Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 Fallið frá hækkun leikskólagjalda Meirihluti bæjarstjórnar Akra- ness hefur fallið ffá hugmyndum sem uppi voru um hækkun leik- skólagjalda um 10% ffá næstu ára- mótum. Forseti bæjarstjórnar segir það verá í samræmi við stefnu meirihlutans um að leikskólagjöld séu svipuð og sveitarfélögum af svipaðri stærð. Bæjarfulltrúi minni- hlutans segir Frjálslynda flokkinn svínbeygja Sjálfstæðisflokkinn og komi þannig í veg fyrir lækkun leik- skólagjalda. Leikskólagjöld verða því óbreytt. Eins og ffam hefur komið í frétt- um Skessuhorns samþykkti bæjar- ráð í síðustu viku að hækka þjón- ustugjöld, þar með talin leikskóla- gjöld, um 10% frá næstu áramót- um. A sama fundi var felld tillaga Sveins Kristinssonar bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um að lækka dvalargjöld í leikskólum og grunn- skólum um 25%. Meirihlutinn bókaði hins vegar að full ástæða væri til að skoða tillöguna nánar. Þegar málið kom til afgreiðslu í bæjarstórn í gær lagði Gísli S. Ein- arsson bæjarstjóri ffam svohljóð- andi tillögu: „Bæjarstjóm samþykk- ir að dvalargjöld í leikskólum og grannskólum taki ekki gjaldskrár- breytingum um næstu áramót.“ Sveinn Kristinsson lagði til að til- laga hans í bæjarráði um lækkun dvalargjalda yrði borin upp sérstak- lega. Tillaga Sveins var felld með fimm atkvæðum gegn fjórum. Til- laga bæjarstjóra var að því loknu samþykkt með fimm samhljóða at- kvæðum. Gunnar Sigurðsson forseti bæj- arstjórnar segir að tillaga um hækk- un leikskólagjalda hafi verið dregin til baka þar sem í ljós hafi komið, við nánari athugun, að hækkun gjaldanna hefði haft það í för með sér að leikskólagjöld á Akranesi yrðu ekki í samræmi við það sem tíðkast í sambærilegum sveitarfé- lögum, eins og stefna meirihlutans sé. Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar segir það auð- vitað gleðiefni að tekist hafi að koma í veg fyrir hækkun leikskóla- gjalda. Best hefði auðvitað verið að tillaga um lækkun leikskólagjald- anna hefði verið samþykkt því slíkt var einnig á stefhuskrá Sjálfstæðis- flokksins fyrir síðustu kosningar. „Frjálslyndi flokkurinn hefur hins vegar viljað hækka leikskólagjöldin og og bæjarfulltrúi þeirra hefur greinilega svínbeygt bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og því kemur einn bæjarfulltrúi af níu í veg fyrir tímabæra lækkun leikskólagjalda,“ segir Sveinn. HJ Þú gefur styrk Viðskiptavinir sparisjóðanna geta valið hvaða verkefni fær þeirra framlag og allir eru hvattir til að leggja fram viðbótarframlag. Einnig verður opnaður söfnunar- sími 901 1000 og kostar hvert sím- tal 1.000 krónur og markmiðið er að safna tuttugu og fimm milljón- um króna. BGK íkveikjur sumarsins upplýstar Lögreglan á Akra- nesi hefur nú upplýst allar íkveikjur sem urðu í bænum í sum- ar, eða fjórar talsins. Fyrsti bruninn varð í júní við Sements- verksmiðjuna á Akra- nesi þar sem kveikt var í brettastæðum og olli eldurinn skemmdum á bygg- ingum þar við. Annar bruninn var í einnig í júní en þá var kveikt í tanki með tjöru- Ahaldahúsið hrann íjúlí. hreinsi við birgðastöð Olís við ið send til umfjöllunar félagsmála- Hafnarbraut þar sem skapaðist mikil hætta vegna eldfimra efiia sem þar voru geymd. I júlí var kveikt í