Skessuhorn - 29.11.2006, Blaðsíða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006
ssufnassuiwgMsa
Notalegt umhvetfi
og hátt þjónustmtig
Nú þegar nær dregur jól-
um fara verslunareigendur
og þjónustuaðilar að koma
jólaskreytingum fyrir í búð-
argluggum og lýsa upp
skammdegið á skemmtileg-
an hátt.
Aðventan er án efa mesti
annatími starfsstéttarinnar
og samkeppnin um við-
skiptavinina því aldrei meiri
en á þessum árstíma. Óhætt
er að segja að verslun á
Akranesi endurspegli alla ur kveikt á jólatrénu á Akratorgi og
flórtma í vöruúrvali og ættu allir að er aldrei að vita nema góðkunn-
finna eitthvað við sitt hæfi hvort ingjar okkar, jólasveinarnir úr
sem það er í fatnaði, heimilisvör- Akrafjalli, komi í heimsókn og gefi
Sameiginlegur opnunartími verslana
á Akranesi í desember er sem hér segir:
2. desember laugardagur......... ffá kl. 10:00 - 18:00
3. desember sunnudagur.......... frá kl. 13:00 - 17:00
4. - 8. desember mánud. - föstud..... opið til kl. 18:00
9. desember laugardagur........ frá kl. 10:00 - 18:00
10. desember sunnudagur......... frá kl. 13:00-17:00
11. -15. desember mánud. - föstud.... opið til kl. 18:00
16. desember laugardagur......... frá kl. 10:00 - 22:00
17. desember sunnudagur.......... frá kl. 10:00 - 22:00
18. - 22. desember mánud. - föstud.... opið til kl. 22:00
23. desember þorláksmessa........ opið tdl kl. 23:00
24. desember aðfangadagur........ frá kl. 09:00 - 12:00
um, byggingavörum, matvöru eða
ýmis konar gjafavöru, því af nógu
er að taka.
Þegar þú verslar eða sækir þjón-
ustu á Akranesi tekur þú efrir því að
umhverfið er rólegt og notalegt og
starfsfólk kappkostar að bjóða við-
skiptavinum sínum upp á ffamúr-
skarandi þjónustu.
I desember verður margt um að
vera hér á Akranesi fyrir gesti og
gangandi en ffá og með 1. desem-
ber hefst samræmdur opnunartími
verslana, ffam að jólum. Laugar-
daginn 2. desember kl. 16:00 verð-
börnunum góðgæti og syngi með
þeim nokkur jólalög. Þessu til við-
bótar verða ýmsar uppákomur ffam
að jólum en þær verða auglýstar
sérstaklega þegar nær dregur.
Því ekki að koma á Akranes og
upplifa sannkallaða jólastemningu
og versla í notalegu umhverfi og
njóta úrvals þjónustu?
Rakel Oskarsdóttir,
markaðs- og atvinnufulltrúi
Akraneskaupstaðar
Jólaverslun
á heimasvœði
Það dregur að jólum og
ffamundan er annasamur tími í
verslunum. Bamandi samgöngur
síðustu árin sem og betra tíðafar
hafa haft þau áhrif að æ fleiri leggja
leið sína suður á bóginn til þess að
leita að jólagjöfum til að
gleðja ættingja og vini.
Slíkt er í sjálfu sér ósköp
eðlilegt því reikna má með
því að þar sé úrvalið mest
og flest gilliboðin. Oft
kemur þó fólk til baka með
hálfgerðan hroll efrir ýmsar
hremmingar sem það hefur
lent í, sérstaklega þegar
nær dregur jólum og hrað-
inn og stressið eykst á suð-
ursvæðinu. I búðina til mín
kom í fyrra, skömmu fyrir jól, einn
ágætur kunningi minn sem hafði
líkt og aðrir farið suður til að berja
gersemirnar augum og reyna að
finna þar gjafimar góðu. Hann
sagði farir sínar ekki sléttar eftír að
hafa heilsað. Hann sagði: „Þegar
ég eftír langa leit að bílastæði
komst loks inn í eitt mollið og
hafði ráfað þar um góða stund
horfandi á mannfólkið æðandi allt í
kringum mig með brjálsemis-
glampa í augum, þá sagði ég við
sjálfan mig; nei, þetta gengur ekki
svona lengur og ég fór heim áður
en ég fór að elta strolluna." Og
þess má líka geta að hann fann
gjafir fyrir alla í sinni fjölskyldu í
búðinni hjá mér.
