Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 22.11.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 aiusunu^. S Sameining styrkir Sparisjóð Olafsvíkur til verka Helga Valdís GuSjónsdóttir, sparisjóðs- stjóri Sparisjóös Olafsvtkur. Frá slökhiistarfi við birgðastöð Olís 15. júní í sumar. I þeim bruna mátti litlu muna að eldurinn bœrist inn í geymslu- hús sem varfullt af bráðeldfimum efnum og vann Slökkvilið Akraness gott stafí þessum bruna sem öðrum á þessu ári. Tveir þrettán ára játa íkveikjur Lögregan á Akranesi hefur nú upplýst tvo bruna sem urðu í bæn- um í júní á þessu ári. Um var að ræða bruna við Sementsverksmiðj- tma þar sem kveikt var í brettastæð- um og bruna í birgðastöð Olís við Hafnarbraut þar sem kveikt var í tanki með tjöruhreinsi. I báðum tál- fellum var tjón umtalsvert bæði á munum og mannvirkjum. Nú í vik- unni bárust upplýsingar tdl lögreglu sem urðu tdl þess að gerendur í mál- tmum fúndust. Reyndust það vera tveir 13 ára drengir sem höfðu kveikt í á báðum stöðum. Hafa þeir verið teknir til viðtals hjá lögreglu og játuðu þeir báðir verknaðinn skýlaust. Drengimir eru ósakhæfir sökum aldurs og hafa mál þeirra verið send félagsmálayfirvöldum til umfjöllunar. MM Stofhfjáraðilar í Sparisjóði Ólafs- víkur munu væntanlega um miðjan desember taka endanlega ákvörðun um sameiningu sjóðsins við Spari- sjóð Keflavíkur. Engar breytingar verða á starfsmannahaldi sjóðsins við sameininguna og hún mun gera sjóðnum kleift að sinna betur þörf- um stærri viðskiptavina. Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns á föstudag hafa stjórn- ir Sparisjóðs Ólafsvíkur og Spari- sjóðs Keflavíkur undirritað áætlun um samruna sjóðanna sem miðast við 1. júlí 2006. Við samrunann verður miðað við sama hlutfall á milli stofnfjár og annars eigin fjár í báðum sjóðtmum og til að ná því markmiði hefur verið ákveðin aukning stofnfjár í Sparisjóði Ólafsvíkur. I nýja sjóðnum munu stofnfjáreigendur í Sparisjóði Ólafsvíkur eiga um það bil 3,2% en eigendur stofnfjár í Sparisjóðnum í Keflavík 96,8%. Helga Valdís Guðjónsdóttir, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Ólafs- víkur segir að vilji stjórnar spari- sjóðsins til samstarfs eða samein- ingar við aðra sjóði hafi legið fyrir í tvö ár eða allt frá því að Helgi Kristjánsson, formaður stjórnar sjóðsins lýsti þeim vilja á ársfundi sparisjóðanna. Frá þeim tíma hafa nokkrar fjármálastofnanir kannað hug stjórnenda sjóðsins til nánara samstarfs. Það hefur óneitanlega vakið at- hygli að Sparisjóður Keflavíkur hafi orðið fyrir valinu en ekki ein- hver bankastofmm nær starfssvæði Sparisjóðs Ólafsvíkur. Helga Valdís segir að í raun skipti staðsetning ekki máli í þessu sambandi. Það sem ráðið hafi úrslitum í þessu efni hafi verið sú staðreynd að einungis Sparisjóður Keflavíkur var tilbúinn til sameiningar. Aðrar fjármála- stofnanir hafi einungis viljað yfir- taka starfsemi Sparisjóðs Ólafsvík- ur. Helga Valdís segir að rekstur Sparisjóðs Ólafsvíkur hafa gengið vel á undanförnum árum og það séu því ekki erfiðleikar í rekstri sem valdi því að þessi leið sé farin. Hins vegar hafi smæð sjóðsins gert það að verkum að erfitt hafi verið að þjónusta stærri viðskiptavini sjóðs- ins og þeir hafi því þurft að leita á önnur mið. Hinn nýi sjóður hafi hins vegar mikinn styrk og geti sinnt mun betur þörfum Snæfell- inga. Engar breytingar verða gerðar á starfsmannahaldi við sameining- una. Helga Valdís segir að með tímanum geti þó starfssvið ein- stakra starfsmanna breyst því sam- eining gefi ákveðin tækifæri til hag- ræðingar. Verkefni geti því færst á milli starfsstöðva og því geti farið Fyrsti slökkvibíll sinnar tegundar í Dalina Samþykkt hefur verið í sveitar- stjórn Dalabyggðar að kaupa nýjan útkallsbíl, með ffoðuútbúnaði, sem væntanlega kemur til notkunar í mars. Að sögn Jóhannesar H. Haukssonar, slökkviliðsstjóra í Dalabyggð mun bíllinn nýtast sem fyrsti bíll á vettvang, hvort sem um er að ræða bíl-, eitrunarslys eða eld. Þetta er fyrsti bíllinn á landinu sem er sérsmíðaður með þessu kerfi sem kallast „One-seven 2400E“. Fyrir er á Dalvík bíll sem kerfið var sett í. Það er að vísu minna, en