Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2006, Blaðsíða 36

Skessuhorn - 29.11.2006, Blaðsíða 36
36 MIÐVHÍUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 Með haka og skóflu við þjóðvegagerð Rætt við Jóa frá Veggjum Tæpast er neitt á íslandi jafn- mikið til umræðu en vegir og vegagerð. Þetta á a.m.k. við þá sem búa utan höfuðborgarsvæðis- ins. Stöðugt er unnið við endur- bætur á vegum, lagðir nýir til að stytta leið, gera hann snjóléttari eða hættuminni. Vegirnir breikka, víða er komið slitiag með malbiki eða olíuklæðningu og einbreiðu brýrnar eru á undanhaldi. Nú er gerð krafa um að vegir með malar- slitlagi fram til sveita séu einnig með varanlegra slitlagi en mölinni úr næstu námu. Þetta á sérstaklega við þar sem mikið er um sumarbú- staðahverfi eða sækja þarf atvinnu lengri leið. Þegar vegfarendur bruna á bifreið sinni um vegina eru sennilega ekki margir sem vita að suma þessa vegi hafa menn lagt með haka og skóflu að vopni. Jói frá Veggjum, eða Jóhannes Þor- bjarnarson frá Stafholtsveggjum, þekkir þá tíma þegar unnið var með haka og skóflu við vegagerð. Jóhannes býr nú í hárri elli í Borg- arnesi og ffæðir okkur lítillega um sögu sína. Ekki frá neinu að segja Hvaðan ber þig að Jói, hvar ertu fæddur og uppalinn? „Ég fæddist 30. september 1913 að Stafholts- veggjum í Stafholtstungum. For- eldrar mínir voru Þorbjörn Jó- hannesson, frá Efra Nesi í sömu sveit og Margrét Sigurðardóttir, frá Helgavatni í Þverárhlíð. For- eldrar mínir leigðu Stafholtsveggi og bjuggu þar venjulegu búi eins og algengast var í þá daga. Við vorum níu systkinin og sjö komust til fullorðinsára. Líf okkar var ósköp venjulegt og fábreytt. Skólaganga mín var eingöngu far- skólinn eins og hann var í þá daga. Ég lærði ekki meira í skóla. Eg hef ekki ffá neinu að segja. Mér líður vel hér á Dvalarheimilinu, verið hraustur alla mína ævi og minnist þess ekki að hafa rekist illa á nokkurn mann.“ Jóhannes segir frá nokkuð hraðmæltur, er skarpleitur, glað- legt bros hans og vinalegt nær til augna sem horfa á viðmælanda, skýr og hlýleg. Hér er afar hógvær og lítillátur maður tekinn tali en látum nú reyna á hvort ekki búi hann yfir fróðleik sem gaman væri að kynna fýrir lesendum. Vegstæðið handhlaðið Þú ferð að heiman kornungur í vinnu, hvert var ferðinni heitið? „Fjórtán ára fór ég að heiman. Fyrst vann ég við gerð þjóðvegar- ins frá Hvammi í Norðurárdal upp á Holtavörðuheiði og norður yfir. Þá vann ég hjá Vegagerð ríkisins, verkstjórinn var Guðjón Bach- mann, mikill yndælismaður, ég var 15 sumur með honum. Verkfærin mín voru haki og skófla, ég var kúskur sem kallað var, fýrst til að byrja með. Þá var vegstæðið allt hlaðið upp á höndum og öllu efni í það var handmokað í hestakerr- ur,“ segir Jói. Starfsemi hefst í Foraahvammi Hann segir að skömmu áður en hann hafi farið að vinna við þenn- an veg í Norðurárdalnum, vetur- inn 1926, hafi orðið mikið slys hjá Fornahvammi sem ýtt hafi undir að þar var komið á fót starfsemi, ekki síst í öryggisskyni. „A þessum árum voru einu reglulegu ferðirn- ar yfir Holtavörðuheiði með land- póstinum. Oft voru því ferða- menn, honum samferða. I