Fréttablaðið - 07.09.2019, Side 46
Ert þú
öflugur
verkfræðingur
Norconsult ehf.
leitar að verkfræðingi
í stjórnkerfum
Ef þú hefur reynslu eða þekkingu á einhverju af eftirfarandi
þá höfum við áhuga að heyra frá þér.
· Iðntölvum, PLC
· Skjákerfum, SCADA og HMI
· Gagnagrunnum og forritun, SQL, .NET og Python
Norconsult ehf. er með starfstöðvar í Hlíðarsmára 4, Kópavogi.
Verkfræðistofan er í eigu norska ráðgjafafyrirtækisins Norconsult AS
og vinnur að úrlausn spennandi verkefna bæði hér heima og erlendis.
Fyrirtækið er alfarið í eigu starfsmanna sinna.
Í boði eru fjölbreytt og áhugaverð verkefni sem spanna allt frá hönnun
mannvirkja til hugbúnaðarþróunar. Viðskiptavinir okkar eru meðal
annars álver, flutningsfyrirtæki, dreifiveitur og vindorkuframleiðendur.
Norconsult AS er með starfsstöðvar víða um heim, frá Kirkenes í
Norður-Noregi til Auckland á Nýja Sjálandi. Norconsult á Íslandi er
lítil eining í vexti þar sem starfsmenn vinna saman í sterkri liðsheild og
því er þetta einstakt tækifæri fyrir rétta aðila til að starfa hjá fyrirtæki
á alþjóðlegum vettvangi. Við leitum að öflugum verkfræðingum sem
eru fljótir að tileinka sér nýja þekkingu.
Umsóknir sendist á: birna.eggertsdottir@norconsult.com
fyrir 15. september.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Ketill Heiðar Guðmundsson,
ketill.gudmundsson@norconsult.com
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.com
Málmiðnaðar-
maður
Héðinn hf óskar eftir að ráða
málmiðnaðarmann í fullt starf.
Þarf að búa yfir reynslu af smíði
úr ryðfríu og/eða svörtu stáli.
Kunnátta í íslensku eða ensku er skilyrði.
Héðinn er framsækið fyrirtæki
í nýsköpun og þjónustu.
Um er að ræða krefjandi starf á skemmtilegum
vinnustað þar sem verkefnin eru fjölbreytt
við nýsmíði og viðhald.
Vinsamlega sendið umsóknir til Héðins
á netfangið jont@hedinn.is
Langar þig að kljást við
spennandi tækifæri í Dölunum?
Dalabyggð óskar eftir aðila til að sjá um rekstur
Vínlandsseturs í Búðardal. Mikilvægt er að viðkomandi hafi
reynslu af rekstri, þekkingu á markaðsmálum, hafi gaman að
mannlegum samskiptum og sé áhugasamur um þjónustu við
ferðamenn. Ekki spillir að hafa þekkingu á sögunni og áhuga
á því að miðla henni á lifandi og skapandi hátt. Æskilegt
er að viðkomandi hafi menntun og/eða reynslu af rekstri
ferðaþjónustufyrirtækis/veitingahúss. Búseta í Dalabyggð
er kostur.
Vínlandssetur skal vera opið árið um kring, í takti við
umfang ferðaþjónustu á hverri árstíð.
Setrið verður staðsett í uppgerðu glæsilegu pakkhúsi í hjarta
Búðardals, rétt við höfnina. Húsið er á tveimur hæðum og um
350 fm að flatarmáli.
Í Vínlandssetri verður sett upp stórglæsileg sýning á sögu
landafunda Íslendinga, af fundi Grænlands og Ameríku.
Sýningin byggir á verkum landsþekktra myndlistarmanna og
hönnun og hugmyndasmíð Kjartans Ragnarssonar og
Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur, sem eru hugmynda-
smiðir sýninganna í Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Samhliða sýningunni er möguleiki að hafa gott en einfalt
veitingahús á neðri hæð hússins og styður það mjög við
rekstur sýningarinnar sem verður á efri hæðinni.
Gert er ráð fyrir að samið verði um reksturinn til langs tíma,
enda áætlað að rekstraraðili komi að lokaútfærslu á sam-
spili veitingarekstrar og sýningarhalds og fjárfesti nokkuð í
verkefninu.
Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að senda inn umsóknir eigi
síðar en 30. september næstkomandi á netfangið
dalir@dalir.is. Gögn vegna umsóknar er að finna á heima-
síðu Dalabyggðar dalir.is.
Nánari upplýsingar veita Kristján Sturluson sveitarstjóri,
netfang sveitarstjori@dalir.is og Ólafur Sveinsson
atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á
Vesturlandi. Netfang olisv@ssv.is
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við
Hæstarétt Íslands. Stefnt er að því að skipa í embættið hið fyrsta eftir að
dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum.
Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 13. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við
4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda
um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun
og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum,
4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum
akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur,
fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum auka-
störfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning laga-
setningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar
um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) upplýsingar um tvo fyrrver-
andi eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði
munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og
11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni
umsækjanda sem máli skipta fyrir störf hæstaréttardómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma
í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12
mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og
flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem
umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af
tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa
verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni
umsækjanda til starfa sem hæstaréttardómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 23. september nk.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og
fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á
netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
6. september 2019.
Embætti dómara við Hæstarétt
Íslands laust til umsóknar
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
9
-F
2
8
0
2
3
B
9
-F
1
4
4
2
3
B
9
-F
0
0
8
2
3
B
9
-E
E
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K