Dalvík- ingar eru hæstánægðir með hann. Nafnið, „One-seven“ kemur til vegna þess að sjö ffoðukúlur eru myndaðar úr hverjum vatnsdropa með því að bæta við það froðuhvata og þrýstilofti. Ur eitt þústmd lítr- um af vatni, þremur lítrum af sápu og sjö þúsund lítrum af lofti, verða til átta þúsund lítrar af ffoðu. Það magn samsvarar 8 tonnum af vatni, sem aldrei myndi geta gengið í út- kallsbíl. Mun meiri kæling næst einnig vegna þessarar margföldun- ar vatns við að breyta því í ffoðu. Efnið hefur mikinn slökkvimátt og næst allt að 80% nýting á ffoðunni sem notuð er á eldinn. Einnig er ffoðan umhverfisvæn því 99,8% af henni brotnar niður á 15 dögum. I bílnum er bæði A og B ffoða. A- ffoðan er notuð á eld í föstu elds- neyti, en B-ffoðan í logandi elds- Það eru geðveikt góðir englar á meðal okkar Sparisjóðurinn og viðskiptavinir hans sameinast nú um að styrkja samtök sem vinna að úrbótum í geðheil- brigðismálum. Við bjóðum viðskiptavinum Sparisjóðsins að velja eitt af þeim átta félögum sem við höfum ákveðið að styrkja í ár. Þá mun Sparisjóðurinn greiða 1.000 kr. fyrir hvern viðskiptavin sem tekur þátt. Auk þess geta allir, viðskiptavinir og aðrir, lagt málefninu lið og bætt við upphæð að eigin vali. Farðu inn á www.spm.is eða komdu í næsta Sparisjóð og gefðu þinn styrk. im\ Stiilholti 18 I 300 Akranesi I Digranesgötu 2 I 310 Borgarnesi I Sími 430 7500 I spm.is * ^SPARISJOÐURINN - fyrir þig og þína svo að í framtíðinni fjölgi störfum hjá sjóðnum í Ólafsvík. Ekkert hafi þó verið ákveðið í því efni. Eins og áður sagði hafa stjórnir sjóðanna undirritað áætlun um samruna sjóðanna. Það eru hins vegar stofnfjáraðilar sjóðanna sem eiga síðasta orðið og að sögn Helgu Valdísar er stefnt að því að þeir komi saman til fundar um málið fyrir jól. HJ neyti, eins og bensín og olíur. Einnig er hægt að vera með blauta og þurra ffoðu. Sú blauta slekkur elda en sú þurra er notuð til vemd- ar, t.d. ef verja þarf nærliggjandi byggingar. „Ekki leikur nokkur vafi á því að öryggi í Dölum mun aukast verulega við þessi kaup,“ sagði Jó- hannes að lokum. BGK Hesta- menn vilja reiðvegi Hestamannafélagið Dreyri lagði á dögunum fyrir bæjarráð Akraness tillögu um uppbygg- ingu á reiðvegum og umhverfi í kringum hesthúsahverfið Æðar- odda á Akranesi. Samkvæmt ffamkvæmdaráætlun er gert ráð fyrir uppbyggingu vega, lýsingu meðffam þeim og á svæði félags- ins og malbikun á akvegum. Ráð- gert er að ffamkvæmdimar kosti rúmar 22 milljónir króna. Bæjar- ráð vísaði málinu til gerðar fjár- hagsáætlunar næsta árs. „Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn með jákvæðar undirtektir,“ sagði Stefán Jóns- son, forsvarsmaður reiðvega- nefhdar Dreyra, í smttu spjalli við Skessuhom. „Það hefúr hing- að til verið góðiu stuðningur við aðrar íþróttagreinar í bænum og því hlýtur það sama að eiga við um okkur. Dreyri á auk þess 60 ára afmæli á næsta ári og væri því við hæfi að gera vel við félagið af því tilefni." Stefán sagði jafn- framt að undanfarið hefði verið mikil fjölgun félaga innan Dreyra og því væri greinilegt að starf- semi félagsins væri í góðum vexti og engin ellimörk að sjá né heyra þar. KH Ferðaþjón- usta bænda kaupirFV Fyrir skömmu var undirritaður samningur milli Ferðaskrifstofu Vesturlands hf., sem ffam undir þetta hefur verið rekin í Borgar- nesi, og Ferðaþjónusm bænda hf. um kaup Fb hf. á Ferðaskrifstofa Vesmriands hf. Fyrirtækið hefúr um árabil getið sér gott orð með- al innlendra og erlendra við- skiptavina en meðal annars hefúr skrifstofan átt farsæl viðskipti við ferðaskrifstofur í Bandaríkjtmum og skipulagt ferðir Islendinga til útlanda, m.a golfferðir til Túnis og ferðir á landbúnaðarsýningar í Danmörku. „Starfsemi Ferðaþjónusm bænda hefur eflst undanfarin ár og með tilkomu utanlandsdeildar Ferðaþjónusm bænda árið 2003 opnuðust ný tækifæri sem hafa átt þátt í að festa ferðaskrifstof- una betur í sessi segir í frétt frá FB. Rekstur Ferðaskrifstofu Vesturlands fellur vel að starf- semi Ferðaþjónustu bænda hf. að mati stjómenda, bæði innanlands sem og á erlendum mörkuðum,“ segir í tilkynningu frá Ferðaþjón- usm bænda hf. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.