Skessuhorn - 11.10.2006, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006
^kUuunuki
OR skoðar nýjan valkost í vatnsöflun fyrir Borgfirðinga
Esporting
WATER
Framkvæmdir á næsta
Réttur myndatexti með
Óhætt er að segja að Skessuhorn
hafi fengið mikil viðbrögð við
röngum myndatexta sem birtist í
síðasta tölublaði með annarri af
tveimur myndum sem birtar voru
frá Ljósmyndasaíhi Reykjavíkur og
voru teknar af Ólafi Arnasyni ljós-
myndara. Myndin var réttilega
sögð tekin í dráttarbrautinni á
Akranesi við skipasmíðastöð Þor-
geirs og Ellerts, eða í Slippnum.
Verið var að sjósetja Haukaberg SH
20 þann 28. september árið 1974. í
textanum í blaðinu stóð að lengst til
hægri hafi staðið Runólfur frá
Grundarfirði, eigandi skipsins. Það
er að sjálfsögðu ekki rétt. Hið rétta
er að á myndinni eru ffá hægri:
Hjálmar Gunnarsson, útgerðar-
maður, Margrét Hjálmarsdóttir
dóttir hans og Helga Þóra Ama-
dóttir eiginkona Hjálmars. Beðist
er velvirðingar á þessu, en þær upp-
lýsingar sem fóru með myndinni
eru ættaðar frá Ljósmyndasafni
Reykjavíkur, og sýnir þetta glöggt
nauðsyn þess að safnið hafi réttar
upplýsingar um myndirnar.
Gunnar Hjálmarsson, skipstjóri á
Haukaberginu hringdi til Skessu-
horns sl. föstudag og kvaðst vera
staddur í Póllandi. Sagði hann sím-
ann ekki hafa þagnað hjá sér eftir að
Skessuhorn kom út og vildu menn
Frá Grábrókarhrauni en líkur eru til þess að vatnsveitan þaðan muni þjóna mun stterra svteði en upphaflega var ráðgert. Bifröst og
Baula í bakgnmni.
uppundir OK-jökli. Sú lögn átti að
þjóna neysluvatnsþörf á fyrr-
greindum veitusvæðum sem búið
hafa við skort á nægjanlegu magni
af góðu vatni mörg undanfarin ár.
„Við erum að kanna hagkvæmni
þess að nýta vatnsveituna úr Grá-
brókarhrauni og myndum þá
leggja nýja lögn út frá henni við
verslunina Bauluna, yfir Norðurá
og Stafholtstungur og alla leið í
Reykholt. Þetta er dýrari lausn en
að leggja vatnsveitu frá Rauðsgili,
en ef aukinn markaður reynist fýr-
ir vatn á þessari leið, þ.e. nýir not-
endur svo sem á Varmalandi og
víðar í Stafholtstungum, þá getur
vel farið svo að við veljum hana
frekar og leggjum þá af hugmynd-
ir um vatnsveitu frá Rauðsgili,"
sagði Jakob S Friðriksson, verkefn-
isstjóri hjá OR í samtali við
Skessuhorn.
Hann segir umhverfisþætti mæla
gegn vatnsveitu frá Rauðsgili þó
líklega sé sú framkvæmd ódýrari.
„Ef farið verður í þá veitu þarf m.a.
að leggja nýjan veg meðfram
Rauðsgili sem myndi óhjákvæmi-
lega verða mjög áberandi í lands-
laginu. Því er ekki síður út frá um-
hverfissjónarmiðum sem við könn-
um aðrar leiðir til vatnsöflunar fyr-
ir svæðið.“ Einnig verða aðrir
möguleikar til öflunar vatns kann-
aðir í nágrenni Reykholtsdals. Að-
spurður segir að Jakob að flutn-
ingsgeta Grábrókarveitunnar sé
yfirdrifið nógu mikil til að bæta
þessum fjölda nýrra notenda við.
„Við hönnun veitunnar var gert
ráð fyrir að hún dygði næstu ára-
tugina fyrir Borgarnes og aðra
notendur í héraðinu og flutnings-
geta hennar er það mikil að við
getum hæglega bætt fleiri svæðum
við hana,“ segir Jakob.
koma réttum upplýsingum á fram-
færi. Gunnar segir að Haukabergið
sé nú í mikilli klössun í Stettin í
Póllandi, verið sé að endurnýja vél,
brú og afturhluta skipsins. Gert er
ráð fýrir að viðgerðum og endur-
bótum ljúki innan mánaðar. Það er
Hjálmar ehf. sem gerir út skipið og
að sjálfsögðu frá Grundarfirði. MM
leiti hjá Icelandia
Forsvarsmenn fyrirtækisins
Icelandia, sem hyggur á byggingu
vatsnverksmiðju á Rifi, vonast til
þess að framkvæmdir við verk-
smiðjuna geti hafist fyrir áramót.
Líkt og Skessuhorn hefúr greint frá
er undirbúningur fyrir bygginguna
á lokastigi. Birgir Viðar Halldórs-
son, einn af stjórnendum fyrirtæk-
isins, sagði í samtali við Skessuhorn
að samningar um vélar og tæki
væru á lokastigi og val á tegund
bygginga stæði yfir, en um er að
ræða 15.000 fermetra stálgrindar-
hús og 800 fermetra skrifstofuhús-
næði að auki.
Birgir Viðar var á ferð um bygg-
ingarsvæðið og nágrenni þess þeg-
ar Skessuhorn náði tali af honum.
