Skessuhorn - 29.11.2006, Side 48
48
MIÐVIKUDAGUR 29. NOVEMBER 2006
..wmim.,;
Bókaveisla í Snæfellsbæ
A myndinnifrá vinstri eruAndrea Róbetsdóttir, Einar Kárason, Stefán Máni, Þórunn
Valdemarsdóttir og Þorgrímur Þráinsson en hann hefur í öll skiptin fengiö höfunda til
Bókaveislunnar í Olafsvík.
Það var sannkölluð bókaveisla í
Klifi í Olafsvík sl. miðvikudag en þá
var lesið uppúr nýútkomnum bók-
um. Þeir höfundar sem lásu upp
voru Einar Kárason en hann las úr
bók sinni og Olafs Gmmarssonar;
Ut að aka, þá las Þórtmn Valde-
marsdóttir úr bókinni Upp á Sigur-
hæðir eftir hana sjálfa og loks las
Stefán Máni úr bók sinni Skipið.
Andrea Róbertsdóttir sýndi
skemmtilegar myndir úr ferð sinni
til Asíu en hún skrifaði bókina
Spennið beltin til Asíu með Andreu
Róberts.
A milli þess sem höfundar lásu
kynntu nemendur úr 10. bekk
grunnskólans höfundana. Enn-
ffemur sáu þau um sölu á vöfflum
og heitu súkkulaði í hléi og rann
ágóðinn í ferðasjóð. Þá fluttu þrír
nemendur tónhst í hléi og stóðu
allir krakkarnin í 10. bekk sig afar
vel. Fjöldi fólks úr bæjarfélaginu
kom og naut góðrar stundar í Klifi
þetta kvöld.
Það var Framfarafélag Olafsvíkur
og lista- og menningamefhd Snæ-
fellsbæjar sem sáu um ffamkvæmd-
ina og er þetta í fimmta skiptið sem
þessi flutningur er í Klifi. Ester
Gunnarsdóttir, formaður Fram-
farafélagsins bauð höfundana vel-
komna og hafði orð fyrir skipu-
leggjendum.
PSJ
Skemmtu í KB banka
Því er jafnan tekið
fagnandi þegar
þekktar barna- og
unglingastjörnur
heimsækja lands-
byggðina. Þessa
dagana stendur KB
banki fýrir slíkum
viðburðum og í sl.
viku mættu dáðar
stjörnur í útibú
bankans á Akranesi,
í Borgarnesi og
Stykkishólmi. Það
voru hinar hressu
stelpur sem skipa
sönghópinn Nylon
ásamt Bríet Sunnu sem svo eftir-
minnilega sló í gegn í Idol keppn-
inni sl. vetur, sem vom á ferðinni.
Fullt var út úr dyrum þegar ljós-
myndari brá sér í eina af þessum móðurmálinu eða bmðgðið fýrir
uppákomum í bankaútibúið á Akra- sig engilsaxnesku; allir tóku undir
nesi. Hressilega var tekið undir og með stjömunum.
var sama hvort sungið var á ástkæra MM
Úr einu atrióa „Maóur í mislitum sokkum. “
Hló svo imilega að leikfé-
lagið býður honum aítur
,Maðurinn í rauðu flíspeysunni
sem var uppí Brún sl. sunnudags-
kvöld að horfa á leikritið Maður í
mishtum sokkum, er beðinn um
gefa sig ffam við einhvem leikar-
anna í sýningunni. Hann sat við
ganginn nálægt videovélinni."
Þannig hljómar smáauglýsing ffá
leikhópi Umf. Islendings, sem um
þessar mundir er að sýna verkið
Maður í mislitum sokkum“ effir
Ammund Bachmann og er sýnt við
miklar vinsældir í Félagsheimilinu
Brún.
Ástæða auglýsingarinnar er ekki
sú að leikfélagið eigi eitthvað sök-
ótt við manninn, heldur þvert á
móti ætlar það að verðlauna hann
með ffíum miða á verkið, að því er
leikendur sögðu í samtali við
Skessuhom. Okurmi maðurinn í
rauðu flíspeysunni kom á sýningu
hjá leikhópnum fyrir nokkm, hló
svo mikið að efrir var tekið og vill
hópurinn þakka honum fyrir sig
með þessum hætti. Em leikendur
mjög spenntir að sjá hvort auglýs-
ingin beri árangur og maðurinn
gefi sig fram. Hláturmildir áhorf-
endur era semsagt alltaf velkomnir
í Brún!
