Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 23
 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 23 Vesturlandsliðin í toppbaráttunni i körfunni Borgnesingar og Snæfellingar eru í banastuði þessa dagana. Hér er Jo- han Zdravevski, leikmaður Skallagíms í kröppum dansi. Ljósm: Svanur Steinarsson. Staðan í úrvalsdeildinni eftir leiki vikunnar er þannig að Snæ- fell og KR tróna á toppnum með 14 stig, en þar á eftir koma Skallagrímur og Grindavík með 12 stig. Vesturlandsliðin eru þannig að sýna og sanna að þau eru fremst meðal jafningja um þessar mundir, bókstaflega raða inn sigrum. Skemmtilegur ieikur í Borgarnesi Það var hraður og skemmtileg- ur leikur sem átti sér stað í Borg- arnesi s.l. sunnudagskvöld, á milli Skallagrímsmanna og Grindvík- inga, og var hann það allt frá upp- hafi. Varnarleikur beggja liða var öflugur og þrátt fyrir einhver mis- tök heimamanna til þess að byrja með lagaðist það fljótt. Leikurinn var allur hinn fjörugasti og í fyrsta leikhluta fór Darrel Flake á kost- um og skoraði 15 stig fyrir Skalla- grím. [ seinni hluta leiksins var allt í járnum, liðin spiluðu fína vörn en sóknarleikurinn var mistækur. Steven Thomas frá Grindavík skoraði 11 stig, bæði utan af velli en einnig tróð hann vel og lífgaði vel upp á leikinn. Dramatíkin ein- kenndi síðasta leikhlutann og ekki á vísan að róa hjá Skallagríms- mönnum með sigur, þrátt fyrir að vera yfir, því Grindvíkingar voru ætíð fast á hæla þeirra. Leikurinn fór þó þannig að Skallagrímur sigraði með 83 stigum gegn 74. Darrel Flake skoraði 24 stig, tók 15 fráköst og vann afar vel fyrir liðið allan tímann. Johan Zdra- vevski stóð sig einnig með prýði Iþróttafélög á Snæfellsnesi í samstarf við ESSO íþróttafélögin á Snæfellsnesi, sem á dögunum ákváðu sam- starf sín á milli í yngri flokkum í knattspyrnu, hafa gert sam- starfssamning við Olíufélagið ESSO sem verður aðal styrktar- aðili samstarfs knattspyrnufélag- anna. Samningurinn kveður á um að Safnkortshafar sem tengja kort sin samstarfinu styrkja það í hvert sinn sem þeir eiga viðskipti við ESSO. Auk þess renna 2 krónur á hvern seldan elds- neytislítra í afslátt í formi safn- kortspunkta til viðskiptavinarins ásamt 3% af vörusölu. [ frétt frá íþróttafélögunum segir að það sé von knatt- spyrnudeildanna að allir stuðn- ingsmenn og velunnarar félag- anna styðji við bakið á því öfluga starfi sem einkennt hefur félögin undanfarin ár með því að versla ávallt eldsneyti hjá Esso, hvort sem það er á stöðvum félagsins á Snæfellsnesi eða á öðrum stöðvum Esso þegar ferðast er um landið. „Því betur sem við stöndum að góðri umgjörð í rekstri barna- og unglingastarfs því meiri árangri náum við í forvörnum. Það er því von okkar að þessi fjárhagslegi stuðningur Olíufélagsins ESSO og safnkortshafa á Snæfellsnesi hjálpi okkur í því mikilvæga verk- efni sem framundan er,“ segir í tilkynningunni. HJ Sundæfingum ítrekað frestað vegna veðurs Sundfélag Akraness hefur ítrek- að þurft að fresta sundæfingum sl. viku vegna veðurs og kulda. Nú standa æfingar yfir af kappi fyrir íslandsmeistaramót. í viðtali við yfirþjálfara liðsins, Ragnheiði Run- ólfsdóttur, kemur fram að hún kennir um slæmri aðstöðu sundfé- lagsins