einni af þessum ferðum hrepptu þeir mik- ið illviðri á leiðinni suður yfir heiðina; blindbyl. Skömmu áður en þeir náðu til Fornahvamms gáfust tveir ferðamennirnir upp. Þeir voru skildir eftir og farið heim að Fornahvammi til að fá að- stoð við að koma þeim í húsaskjól. Þeir fundust þá ekki og létust í stórviðrinu. Þetta var býsna harð- sótt í þá daga. Þá voru allir gang- andi eða á hestum. Þetta vor keypti ríkissjóður Fornahvamm og kom á fót gistingu og greiðasölu. Þessi starfsemi var svo rekin af ýmsum aðilum í meira en hálfa öld. Þeir sem bjuggu í Forna- hvammi voru ferðamönnum eftir þetta innan handar á margan hátt. Flest eldra fólk man sjálfsagt eftir Páli Sigurðssyni. Hann átti marga ferðina í illviðrum að bjarga ferða- fólki á Holtavörðuheiði." Vegað fyrir Hvalfjörð Jói vann einnig við gerð þjóð- vegarins fýrir Hvalfjörð og er mjög minnisstætt þegar farið var að keyra þá leið til Borgarness árið 1932. „Þá lá vegurinn ekki út hjá Hálsi í Kjós heldur yfir Reyni- vallaháls. I Hvalfirðinum, þar sem nú eru námur vegna sementsfram- leiðslunnar á Akranesi, er lítil á; Bláskeggsá. A þeirri á er elsta brú- in á landinu, bogabrú byggð árið 1907. Talsvert ofar á ánni en nú er ekið. Síðan var ekið út fjörðinn að Ferstilku, yfir Ferstikluhálsinn, fram Svínadalinn og yfir Dragháls. Þaðan var svo farið niður með Skorradalsvatni, þverað fyrir neð- an vatnið og yfir Hestsháls. Þaðan lá leiðin niður Andakíl að Hvítár- völlum og yfir Hvítárbrúna sem byggð var 1928. Það er ekki fýrr en árið 1936 sem leiðin fyrir Hafnarfjall varð ökufær." Jói var um tíma flokksstjóri hjá Kristjáni Guðmundssyni, brú- arsmiði. „Kona Kristjáns var Olöf Jónsdóttir, systir Geira í Dals- mynni í Norðurárdal, en margir muna eftir honum. Hann er nú nýlega látinn blessaður. Mikill öðlingur. Jæja, hjá Kristjáni var ég um tíma. Þá við smíði brúa vestur í Dölum og í Dýrafirði." A þessum tíma þegar þú ferð vestur, hvernig voru þá vegirnir, t.d. ffá Borgarnesi og vestur Mýr- ar? „Þokkalegir vegir voru komnir víða vestur um og ágætur frá Borgarnesi að Vegamótum á Snæ- fellsnesi. Þaðan þurfti að fara með sjónum alveg vestur að Búðum og varð þá að gæta sjávarfalla.“ segir Jói. Konungsvarðan á heiðinni „Eitt finnst mér nauðsynlegt að komi fram varðandi veginn um Holtavörðuheiði. Það er nefnilega þannig að þegar danski kóngurinn okkar fór um héraðið og norður árið 1936, var staðnæmst á Holta- vörðuheiði, þegar Norðurlandið blasti við. Þar valdi hann stein til að setja við áningarstaðinn. Stað- urinn er við Grunnavatnshæðir, eiginlega beint í austur frá Trölla- kirkju, þegar aðeins er farið að halla í norður. Þessi steinn var fluttur til Borgarness. Sumarið eftir, árið 1937 var hann settur í vörðu sem Jón Pétursson, hér f Borgarnesi og Skeggi Asbjarnar- son kennari í Reykjavík hlóðu. Þessi varða er listilega gerð og þeim til sóma. Nú liggur þjóðveg- urinn talsvert austar á heiðinni. Ég man ekki betur en hægt sé að aka af þjóðveginum að konungs- vörðunni. Það er ástæða til að hvetja ferðamenn til að gera sér leið að þessari vörðu. Hún er á stað þar sem er víðsýnt á heiðinni og svo er hún óvenjulega vel gerð eins og ég sagði áðan.