Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 24

Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 24
VIÐ STÓÐUM SVO FYRIR UTAN REYKJAVÍKUR- FLUGVÖLL MEÐ BJÓRDÓS OG JÓNU OG HORFÐUM Á HVOR ANNAN OG BARA HLÓGUM. HVAÐ VORUM VIÐ NÚNA KOMNIR ÚT Í! Það líður varla sá dagur að ég hugsi ekki til hans,“ segir Frosti Run-ólfsson um besta vin sinn Loft Gunnarsson sem féll frá árið 2012. „Það eru hversdagslegir hlutir sem leiða hugann að honum, til dæmis áhugaverðir sjónvarpsþættir eða tónlist, eitthvað sem ég hefði viljað deila með honum.“ Loftur Gunnarsson hafði verið heimilislaus um nokkurt skeið þegar hann lést 32 ára gamall árið 2012. Minningarsjóður Lofts Gunn- arssonar var stofnaður af ástvinum hans það sama ár í þeim tilgangi að bæta hag útigangsmanna í Reykja- vík og berjast fyrir því að mannrétt- indi þeirra séu virt. Loftur Gunn- arsson hefði orðið fertugur þann 11. september næstkomandi. Af því tilefni verða haldnir styrktartón- leikar þar sem allar tekjur munu renna beint til þess að bæta aðbún- að útigangsmanna í Reykjavík. Litli og stóri Frosti og Loftur kynntust á ungl- ingsárum. „Við bjuggum nálægt hvor öðrum í Garðabænum og urðum mjög fljótt nánir vinir þótt það hafi verið tveggja ára aldurs- munur á okkur. Ég var þrettán ára og hann var fimmtán ára gamall. Hann var hávaxinn, eiginlega risa- stór og spilaði körfubolta. Ég held ég hafi náð honum upp í mitti,“ segir Frosti og brosir út í annað. „Við vorum alltaf kallaðir litli og stóri.“ Frosti og Loftur bjuggu báðir að því að grípa f ljótt í húmorinn og höfðu svipaðar hugmyndir um lífið. „Við hugsuðum eins og kláruðum setningar hvor annars. Hann var á hjólabretti og mér fannst það töff og við byrjuðum að skeita saman. Ef ég keypti mér eitthvað flott, til dæmis eins skó og Kurt Cobain, hetjan mín og fyrirmynd, átti, þá gerði hann það líka. Við vorum mjög tengdir, á milli okkar voru órjúfanleg bönd.“ Frosti segist aldrei fyrr hafa skynjað vináttuna, örlög Lofts og Strákar mega gráta Þeir voru kallaðir litli og stóri og voru óaðskiljanlegir vinir. Þeir Frosti Runólfsson og Loftur Gunnarsson. En örlög þeirra urðu ólík. Frosti og Loftur, „litli og stóri“. sögu þeirra vina sterkar en einmitt nú eftir að hann hætti sjálfur að drekka fyrir rúmu ári. „Ég hef eiginlega verið fullur síðan ég var þrettán ára gamall. En Loftur byrjaði fremur seint að drekka. Ég byrjaði að drekka strax í áttunda bekk, hann fór á sitt fyrsta fyllerí þegar ég var í tíunda bekk. Þá var hann átján ára. Eftir á að hyggja held ég að hann hafi byrjað svona seint af óttablandinni virðingu. Þegar hann datt fyrst í það þá var það bara eins og hann hefði fundið það sem honum var ætlað, hann opnaði pandóruboxið.