og þrátt fyrir vilyrði sveita- stjórnar um nýja sundlaug árið 2008, segir hún félagið vilja að- gerðir og úrbætur hið fyrsta. Ragnheiður, sem hefur verið yf- irþjálfari sundfélagsins undanfarin ár, hefur náð góðum árangri með félagið og er það nú meðal fremstu í sinni röð yfir landið og hefur það vakið sérstaka athygli fyrir sterka sundmenn, frá ekki stærra sveitarfélagi. Ragnheiður segir að í síðustu viku hafi þurft að fresta fjórum sinnum æfingum vegna veðurs, bæði útaf öldu- gangi en einnig verði hröð kólnun á vatninu í lauginni þegar veðrátt- an hefur verið eins og undanfarið. „Það er ekki hægt að bjóða krökk- unum upp á slíkar aðstæður og hreinlega heilsuspillandi að æfa í slíkum kulda eins og hefur verið undanfarið. Þetta er bagalegt og ótækt þegar á sér stað æfingaferli fyrir stórmót eins og nú iiggur fyr- ir,“ segir Ragnheiður. „Stjórn sundfélagsins lagði til árið 2005 við Bæjarstjórn Akra- ness þrjár mismunandi leiðir sem hægt væri að fara til þess að bæta úr ástandinu. Það var vel tekið í hugmyndirnar og vonandi verður ráðist í framkvæmdir á næsta ári. Svo er það bara spurning um hvað þetta tekur langan tíma. Fram- kvæmdir hefðu helst þurft að hefj- ast strax á þessu ári, við þurfum úrræði strax! Ef við eigum að standa undir þeim titli að kallast íþróttabær eins og við viljum, verður sveitafé- lagið að leggja sitt af mörkum til þess að svo verði. Saga sund- félagsins hér er mjög góð, héðan hafa komið af- reksmenn og Ólympíufarar oft- ar en einu sinni og náð glæsiieg- um sigrum. Nú er það þannig að við getum ekki einu sinni fjölgað í sundhópunum Ragnheiður Runólfsdóttir vegna þess að hvorki er aðstaða til þess að taka á móti öllum þeim fjölda sem vill stunda sund en auk þess eru allir þeir hópar sem fyrir eru fullir. Þessir krakkar eru að leggja ómælda vinnu á sig, mæt- ingar hér á æfingar eru um 95% mánuð eftir mánuð og ég tel með slíkri ástundun og áhuga sé ekki aðeins þjálfaðir framtíðar afreks- menn heldur hefur þetta einnig gríðarlegt fon/arnarlegt gildi,“ seg- ir Ragnheiður með áherslu. Hún heldur áfram: „Okkar krafa er sú að fá innilaug og að mögu- leiki væri að halda þar mót. Það er lífsnauðsynlegt fyrir félagið að geta haldið stórmót eins og t.d. AMÍ - Aldursflokkameistaramót ís- lands, sem væri ekki síður mikil lyftistöng fyrir bæjarfélagið að taka þátt í. Það er stærsta og fjölmenn- asta mót innan sundgreinarinnar hér á íslandi og mikill fjöldi kepp- enda og aðstandenda sem það sækja. Okkar draumur er að sjálf- sögðu 50 m innilaug með 8 braut- um en frekar viljum við 25 m sund- og Pétur Sigurðsson átti dýrmæt- ar þriggja stiga körfur. Snæfell heldur sigur- göngu sinni áfram Snæfell tók á móti Tindastóli í Stykkishólmi á mánudagskvöldið og sigraði með 108 stigum gegn 85. Varnarleikurinn hjá báðum lið- um var góður en þó sérstaklega hjá liði Snæfells, sem sýnir mjög góða breidd þessar vikurnar, undir styrkri stjórn Geof Kotilla þjálfara. Menn voru varfærnir til þess að byrja með og var ekki laust við að gætti taugatitrings hjá báðum lið- um sem kom niður á skotnýting- unni i fyrsta leikhluta. Það átti hins vegar eftir að breytast og héldu heimamenn gestunum undir, út all- an leikinn. Skagfirðingar