Ég veit ekki hvort Snæfellingar
hafi almennt gert sér grein fyrir
því að sá möguleiki er fyrir hendi
að ferðast á milli staða hér á
heimasvæðinu og kíkja á það úrval
sem snæfellskir verslunarmenn
bjóða upp á. Ég vil því hvetja íbúa
Snæfellsness til þess að gefa þess-
um möguleika gaum og kannski
þurfum við kaupmennirnir á
svæðinu að gera meira í því að
minna fólk á þennan valkost. Það
tekur ekki nema tæpa klukkustund
aðra leið að aka milli Stykkis-
hólms og Hellissands og þá
u.þ.b.tvær klukkustundir ffarn og
til baka, sem er svipaður tími og
tekur að aka aðra leiðina til
Reykjavíkur.
Hugsið um þennan valkost
kæru íbúar á Snæfellsnesi.
Gleðilega jólaverslunl
Gunnar Kristjánsson,
Grundarfirði.
Jólin í Borgamesi
Það er oft mikil gleði í því fólgin
að geta gert sér dagamun og það
gerum við um þessar mundir því
jólin eru að koma. Þegar við lítum í
kring um okkur hér í Borgamesi er
það augljóst: Jólaskreytingar og lýs-
ing við heimili, stofnanir og fyrir-
tæki gleðja augun í myrkrinu.
Það hefur verið Islendingum
hugleikið allt frá landnámi að halda
jól, en heiðnir menn héldu jól í
svartasta skammdeginu, sennilega á
fullu tungh. I dag er þetta kristin
hátíð eins og eðlilegt er hjá krist-
inni þjóð. Eða kannski ættum við
að segja þjóðum þótt við séum að
hugsa um Borgames í þessu tilviki,
því hér býr orðið fólk af margs kon-
ar þjóðerni.
En Borgames er bærinn okkar
allra, höfuðstaðurinn í stóm héraði.
Hér er miðstöð verslunar
og þjónustu og það er stór
kostur við búsetu að hafa
mögleika á að sækja sem
mest af slíku heima hjá sér.
Leggja leið sína í Hyrnu-
torgið á aðventunni og
kanna þann fjölbreytileika
sem þar er, matvöra- og
sérverslanir. Fara í gamla
miðbæinn og leggja leið sína í
Safhahúsið eða Landnámssetrið
eða þá einstöku versltm sem Kristý
er. Heimsækja Bónus til að gleðja
þá Bónusfeðga og njóta þess að þar
við er gott kaffihús sem gott er að
líta inn í eftír innkaupaleiðangra
sem og á öðram tímum. Svo era
það sérverslanir eins og Tölvuþjón-
usta Vesturlands og Framköllunar-
þjónustan svo nokkuð sé nefnt.
Ekld má heldur gleyma blessuðum
bensínstöðvunum, þar sem hægt er
að líta inn í kaffihom efrir að búið
er að sinna helstu nauðsynjum bíls-
ins. Svo þarf ekki að fara úr heima-
byggð til að kaupa jólatré, Björgun-
arsveitin og fleiri aðilar sjá um það.
Menningin blómstrar líka í desem-
bermánuði og ótal tækifæri gefast
til að næra andann.
Kveikt verður á jólatré Borgar-
byggðar á Kveldúlfsvelh kl. 17.00
sunnudaginn 3. desember. Þá syng-
ur Freyjukórinn fyrir okkur, nem-
endur Steinunnar Páls frá Laugar-
gerðisskóla syngja og spila og svo
koma jólasveinamir og heilsa upp á
bömin.
Njótum aðventunnar - en fyrst
og ffernst skulum við þó njóta
góðra samvista við fjölskyldu okkar
og vini, það skiptir allra mestu máh.
Gleðileg jól!
Guðrún Jónsdóttir,
Menningarfulltrúi Borgarbyggðar
og tbúi i Borgamesi
Velkomin í Stykkishólm!
Að mörgu þarf að huga og margt
að kaupa á flestum heimilum, þegar
jólin nálgast. Fyrir þá sem búa á
landsbyggðinni er rétt að doka við
og spyrja sig þeirrar spurningar
hvernig haga beri jólaversluninni.
Hvort ástæða sé til að kaupa í
Reykjavík það sem fæst heima.
Hér í Stykkishólmi er rótgróin
hefð í verslun. Staðurinn er með
elstu verslunarstöðum landsins. Þó
er ekki langt síðan að það vora að-
allega tvær verslanir í Stykkishólmi.
