Fréttablaðið - 07.09.2019, Qupperneq 83
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5055.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Eiríkur Gunnar Ólafsson
Pósthússtræti 1,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
miðvikudaginn 4. september.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
10. september kl. 13.00.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Ásgeir Eiríksson Ólöf Jónsdóttir
Marta Eiríksdóttir Friðrik Þór Friðriksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir og amma,
Guðrún Atladóttir
Tangasundi 5, Grindavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð,
laugardaginn 31. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir til starfsfólks Víðihlíðar fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Helgi Sæmundsson
Atli Örlygsson María Ingibjörg Kristinsdóttir
Rósa Vigfúsdóttir Sigursveinn Óskar Grétarsson
Íris Kristinsdóttir Grettir Adolf Haraldsson
Bjartmar Freyr Erlingsson Nanna María Elfarsdóttir
Hafþór Bjarni Helgason Guðríður Sæmundsdóttir
Hlynur Sæberg Helgason Sigurbjörg Eyfeld Skúladóttir
Heiðar Elís Helgason Birgitta Rán Friðfinnsdóttir
Þóra Sigurjónsdóttir og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Svanfríður Kjartansdóttir
lést 2. september.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði miðvikudaginn
11. september kl. 13.
Gunnlaugur Óskar Ragnarsson
Gréta Hrund Grétarsdóttir Gunnar Bjarki Finnbogason
Þóra Steinunn Pétursdóttir Jón Óttar Ólafsson
Heiðrún Grétarsdóttir Kristján Hrafn Guðmundsson
Þórunn Grétarsdóttir Björn Sighvatsson
og ömmubörn.
Okkar ástkæra
Adda Kristrún
Gunnarsdóttir
frá Brettingsstöðum á Flateyjardal,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 21. ágúst.
Útförin hefur farið fram.
Aðstandendur þakka starfsfólki
lyflækningadeildar sjúkrahússins fyrir
afar góða umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ingveldur Gunnarsdóttir
Þökkum samúð og hlýhug vegna
fráfalls móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Ernu Finnsdóttur
Sóltúni 2.
Hallgrímur B. Geirsson Aðalbjörg Jakobsdóttir
Kristín Geirsdóttir Freyr Þórarinsson
Finnur Geirsson Steinunn K. Þorvaldsdóttir
Áslaug Geirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Ingólfur Ármannsson
fyrrv. skóla- og menningarfulltrúi
á Akureyri
sem lést 1. september sl. verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 13. september kl. 13.30. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Súlur, björgunarsveit á Akureyri.
Hrefna Hjálmarsdóttir
Ásgeir H. Ingólfsson
Auður H. Ingólfsdóttir
Ármann Ingólfsson og Erla Colwill Anderson
Vala Pauline Ingolfsson og Ari Dalmann Ingolfsson
Okkar ástkæri
Guðmundur Jóhann
Jóhannsson
frá Ísafirði,
lést 2. september á
Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 13. september klukkan 16.
Hjartans þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins Áss
fyrir hjartahlýju og góða umönnun.
Sigríður Jóhannsdóttur Hannes Kristjánsson
Viggó G. Jóhannsson Eydís Ósk Hjartardóttir
Kristinn R. Jóhannsson Supattra Teerachai
og aðrir ástvinir.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Sigurgestur Ingvarsson
múrarameistari,
Sævangi 14, Hafnarfirði,
lést að morgni 1. september.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 12. september kl. 15.
Sigrún Erlendsdóttir
Þórdís Björk Sigurgestsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Áslaug Sigurgestsdóttir Dagbjartur Jónsson
Frosti Sigurgestsson Sigurlín Hrund Kjartansdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Gunnarsdóttir
Hólavöllum 14, Grindavík,
lést á Hrafnistu Hlévangi,
fimmtudaginn 29. ágúst. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til starfsfólks Hlévangs, heimahjúkrunar
í Grindavík og Miðgarðs, fyrir einstaka umönnun
og hlýtt viðmót.
