Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2006, Side 8

Skessuhorn - 22.11.2006, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 ^uoaunuu' Runólfur segir upp og Bryndís Hlöðversdóttir skipuð í rektorsstöðu til bráðabirgða Dramatískir dagar í sögu Bifrastar Runólfur Agústsson, fráfarandi rektor Háskólans á Bifröst. Ekki er ofsögum sagt að mikið uppnám hafi ríkt sl. miðvikudag og fimmtudag í háskólasamfélaginu á Bifröst og ljóst þótti fljótlega að drægi til tíðinda í máli sem átt hef- ur sér nokkurn aðdraganda. Hópur fyrrverandi og núverandi nemenda hafði nokkrum dögum áður sent inn nafnlausar kærur á hendur Runólfi Agústssyni rektor Háskól- ans á Bifröst til siðanefndar skól- ans. Kærurnar voru afhentar for- manni skólafélagsins og fulltrúa í Háskólaráði og óskað eftir því að þeir kæmu þeim til siðanefndar skólans og háskólastjórnar. Þeim fylgdu þau orð að viðkomandi væru reiðubúnir að koma fram undir nafni hjá siðanefnd. Stjórn Háskólans tók umræddar kærur fyrir og þar sem um var að ræða nafhlaust bréf, vísaði stjómin kær- unum frá og afhenti rektori þær. Þrátt fyrir að efhi kæranna væri merkt sem trúnaðarmál mat Run- ólfur á þeim tímapunkti stöðu málsins þannig að hann sendir afrit þeirra út til nemenda og starfs- manna þar sem hann vissi til að umræddum kæmm hafði þá þegar verið dreift með tölvupóstum um háskólasamfélagið. Hann boðar til fundar um nónbil sl. miðvikudag þar sem hann gerði grein fyrir sín- um málum út frá ávirðingum þeim sem fram koma í kæranum. Kærunum dreift á netinu I samtali við Skessuhorn sl. mánudag segir Runólfur það al- rangt að hann hafi verið fyrstur til að senda umræddar kærur á hans hendur út með tölvupósti og ítrek- aði að það væri lykilatriði málsins að hann hafi ekki verið fyrstur til og þannig brotið trúnað gagnvart siðanefnd. „Það sem rétt er í mál- inu er að á þriðjudag í síðustu viku var búið að senda umrædd skjöl í tölvupóstum sem þá þegar fóm manna á milli mjög hratt og stór hluti háskólasamfélagsins vissi þá þegar um efnisinnihaldið. Enda fóra fjölmiðlar strax á miðviku- dagsmorgun að hringja í mig og spurja út í efni kæranna," sagði Runólfur í samtali við Skessuhorn. Að öðra leyti vildi hann ekki tjá sig um málið umffam það sem ffam kemur í yfirlýsingu hans á fimmtu- dag og viðtölum við sjónvarps- stöðvarnar í liðinni viku. í upphafi fundarins komst Run- ólfur þannig að orði: „Nú í haust hefur ekki verið vinnuffiður í þess- um skóla. Gagnrýni kom fram á mín störf og innra skipulag skól- ans, gagnrýni, sem að mörgu leitd var réttmæt. Við henni hefur verið bragðist. En sumir gagnrýnenda hafa kosið að láta ekki við svo búið sitja. Einhverjir innan þessa skóla sætta sig hvorki við stefnu skólans né starfandi rektor. Markmið þessa hóps virðist vera orðið að koma þeim sem hér stendur úr stöðu sinni með öllum þeim meðulum sem þar þykir þurfa. I þeim efnum skiptir heiður eða orðspor skólans engu, í þeim efnum skiptir réttur fólks til einkalífs engu, í þeim efn- um skiptir æra mín, eða minna, engu. Engu skal vægt til að ná því fram sem að er stefnt." Fundinum á miðvikudag lauk með atkvæðagreiðsla um traust eða vantraust á störf hans við skólann þar sem hátt á þriðja hundrað manns tóku þátt. Hópur kennara skólans hafði áður en til atkvæða- greiðslunnar kom yfirgef- ið fundinn þar sem þeim „misbauð framganga rektors," eins og sumir þeirra komust að orði í samtali við Skessuhorn. Niðurstaða atkvæða- greiðslunnar varð sú að um 70% þeirra sem kusu studdu störf Runólfs Agústssonar. I samtali við fjölmiðla þá um kvöldið taldi hann sig í framhaldi atkvæðagreiðslunnar njóta breiðs stuðnings há- skólasamfélagsins. Alvarlegar ávirðingar I kæram þeim sem hóp- ur nemenda hafði sent inn komu fram