Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 19
^ácuunuK. MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 19 Kiwanisklúbbiuinn Þyrill afliendir SHA gjafir Trygvason forseti Þyr- ustu stofnunarinnar við læknins- Guðni Tryggvason forseti Þyrils afhendir Gudjóni Brjáns- syni framkvœmdastj. SHA gjöfina. Á almennum fundi í Kiwanis- klúbbnum Þyrli nýlega að við- stöddiun Þyrilsfélögum og 11 fé- lögum úr Kiwanisklúbbnum Kötlu úr Reykjavík, afhenti Guðni ils Guðjón Brjánssyni framkvæmdastjóra SHA eina milljón króna af gjöf sem á að ganga upp í kaup á tölvusneiðmyndatæki fyrir sjúkrahúsið. A þessum fundi skýrði Guðjón og Þórir Ber- mundsson læknir fyrir fundarmönnum ffam- tíðaráform um rekstur sjúkrahúss- ins. Kom ffam hjá þeim að það væri gleðiefhi að skynja áhuga og skiln- ing heimamanna á hagsmunamál- um sem lúta að umbótum í þjón- ffæðilegar myndgreiningar, einkum með tölvusneiðmyndatækjum í huga. Þetta er oft nefnt CT tækni. Heilbrigðisstofnanir sem ekki eiga því láni að fagna að geta endurnýj- að búnað sinn í takt við tímann verða fljótt eftirbátar annarra og hætta er á að greiningarmöguleikar verði fyrr en varir ófullnægjandi. Þetta leiðir síðan í kjölfarið tdl þess að erfiðara verður að ráða hæft fag- fólk til að starfa sem gerir kröfu um öguð og vönduð vinnubrögð. Metnaður starfsfólks SHA er fyrir að hafa þjónustuna sem allra besta. MM Jólahopp og hí í Hvalí] arðarsveit í Hvalfjarðarsveit er ráðgert að verði kátt á hjalla alveg ffam að jól- um og meðal þess sem þar má finna til afþreyingar eru jólamarkaðir, hlaðborð, aðventusamkomur, kór- atónleikar og hverskyns skóla- skemmtanir. Jólamarkaðir verða um helgar í gamla sláturhúsinu við Laxá en einnig Gallerí Alfhól á Bjarteyjarsandi. A báðum þessum mörkuðtun verður leitast við að hafa sem besta jólastemningu, fjöl- breyttdr handunnir munir til sýnis og sölu, kynt undir jólarómantíkina og eitthvað góðgæti geta gestir keypt sér í gogginn. A Hótel Glym verður sitthvað um að vera en fýrir utan hið villta jólahlaðborð sem þeir bjóða upp á til jóla, verður þar Þorláksmessu- skata og áramótagleði. Auk þess mun hótelið vera með hst, ljós, hönnun og margt fleira. Kam- merkór Akraness, ásamt strengja- sveit, mun halda tónleika í Hall- grímskirkju í Hvalfjarðarsveit en einnig verða hinar venjubundnu aðventusamkomur í kirkjunni. Kvenfélagið Lilja mun halda jóla- fund í veiðihúsinu við Laxá, bingó verður á Hlöðum og skólaskemmt- un í Heiðarskóla 1. desember þar sem allir eru velkomnir. KH Dagskrá RUV til sjómanna um gervihnött innan tíðar Innan tíðar hefjast útsendingar á efni Ríkisútvarpsins um gervitungl sem nýtast eiga sjómönnum og Is- lendingum erlendis. Þetta kemur ffam í svari Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra á Alþingi við fyrirspum Guð- mundar Hallvarðssonar. Guðmund- ur spurði ráðherra hvort Ríkisút- varpið hefði áform um að senda dag- skrár hljóðvarps og sjónvarps um gervitungl, svo að sjómenn á hafi úti og Islendingar erlendis fái notið. í svari ráðherra kemur fram að ekki hafi allir landsmenn aðgang að efni RUV á staffænum gæðum. Al- þingi ákvað á sínum tíma að verja 150 milljónum króna af söluand- virði Símans til útsendinga á dag- skrám RÚV um gervitungl og segir ráðherra að sú upphæð standi und- ir kostnaði við útsendingar í þrjú ár. Þannig verði efni ríkismiðlanna að- gengilegt áhorfendum um land allt og einnig sjómönnum á hafi útd svo og íslendingum erlendis. „Akveðið hefur verið að bjóða þjónustuna út á Evrópska efha- hagssvæðinu. Er það gert til að fá tilboð frá sem flestum gervihnatta- fyrirtækjum og þurfa tilboð að berast í síðasta lagi 16. nóvember nk. Ekki er hægt að segja til um hvenær útsendingar hefjast, en RUV áskilur sér rétt til að nýta nokkrar vikur til að fara yfir þau tilboð sem berast,“ segir orðrétt í svari ráðherra. HJ Góður samgönguráðherra Fyrir stuttu síðan var ung kona, sem enn situr á Alþingi, að skrifa um samgöngumál. Það var alveg eðlilegt, því það er hlutverk þeirra alþingismanna að sjá um þau mál á alla lund. Hún talar um „úreltan samgönguráðherra". Það er óvenjulegt orð um þá sem starfa að miklum ffamkvæmdum eins og nú- verandi ráðherra gerir. Mér finnst rétt að minna á, að ef mál eru skoð- uð af sanngirni - og án allra öfga, að þá sé mikið gert í samgöngumálum á Islandi í dag og mörg hin síðari ár. Og ef litið er til lengri tíma svo sem ffá árinu 1920 - þegar nær engir vegir voru tdl og engar brýr og