Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 13
§BESSUH©iBÍ3 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 13 kynnast bæði foreldrar og starfs- menn sem er mikilvægt og skilar sér í skólastarfið." Fréttabréfið skapar rammann Það hefur verið fastur liður að for- eldrar bama í Laugagerðisskóla fái fréttabréf ffá skólanum, um hver mánaðamót, svokölluð mánaðar- bréf. „Eg tók þetta strax upp þegar ég tók við,“ segir Jóhanna. „Þetta er gott fyrir alla, starfsfólk, foreldra og böm. \fið sendum heim á alla bæi, sem eiga böm í skólanum, skipulag fyrir hvem mánuð, hvað verður um að vera. Foreldrafélagið kemur einnig að þeirri vinnu. Þetta er gott því þá þarf að setjast niður og skoða hvað á að gera í hverjum mánuði, áðtu- en fféttabréfið fer út. Og ég er nokkuð ströng með það að þurfa ekki að senda út neitt annað. Þetta á að duga. Þama inni eiga að vera all- ir þeir viðburðir sem tengjast skól- anum í hverjum mánuði og allt sem bömin okkar taka þátt í. Það er varla að ég leyfi að nokkuð sé gert ef það hefur ekki komið inn á þetta mánað- arlega skipulag. Þetta er eitt blað, öðrum megin, eitt blað á ísskápinn, svoleiðis er þetta hugsað. Þetta skap- ar mikla festu í skólastarfinu. Svona vinna krefst samvinnu, opnar skóla- starfið og eyðir tortryggni. Allir vita hvað við í skólanum erum að gera. En fréttabréf sem kemur bara stund- um, hefur ekki eins mikið gildi, því hef ég lagt ríka áherslu á það að við höldum áffam að senda bréfið út um hver mánaðamót, það hefur aldrei bragðist hingað til og ég hef lagt metnað minn í að svo verði áfram. Allt starf í svona litlum skóla krefst þess að allt starfsfólkið vinni vel saman fyrir skólann sinn- að starfsfólkið sé sveigjanlegt og beri hag skólans og þar með nemend- anna fyrir brjósti. Takist að gera starfið skemmtilegt þá skilar það ár- angri. Einkunnarorð skólans em: Menntun og Metnaður. Þau hvíla samt á öðrum ekki síður mikilvæg- um einkunnarorðum sem eru Traust, Virðing og Vinátta." Blaðamaður þakkar þessari geð- þekku konu fyrir ánægjulegt spjall. Ríkari en áður er gengið af þessum fundi. BGK Litlu stubbamir búnir að gera myndarlegan snjókarl. Ekki hættu- leg mengun á svæðinu Þann 9. nóvember sl. fór ffam skoðun Heilbrigðisefdrlits Vestur- lands á vamarsvæðinu að Miðsandi í Hvalfirði. „Skoðun þessi fór ffam í kjölfar margítrekaðrar fyrirspum- ar Heilbrigðisnefndar til vamar- málaskrifstofu utanríkisráðtmeytis- ins. Óskað var efrir að fá að vita hvað yrði um mannvirkin í Hval- firði þegar varnarliðið væri að hverfa ffá landinu og eins hvort um hættulega mengun væri að ræða.“ Frá þessu er greint á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Þar segir að fulltrúi vamarmála- skrifstofu hafi ekki getað mætt á staðinn, þannig að ekkert svar fékkst við fyrri spumingunni. En þama vora meðal annarra mættir Helgi Helgason, heilbrigðisfulltrúi Vesturlands sem var að skoða þetta svæði í fyrsta sinn; Magnús Guð- jónsson, ffamkvæmdastjóri heil- brigðisefrirlits Suðumesja (sem fer með eftirlit á vamarsvæðum), Guð- jón Hafliðason umsjónarmaður á svæðinu (ffá árinu 1967), Einar Öm Thorlacius, sveitarstjóri Hvalfjarð- arsveitar og Amheiður Iljörleifs- dóttir, formaður umhverfis- og náttúruverndamefndar Hvalfjarð- arsveitar. Allir olíutankamir á vamarsvæð- inu em tómir og hafa verið tómir ámm saman. Lagður var ffam hluti nýrrar skýrslu sem Vamarliðið hef- ur samið vegna starfseminnar í Hvalfirði. I þessu skýrslubroti koma m.a. fram upplýsingar um staðsetningu olíumannvirkja, tölu- legar upplýsingar um stærð olíu- mannvirkjanna og greint ffá þrem- ur lekavandamálum sem upp komu árin 1975, 1990 og 1994. Enn fremur var rætt um sameiginlegan sorpurðunarstað varnarliðsins, Hvals h/f o.fl. í hlíðinni ofan við hvalstöðina, en hann er ekki notað- ur lengur. Lítið er vitað um hvað hefur verið urðað eða brennt á þeim stað. „I dag er engin starfsemi á svæð- inu tengd vamarstöðinni. Hins vegar hefur sérsveit nkislögreglu- stjóra verið með æfingar á svæðinu. Umsjónarmaður hefur efrirlit með mannvirkjunum. Ekki er vitað á þessari stundu hvað gera á við mannvirki á staðnum í nánustu ffamtíð. Hættuleg mengun virðist ekki vera fyrir hendi á svæðinu, sem betur fer,“ segir á hvalfjordur.is MM i Norðurál og umhverfið Norðurál kappkostar að álverið skipi sér í fremstu röð i heiminum í umhverfismálum. Starfsleyfi Norðuráls var veitt með því skilyrði að það fullnægði ströngustu kröfum, m.a. að það sé búið bestu fáanlegu tækni til þess að hreinsa efni í útblæstri og viðhalda loftgæðum. Það er stefna fyrirtækisins að framfylgja, eða fara fram úr, öllum kröfum um umhverfismál sem lög, reglugerðir og starfsleyfi kveða á um. • Við leggjum áherslu á að halda losun úrgangsefna í lágmarki og að endurvinna sem mest. m Samfelld vöktun er á loftgæðum, veðurfari, gróðri, jarðvegi, ferskvatni og búfénaði á Hvalfjarðarsvæðinu. • Vöktunin erframkvæmd af óháðum aðilum undir eftirliti Umhverfisstofnunar. Umhverfisdagur Norðuráls UmhverfisdagurNorðurálsverðurhaldinnfimmtudaginn23.nóvemberámillikl. 15:30 og 20:30á Hótel Glymi á Hvalfjarðarströnd. Þar munu starfsmenn Norðuráls kynna árangur í umhverfismálum og niðurstöður umhverfisvöktunar. Kynning verður á orkuöflun Orkuveitu Reykjavíkur og fyrirlestur verður haldinn á vegum Hitaveitu Suðurnesja. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að koma og kynna sér starfsemi fyrirtækisins. N#**4 rv i*«t a tn Á i __ ORÐOhAL Century m i n u m Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000»Fax430 1001 • nordural@nordural.is •www.nordural.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.