“ Frosti segist stundum hugleiða hvað það hafi verið sem gerði það að verkum að það var Loftur sem endaði á götunni en ekki hann. Og hvers vegna alkóhólisminn greip hann svo föstum tökum. „Loftur var f lókinn persónuleiki og mjög listrænn. Hann sagðist alltaf vilja vera frjáls eins og fuglinn. Það væri hann sem hefði valið sér þetta líf. Hann sagðist ekki trúa á kerfið og hafði sterkar skoðanir á því hvað lífið snýst um. Þannig er það oft, réttlætingin er svo sterk. Það virðist ekki skipta máli hvort þú kemur af góðu heimili eða ekki, alkóhólisminn kviknar samt sem áður. Ég veit um marga slíka, ég er til dæmis einn þeirra. En það tók langan tíma fyrir Loft að enda á götunni enda stóðu honum allar dyr ástvina opnar. Í upphafi neit- aði hann að lúta þeim reglum sem fylgja því að búa á heimili foreldra sinna. Hann f lutti út og drykkjan tók völd. Og svo er það þannig að þegar þú drekkur þá borgar þú ekki reikningana þína. Þú ert eins og í öðrum heimi og afneitunin og réttlætingin ræður för. Ég finn þetta sjálfur þótt ég hafi ekki farið sömu leið og Loftur. Ég sótti mér aðstoð í júní á síðasta ári og lagðist inn á Vog. Mér hefur sjald- an liðið jafn vel, það er eins og hulu hafi verið svipt af. Ég sé lífið svo skýrt. Ég hef lagt mikið á samband okkar Hrafnhildar og þetta hékk allt saman hjá mér á lyginni,“ segir Frosti. Kærastan hans er Hrafn- hildur Hólmgeirsdóttir og eiga þau von á sínu fyrsta barni saman seint í desember. Útlegðin á Kárahnjúkum „Við drukkum mikið saman við Loftur,“ segir Frosti og rifjar upp minnisstætt ár með vini sínum austur á Kárahnjúkum. „Árið 2004 hætti ég með konunni minni í smá tíma og hélt að samband okkar væri bara alveg búið. Sem betur fer var það ekki en á þessum tíma trúði ég því. Ég bjó í herbergi á Hringbrautinni og las Bukowski og svona,“ segir Frosti. „Þá bjó hann Loftur ekki neins staðar. Ég fékk þá hugmynd í kollinn að ráða okkur í vinnu á Kárahnjúkum og sagði honum ekki einu sinni af því. Ég hringdi bara í hann og tilkynnti honum þetta og hann sagði bara: Já, allt í lagi, ókei. Þetta var svona sjálfskipuð útlegð hjá okkur. Við stóðum svo fyrir utan Reykja- víkurflugvöll með bjórdós og jónu og horfðum hvor á annan og bara hlógum. Hvað vorum við núna komnir út í!“ Frosti og Loftur voru einu íslensku verkamennirnir á Kára- hnjúkum. „Íslendingarnir sem unnu þarna voru allir á einhverjum græjum eða í stjórnendastöðum en við Loftur vorum einu verkamenn- irnir af Íslendingunum. En þarna voru 1.200 manns samankomnir og f lestir af erlendu bergi brotnir. Loftur sá þetta svo skemmtilega og kunni vel við hversu svaðalegt þetta var allt saman. Í minningunni var það að koma þangað eins og að stíga inn í Mad Max-mynd eða að fara í fangelsi. Við fengum afhentan kraftgalla, hamar, stígvél og hjálm. Þetta voru svo tólf tíma vinnudagar, sex daga vikunnar uppi á öræfum. Á sunnudögum var okkur svo keyrt á Egilsstaði þar sem við fengum að vera frjálsir í þrjár klukkustundir. Einu sinni í mánuði fékk maður svo að fara til Reykjavíkur og þá eydd- um við Loftur öllu sem við höfðum unnið okkur inn í sukk og rugl. Þá var veisla!“ Orðinn maður götunnar Frosti segir að í nokkurn tíma áður en Loftur hneig niður á Laugaveg- „Allar hetjurnar mínar voru fíklar. Eða hötuðu samfélagið eða drápu sig,“ segir Frosti um fyrirmyndir sínar þegar hann var unglingur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 9 -C B 0 0 2 3 B 9 -C 9 C 4 2 3 B 9 -C 8 8 8 2 3 B 9 -C 7 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 6 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.