Það var Kaupfélagið og svo verslun
Sigurðar Agústssonar, sem síðar
varð að Stykkiskaupum.
I báðum búðunum var kjötborð
og öll venjuleg heimilisvara, ásamt
vefnaðarvöra, gjafavöra og fleira.
Bækur vora seldar í kaupfélaginu
og í Stellubúð, sem var fyrst og
ffemst bókaverslun, þó að þar feng-
ist margt annað. Nú erum við með
Bónus búð, ásamt Heimahominu
sem er fataverslun, sem líka selur
gjafavöra, skó og margt fl. Síðan
blóma- og gjafavöraverslunina Ilm,
apótek Lyfju, verslunina Sjávarborg
þar sem fást bækur, leikföng og fl,
Skipavík, byggingavöruverslun
m.m. svo sem vínbúð og
svo bakaríið. A Sauma-
stofu Islands fæst svo ým-
iss vefnaðarvara og famað-
ur.
Bærinn er í raun tví-
skiptur hvað verslun
áhrærir. Annars vegar
svæðið í kringum Bónus og
svo niður í gamla miðbæn-
um, á Plássinu, þar sem
gömlu húsin kúra. Þar
verður reyndar breyting á nú í byrj-
tm desember, þar sem Skipavík mun
flytja sína verslun úr gamla bænum í
nýreist hús sitt við Aðalgötuna, á
móti Bónus. Þá fækkar á Plássinu,
en við segjum bara að eftír sitji
menningin. Bókasafnið flytur á
Plássið, við hlið Norska hússins, en
ekki má gleyma því að þar er rekin
lítil og snotur krambúð sem opin er
nú á aðventurmi. Svo er Verslunin
Sjávarborg kyrr á hafnarbakkanum,
með sínar bækur og aht sem nöfnum
tjáir að nefina. Svo era veitingahúsin
Fimm fiskar og Narfeyrarstofa hér
líka. Og til vors er líka apótekið og
pósthúsið héma á Plássinu, en með
vorinu flytja þau líka.
Við hvetjum Snæfellinga og aðra
Vestlendinga til að heimsækja
Stykkishólm á aðventunni, njóta
fegurðar bæjarins og skoða í búðir.
Fá sér svo kaffisopa eða kakóbolla á
kaffihúsunum, nú eða í bakaríinu
sem komið er með úrvalskaffi. Og
þar sem Orkan er að byggja bensín-
afgreiðslu, er ekki að efa að á bens-
ínstöð Olís verður hægt að gera
góð kaup á ýmsu, og bensínið lækk-
ar efalaust! Svo minni ég á gamla
góða slagorðið „Verslið í heima-
byggð“
Með kveðju úr Hólminum,
Dagbjört Höskuldsdóttir.
Verslun og þjónusta í Snæfellsbœ
Jólaverslun í Snæfellsbæ fer ró-
lega af stað. Ibúar era byrjaðir að
skreyta bæinn sinn og verslanir og
þjónustuaðilar standa sig ávalt
einnig vel í því að skreyta umhverfi
sitt.
Verslun og þjónusta er að
ég best veit með sama sniði
hér í Snæfellsbæ og undan-
farin ár. Eins og alþjóð veit
hefur „kaupmaðurinn á
horninu" stórar verslunar-
keðjur sem samkeppnisaðila.
Hér í Snæfellsbæ sýnist mér
að þessir kaupmenn standi
sig bara vel í því að veita
góða og persónulega þjón-
ustu í sinni heimabyggð.
Hér er góð breidd af versl-
unum og þjónustu, þannig að þjón-
ustustig hér í Snæfellsbæ er hátt.
Vöraverð er mjög gott og vel sam-
bærilegt á öllum sviðum, það er að
segja í samanburði við sambærileg-
ar verslanir. Það er eklri hægt eða
sanngjarnt að bera saman verð og
þjónustu hér í Snæfellsbæ eða ann-
arsstaðar á landsbyggðinni við risa-
stórar verslunarkeðjtu.
Kjörorðið „Verslum í heima-
byggð“ er ekki úrelt fyrirbrigði.
Við þurfum á allri þeirri þjónustu
og verslun sem við getum haft, til
að halda áfram að stækka og dafna
sem samfélag. Það er ekki gott að
þurfa að fara og hafa ekki val um
annað, til að ná í vöra eða þjónustu.
Bestu jóla-kveðjur úr Snœfellsba,
Drtfa Skúladóttir, kaupmaður