Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. NOVEMBER 2006 ...f.llllWl,. Obreytt röðun þriggja efstu firam- bjóðenda Sjálfstæðisflokks skipa áfram þrjú efstu sæti listans. bóndi í Húnavatnssýslu og í sjötta I fjórða sæti kemur ný inn á listann sæti Birna Lárusdóttir, forseti bæj- og í pólitík, Herdís Þórðardóttir, arstjórnar á Isafirði. fiskverkandi á Akranesi. I fimmta MM sæti er Guðný Helga Björnsdóttir, Sturla Böðvarsson, stýrir áfram lista Sjálfstæðisflokks í kjördæminu. Á kjördæmisþingi Sjálfstæðis- manna í Norðvesturkjördæmi, sem fram fór í Borgarnesi á laugardag var samþykktur framboðslista fýrir komandi alþingiskosningar. Flokk- urinn fékk þrjá þingmenn kjörna í síðustu kosningum, ráðherrana Sturlu Böðvarsson og Einar K. Guðfinnsson auk þingmannsins Einars Odds Kristjánssonar. Þeir Listi. SjálfsUeðisflokksins í NorðvesturkjörcLemi: 1. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, Stykkishólmi 2. Einar Kristinn Guðfmnsson, sjávarútvegsráðherra, Bolungarvík 3. Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður, Flateyri 4. Herdís Þórðardóttir, fiskverkandi, Akranesi 5. Guðný Helga Bjömsdóttir, bóndi ogformaður Byggðarráðs Húnaþingi vestra 6. Bima Lárusdóttir, forseti bœjarstjómar, Isafirði 7. Magnea Guðmundsdóttir, húsfreyja, Skagafirði 8. Bergþór Ólason, aðstoðamaður samgönguráðherra, Akranesi 9. Þórdts Kolbrún Reykfiörð Gylfadóttir, nemi, Akranesi 10. Örvar Már Marteinsson, skipstjóri, Snæfellsbæ 11. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafirði 12. Hjörtur Amason, hótelstjóri, Borgarbyggð 13. Sigríður Svavarsdóttir, framhaldsskólakennari, Skagafirði. 14. Sunna Gestsdóttir, fijálsíþróttakona, Blönduósi 15. Guðmundur Skúli Halldórsson, formaður Egils FUS, Borgarbyggð 16. Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri, Suðureyri 17. Jóhanna Pálmadóttir, bóndi, Akri 18. Guðjón Guðmundsson, famkvæmdastjóri, Akranesi Magnús og Herdís leiða lista Framsóknarflokks Magnús Stefánsson hafnaði ífyrsta sæti og leiðir hann þvt áfram. Úrslit í talningu úr póstkosn- ingu í prófkjöri Framsóknarflokks- ins í Norðvesturkjördæmi lágu fýrir á öðrum tímanum aðfararnótt laugardags. Frá því fýrstu tölur birtust um tíuleytið um kvöldið var Magnús Stefánsson, alþingis- maður í fýrsta sæti listans, Herdís Sæmundardóttir á Sauðárkróki í öðru sæti og Kristinn H Gunnars- Herdís A Sœmundardóttir fierðist t póst- kosningunni upp um eitt sœti og verður í öðru sæti listans. son, alþingismaður í því þriðja. Sú röðun hélst til loka talningar sem og röðun næstu manna, þeirra Valdimars Sigurjónssonar í fjórða sætið og Ingu Osk Jónsdóttur í fimmta sætið. I sjötta sæti lenti G. Valdimar Valdimarsson, í sjöunda sæti Albertína Elíasdóttir og Heið- ar Þór Gunnarsson í því áttunda. Á kjörskrá voru 2.522 í prófkjörinu. Samtals greiddu 1.674 atkvæði eða 66,38%. Einn seðill var auður og 60 ógildir. Tíðindi prófkjörsins voru tví- mælalaust þau að Kristinn H Gunnarsson féll um eitt sæti á list- anum og víkur fýrir Herdísi. Full- víst verður að teljast að þriðja sæt- ið sé ekki þingsæti, ekki síst í Ijósi þess að þingmönnum kjördæmis- ins fækkar úr 10 í 9 í næstu kosn- ingum. MM Lokatölur: 1. 