eng- in jarðgöng, þá hefur hér verið unnið stórvirki í samgöngumálum. Lítum á: Vegir lagðir um allt land - lengi fyrst með handverkfærum og allur flutningur jarðefnin flutt á hestvögnum, malarvegir um allt land og margar ár brúaðar yfir stór- fljót og minni ár. Og svo hin síðari ár með öflugum tækjum sem breytt hafa svo miklu - bæði í brúargerð og vegalagningu. Og svo ennfrem- ur jarðgöngin sem rjúfa einangrun á mörgum stórum svæðum og gera alla flutninga og ferðalög auðveld- ari. Ekki má heldur gleyma bundnu slitlagi sem nú er komið á marga vegi og breytir það mjög miklu á margan hátt. Það hefur því mikið verið gert í samgöngumálum og er enn gert. Margir mætir menn hafa hér komið við sögu á liðnum árum og unnið vel - og þakka ber þeim. Nú- verandi samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson hefur unnið vel að þessum málum og mörg stórvirki verið gerð í hans tíð sem margir sjá og njóta í dag. Hann á því þakkir skyldar fyrir sín góðu verk í sam- göngumálum. En Samgönguráðherra - hver svo sem hann er - verður að hafa fjár- magn tdl ráðstöfunar og það er al- þingismanna að sjá um það. Mér hefur heyrst að þingmenn úr Reykjavík álíti það sé í Reykjavík sem vegi þurfi, en síður úti á landi, því þar er fólkið svo fátt s.b. Héð- insfjarðargöng. Ef til vill getur unga þingkonan sem ég nefndi í upphafi stuðlað að því að þingmenn Reykjavíkur vilji auka fjárveitingu til samgöngumála úti á landi ásamt öðrum þingmönnum. Það vilja flestir fá góða vegi, en til þess þarf fjármagn - og þó vel hafi verið unn- ið að samgöngumálum er mikið effir. Það er ekki Sturlu Böðvars- syni að kenna. Það er engu máli til ffamdráttar að gera lítið úr þeim sem vel vilja og vel vinna - þó það sé stundum reynt tdl að upphefja aðra sem eru aðeins áhorfendur en ekki gjörendur. En Sturla Böðvarsson hefur unn- ið vel í þessum málum og á þakkir skilið, en ekki lítdlsvirðingu. Hjörtur Einarsson Skipulagsmal og íbúaþróun í Dorgarbyggð SQmfylkingQrfélag BorgarbyggðQr boðar til opins félagsfundar fimmtudaginn 23. nóvember kl. 20.30. Fundurinn verður í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi. Fulltrúar Borgarlistans í skipulagsnefnd, þau Sigríður Björk Jónsdóltir bæjQrfulltrúi og Jóhannes Freyr Stefónsson, munu leiða umræður um skipulogsmál og íbúaþróun í sveitorféloginu. Að umræðum loknum mun stjómin bjóðo upp á samsöng og kaffiveitingar. Allir velkomnir Samfylkingin www.skessuhorn.is RÍKISKAUP 14135 - Til sölu: Landakortagrunnar Landmœlinga Islands Landmælingar íslands (LMÍ) hætta útgáfu prentaðra landakorta og sölu þeirra á almennum markaði um næstu áramót, sbr. ný lög um starfsemi stofnunarinnar (nr. 103/2006). Óskað er eftir tilboðum í fimm stafræna Freehand landakoitagrunna, sem eru afleidd gögn af frumgagnagrunnum LMÍ og gerðir hafa verið fyrir útgáfu prentaðra korta. Landakortagrunnamir eru: Ferðakort 1:500 000, Ferðakortabók 1:500 000, Ferðakort 1-3 1:250 000, Vegaatlas 1:200 000 og Ferðakort 1:750 000 Heimilt er að bjóða í einstaka landakortagrunna. Hægt verður að skoða kortin á prentuðu og stafrænu formi hjá I Rflriskaupum, Borgatúni 7,105 Reykjavík, föstudaginn 24 : nóvember milli kl. 14.00 og 16.00. Sölulýsing með söluskilmálum verður aðgengileg á s heimasíðu Ríkiskaupa (www.rikiskaup.is) frá og með þriðjudeginum 21 nóvember. Kauptilboðum skal skilað til Ríkiskaupa, Borgatúni 7,105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 þann 13. desember 2006. Akraneskaupstaður Verkefnisstjóri æskulýðs- og forvarnarmála Auglýst er eftir verkefnisstjóra, um er að ræða fullt starf. Verkefnisstjóri hefur umsjón með æskulýðs- og forvarnarstarfi á vegum Akraneskaupstaðar og Fjölbrautaskóla Vesturlands. Lögð er áhersla á samvinnu við stofnanir, foreldra og ungmenni. Viðkomandi þarf að sýna mikið frumkvæði í starfi og hafa reynslu af vinnu með ungu fólki. Starfsreynsla á sviði ráðgjafar er kostur. Gerð er krafa um háskólamenntun sem tengist uppeldis-, heilbrigðis-, tómstunda- eða félagsfræði. Starfslýsing fyrirliggjandi. Laun skv. launakjörum viðkomandi stéttarfélags. t Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2007. Umsóknarfrestur til 8. des. n.k. Umsóknum sem * greina frá starfsreynslu og menntun skai skila á bæjarskrifstofur, Stillholti 16-18, 300 Akranesi. Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri fræðslu-, tómstunda- og íþróttasviðs í síma 433 1000.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.