Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 26

Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 26
inum og lést svo nokkrum klukku- stundum síðar á gjörgæsludeild Landspítalans hafi hann verið búinn að taka það í sátt að vera utangarðsmaður. „Það gerðist eitt- hvað í kollinum á honum. Hann fylltist ró og var bara búinn að sætta sig við þetta líf. Hann var bara orð- inn maður götunnar. Svolítið eins og hann væri bara búinn að gefast upp. Áður hafði hann átt tíma inn á milli þar sem hann reyndi að hætta, en því miður entist það aldrei lengi. Það þarf svo markvissan og mikinn stuðning við þá sem eru á þessum stað og vilja snúa við blaðinu. Hvað bíður þeirra? Það verður eitthvað að bíða fólks, ég er til dæmis með gott bakland núna. Á konu og þak yfir höfuðið og þrjá ketti og lífið er bjart fram undan. En ég veit alveg hvernig það er þegar maður sér enga aðra lausn en að drekka.“ Frosti segist halda að þótt Loftur hafi verið búinn að sættast við götulífið hefði hann getað hjálpað honum. „Hann gat verið rosalega erfiður þegar hann var drukkinn. Ég bjó um tíma á Laugavegi og hann kom oft og bankaði upp á hjá mér. Betlaði stundum og var með læti, ég var þá stundum leiðinlegur við hann. Ég hugsa um þetta af eftirsjá og í dag væri ég algjörlega tilbúinn til að hjálpa honum. Ég var það bara ekki þá, ég var alveg jafn veikur og hann. Bara á öruggari stað. Og ég held það eigi við um marga. Þeir eru jafn veikir en á öruggari stað en Loftur var. Og það er ekki sjálfgefið.“ Strákar mega ekki gráta Talið berst að tilfinningum og fyrir- myndum stráka á unglingsaldri. Það sé lítið við því að gera að fyrir- myndirnar lifi lífi sem leiðir til glöt- unar. „Ég held að það sé því miður enn þá þannig að strákar megi ekki gráta og sýna tilfinningar sínar eða pæla í þeim. Það er eins og það taki kynslóðir að læra þessa hluti. Ég er 38 ára gamall og er í fyrsta sinn að tækla hluti út frá tilfinningum og finnast ég mega það. Án þess að grípa í f löskuna eða eitthvert dóp til að deyfa mig. Og ég hef verið listamaður alla ævi, allar hetjurnar mínar voru fíklar. Eða hötuðu samfélagið eða drápu sig. Tilheyra ákveðinni andfélagslegri trúar- stefnu. Þegar ég var lítill var hetjan mín Kurt Cobain, heróínisti sem skaut sig í hausinn. Í dag er þetta alveg eins, nema það eru rapparar sem rappa um oxý. Og þetta mun aldrei breytast. En það þarf að ræða þetta. Það þarf að aðstoða stráka við að bera kennsl á tilfinningar sínar og á þetta skaðlega mynstur sem einkennir drykkju margra Íslendinga og felst í að deyfa til- finningalífið. Sem ungum listamanni fannst mér það eiginlega bara skylda mín að nota eiturlyf og þetta voru svo ótrúlega mörg ár sem fóru í súginn. Það er svolítið erfitt að horfa til baka og hugsa um það hvað ég hefði getað gert við allan þennan tíma. Vaknar glaður Ég hefði getað verið hugrakkari og kafað dýpra í hlutina. Þetta þurfa ungir listamenn að vita, þeir eiga ekki að vera feimnir við að sækja sér hjálp við drykkju og neyslu. Það þarf ekki að vera fyllibytta til þess að vera töff listamaður, þvert á móti. Ég vildi óska að ég hefði áttað mig á þessu fyrr því tíminn er það mikil- vægasta sem maður hefur. Nú vakna ég á morgnana og er glaður, möguleikarnir eru fleiri. Þó að ég sé reyndar enn að díla við eft- irköstin eftir 25 ára stanslaust partí. Það tekur tíma. Það má segja að ég sé búinn að skola bílinn en þurfi nú að fara að skoða undir húddið. Ég þarf að halda áfram að rækta minn innri mann. Mér finnst ég hafa verið eins og uppvakningur, en nú sé ég til staðar.“ Frosti er einn þeirra sem skipu- leggja minningartónleikana á Hard Rock á miðvikudaginn í næstu viku. Hann hefur einnig gert heimildar- myndina Meinvill í myrkrunum lá sem fjallar um Loft. Myndin verður Frosti og Loftur á Kárahnjúkum. MYND/SPESSI Ég hefði getað verið hugrakk- ari og kafað dýpra í hlutina. Þetta þurfa ung- ir listamenn að vita, þeir eiga ekki að vera feimnir við að sækja sér hjálp við drykkju og neyslu. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI sýnd þann 15. september næst- komandi í Bíó Paradís og rennur sömuleiðis allur ágóði af miðasölu í minningarsjóðinn. Hann og Hrafn- hildur kærasta hans eru samhent í starfi sínu fyrir sjóðinn og styðja almennt við málefnið. Þau tóku þátt í þöglum mótmælum um aðstæður útigangsmanna á Austurvelli á dög- unum. Minnast Lofts „Hrafnhildur hefur verið kærastan mín í átján ár og hefur mikið hjálp- að til í undirbúningnum fyrir minn- ingartónleikana. Hún var líka góð vinkona Lofts og við fórum saman í gær á þögul mótmæli sem móðir Þorbjarnar Hauks, sem einnig lést á götunni, stóð fyrir við Alþingis- húsið. Þar hittum við Hrafnhildur Heiðu Björg Hilmisdóttur, formann velferðarráðs, og ræddum aðeins við hana. Okkur þótti vænt um að hún þekkir það mikilvæga starf sem minningarsjóður Lofts hefur unnið og hjarta hennar er á réttum stað. Hún er bara einn hlekkur í þessari baráttu svo fleiri innan borgarinnar verða að styðja við þessar úrbætur Þeir sem komast ekki á tón- leikana eða sýningu heimildar- myndar um Loft í Bíó Paradís en vilja styðja við minningarsjóð Lofts geta lagt inn á reikning sjóðsins. Bankanr. 318-26-5171 Kt. 461112-0560 sem þarf, og fyrst og fremst þarf peninga og til þess erum við að halda þessa tónleika.“ Þeir tónlistarmenn sem koma fram á minningartónleikunum gefa vinnu sína málstaðnum. Á meðal þeirra sem koma fram eru Krummi, Pétur Ben, K.K og Syca- more Tree en Gunnar Hilmarsson var mágur Lofts og hefur verið afar ötull í störfum sínum í þágu sjóðs- ins. „Við viljum fyrst og fremst safna í minningarsjóðinn til góðra verka og vekja athygli á málstaðnum en líka eiga góða kvöldstund, hlusta saman á góða tónlist og minnast Lofts. Hann átti marga góða vini.“ 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 9 -C 6 1 0 2 3 B 9 -C 4 D 4 2 3 B 9 -C 3 9 8 2 3 B 9 -C 2 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 6 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.