1 .Magnús Stefánsson 883 2. Herdís Sæmundardóttir 41 3. Kristinn H. Gunnarsson 672 4. Valdimar Sigurjónsson 9 5.1nga Osk Jónsdóttir 3 1.-2. 1.-3. 1.-4. 1.-5. 1.079 1.207 1.293 1.362 979 1.155 1.273 1.380 773 879 932 986 99 732 1.024 1.235 118 320 830 1.172 „Rétt að hafa meiri áhyggjur af flokknum en mér“ Kristinn H. Gunnarsson, al- þingismaður segir ástæðu til þess að hafa meiri áhyggjur af pólitískri framtíð Framsóknarflokksins en sinni eigin að aflokinni póstkosn- ingu meðal flokksmanna í Norð- vesturkjördæmi. Kristinn H. sótt- ist eftir fýrsta sæti listans en lenti í því þriðja. Magnús Stefánsson fékk flest atkvæði í fýrsta sætið og Herdís Sæmundardóttir fékk flest atkvæði í annað sætið. Kristinn segir úrslitin vissulega vonbrigði fýrir sig og stuðningsmenn sína en segist að öðru leyti mjög þakklátur fýrir þann stuðning sem hann hafi hlotið. Hann hafi hlotið um 40% greiddra atkvæða í fýrsta sætið sem sé góður árangur hvernig sem á það sé litið og því beri að varast að gera lítið úr þeim pólitíska styrk sem þessi niðurstaða gefi. Kristinn segir að þrátt fýrir allt sé mikill stuðningur við hans sjón- armið innan Framsóknarflokksins og ekki mikið minni en við þau sem urðu ofan á í póstkosningunni að þessu sinni. I pistli á heimasíðu sinni segir Kristinn orðrétt: „Nið- urstaðan er skýr að því leyti að kosin er óbreytt vegferð flokksins og þeir sem dyggilega hafa fýlgt henni eru valdir í möguleg þing- sæti. Það er valin áfram hægri Framsókn. Það er auðvitað eðli- legt og sjálfsagt að hlíta niðurstöð- unni. Hinir sem fýlgja sjónarmið- unum, sem ég hef talað fýrir innan flokksins, hljóta að virða úrslitin en líkast til halda sér til hlés.“ Margir hafa orðið til þess að túlka þessi orð Kristins á þann veg að hann hyggist hætta þátttöku í stjórnmálum, í bili að minnsta kosti. Hann segir það ekki rétta túlkun. „Eg mun áffam starfa í stjórnmálum en það er hvorki staður né stund nú til þess að ákveða með hvaða hætti það verð- ur,“ segir Kristinn og ekki sé held- Kristinn H Gunnarsson, alþingismaður. ur tímabært að svara þeirri spurn- ingu hvort hann muni þiggja þriðja sæti framboðslistans og því síður er hann tilbúinn til þess að ræða hugmyndir um hugsanlegt sérffamboð. Aðspurður segist hann óttast að fýlgi flokksins í kjördæminu dali eftir niðurstöðu póstkosningar- irmar. „Staðreyndin er sú að sú stefna sem hefur ráðið ríkjum í flokknum hefur gert það að verk- um að hann stendur mjög höllum fæti í skoðanakönnunum og mælist nú aðeins með 6-8% fýlgi og í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum fékk flokkurinn innan við 12% fýlgi á landsvísu. I skoðana- könnunum hefur flokkurinn hins- vegar verið sterkastur í Norðvest- urkjördæmi þar sem frarn hefur farið opinská og gagnrýnin um- ræða innan flokksins. Slíkt hefur greinilega fallið fólki betur en sú stefna sem rekin hefur verið á landsvísu. Þeir sem skemmta sér yfir útkomu minni í póstkosning- unni ættu að hafa meiri áhyggjur af pólistískri framtíð Framsóknar- flokkins, með núverandi stefhu, en pólitískri framtíð