ýmsar ásakan- ir á hendur Runólfi bæði í störfum hans og einkalífi. Má þar nefna ásakanir um að hann teldi sig ekki þurfa að fara eftir settum reglum og nefnd eru í því sambandi brot á reglum um dýrahald, brot á umgengnis- reglum og náið samneyti við nem- anda skólans og það sem kallað er dómgreindarleysi að sá nemandi skuli sitja í háskólaráði fyrir hönd nemenda. Þá er hann einnig sakað- ur um brot gegn 2. gr. siðareglna skólans þar sem segir að starfsfólki og nemendum sé frjálst að gagn- rýna stefnu og starfshætti skólans á málefnalegan hátt. Segja þeir að rektor hafi komið málum þannig fyrir að þeir sem gagnrýna stefnu og starfshætti skólans á málefna- legan hátt séu oftar en ekki teknir fyrir og farið offorsi gegn þeim. I þeim kemur einnig fram að rektor hafi veðjað við einn af nem- endum skólans hvenær nýbygging nemendagarða skólans yrði tilbú- in. Ef nemandinn fengi ekki íbúð á tilsettum tíma hugðist rektor greiða persónulega skólagjöld ann- arinnar fyrir viðkomandi íbúa. Segir að veðmálinu hafi lokið með því að rektor greiddi umsamda upphæð. Umdeild áhrif fundar Um hádegisbil á miðvikudag boðar rektor með tölvupósti, eins og áður segir, til fundar starfsfólks og nemenda skólans. Með fundar- boði var affit af kæranum sem siðanefnd höfðu verið sendar. A fundinn mættu vel á þriðja hund- rað manns; starfsmenn og nem- endur skólans, en um fjögurhund- rað manns stundar staðnám á Bif- röst. Á fundinum fór Runólfur yfir þær ávirðingar sem á hann höfðu verið bornar og óskaði síðan eftir traustsyfirlýsingu ffá fundinum á störf sín. Um 70% fiindarmanna samþykkti traustsyfirlýsinguna. Kennarar og starfsmenn skólans sem blaðamaður Skessuhorns hafði samband við á miðvikudag vora í miklu uppnámi vegna fund- arins. Enginn þeirra vildi þó koma fram undir nafni. Þeir sögðu ffam- komu rektors hafa gengið fram af starfsmönnum og þeim hefði verið mjög misboðið. Því hefðu þeir yf- irgefið fundinn áður en til at- kvæðagreiðslu kom. Nefndu þeir í því sambandi að rektor hefði send trúnaðargögn með fundarboði og ekki hefði verið leyfðar umræður á fundinum. Einnig var nefnt að fundinn hefði aldrei átt að halda því málið hefði verið í eðlilegum farvegi hjá stjórn og siðanefnd skólans. I máli þeirra kom fram að ástand mála á Bifröst hefði verið með þeim hætti að stjórn skólans gæti ekki vikist tmdan ábyrgð leng- ur. Siðanefnd Háskólans á Bifröst sendi frá sér tilkynningu á mið- vikudagskvöldið þar sem fram kom að hún teldi að birting þeirra gagna sem lágu fyrir nefndinni samrýmdust ekki siðareglum skól- ans. Þeir sem blaðamenn Skessu- horns hafa rætt við eftir fundinn á Bifröst á miðvikudag era flestir á einu máli um að boðun hans og út- sending kæranna hafi verið póli- tískur afleikur Runólfs. Fundurinn hefði ekki lægt neinar öldur, held- ur þvert á móti. Telja flestir sem rætt var við að Runólfur hefði átt að láta siðanefnd skólans um að af- greiða umrædda kæra, eða eins og einn starfsmanna orðaði það; „Hann hefði átt að segja upp án þess að boða til fundar með þess- um hætti - eða berjast ella fyrir sínum málstað og án þess að rjúfa trúnað um gögn sem siðanefnd hafði til umfjöllunar." Hér skal ít- rekað það sem Runólfur sagði hér að framan að hann hefði ekki verið fyrstu til að senda umræddar kærar út í samfélagið með tölvupósti á miðvikudagsmorgun, það hafi aðr- ir verið búnir að gera deginum áður. Uppsögn Á fimmtudag dró síðan til tíð- inda. Ljóst þótti að ófriður sá sem ríkt hefði um persónu Runólfs í starfi yrði ekki lægður nema eitt- hvað nýtt gerðist í stöðunni. Það kom síðan á daginn. Stjórn Há- skólans á Bifröst sendi eftir hádegi á fimmtudag frá sér fréttatilkynn- ingu um starfslok Runólfs Ágústs- sonar, rektors skólans. Þar sagði: „I dag, 