léku ákveðið eftir leikhlé og reyndu hvað þeir gátu til þess að minnka forskotið en tókst ekki og því sigur Snæfells vís. Sigurður Á. Þorvaldsson átti stórleik fyrir Snæfell og skoraði 37 stig, sem verður að teljast glæsi- legur árangur og einnig var Justin Shouse að sýna sig og sanna. Lið- ið var í heild mjög samhent, breiddin góð og sigurinn verð- skuldaður. KH Lionsmót Skallagríms 2006 Hið árlega Lionsmót sund- deildar Skalla- gríms var haldið dagana 11. og 12. nóvember í sundlaug Borg- arness. Til leiks mættu um 90 keppendur á aldrinum 5-12 ára frá 6 sundfé- lögum og var keppt í 26 greinum. Gestir Skalla- gríms að þessu sinni voru Aftur- elding Mosfellsbæ, Húnar Hvammstanga, Snæfell Stykkis- hólmi, Reykdælir og Víking- ur/Reynir Ólafsvík en lið Geisla á Hólmavík sat heima vegna veð- urs. Gestirnir gistu í Grunnskóla Borgarness og var öll umgengni þeirra um húsnæðið til mestu prýði. Mest var þátttakan í yngstu aldursflokkunum og margir kepp- endur að synda sín fyrstu sund- tök á móti enda aðstaða til keppni í yngriflokkum góð í innilauginni. í heildina tókst mótið með ágætum og allir fóru ánægð- ir heim með flottan verðlauna- pening og snyrtitösku sem viður- kenningu fyrir þátttöku. Það eru sérstaklega yngstu keppendurnir sem eru áhugasamir um verð- launapeningana eins og sjá má á meðfylgjandi mynd af efnilegri sundkonu úr Skallagrími. Eins og undanfarin ár styrkti Lionsklúbbur Borgarness mótið af myndarbrag og þá lagði Spari- sjóður Mýrasýslu einnig lið en hann hefur um ára bil gefið þátt- tökupeningana. Stjórn Sund- deildar Skallagríms þakkar öllum þeim sem styrktu mótið á einn eða anna hátt fyrir framlag sitt og síðast en ekki síst starfsfólki [þróttamiðstöðvar og grunnskóla fyrir hjálpsemi og liðlegheit við undirbúning og framkvæmd mótsins. ÁM laug, með 8 brautum og fá hana, en ekki. Við viljum bakkapláss þar sem að hægt væri að athafna sig með góðu móti og áhorfendapalla þar sem fólki er boðið að koma og hvetja sitt fólk.“ Ragnheiður segir að Skaga- menn eigi griðarlega góða afreks- menn í sundi og efniviðurinn og metnaðurinn sé nægur. „Ef við ætlum okkur að vera áfram meðal þeirra bestu, verðum við að bæta aðstöðuna. Nágrannasveitarfélög- in eru að stinga okkur af hvað þetta varðar, enda hafa þeir gert sér grein fyrir hversu nauðsynleg slík aðstaða er. Krakkarnir horfa til þeirra afreksmanna og -kvenna sem eru héðan og geta borið sig saman við þau. Þau sjá að fyrir þeim er möguleiki að ná jafn góð- um árangri, jafnvel kannski betri, og það er okkar sem sveitarfélag að verða við þeim óskurn," segir Ragnheiður að lokum áður en hún drífur sig út í norðan garrann, tilbú- in að gefa skipanir á sundlaugar- bakkanum. KH ýi rU’íjiir jóímtatíjddiu í crdur iuifduiu i C/úflcnýiifhói, 'BjíiilcyjarstUhii i ‘Kvafjiröi. fiefganiar 25. - 26. n&vembcrog 2. —3. dcscmbcr. 'Tifsýnis ocj sölu veróa hamiininir munir cftir fiUjiirfcra svcitarínnar 'Boöid vcrdur itpp á fafji, fieitt súff ufaöi, nýfkifiid gódgœti og tónfist. Cjerum offurgíadan daq i svcitinni oggcfum öóruvisi jófagjajir i ár. Opiö mifti fj', 13 og 18. Tfamlverfsjóffí ‘Mvaffirói cnnv. ftjarícyjarsandur. is 6

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.