áhaldahúsi sem hýsti starf- semi Vinnuskólans og brann það hús til grunna. Að lokum var í á- gúst kveikt í plastgámum við síld- arverksmiðju HB-Granda og hlaust af mikið tjón auk þess sem flytja þurfti lögreglumann á slysa- deild vegna reykeitrunar. Tvær íkveikjur upplýstust fljót- lega eftir að atvikin komu upp og tvær nú í vikunni. I öllum tilvikum var um drengi á aldrinum 12-13 ára að ræða en þó ekki þá sömu í öllum tilfellum. Mál allra hafa ver- yfirvalda. Eitt branamál er enn til rann- sóknar hjá löreglunni á Akranesi en þar kviknaði í húsi sem hýsir hreinlætisaðstöðu við tjaldsvæðið í Kalmansvík á Akranesi. Eldsupp- tök voru í ruslafötu inni á salerni hússins og bendir rannsókn til að kviknað hafi í út frá sígarettuglóð sem hent hafi verið í ruslafötuna. Ef einhver hefur upplýsingar um mannaferðir á tjaldsvæðinu síð- degis og að kvöldi fimmtudagsins 9. nóvember, er sá hinn sami beð- inn að setja sig í samband við lög- regluna á Akranesi. KH Frá upphafi s'ófnunarátaksins. Sparisjóðimir hafa hafið átakið „Þú gefur styrk“ meðal viðskipa- vina sinna og landsmanna allra til styrktar geðheilbrigðismálum. Það eru átta frjáls félagasamtök sem njóta góðs af því sem safhast í átak- inu og eiga öll það sameiginlegt að vera með uppbyggingar,- út- breiðslu,- fræðslu- og þróunarverk- efni í geðheilbrigðismálum. Með þessu móti er vakin athygli á fjölbreytni geðrænna vandamála með það fyrir augum að draga úr fordómum gagnvart þeim, er þurfa að nýta sér geðheilbrigðisþjónustu. Staðreyndin er sú að einn af hverj- um fjórum landsmönnum glímir við geðræn vandamál, einhvern tímann á lífsleiðinni. Það eru því fáar fjölskyldur sem ekki fá bank á dyrnar hjá sér, frá þessum sjúkdóm- Ljóð í sjóð tíl styrktar MND félaginu „Ljóð í sjóð“ er heiti á bók sem inniheldur málverk, ljóð og geisla- disk með íslenskri tónlist og ljóða- lestri. Um er að ræða gjöf lands- liðs íslenskra listamanna til handa MND félaginu; sjúklingum og að- standendum þeirra. Listamenn- irnir sem að verkinu komu skipta tugum og ber það þess glæsilegt vitni. Jón Olafsson tónlistarmaður leiddi vinnuna við tónlistina. Hin ástsælu leikarahjón Margrét Olafs- dóttir, Steindór Hjörleifsson og Ragnheiður Steindórsdóttir dóttir þeirra lesa úrval ljóða undir ljúfum tónum Friðriks Karlssonar. Gísli MND FÉLAGIÐ Á ÍSLANDi Helgason hljóðritaði. MND félagið (www.mnd.is) styður við rannsóknir á taugasjúk- dómnum MND sem og við þá sem fengið hafa sjúkdóminn og að- standendur þeirra. I tilkynningu frá félaginu segir að meðal verk- efna MND-félagsins á næstunni megi nefna að safna 1 dollara á hvern íslending og leggja það til rannsókna á MND sjúkdómnum, öðrum þjóðum til eftirbreytni. Þá stefnir félagið á að útbúa aðstöðu fyrir MND veika á HNLFÍ í Hveragerði. Loks er stefna félags- ins að til verði orlofssvæði sem hefur aðgengi fyrir alla mikið fatl- aða, minna fatlaða og ófatlaða. Það verkefni ber vinnuheitið „Orlof fyrir alla.