr fátækt og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í fátækum ríkjum. Sjóðurinn er opinn fyrir umsóknum frá skráðum fyrirtækjum. Umsóknir þurfa að berast fyrir lok 15. október 2019 á netfangið atvinnulif.styrkir@utn.stjr.is. Fyrirspurnir þurfa að berast eigið síðar en 8. október á sama netfang. Allar nánari upplýsingar á utn.is/heimsljos Styrkir úr Samstarfsjóði við atvinnulífið um heimsmarkmiðin Dominic Cummings, aðalráðgjafi Johnsons. NORDICPHOTOS/GETTY 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 0 4 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 9 -A 8 7 0 2 3 B 9 -A 7 3 4 2 3 B 9 -A 5 F 8 2 3 B 9 -A 4 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 6 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.