Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2006, Side 4

Skessuhorn - 29.11.2006, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 akUSUIIuU' Útsvar við lágmark HVALFJARÐARSVEIT: Sveitarstjóm Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum í gær að útsvarsprósenta næsta árs verði 11,61%. Hvalfjarðarsveit varð til í vor við sameiningu fjögurra sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar sem öll höfðu þessa sömu álagningarprósentu á yfirstandandi ári og er þetta með því lægsta sem gerist hjá sveitarfélögum. Lægstur má álagningarstuðullinn vera 11,24% en hæstur 13,03%. Flest sveitarfélög á landinu nýttu hámarksheimildir sýnar í álagningu útsvars og var meðal- tal síðasta árs 12,97%. íbúar Hvalfjarðarsveitar munu því áfram greiða mim lægra útsvar en flestir landsmenn. -bj Dagblöð og femur SNÆFELLSBÆR: Undan- farna daga hafa verið settir upp gámar á þremur stöðum í þétt- býli Snæfellsbæjar. Þeir eru ætl- aðir undir dagblöð bæjarbúa annarsvegar og hins vegar und- ir drykkjarfernur. A Hellissandi hefur gámunum verið komið upp við Esso-stöðina, í Rifi var gámunum valinn staður við verslunina Virkið og í Ólafsvík er þeir við bensínstöð Skelj- ungs. Uppsetning gámanna er hluti af breytingum í sorphirðu í bæjarfélaginu. ~kj Starfshópur um þjóðveg BORGARNES: Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar hefur lagt til við byggðaráð sveitarfélagsins að skipaður verði starfshópur sem fari yfir framkomnar tillögur og at- hugasemdir um breytingu á legu þjóðvegar 54 um athafna- svæði Loftorku Borgarnesi ehf. í jaðri byggðarinnar í Borgar- nesi. Leggur nefndin til að starfshópinn skipi fulltrúar frá Borgarbyggð, Loftorku ehf., Vegagerð ríkisins og Umferð- arstofu. Skal hópurinn ræða leiðir til að auka umferðarör- yggi á veginum. -hj Lbhí hlaut veglegan styrk HVANNEYRI: Landbúnaðar- háskólinn Islands á Hvanneyri fékk sl. fimmtudag afhentan 10 milljóna króna styrk til eflingar á starfsemi sinni. Það var Eign- arhaldsfélagið Samvinnutrygg- ingar sem veitti styrkinn og var hann afhentur við hátíðlega at- höfn í Ráðherrabústaðnum í Reykjavfk að viðstöddum Guðna Agústssyni, landbúnað- arráðherra. Við sama tækifæri fékk Háskólinn á Hólum af- hentan styrk að sömu upphæð. -bj Tveir kostir boðnir vegna mislits hallarþaks Bæjarráð Akraness hefur vísað til byggð á sama tfrna er ekki mislitt. að bæjarfélagið komi að málinu framkvæmdanefndar mannvirkja kaupstaðarins lausnum sem verk- taki við byggingu Akraneshallar- innar telur færar til þess að bæta fyrir mislitt þak hallarinnar. Eins og þeir sem Akraneshöllina hafa séð er galvanhúð þakefnis hallarinnar mislitt og sökum stærðar hússins er þessi galli mjög áberandi. Ekki mim fullljóst af hverju umræddur galli stafar það er hvort hann er ffam- leiðslugalli eða mistök við með- höndlun þakefnisins eftir fram- leiðslu. Hitt mun ljóst að þakinu átti að skila með sömu áferð. I því sambandi má nefna að þak hlið- stæðs húss sem reist var í Fjarða- Málið hefur verið til umræðu í bæjarkerfinu um nokkurt skeið og barst bæjarráði á dögtmtun bréf ffá verktakanum Sveinbirni Sigurðs- syni ehf. þar sem viðraðar eru hugs- anlegar lausnir á vandanum sem verktakinn, Húsasmiðjan hf. og Vímet hf. hafa unnið að í samein- ingu. Annar kosturinn er að sprautu- mála þakið, sem er um 10.000 fer- metrar að stærð, með einni umferð og áðurnefndir aðilar kosti efnis- þáttinn en bæjarfélagið greiði vinnuþáttinn. Bendir verktakinn á að mála þurfi þakið hvort sem er innan þriggja ára og því sé eðlilegt með þessum hætti. Hinn kosturinn er sá að þakið verði einangrað með steinull sem leggist á þakið og dúkur verði lagð- ur þar yfir. Sú lausn