“ Hjá Finnboga í Brákarey Þegar vegagerðartímabilinu lýk- ur, sest þú þá að í Borgarnesi? ,Já, þannig var að foreldrar mínir fluttu til Borgarness og þar byggð- um við íbúðarhús við Gunnlaugs- götuna árið 1928. Þar hef ég átt heima síðan, þar til ég settist að hér á Dvalarheimilinu. Arið 1946 kom Finnbogi Guðlaugsson til mín og bað mig að vinna fýrir sig við byggingarframkvæmdir. Þá var hann að byggja íbúðarhús og stórt verkstæðishús úti í Brákarey. I þessi hús lagði ég allt járn í veggi og gólf. Þegar þessum bygginga- framkvæmdum lauk, sá ég um smurstöðina og vann svo á járn- smíðaverkstæðinu fýrir Boga. Síð- an vann ég á bílaverkstæðinu, mest við viðgerðir á vörubílum og þá aðallega flutningabílum Kaupfé- lags Borgfirðinga. Það var gott að vera hjá Finnboga Guðlaugssyni, hann var úrvals maður.“ Litli ferðaklúbburinn Þegar þú hættir að gera vegi og brýr og ferð að vinna við bifreiðar, áttir þú þá ekki bifreið sjálfur? Nú brosir Jói breitt og segir: „Nei, ég tók nefnilega ekki bíl- prófið fýrr en 1962. Að vísu má segja að ég hafi átt hlut í bíl um tíma, ég rétti Sæmundi hendi, þegar hann og Valdimar As- mundsson keyptu fýrstu rútuna. En svo keypti ég Rússajeppa af prestinum á Hvanneyri, honum Guðmundi Þorsteinssyni. Eg byggði almennilegt hús á jeppann og átti hann lengi. Þessi jeppi er til ennþá, ég sá hann hálfgrafinn ofan í tún vestur á Snæfellsnesi ekki fýrir löngu síðan. Eg hef alltaf haft gaman af ferðalögum. Eg ferðaðist þegar ég átti kost á því. Fyrstu ferðina sem ég fór sem fararstjóri var með hóp frá Vegagerð ríkisins norður á Akureyri. Það var sumar- ið 1940. Svo átti ég þátt í að stofna lítið ferðafélag hér í Borgarnesi sem við kölluðum „Litla ferða- klúbbinn“. Halldór Bjarnason undirbjó það með mér. Fyrstu ferðina fórum við 1972 í Þórs- mörk og Eldgjá. Það hefur aldrei fallið úr ferð síðan. Fyrstu 10 árin var alltaf sofið í tjöldum. Við ferð- uðumst oftast með gömlu Soffi'u í Reykholti sem var alvöru fjallabif- reið með drifi á öllum hjólum. Guðmundur Kjerúlf var oftast ökumaður í þessum ferðum. Langskemmtilegasta ferðin var sumarið 1978, þá fórum við í Kverkfjöll, Hvannalindir og Hljóðakletta. Það er til skrá yfir allar ferðirnar, tímasetningar, hvert farið var, á hvaða bíl, hver ók og hverjir fóru,“ nú hefur Jói gam- an af að segja frá, það leynir sér ekki að nú er til umræðu það sem honum þykir skemmtilegast. Gestur þakkar Jóa fýrir móttök- urnar og fýrir að leyfa lesendum að skyggnast inn í störf vegagerð- armanna eins og þau voru árla á síðustu öld. Nú er bæði öldin önn- ur og nýjar og stórvirkar vinnuvél- ar hafa leyst bæði hakann og skófl- una af hólmi. ÓG Akraneskaupstaður Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í daglega umhirðu og frágang á jarðvegsförgunarsvæði Samningstími er frá 1. jan. 2007 til 31. des. 2008 Utboðsgögn eru til sölu frá og með 29. nóv. nk. njá tækni- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8 á Akranesi I fyrir kr. 2.000,-. | Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn i 11. des. 2006, kl. 11:00. Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.