Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 46

Fréttablaðið - 07.09.2019, Page 46
Ert þú öflugur verkfræðingur Norconsult ehf. leitar að verkfræðingi í stjórnkerfum Ef þú hefur reynslu eða þekkingu á einhverju af eftirfarandi þá höfum við áhuga að heyra frá þér. · Iðntölvum, PLC · Skjákerfum, SCADA og HMI · Gagnagrunnum og forritun, SQL, .NET og Python Norconsult ehf. er með starfstöðvar í Hlíðarsmára 4, Kópavogi. Verkfræðistofan er í eigu norska ráðgjafafyrirtækisins Norconsult AS og vinnur að úrlausn spennandi verkefna bæði hér heima og erlendis. Fyrirtækið er alfarið í eigu starfsmanna sinna. Í boði eru fjölbreytt og áhugaverð verkefni sem spanna allt frá hönnun mannvirkja til hugbúnaðarþróunar. Viðskiptavinir okkar eru meðal annars álver, flutningsfyrirtæki, dreifiveitur og vindorkuframleiðendur. Norconsult AS er með starfsstöðvar víða um heim, frá Kirkenes í Norður-Noregi til Auckland á Nýja Sjálandi. Norconsult á Íslandi er lítil eining í vexti þar sem starfsmenn vinna saman í sterkri liðsheild og því er þetta einstakt tækifæri fyrir rétta aðila til að starfa hjá fyrirtæki á alþjóðlegum vettvangi. Við leitum að öflugum verkfræðingum sem eru fljótir að tileinka sér nýja þekkingu. Umsóknir sendist á: birna.eggertsdottir@norconsult.com fyrir 15. september. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um starfið veitir: Ketill Heiðar Guðmundsson, ketill.gudmundsson@norconsult.com Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.com Málmiðnaðar- maður Héðinn hf óskar eftir að ráða málmiðnaðarmann í fullt starf. Þarf að búa yfir reynslu af smíði úr ryðfríu og/eða svörtu stáli. Kunnátta í íslensku eða ensku er skilyrði. Héðinn er framsækið fyrirtæki í nýsköpun og þjónustu. Um er að ræða krefjandi starf á skemmtilegum vinnustað þar sem verkefnin eru fjölbreytt við nýsmíði og viðhald. Vinsamlega sendið umsóknir til Héðins á netfangið jont@hedinn.is Langar þig að kljást við spennandi tækifæri í Dölunum? Dalabyggð óskar eftir aðila til að sjá um rekstur Vínlandsseturs í Búðardal. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af rekstri, þekkingu á markaðsmálum, hafi gaman að mannlegum samskiptum og sé áhugasamur um þjónustu við ferðamenn. Ekki spillir að hafa þekkingu á sögunni og áhuga á því að miðla henni á lifandi og skapandi hátt. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og/eða reynslu af rekstri ferðaþjónustufyrirtækis/veitingahúss. Búseta í Dalabyggð er kostur. Vínlandssetur skal vera opið árið um kring, í takti við umfang ferðaþjónustu á hverri árstíð. Setrið verður staðsett í uppgerðu glæsilegu pakkhúsi í hjarta Búðardals, rétt við höfnina. Húsið er á tveimur hæðum og um 350 fm að flatarmáli. Í Vínlandssetri verður sett upp stórglæsileg sýning á sögu landafunda Íslendinga, af fundi Grænlands og Ameríku. Sýningin byggir á verkum landsþekktra myndlistarmanna og hönnun og hugmyndasmíð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur, sem eru hugmynda- smiðir sýninganna í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Samhliða sýningunni er möguleiki að hafa gott en einfalt veitingahús á neðri hæð hússins og styður það mjög við rekstur sýningarinnar sem verður á efri hæðinni. Gert er ráð fyrir að samið verði um reksturinn til langs tíma, enda áætlað að rekstraraðili komi að lokaútfærslu á sam- spili veitingarekstrar og sýningarhalds og fjárfesti nokkuð í verkefninu. Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að senda inn umsóknir eigi síðar en 30. september næstkomandi á netfangið dalir@dalir.is. Gögn vegna umsóknar er að finna á heima- síðu Dalabyggðar dalir.is. Nánari upplýsingar veita Kristján Sturluson sveitarstjóri, netfang sveitarstjori@dalir.is og Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Netfang olisv@ssv.is Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Stefnt er að því að skipa í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 13. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum auka- störfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning laga- setningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) upplýsingar um tvo fyrrver- andi eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf hæstaréttardómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem hæstaréttardómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 23. september nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 6. september 2019. Embætti dómara við Hæstarétt Íslands laust til umsóknar 10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 7 -0 9 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 0 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 9 -F 2 8 0 2 3 B 9 -F 1 4 4 2 3 B 9 -F 0 0 8 2 3 B 9 -E E C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 6 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.