16. nóvember 2006, hefur stjórn Háskólans á Bifröst borist uppsögn Runólfs Ágústssonar, rektors frá 1. desember næstkom- andi. Runólfur hefur gegnt starfi rektors undanfarin 7 ár. Á þeim tíma hefur Bifiröst tekið miklum og jákvæðum breytingum. Uppbygg- ing á aðstöðu við skólann hefur verið mikil og hröð og skólinn undir forystu Rimólfs hefur verið í fylkingarbrjósti nýrra hugsana í fræðslu- og menntamálum. Á þess- um tímamótum vill stjórn Háskól- ans á Bifföst þakka Runólfi fyrir óeigingjarnt starf í þágu Bifrastar. Stjórnin hefði kosið að njóta starfskrafta Runólfs út umsaminn ráðningartíma, en virðir þessa ákvörðun hans.“ Þá tilkynnti stjórn að þá þegar hefði Bryndís Hlöðversdóttir að- stoðarrektor tekið tímabundið við starfi rektors þar til nýr rektor verði ráðinn. „Einkalífið gef ég ekki“ Runólfur Ágústsson, rektor sendi jafhffamt ffá sér yfirlýsingu á fimmtudag: „Sá ófriður sem ríkt hefur í skólahaldi á Bifröst að undanförnu hefur traflað bæði nemendur og starfsfólk og að auki valdið skólan- um sjálfum skaða. Enda þótt spjót- um sé beint að mér einum, og nán- ast eingöngu vegna persónulegra mála en ekki málefna skólans, bitn- ar þessi aðför einnig á fjölskyldu minni, nánum vinum og samstarfs- mönnum. Eg hef undanfarin sjö ár gefið þessum skóla allt mitt líf, allan minn tíma og alla mína orku. Einkalíf mitt get ég hins vegar ekki gefið. Eg hef því tekið ákvörðun um að segja upp starfi mínu sem rektor skólans ffá og með 1. desember næstkomandi. Þetta geri ég þrátt fyrir að njóta óskoraðs stuðnings háskólastjórnar til minna starfa, sem og háskólasamfélagsins á Bif- röst. Á fjölmennum fundi í gær tók ég þá djörfu ákvörðun að bera störf mín og hæfi undir atkvæði nem- enda og starfsfólks þar sem hátt á þriðja hundrað manns tóku af- stöðu. Mikill meirihluti þeirra lýsti yfir stuðningi við mig sem ég met mikils og er þakklátur fyrir. Átök- um innan skólans þarf hins vegar að linna tafarlaust svo skólahald geti orðið með eðlilegum hætti. Eg lít hreykinn um öxl til þeirr- ar miklu uppbyggingar sem átt hefur sér stað á Bifföst í rektorstíð minni. Eg óska starfsfólki og nem- endum skólans velfamaðar og læt í ljós þá von að Háskólinn á Bifröst eigi efrir að halda áffam að vaxa og dafha um langa ffamtíð. Runólfur Ágústsson.“ Eldhugi Engum þeim sem á undanförn- um áram nefur fylgst með máiefn- um Háskólans á Bifröst hefur dulist að Runólfur Ágústsson, ffá- farandi rektor hefur lyff grettistaki í uppbyggingu háskóla sem í hans tíð hefur breyst úr að vera fámenn- ur, en góður sveitaháskóli - í að verða stór og ffamsækinn háskóli með vaxandi fjölda námsgreina. Litið er til Háskólans á Bifföst með virðingu og jafnvel hefur örl- að á ákveðinni öfund annarra skólastofnana sem ekki hafa sömu snerpu og einkennt hefur skólann í Norðurárdal. Þó svo að viðskilnaður Runólfs úr starfi á Bifröst hafi verið stormasamur er öraggt að tíma hans þar verði minnst sem ffam- faratíma í sögu skólans. Storma- samur viðskilnaður er e.t.v. eins og Runólfur sagði sjálfur í viðtali við fjölmiðla sl. fimmtudag, í anda þess baráttuvilja sem hann ávallt sýndi fyrir hönd Biffastar. „Eg lít hreykinn tun öxl til þeirrar miklu uppbyggingar sem átt hefur sér stað á Bifföst í rektorstíð minni,“ sagði hann f yfirlýsingu sinni sl. fimmtudag og er með öllu óhætt að taka tmdir með honum og segja að hann geti verið hreykinn. Skessuhorn óskar Runólfi Ágústssyni allra heilla í þeim verk- efnum sem fyrir honum munu liggja. Jafhffamt liggur það ljóst fyrir að stjórn Háskólans á Bifröst og nýjum stjórnendum mun bíða krefjandi verkefni við að halda áffam því starfi sem Runólfur hóf og skapa eðlilega ró um skólahald á Bifröst. MM/HJ

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.