Skessuhorn - 22.11.2006, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006
..rlMlihi..
Til minnis
Við minnum á bráðum 100 ára
Gleðifund Ungmennafélags
Reykdæla í Logalandi um helg-
ina. Þar verður skv. skipuleggj-
endum fundarins, taumlaus
gleði fram á nótt, lendum dillað,
vísur kveðnar og klingjandi vökv-
um skolað um kverkar. Hattar og
gott skap eru forsenda mætingar
og byrja herlegheitin klukkan 21
að staðartíma.
j Ve?Mrhorfw
Veturinn og ófærðin komu með
skyndi um s.l. helgi og þá sérstak-
lega sunnan Skarðheiðar og á
Akranesi. Þ.a.l. minnkaði frostið
og er útlit fyrir skaplegra veður en
hefur verið undanfarið. Á fimmtu-
daginn er gert ráð fyrir austan 13-
18 m/s og slydda með köflum
sunnanlands og hitinn frá 0 til 4
gráðum. Á föstudag og laugar-
dag verður norðaustanátt og
skýjað með köflum. Frost 0 til 7
stig. Sunnudagurinn verður bjart-
ur og fagur því þá er spáð hægu
veðri og frosti 1 til 10 stig. Mánu-
dagurinn heilsar síðan með aust-
an átt, slyddu eða snjókomu og
frost 0 til 5 stig. Vaxandi vindur
og úrkoma um kvöidið.
Spfyrniru) viHnnnar
í síðustu viku spurðum við um
veðurfarið og hvort fólk héldi að
veðrið undanfarið væri upphafið
að erfiðum vetri. Það þarf greini-
lega meira til þess að buga lands-
menn því niðurstöðurnar voru
þær að 40,3% svöruðu: Já, ég er
hrædd/ur um það, 15.7% höfðu
ékki hugmynd um það en 44%
sögðu hinsvegar: „Nei, þetta
verður góður vetur." Það er síðan
óskandi að meirihlutinn hafi á
réttu að standa.
Spurning næstu viku er:
„Ertu ánœgð/ur með
: skipan framboðs-lista
Sjálfstœðis-flokkins
í NV-kjördœmi?"
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn.is
Vestlenelmtjwr
viMnnar
Vestlendingar vikunnar eru sund-
lið Skagamanna, sem þrátt fyrir
miður góða aðstöðu, kalt og
hryssingslegt veður sem olli því
að ekki var hægt að æfa sem
skyldi, náðu krakkamir og þjálfari
þeirra mjög góðum árangri á ís-
landsmótinu sl. helgi. Þar stigu
nokkrir krakkar frá ÍA á verðlauna-
pall og er þeim og félaginu óskað
til hamingju með árangurinn.
Húfur,
treflar
og
vett-
lingar
KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI
SÍMI43I 1753 & 861 1599
Heildarendunnat fasteigna á Akranesi
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að óska eftir því við Fast-
eignamat ríkisins að ffamkvæmt
verði heildarendurmat fasteigna á
Akranesi. Tilgangur endurmatsins
er sá að allar eignir í bænum verði
metnar með sömu forsendum. Það
var að tillögu Jóns Pálma Pálssonar
bæjarritara sem þessi samþykkt var
gerð. Endurmatið verður bæjarfé-
laginu að kostnaðarlausu. Líklegt
er talið að endurmatið geti farið
fram í upphafi næsta árs.
I bréfi sem Jón Pálmi sendi bæj-
arráði kemur ffam að staða fast-
eignamats eigna á Akranesi sé mjög
mismimandi og dæmi séu um að
sambærilegar eignir í aldri og stærð
séu ekki sambærilegar í fasteigna-
mati. Þá segir að endurmat hafi
ekki farið ffam með heildstæðum
hætti í bæjarfélaginu ffá upphafi
fasteignamats að því er honum sé
kunnugt um.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni fór endurmat fasteigna
ffam í Grundarfirði fyrr á þessu ári
og tók það gildi um síðustu mán-
aðamót. Fasteignamat íbúðarhús-
næðis, sem samanstendur af hús-
mati og lóðarmati, hækkaði við
endurmatið um 37% en einstakar
eignir hækkuðu á bilinu 6-65%.
I samtali við Skessuhorn segir
Jón Pálmi að bæjaryfirvöld séu ekki
með ósk um endurmat að leggja
drög að hækkun tekna af fasteigna-
gjöldum heldur sé einungist verið
að tryggja að allar fasteignir séu
metnar eftir sömu forsendum.
Verði um umtalsverða hækkun fast-
eignamats að ræða geti kjörnir full-
trúar lækkað álagningarstuðul fast-
eignagjalda á móti.
m.