“ MM Sldlmenningar og Hjartaheíll færa SHA gjafir íbúar fyrrum Skilmannahrepps og stjórnarmenn samtakanna Hjarta- heill á ÖVesturlandi komu færandi hendi á Sjúkrahúsið og heilsgæslu- stöðina á Akranesi í síðustu viku og afhentu stofnuninni búnað og tæki. Fyrr á þessu ári höfðu. fulltrúar i sveitarstjóm Skilmannahrepps, sem nú hefur verið sameinaður öðrum sveitarfélögum í Hvalfjarðarsveit, samþykkt að veita fjárhæð úr bú- setusjóði hreppsins til tækjakaupa á SHA. I samráði við stjómendur SHA var ákveðið að festa kaup á svæfinga- vél og vöktunartæki fyrir slysastofu, á lífgunarborði fyrir nýbura og tölvustýrðri sprautu fyrir skurð- og Á myndinni eru fulltrúar Skilmannahrepps, f.v. þeir Sigurður Sverrir Jónsson, fyrrv. oddviti, Helgi Þorsteinsson og starfsmenn SFLA, hjúkrunarfraUngamir Olafia Sigurð- ardóttir ogKristjana Kristjánsdóttir og svæfingaUknamir Bjórn Gunnarsson og Rún Halldórsdóttir við lífgunarborðfyrir nýfodd böm. svæfingadeild. Samtökin Hjartaheill gangráð sem notað verður á lyf- á Vesturlandi gáfu stofhuninni afar vandað hjartastuðtæki með ytri A myndinni erufulltiiiar úr stjóm Hjartaheilla á Vesturlandi, f.v. Bjami Skarphéðinsson, . Sigrún Ríkharðsdóttir, Ólafur Magnússon, Sigurður Helgason, form. Hjartaheilla á Vest- urlandi, Björg Kristófersdóttir, Elín Frímannsdóttir og Sigurður Agústsson á sjúkrastofu lyflækningadeildar við búnaðþann sem Samtökin Hjartaheill á Vesturlandi gáfu til SFIA. A myndina vantar tvo stjómarmenn, þá Bjartmar Hannesson og Magnús Þorgrímsson. lækningadeild sjúkrahússins. í síðustu viku voru öll þessi tæki afhent formlega og í hófi sem hald- ið var af því tilefni voru tækin sýnd gefendum og lýstu læknar og hjúkr- unarfólk hvemig notkun þeirra væri háttað. Guðjón Brjánsson fram- kvæmdastjóri SHA þakkaði fulltrú- um beggja aðila fyrir sýndan vinar- hug og velvild í garð stofhunarinnar, sagði frá því að áður hefðu borist gjafir og stuðningur frá þessum aðil- um sem væri mikilsverður í raun og staðfesti að mikill og góður skilning- ur ríkti meðal þeirra fyrir mikilvægi stofmmarinnar í samfélaginu. HJ Starfs- og skólakynn- ingarferð 10. bekkjar Tíundu bekkingar í Grunn- skóla Borgarfjarðar fóru í starfs- og skólakynningarferð til Reykjavíkur og Akraness dagana 13. og 14. nóvember sl. Tilgangur ferðarinnar var að kynnast ólíkum starfsgrein- um og ólíkum gerðum ffarn- haldsskóla. Nemendur eru farnir að íhuga framhaldsnám næsta vetur og því þótti mikil- vægt að kynna fyrir þeim hvað í boði er og hvaða inntökukröfur eru gerð- ar í ólíkum skólum. í ferðinni var m.a. farið til Reykjavíkur; í Borgarleikhúsið, Dominos og farið í strætóferð því sumir nemendur höfðu aldrei nýtt þann ágæta ferðamáta áður. Þá var Iðnskólinn sóttur heim og m.a. tölvudeild, rafiðnadeild, smíðadeild, Þröstur Ólafsson, kennari í málmiðnadeild FVA leiddi Borgprðinga í allan sannleika um ágæti iðnbrauta skólans. I biðskýli Vilhjálms á leið ífyrstu stratóferðina. listasvið, hönnunardeild og hár- greiðsludeild skoðaðar. Því næst var Kvennaskólinn heimsóttur og loks haldið á Akranes þar sem víðtæk kynning á Fjölbrautaskóla Vestur- lands fór fram; fræðst um námsleið- ir, inntökukröfur, uppbyggingu fjöl- brautakerfisins, heimavist og iðn- deild skólans var skoðuð sérstaklega. „Starfs- og skólakynningarferð okkar tókst mjög vel. Nú ætti að vera auðveld- ara fyrir nemendur að velja nám næsta vetur og jafnvel framtíðarstarf, við vitum a.m.k. meira núna um það sem er í boði,“ sagði Hulda Hrönn Sigurðardóttir, umsjónarkennari hóps- ins. AÍM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.