rninni," segir Kristinn H. Gunnarsson að lok- um. HJ www.skessuhom.is PISTILL GISLA TæknUeg mistök Þótt ég hafi komið víða við og eigi á stuttri ævi tiltölulega fjölbreyttan starfsferil að baki þá hefur mér ekki enn auðnast að láta tdl mín taka, svo nokkru nemi, á glæpabrautinni. Eg við- urkenni þó að ég hef stundum hugleitt það í blankheitum mínum að bankarán, fjárdráttur eða misferli hvers konar gæti verið heppileg leið. Eg er alla- vega búinn að sjá það fyrir löngu að það er eins og hver önnur bábilja að heiðarleiki borgi sig. Eg lærði það fyrir rúmum tuttugu árum. Þá þurfd ég að opna ávísanahefti mitt, ffá Sparisjóði Mýrasýslu, nán- artiltekið, vegna tilfallandi út- gjalda, og sá ég þá að þar var enn ávísun sem ég taldi mig hafa látið af hendi í Kaupfélagi Borgfirðinga tveimur dögum fyrr. Allavega var það á hreinu að ég hafði fengið greitt til baka nokkuð stóra fjárhæð á þeirra tíma mælikvarða enda var þetta fyrir tíma íslenskra trilljóna- mæringa. Þar sem ég er alinn upp í Guðsótta og góðum siðum á- kvað ég að leiðrétta þessi mis- tök þegar ég átti næst leið í kaupfélagið. Þar fór hinsvegar fjarri því að ég fengi klapp á bakið fýrir heiðarleikann held- ur þess í stað óbótaskammir fyrir að bera ábyrgð á því að kassinn stemmdi ekki þennan tiltekna dag. Það er því miklu ffekar kjarkleysi mínu um að kenna heldur en blindri trú á réttlæti heimsins sem ég hef ekki lagt fyrir mig ábatasama glæpi. Það skal þó tekið ff am að mér hefur ekki alveg tekist að feta beinu brautina. Ekki að aka hana í öllu falli. Eg hef nefni- lega um nokkur skeið sérhæff mig í umferðarlagabrotum. Þar vil ég reyndar kenna um á- kveðnum hagsmunaárekstrum þar ég vinn við að flýta mér en umferðarlögin miðast að því að hægja á mér og mínum líkum. Það má því kannski segja að ég sé einn af góðkunningjum umferðarlögreglunnar og kvarta ekki yfir því þannig lag- að. Eg hef hitt margan góðan lögreglumanninn undir bláum ljósum og átt skemmtilegar samræður í baksætinu á lög- reglubílum. Eg tek það þó skýrt fram að ég er síst að hæla mér af þessu framferði og veit upp á mig skömmina. Því þótt ég sé kannski seinn til þá endar það vonandi hjá mér eins og flest- um öðrum að ég læri af reynsl- unni. Það bætist líka við að vegna starfa minna hef ég þurft að koma að mörgum ljótum bílslysum og það er ekki skemmtileg sjón sem blasir við þegar tveir bílar hafa skollið saman á miklum hraða. Meðal annars þessvegna hef ég heitið sjálfum mér því að reyna effir ffemsta megni af hafa hemil á hvötum mínum til hraðaksturs. Hvort sem menn trúa því eða ekki þá er mér að þessu sinni fúlasta alvara. Að vísu hef ég um tvo kosti að velja. I stað þess að skamm- ast rnm og iðrast minna hraðakstursbrota þá gæti ég lit- ið á þau sem tæknileg mistök því auðvitað er þetta ekkert annað ef út í það væri farið. Mistökin fólust í því að færa eldsneytisgjöfina full neðarlega með hægri fæti. Tæknilegri mistök er vart hægt að hugsa sér. Hinsvegar verð ég líkt og aðrir að spyrja mig að því hvort ég hafi snefil af sjálfsvirðingu. Gísli Einarsson, upprisinn ærlega.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.