Gunnar Jóhannesson Andrea Klara Hauksdóttir
María Jóhannesdóttir Jóhann Reimar Júlíusson
Kristín Jóhannesdóttir
Ólöf Þóra Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ég kem kannski ekki til með að leysa öll heimsins vandamál en ég ætla að fara aðeins yfir það hvaða áhrif hækkandi hitastig og aukin úrkoma geta haft á varðveislu minja,
bæði standandi og undir yfirborði.“
Þetta segir Guðmundur Stefán Sigurðar-
son, minjavörður Norðurlands vestra,
um erindi sitt á málþingi í Kakalaskála
í dag.
Guðmundur er þátttakandi, fyrir
Íslands hönd, í verkefni sem nefnist
Aðlögun menningarminja á Norður-
slóðum að loftslagsbreytingum og
kveðst ætla að lýsa því svolítið á mál-
þinginu. Hann nefnir hækkun sjávar-
borðs og breytingar á útbreiðslu dýra,
smárra og stórra, meðal þess sem fylgi
breytingum á veðrakerfum. „Veggja-
títlur nema lönd þegar skilyrði batna
fyrir þær. Svo hverfa minjar í gróður
í auknum mæli og aukin hætta er á
gróðureldum.“
Ýmislegt er sérstakt við Ísland sem
ekki er alheimsvandamál, að sögn Guð-
mundar. „Í okkar umhverfi eru margar
minjar úr torfi og grjóti og það bygg-
ingarefni bregst öðruvísi við aukinni
úrkomu en grjóthlaðnir kastalar í
öðrum löndum,“ tekur hann sem dæmi.
Guðmundur kveðst hafa unnið í tíu ár
hjá hjá Guðnýju Zoëga í fornleifadeild
Skagfirðinga áður en hann hóf störf hjá
Minjastofnun. „Þetta svæði er endalaus
uppspretta rannsóknarefna á þessu
sviði, sagan er við hvert fótmál hér eins
og víðar. Þar sem búseta hefur verið frá
landnámi, eða upp úr því, geymir jörðin
heilmiklar upplýsingar. Það er því úr
ýmsu að moða,“ segir hann og bendir
á að Skagfirðingar hafi verið duglegir
að halda utan um menningararf sinn
með ritun byggðasögu og starfrækslu
fornleifadeildar hjá Byggðasafni Skag-
firðinga. Nefnir líka stóra fornleifaupp-
grefti á Hólum og í Hegranesi sem unnið
hafi verið að síðasta áratuginn.
Guðmundur er að byggja á jörð for-
eldra sinna á Kringlumýri. Þar stendur
Kakalaskáli og í honum var opnuð
sögu- og listasýning um Þórð kakala í
lok ágúst. „Það voru 14 listamenn frá tíu
þjóðlöndum sem unnu hér í þrjár vikur
í listamannabúðum í vor, hver og einn
skilaði tveimur verkum og einhverjum
sameiginlegum. Þau mynda sýninguna
og svo er hlýtt á leiðsögn föður míns,
Sigurðar Hansen, á ferðalagi gegnum
þessa sýningu.“
Málþingið er opið öllum endurgjalds-
laust.
gun@frettabladid.is
Áhrif hlýnunar á minjar
Í vígi Þórðar kakala á Kringlumýri í Skagafirði verður málþing í dag. Umræðuefnið er
Menningararfurinn á umbrotatímum og er þá átt við loftslagsbreytingarnar í heiminum.
Guðmundur er ánægður á heimaslóðum í Blönduhlíð í Skagafirði. Hann er að byggja hús á jörð foreldra sinna á Kringlumýri.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 39L A U G A R D A G U R 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
0
7
-0
9
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
9
-B
7
4
0
2
3
B
9
-B
6
0
4
2
3
B
9
-B
4
C
8
2
3
B
9
-B
3
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
6
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K