Með í för voru allir stjórnendur
fyrirtækisins og sagði hann að þetta
væri í fýrsta skipti sem þeir væru
allir komnir saman í einu á staðn-
um. Birgir sagði að búið væri að
velja arkitektafýrirtæki til að sjá um
hönnun og menn væru að verða
klárir í slaginn. Aðspurður hvenær
verkinu lyki sagði hann það ráðast á
næstu dögum. „Þetta hangir allt
saman við smíði tækjanna. Þetta
tekur átta til tíu mánuði eftir að
hún hefst. Við vonumst eftir því að
geta hafið rekstur á þriðja ársfjórð-
ungi næsta árs,“ sagði Birgir.
Reiknað er með að fýrsta kastið
starfi um 40 starfsmenn við verk-
smiðjuna en þeim muni fjölga í 60
innan tíðar. Líkt og sjá má á með-
fýlgjandi mynd er búið að setja upp
glæsilegt skilti við svæðið þannig að
nú sést vel hvar verksmiðjan mun
rísa. Myndin er fenginn af vef Snæ-
fellsbæjar www.snb.is
Á vegum Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) er nú þessa dagana unnið við
mat á hagkvæmni þess að taka legg
út úr nýju neysluvatnsveitunni,
sem verið er að leggja frá Grábrók-
arhrauni í Norðurárdal og í Borg-
arnes, og leiða upp Stafholtstung-
ur og alla leið í Reykholt. Við það
skapast einnig möguleiki fýrir nýja
notendur á þessari leið að tengjast
veitunni. Ef þessar hugmyndir
verða að veruleika mun sú veita
koma í stað fýrirhugaðrar vatns-
veitu frá Rauðsgili sem þjóna átti
neysluvatnsþörf í Reykholtsdal og
víðar í héraðinu. Með þessu má
forðast rask á viðkvæmu svæði í
kringum Rauðsgil.
Jákob S Friðriksson, verkejnisstjóri hjá
OR.
Flutningsgetan
yfirdrifin fyrir
stærra svæði
Eins og fram kom í fréttum
Skessuhorns í vor tók OR við
rekstri neysluvatnsveitnanna á
Hvanneyri, í Bæjarsveit, Klepp-
járnsreykjum og Reykholti sl. vor
og hafa áætlanir verið uppi um að
leggja nýja neysluvatnslögn með-
fram Rauðsgili og í uppsprettu
Vígsla í Borgamesi
í nóvember
Framkvæmdir við lagningu nýju
vatnsveitunnar frá Grábrókar-
hrauni og í Borgarnes eru á loka-
stigi. Verkið hefur staðið yfir frá
því árið 2005 og hafa vegfarendur
um þjóðveg eitt getað fýlgst með
framkvæmdunum því yfirleitt fýlg-
ir veitan veglínunni. Vatnsveitan
mun þjóna byggðinni í Borgarnesi
og leysa þar með af vatnstökuna
sunnan Borgarfjarðar. Auk Borgar-
ness mtm veitan þjóna fjölda not-
enda á leiðinni frá Norðurárdal og
í Borgarnes. Þar eru m.a. stór og
vaxandi sumarhúsahverfi sem
tengjast henni, svo sem Munaðar-
nessvæðið, Svignaskarð og fleiri
sumarhúsabyggðir í Borgarhreppi.
„Verkefnið er á lokastigi, aðveitu-
æðin er að verða tilbúin, enn er
verið að vinna í mannvirkjum og
gera þau tilbúin en auk þess er ver-
ið að vinna við greiningar við
lögnina og virkjun borhola í Grá-
brókarhrauni. Við vonumst því til
að geta formlega tekið veituna í
notkun í nóvemberrnánuði,“ sagði
Jakob S Friðriksson að lokum.
MM
Endumýjun bæjarsldlta í Grundarfirði
Nýhafin er uppsetning nýrra bæjarskilta við
alla bæi í dreifbýli Grundarfjarðar. Bæjastjórn
samþykkti í júní að ráðast í verkefhið og vegna
eðlis þess hefur verið haft samráð við Vega-
gerðina, enda þurfa skiltin að uppfýlla ákveðna
staðla. Gömul bæjarskilti í Grundarfirði verða
fjarlægð og nýjum komið fýrir, en þau gömlu
voru af ýmsum toga. Við framsveitarveg verð-
ur einnig sett upp kortaskilti sem sýnir
framsveitarveginn og staðsetningu bæja,
kirkju, golfvallar ofl. Áætlað er að uppsetningu
og frágangi ljúki fljódega og verða allar merk-
ingar í dreifbýlinu þá samræmdar og skil-
merkilegar. www.grundarfjordur.is greindi frá.
-KÓP
Atvinnumálanefiid vill
lækka gjaldtöku af afla
Atvinnumálanefhd Akraneskaup-
staðar hefur samþykkt að beina
þeim tilmælum til stjórnar Faxa-
flóahafna að gjaldtöku fýrirtækisins
af lönduðum afla verði endurskoð-
uð með það í huga að gera löndun
á Akranesi hagkvæmari en nú er.
Eins og fram hefur komið í fréttum
er í framtíðaráformum Faxaflóa-
hafha gert ráð fýrir uppbyggingu
Akraneshafnar þannig að hún nýt-
ist sjávarútveginum sérstaklega.
Jafhframt fagnaði atvinnumála-
nefndin þeim framkvæmdum sem
þegar eru í gangi við lagfæringu
löndunaraðstöðu á aðalhafnargarð-
inum á Akranesi og einnig óskar
nefndin eftir upplýsingum um
hvenær hafist verði handa við
byggingu fiskmarkaðar í bænum en
fýrir skömmu samþykkti stjórn
Faxaflóahafna að vinna að bygg-
ingu slíks húss.
HJ