KH
Björg Agústsdóttir til
starfa hjá Alta ehf.
Björg Ágústsdóttir, fýrrverandi
bæjarstjóri í Grandarfirði hefur
verið ráðin starfsmaður ráðgjafa-
fyrirtækisins Alta ehf. og mun
starfa í útibúi fyrirtækisins í
Grundarfirði. Alta var stofnað árið
2001 hefur sinnt margvíslegum
ráðgjafaverkefnum og má þar nefna
umhverfismál og skipulagsmál. Þá
hefur fyrirtækið komið að stefnu-
mótunarverkefnum hjá sveitarfé-
lögum þar sem íbúaþing hafa verið
haldin.
Björg er lögffæðingur að mennt
og lauk einnig námi í opinberri
stjórnsýslu og stjórnun. Hún
stundar nú mastersnám í verkefha-
stjórnun við verkfræðideild Há-
skóla Islands. Hún var bæjarstjóri í
Grandarfirði í 11 ár og hefur gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum á
vettvangi sveitarstjórnar- og hafn-
armála.
í samtali við Skessuhorn segist
hún taka við spennandi starfi enda
hafi Alta vaxið mjög fiskur um
hrygg að tmdanfömu og hafi að
tmdanfömu ráðið fjóra nýja starfs-
menn. Hún segist muna hafa aðset-
ur í útibúi fyrirtækisins í Grundar-
firði en verkefni hennar mtrni þó
væntanlega verða mjög víða.
HJ
www.skessuhorn.is
Fjárhúsgrillin þjappa fólkinu saman
„Ég var á síntun tíma við nám í
líffræði við Háskóla Islands, en
vildi gjarnan breyta tdl. Hún móð-
ir mín hafði eitt sinn samband við
mig og hafði séð auglýsingu frá
skólanum og benti mér á heima-
síðu hans. Mér leist einfaldlega vel
á það nám sem var í boði og ekki
skemmdi það fýrir að það gerði
mér kleift að komast úr borginni.
Eg hafði svo samband við uplýs-
ingafulltrúa LBHI og daginn eftir
sendi ég inn umsókn og hér er ég
nú,“ sagði Snæfellingurinn Smári
Jónas Lúðviksson ffá Rifi á Snæ-
fellsnesi, sem lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
vorið 2004 og nemi við Lbhí á
Hvanneyri.
Smári Jónas ákvað að sækja um í
umhverfisskipulagi við skólann,
sem er 90 eininga nám sem er ætl-
ast til að sé lokið sé við á 3 áram,
ef allt gengur að óskum. „Eg mtm
að öllum líkindum fara út til fram-
haldsnáms í landslagsarkitektúr
eða skipulagsfræðum, en ég vil
ekki skipuleggja alltof langt fram í
tímann. Það er aldrei að vita hvað
morgundagurinn hefur upp á að
bjóða.“
Aðspurður um félagslífið hjá
Lbhí sagði Smári Jónas að það
væri nokkuð gott. „Það eru reglu-
lega fjárhúsgrill sem þjappa hópn-
um saman, svo era hin ýmsu félög
sem skipuleggja alls konar uppá-
komur og viðburði og hefur maður
kynnst fjölbreyttum hópi fólks,“
sagði Smári Jónas sem dvelur yfir-
leitt á Hvanneyri um helgar, en
hann sagði að almennt færi fólk
heim til sín þar sem margir ættu
stutt að fara. Smári Jónas býr líka í
ágætri 24 fermetra stúdíóíbúð með
eldunaraðstöðu og baðherbergi.
„Mér finnst gott að vera á Hvann-
eyri. Það er líka hægt að nálgast
allar nauðsynjar í Borgarnesi og
svo er alls ekki langt í höfuðborg-
ina ef það er eitthvað annað og
meira sem maður þarf.
„Eg get með fullum huga hvatt
fólk sem hefur áhuga á þeim grein-
um sem kenndar era við skólann
að skoða Landbúnaðarháskólann
sem mjög góðan kost með góðu fé-
laglífi og aðstöðu," sagði Smári
Jónas að lokum.
MM
Smári Jónas Lúðvíksson.