Bergþór hættir sem aðstoðarmaður Sturlu
Bergþór Olason, sem vmdanfarin
ár hefur verið aðstoðarmaður
Sturlu Böðvarssonar samgönguráð-
herra, er hættur störfum. I tilkynn-
ingu sem hann sendi starfsmönnum
samgöngráðuneytisins í morgun
kemur ffam að hann hafi ákveðið
að halda á önnur mið og því óskað
eftir því í liðinni viku að láta af
störfum. I bréfi Bergþórs ræðir
hann ekki ástæður uppsagnar sinn-
ar en segir orðrétt: „Það er með
þetta eins og annað sem ffam fer á
milli ráðherra og aðstoðarmanns
hans að það er í trúnaði, því verða
ástæður uppsagnar minnar ekki
ræddar sérstaklega eða útskýrðar.“
A laugardaginn var gengið ffá
ffamboðslista Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi og skipar
Bergþór áttunda sæti listans. I að-
draganda uppstillingar sóttu Skaga-
menn mjög fast að fá sæti ofarlega á
listanum og var þriðja sætið nefnt í
því sambandi. Niðurstaðan varð sú
að Herdís Þórðardóttir frá Akra-
nesi skipar fjórða sætið. Nafn Berg-
þórs var þó nefnt í umræðunni um
það sæti. Aðspurður hvort ekki
megi tengja uppsögn hans nú þeim
átökum sem orðið hafa um upp-
stillinguna vildi Bergþór ekki tjá sig
en vísaði til þess sem ffam kemur í
tilkynningu ráðuneytisins um að
hann hafi ákveðið að róa á önnur
mið.
HJ
Milálvægt að endurskoða reglur
um skólaakstur FSN
Héraðsnefnd Snæfellinga telur
mikilvægt að endurskoða reglur
um skólaakstur nema í Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga svo sá kostnaður
greiðist alfarið af ríkinu. Ályktun
þessa efnis var samþykkt á aðal-
fundi nefndarinnar í Stykkishólmi
á dögunum. Einnig telur nefndin
mikilvægt að húsaleiga verði end-
urskoðuð með tilliti til húsnæðis-
kosnaðar og tryggja þurfi að þessir
þættir stahdi undir sér og hafi ekki
í för með sér auknar byrðar fyrir
sveitarfélögin og skólann.
Nefhdin þakkar stuðning stjórn-
valda við skólann á upphafsárum
hans og fagnar ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að Fjölbrautaskóla
Snæfellinga skul falin fagleg
ábyrgð á nýrri framhaldsdeild á
sunnanvefðum Vestfjörðum. Með
ákvörðuninni sé skólanum sýnt
mikið traust og viðurkennt það
mikla brautryðjendastarf sem þar
fer fram í þróun kennsluhátta á
Islandi.
HJ
Sparisjóður Mýrasýslu í víking
- nú í Skagafirði
Á stjórnarfundum Sparisjóðs
Siglufjarðar og Sparisjóðs Skaga-
fjarðar sl. föstudag var samþykkt að
hefja viðræður um sameiningu
sparisjóðarma. Eins og kunnugt er á
Sparisjóður Mýrasýslu 99,9% af
stofnfé Sparisjóðs Siglufjarðar.
Sjóðurinn var stofhaður árið 1873
og er elsta starfandi peningastofn-
un landsins.
í tilkynningu ffá sjóðunum kem-
ur ffam að markmið þessarar sam-
einingar sé að efla sjóðina, til að
hægt sé að takast á við stærri verk-
efni. Samrunanefnd verður skipuð
af stjómum beggja sjóðanna.
Stofhfjáraðilar í Sparisjóði
Skagafjarðar em 140. Sjóðurinn var
stofnaður árið 1907 og hét áður
Sparisjóður Hólahrepps. Sjóðurinn
Aramótadansleikur
á Vesturgötu
Stuðningsmannafélag IA,
SkagaMörkin, stefnir að því að
halda áramótadansleik í íþrótta-
húsinu á Vesturgöm og hefur bæj-
arráð Akraness tekið jákvætt í
beiðni félagsins og falið rekstrar-
stjóra íþróttamannvirkja að ræða
við félagið um fyrirkomulag dans-
leiksins með fyrirvara um sam-
þykki sýslumannsins á Akranesi.
I bréfi sem formaður stuðnings-
mannafélagsins, Þórður Már
Gylfason, sendi bæjarráði kemur
ffam að ætlunin sé að dansleikur-
inn verði fjáröflun fyrir starfsemi
félagins. Þá kemur fram að enginn
áramótadansleikur hafi verið hald-
inn á Akranesi í níu ár. „Stemning-
in á Akranesi er á hraðri niðurleið
og margir farnir að flýja bæinn
löngu fyrir miðnætti þann dag. Því
skorum við á bæjarstjórn Akraness
að koma til lið við okkur svo þetta
verkefni verði mögulegt,“ segir
orðrétt í niðurlagi bréfs félagsins.