kalli á svipaða framkvæmd við gafla hússins. Em áðumefrtd fyrirtæki tilbúin til þess að veita „umtalsverðan afslátt af efniskostnaði,“ segir í bréfinu. Kostnaður við þessa leið er hins vegar áætlaður 35-40 milljónir króna. Verktakinn býðst tdl þess að fjármagna ffamkvæmdina til sex ára sem bæjarfélagið greiði til baka með föstum greiðslum ásamt vaxta- kostnaði. HJ Stefiit að öflugu félagslífi Menntaskóla Borgar^arðar Menntaskóli Borgarfjarðar hefur ráðið Guðmund Inga Þorvaldsson, leikara og tónlistarmann, til ráð- gjafarstarfa við uppbyggingu fé- lagsstarfs skólans. „Stjórnendur Menntaskólans em á einu máli um að vanda vel til verka við uppbygg- ingu félagsstarfs skólans og að þeg- ar verði hafinn undirbúningur að mómn þess. Það er markmið okkar að heildstætt verði litið á uppbygg- ingu félagsstarfs unglinga í öllu sveitarfélaginu í samstarfi við Menntaskólann og við völdum þá leið að fá öflugan aðila til starfsins sem getið hefúr sér gott orð bæði fyrir félags,- tónlistar- og íþrótta- starf,“ segir Torfi Jóhannesson, for- maður stjórnar í samtali við Skessu- horn. Hann segist fagna ráðningu Guðmundar Inga og segir hana tví- mælalaust styrkja undirbúning og uppbyggingu öflugs skóla, en gmnnur að góðu félagslífi sé ekki síður mikilvægt en margt annað í stefnumótun ffamsækins mennta- skóla. „Við fengum Bjarka Þor- steinsson, formann íþrótta- og tómstundanefhdar Borgarbyggðar á fúnd með Guðmtmdi Inga því nefndin hefur verið að ræða eflingu félagsstarfs tmglinga og hann hvattd okkur tdl að leita eftir formlegu samstarfi við sveitarfélagið" segir Torfi. Það eru því allar líkur á að frekari fregna sé að vænta af þess- um vettvangi innan tíðar. MM A myndnni er Guðmundur Ingi að rœða vii nemendur 9. og 10. bekkjar í Borgar- nesi á kynningarfundi með þeim í liiinni viku. Nettó verður Kaskó á Akranesi Verslunin Nettó á Akranesi, sem er í eigu Samkaupa, lokaði verslun sinni við Kalmansbraut sl. sunnu- dag en nú á föstudaginn, þann 1. desember verður opnuð ný verslun í sama húsnæði undir merkjum Kaskó. Samkaup rekur verslanir undir ýmsum vörumerkjum og heitum og eru Kaskóverslanirnar lágvöruverðsverslanir fyrirtækisins. Þar er vöruúrval mirma en í Nettó- búðunum og verðlag lægra. Sturla Eðvarðsson, framkvæmda- stjóri Samkaupa segir í samtali við Skessuhom að með þessum breyt- ingum vilji Samkaup bjóða Skaga- mönnum ennþá lægra vömverð en áður. „Við sjáum í farvatninu tals- verðar breytingar í verslun á Akra- nesi því nýir aðilar hafa boðað komu sína inn á markaðinn. Við höfum þjónað íbúum á Akranesi lengi með tveimur verslunum og ætlum að gera það áffarn. Við ætl- um okkur einnig að halda okkar markaðshlutdeild og þessar breyt- ingar era liður í því,“ segir Sturla. Samkaup rekur eirrnig verslunina Samkaup - strax og verður hún opin áffam. HJ Heimilt að selja ýmsar eignir VESTURLAND: Ríkissjóði verður veitt heimild til sölu ýmissa eigna á Vesturlandi nái breytingartillögur meirihluta fjárlaganefrtdar við framvarp til fjárlaga fyrir árið 2007 fram að ganga. Meðal þess sem veitt verður heimild fyrir er að selja eignarhlut ríkisins í læknisbú- stað að Dflahæð 5 í Borgamesi og kaupa annað hentugra hús- næði í staðinn. Einnig að selja hluta jarðarinnar Hraunsmúla í Borgarbyggð og að selja land- spildur í eigu rfldsins í Hval- firði. -hj Kaupa flotbryggju STYKKISHÓLMUR: Hafrt- arstjórn Stykkishólmsbæjar hefúr samþykkt að leggja til við bæjarstjóm að hafnarsjóður kaupi flotbryggju af Siglinga- klúbbi Snæfells fyrir tvær millj- ónir króna og að hún verði staðsett í Snotra. -hj Æskulýðss j óður styrkir kynfræðslu AKRANES: Menntamálaráð- herra hefur samþykkt styrkveit- ingar úr Æskulýðssjóði að fjár- hæð 4,2 m.kr. til 23 verkefna. Alls bárust sjóðnum 42 um- sóknir. Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðs- samtaka sem unnin era fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun æskulýðsleiðtoga og leiðbein- enda, nýjungar og tilraunir í fé- lagsstarfi barna og tmgmenna og samstarfsverkefni. Að þessu sinni var fremur litlu af fé sjóðsins úthlutað til Vestur- lands. Þó fékk ungmennadeild Rauða kross Islands á Akranesi 125 þúsund króna styrk vegna kynffæðslu og ráðgjafar fyrir böm og unglinga. -mnt Krefjast afsökunarbeiðni firá framkvæmdastjóra heilsugæslunnar Framkvæmdanefnd Færeyskra daga í Olafsvík hefúr krafist þess að framkvæmdastjórn Heilsugæslu- stöðvarinnar í Ólafsvík biðji nefúd- ina afsökunar á tilraun stjómarinn- ar til að innheimta hjá nefndinni kostoað vegna heilsugæslu á hátíð- inni Færeyskir dagar í sumar. Eins og ffam kom í Skessuhorni á sínum tíma sendi framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvarinnar í Ólafsvík, Björg Bára Halldórsdóttir, nefnd- inni reikning að fjárhæð 300 þús- und krónur vegna heilsugæslu- kostoaðar. I samtali við Skessuhorn sagði hún alkunna að þeir sem héldu útihátíðir greiddu fyrir heilsugæslukostnað. I grein sem ffamkvæmdanefndin hefur ritað kemur ffam að Svanhvít Jakobsdóttir, skrifstofústjóri í heil- brigðisráðuneytinu hafi í samtali sagt að ekki sé neinn grundvöllur fyrir innheimtunni því slíkt þurfi að byggja á samkomulagi beggja aðila. Þá segir ffamkvæmdanefúdin að í framhaldi þess samtals hafi nefnd- inni borist bréf ffá ffamkvæmda- stjórn heilsugæslustöðvarinnar um að nefúdin geti neitað að greiða reikninginn og því sé hann dreginn til baka „þar sem greinilegt er að það er ekki vilji nefndarinnar að taka þátt í þessum kostnaði.“ Framkvæmdanefndin krefst þess að verða beðin afsökunar á „þessum klaufalegu vinnubrögðum fram- kvæmdastjórnar heilsugæslunnar í Olafsvík. I tvígang hefur fram- kvæmdastjóri heilsugæslustöðvar- innar haldið því fram að aðrir mótshaldarar greiði heilsugæslu- kostnað," segir ffamkvæmdanefúd- in. „Við mótmælum því harðlega að framkvæmdastjóri heilsugæslu- stöðvarinnar í Ólafsvík beri það á borð fyrir fólk að við séum eftirbát- ar annarra í þessum efnum.“ Óskar nefndin effir því að upplýst verði hvaða aðilar hafi greitt slíkan heilsugæslukostnað. Þá birtir nefndin yfirlýsingar ffá forráða- mönnum sjö bæjarhátíða víðs vegar um landið sem fullyrða að þeir hafi aldrei þurft að standa straum af heilsugæslukostnaði vegna þeirra hátíðarhalda. HJ Gjaldskrár hækka um 10% SNÆFELLSBÆR: Bæjar- stjórn Snæfellsbæjar samþykkti í síðustu viku með sex sam- hljóða atkvæðum að hækka gjaldskrár sveitarfélagsins um 10% frá næstu áramótum. Hækka þá meðal annars leik- skólagjöld, tónlistarskólagjöld, sorphirðugjölf og vatnsgjöld svo einhver gjöld séu nefnd. Að sögn Kristins Jónassonar bæjar- stjóra er með hækkuninni verið að bregðast við verðlagshækk- unum á undanförnum áram. Alagningarstuðull útsvars og fasteignagjalda breytist hins vegar ekki. Drífa Skúladóttir bæjarfulltrúi sat hjá við af- greiðslu tillögunnar. -hj Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500 Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DACA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhom.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhom.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Bima G Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhorn.is Kolbrá Höskuldsdóttir 868-2203 kolla@skessuhorn.is Augl. og dreifing; Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhom.is Umbrot: Cuðrún Björk Friðriksd. 4371677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.