Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. NOVEMBER 2006 ...fllMH. . | Fjölmenni sótti Haraldarhús um helgina verandi og fyrrverandi starfsmenn fyrirtækja Haraldar Böðvarssonar saman tdl samkomu í Bíóhöllinni. Þar horfðu gestir á kvikmynd úr starfi fyrirtækisins og einnig skemmtu Álftagerðisbræður gest- rnn. Að samkomunni lokinni þáðu gestir veitingar í Haraldarhúsi um leið og þeir skoðuðu sýninguna. A laugardag og sunnudag var sýn- ingin opin almenningi og var hún fjölsótt. Að sögn Haraldar Stur- Guðmundur Gunnarsson og Bjöm jfónsson síldarverksmiSjunni. Á annað þúsund manns sótti sýn- ingu í Haraldarhúsi á Akranesi um helgina. Eins og ffam hefur komið í Skessuhomi var sýningin opuð 17. nóvember í tilefhi þess að þá voru 100 ár liðin ffá því að Haraldur Böðvarsson hóf atvinnurekstur á Akranesi. Það er sonarsonur hans, Haraldur Sturlaugsson, sem á veg sem um árabil störfuðu í og vanda af uppsetn- ingu sýningarinnar í húsi því sem Harald- ur Böðvarsson hóf að reisa árið 1924 við Vesturgötu 32. Á afmælisdaginn sjálfan komu saman um tvöhundruð nú- Lóa Gísladóttir, Sigríður Guðjónsdóttir og Aslaug Valdimarsdóttir störfuðu allar á símim tíma ífrystihúsinu. Elín Hannesdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson, Bergþór Guðmundsson, Eðvarð Ingólfssm og Helgi Daníelsson. laugssonar sóttu ríflega þúsund manns sýninguna og segist hann mjög ánægður með þann áhuga. Hann segir þar bæði hafa ráðið áhugi fólks á atvinnurekstrinum og einnig hafi margir haft áhuga á að skoða húsið sjálff. HJ/Ljósm: Myndsmiðjan, Akranesi. Oskað eftir frestun framkvæmda við Tónlistarskóla Minnihluti bæjarstjórnar Akra- ness gerði á fundi bæjarstjórnar í gær mjög alvarlegar athugasemdir við fyrirætlanir meirihluta bæjar- stjórnar um flutning Tónlistarskól- ans í nýtt húsnæði á Miðbæjarreit og óskar eftir því áð ffamkvæmdum verði ffestað. Eins og ffam hefur komið í ffétt Skessuhorns stefhir kosmaður við kaup og innréttingu húsnæðisins í 480 milljónir króna. Minnihlutinn segir að þeim hafi ekki borist áreiðanlegar áætlanir um kosmað sem af flutningnum hlýst og af fundargerðum megi ráða að innri hönnun húsnæðisins sé langt komin og innréttingar og breytingar muni kosta að minnsta kosti 240 milljónir króna. „Þar að auki virðist sem svo að allt kennsluhúsnæðið verði glugga- laust. Við teljum að slíkt fyrir- komulag sé með öllu óviðxmandi í skólastofhun sem starfa á til ffam- tíðar. Því förum við fram á að hönntm og ffamkvæmdum vegna þessa húsnæðis fyrir Tónlistarskól- ann verði ffestað á meðan bæjar- stjómin öll fer yfir málið, bæði hvað varðar húsnæðið sjálft og kosmaðaráætlanir,“ segir í bókun minnihlutans. Aðspurður hvort minnihluti bæj- arstjórnar eigi ekki sinn fulltrúa í ffamkvæmdanefhd mannvirkja og hafi þar með aðgang að ffamvindu málsins segir Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar svo vera. Hins vegar hafi málið ekki komið inn á borð nefndarinnar fyrr en fyrir skömmu og þá hafi kostn- aðaráætlun við innréttingu hússins verið kominn í 240 milljónir króna. Minnihlutinn hafi því litlar sem engar upplýsingar haft tun málið og því sé full ástæða til þess að staldra við og fara yfir það. HJ Mesti snjómokstur í fiórtán ár Snjómokstur var í fullum gangi á gömm Akraness um og eftir síðusm helgi og voru m'u moksturstæki að störfum þegar mest var, að sögn Sigurðar Þorsteinssonar verkstjóra á ffamkvæmdasviði Akraneskaup- staðar. Hann segir snjómoksturinn hafa gangið vel, bæði hreinsun að- alleiða og hreinsun gangstétta. Ak- umesingar hafa á seinni ámm ekki átt slíkum snjó að venjast og segir Sigurður að liðin séu fjórtán ár ffá því að vinna hafi þurft við snjó- moksmr að einhverju ráði hjá bæj- arfélaginu. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri segir að í fjárhagsáætlun sé gert ráð fyrir tæpum tveimur milljónum króna í snjómoksmr og ljóst sé að þeir fjármunir klárist fljótt. Hann segir veðurspá ekki hjálpa til því á miðvikudag geti bætt við snjóinn samkvæmt spá Veðurstofu. HJ Leikskólakennarar leggja land undir fót Leikskólakennarar á leikskólun- um Garðaseli og Teigaseli á Akra- nesi undirbúa nú náms- og kynn- ingarferðir erlendis sem farnar verða í vor. Kennarar Garðasels stefna á að fara til Kaupmanna- hafnar þar sem þeir munu væntan- lega heimsækja 2-3 leikskóla. Kennarar Teigasels stefna til Eng- lands til þess að kynna sér notkun Mumicon kubba við stærðfræði- kennslu. Þar munu þeir sækja námskeið í notkun kubbanna auk þess að heimsækja skóla. Námsferðirnar verða farnar 18.