HJ
starfaði í Hólahreppi ffam til ársins
2000, þegar starfsemi hans var flutt
til Sauðárkróks. Núverandi spari-
sjóðsstjóri Sprarisjóðs Skagafjarðar
er Kristján Bjöm Snorrason, f.v.
útibússtjóri KB banka í Borgamesi,
en á Siglufirði stýrir Ólafur Jónsson
skútunni.
MM
Kynningar-
ftindur um
umhverfismál
HVALFJ ÖRÐUR: Norðurál
hf. heldur kynningu fyrir al-
menning um umhverfismál ál-
versins og framleiðslu áls á
morgun, fimmtudaginn 23. nóv-
ember að Hótel Glym ffá klukk-
an 15:30 til 20:30. Kynningin
hefst klukkan 15:30 á fyrirlestri
Alberts Albertssonar ffá Hita-
veitu Suðumesja um starfsemi
Hitaveitu Suðurnesja. Að lokn-
um fyrirlestri verða salarkynni
opnuð og verður þar hægt að
fræðast um niðurstöður meng-
unarvama og umhverfisvöktim-
ar á veggspjöldum. Að auki
verður saga, framleiðsla og
notkunarmöguleikar áls lítillega
kynntir. Starfsmenn ffá Norður-
áli verða viðstaddir kynninguna
til að svara spurningum sem upp
munu koma. -mm
Krefet betri
þjónustu við
fatlaða
SNÆFELLSNES: Héraðs-
nefnd Snæfellinga krefst þess
að þjónusta við fatlaða á Snæ-
fellsnesi verði efld og gerð
verði markviss áætlun um upp-
byggingu þjónustu við fatlaða á
Snæfellsnesi. Ályktun þessa
efhis var samþykkt á aðalfundi
nefndarinnar sem haldinn var á
mánudaginn í Stykkishólmi.
Héraðsráði var falið að hafa
áfrarn forgöngu um að halda
hlut Snæfellinga í þessum éfn-
um í samvinnu við Félags- og
skólaþjónustu Snæfellinga.
„Tryggja þarf að fatlaðir ein-
staklingar á Snæfellsnesi njóti
þeirra sjálfsögðu mannréttinda
að búa í sinni heimabyggð,“
segir orðrétt í samþykkt Hér-
aðsnefiidar Snæfellinga.
-hj
Stór hlutur
slriptirum
eigendur
HB GRANDI: SJl ehf., sem er
100% dótturfélag Sjóvár, hefur
selt hlut siim í HB Grandá hf.
að nafhverði tæpar 100 milljón-
ir króna eða 5,85% af heildar-
hlutfé félagsins. Þetta kemur
ffam í tilkynningu félagsins í
Kauphöll Islands. -hj
VÍS áftýjar eldri
AKRANES: Starfsmenn Vá-
tryggingafélags Islands telja
ekki líklegt til árangurs að
áfrýja dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur, sem á dögunum
dæmdi hafnsögumanni skaða-
bætur vegna vinnuslyss um
borð í dráttarbátnum Léyni.
Eins og fram kom í Skessu-
horni voru manninum dæmdar
skaðabætur úr hendi Akranes-
kaupstaðar að upphæð tæpar 5
milljónir króna vegna slyss sem
varð á árinu 2001. Bæjarráð
Akraness tekur ekki afstöðu til
áfrýjunar málsins en vísaði því
til afgreiðslu Faxaflóahafha. I
bréfi VIS til Akraneskaupstaðar
kemur fram að það sé mat fé-
lagsins að ekki sé líklegt til ár-
angurs að áfrýja málinu án þess
að ný gögn komi til í því sem
sýni ótvírætt að niðurstaða
dómsins sé byggð á röngum
forsendum. Þau gögn séu ekki
til staðar í dag.
-hj
Tekjur og
samstarf aukist
SNÆFELLSNES: Héraðs-
nefhd Snæfellsness hvetur til
aukins samstarfs sveitarfélaga á
Snæfellsnesi og bendir á að nú
þegar eigi sveitarfélögin í miklu
samstarfi „sem markvisst er
hægt að auka til hagsbóta fyrir
íbúa svæðisins,“ segir í sam-
þykkt aðalfundar nefndarinnar
ffá því í síðustu viku. Þá telur
nefndin nauðsynlegt að jafna
frekar fjárhagslega stöðu sveit-
arfélaganna í landinu því svig-
rúm þeirra til að mæta nýjum
kröfum íbúa og ríkisvaldsins sé
lítið sem ekkert. Nauðsynlegt
sé því að styrkja tekjustofha
sveitarfélaganna með sértækum
aðgerðum eða í gegnum Jöfn-
unarsjóð sveitarfélaga.
' ~hJ