- 22. apríl og hefur bæjarráð Akra- ness samþykkt að styrkja ferð kennara Garðasels um 150 þúsund krónur. Ráðið hafnaði hins vegar styrkveitingu til kennara Teigasels þar sem sami aðili gemr ekki feng- ið styrk oftar en á fjögurra ára fresti. HJ Lögregla á hálendis- flugi yfir veiðilendum Lögreglan í Borgarnesi hefur haldið uppi eftirliti með rjúpnaveiðimönnum í sínu umdæmi en því lýkur í lok nóvember. Lögreglu- menn hafa farið í nokkur eftirlitsflug á flugvél sem þeir hafa aðgang að og í framhaldi af því haft af- skipti af grunsamlegum mannaferðum á jörðu niðri. Einnig hafa lögreglumenn frá Ríkislögreglustjóra farið í eftirlitsferðir um veiði- staði í héraðinu. I gær var farið með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF- Sif sem lenti á Kárastaða- flugvelli ofan við Borgarnes og tók upp tvo lögreglu- menn sem voru þaðan. Flogið var vítt og breitt um hálend- ið og veiðilendur í umdæminu en engar rjúpnaskytmr sáust, enda mánudagurinn „banndagur" til veiða. Ekki sást til rjúpna en tveir hafernir sáust hringa sig tígulega yfir Staðarhrauninu upp af Mýrum og lém þeir sér fátt um finnast um hávaðasamt þyrluflugið fyrir ofan sig. Snjór var lítill uppi á heiðum en víða var þó vel sporrækt og á nokkrum stöðum máttd sjá för eftir bíla á hálendisvegum. Athygli vakti að ís var á öllum helstu stöðuvöm- vun á svæðinu en þó var Háleiks- vatnið íslaust og autt með öllu. Há- leiksvatnið er í um 540 metra hæð yfir sjó en Langavatnið sem er í um 215 metra hæð var allt þakið ís. KH Akranesdeild Rauða krossins vill þjónusta útlendinga Akranesdeild Rauða krossins hefur boðið bæjarfélaginu samning um þjónusm við útlendinga búsetta í bænum og er lagt til að samning- urinn verði gerður í tdlraimaskyni í eitt til tvö ár. Hugmynd deildarinn- ar er sú að komið verði á fót upp- lýsingamiðstöð um málefhi útlend- inga í húsi Rauða krossins þar sem að útlendingar geti leitað nauðsyn- legra upplýsinga á einum stað. I upplýsingamiðstöðinni væri m.a. hægt að afla upplýsinga um húsnæðismál, dvalar- og atvinnu- leyfi, heilsugæslu, aðgengi að ís- lenskunámi, réttindi og skyldur á vinnumarkaði, mannréttindi og svo ffamvegis. Einnig tæki starfsmaður deildarinnar að sér að halda utan um upplýsingar um málefiú útlend- inga í bænum og miðla þeim tdl fagfólks eftir þörfum. Rauði Krossirm á Akranesi bend- ir bæjarráði á að þeir hafi sinnt fjöl- breyttum verkefiium í þágu útlend- inga og búi því yfir dýrmætri reynslu, mannauði og þekkingu. Deildin hafi á að skipa öflugum hópi sjálfboðaliða sem sinnt gæti túlkaþjónustu, félagsráðgjöf, kennslu og sálffæðiráðgjöf. Einnig hafi verkefnastjóri deildarinnar, Anna Lára Steindal, aflað sér sér- þekkingar á málefhum útlendinga og því vel í stakk búin til þess að vinna með þessum hópi fólks. Gera má ráð fyrir að allt að 200 einstaklingar af erlendum uppruna séu nú búsettir á Akranesi og líkt og Rauði krossinn bendir á, veltur það að verulegu leyti á því hvemig sveitarfélagið gerir þeim kleiff að nýta hæfileika sína til þess að vera fullgildir og sjálfstæðir þátttakend- ur á öllum sviðum samfélagsins. Bæjarráð samþykkti að vísa mál- inu til umsagnar félagsmálaráðs. KH Borgnesingar á skotskónum hjá BB Aukin spenna færðist í aðaltví- menningskeppni Bridsfélags Borg- arfjarðar sl. mánudag þegar þriðja kvöldið af sex var spilað. Borgnesingar voru í banastuði, uppskáru eftir því og tylltu sér á toppinn. Unn- steinn Arason og Rúnar Ragnars- son skoruðu mest allra þetta kvöld, eða 97 stig þrátt fyrir yfirsetu. Þá voru þeir Jón H Einarsson og Jó- hann Gestsson í góðum gír sem og heimamennirnir Ingimundur og Karvel. Staðan eftir 3 umferðir erþessi: 1. Dóra/RúnarAJnnsteinn 131 stig 2. Elín og Guómundur 130 stig 3. Sveinn og Magnús 124 stig 4. Sveinbj'óm og Lárus 113 stig 5. Jón og Baldur 110 stig.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.