Fréttablaðið - 11.09.2019, Síða 34
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
SKOÐUN
Kaup kaups
Kapallinn um
kaup Guð-
mundar Krist-
jánssonar á HB
Granda var ef
til vill ögn lengri
en flestir töldu. Til
að fjármagna kaupin varð Brim
meðal annars að selja minnihluta
í Vinnslustöðinni snurðulaust.
FISK-Seafood, undir stjórn vinar
hans Þórólfs Gíslasonar, kom til
bjargar. Þegar Guðmundur seldi
HB Granda eignir sínar reis Gildi
upp á afturlappirnar. Aftur kom
FISK-Seafood til bjargar og keypti
hlut lífeyrissjóðsins, meðal ann-
ars í skiptum fyrir bréf í Högum
sem útgerðin varð að selja innan
tíðar. Guðmundur launaði greið-
viknina því þremur vikum síðar
seldu Skagfirðingar í HB Granda til
hans með 1,3 milljarða hagnaði.
Eigendavandi
Sumir álíta að
það skipti
ekki sköpum í
rekstri hverjir
eiga fyrirtæki
og hverjir veljast
til stjórnenda-
starfa. Það er rangt. Leiðarljós
eigenda er dýrmætt og skyn-
samir stjórnendur eru ekki á
hverju strái. Benedikt Gíslason,
bankastjóri Arion, bendir á í mið-
opnuviðtali við Markaðinn að
þegar slitabú áttu bankana hafi
þau ekki viljað að þeir greiddu út
arð. Það hefði gert krónuvanda
þeirra enn meiri. Segja má að
stjórnendur bankanna hafi sætt
lagi, vaðið stórhuga áfram og
stækkað efnahagsreikninginn
með óarðbærum hætti. Bank-
arnir og viðskiptavinir þeirra eru
enn að súpa seyðið af eigenda-
vanda.
Aftur í slaginn
Tryggvi Björn
Davíðsson, fyrr-
verandi fram-
kvæmdastjóri
Markaða hjá
Íslandsbanka,
og Haukur Skúla-
son, fyrrverandi
fjármálastjóri hjá Móbergi, hafa
hleypt af stokkunum sex manna
fjártæknifyrirtækinu Indó. Á
meðal fjárfesta er Eldhrímnir
sem er í eigu Ingimundar Sveins-
sonar arkitekts og fjölskyldu. Þau
uppskáru ríkulega á að fjárfesta
í Siggi’s skyr. Tryggvi og Haukur
unnu saman hjá Íslandsbanka.
Skotsilfur
Fjárlagafrumvarpið hefur nú verið kynnt og kennir þar ýmissa grasa. Margt er þar jákvætt en annað sem betur mætti fara eins og gengur. Eftir
langt hagvaxtarskeið hefur hag-
kerfið kólnað og þá reynir á hag-
stjórn. Í þeirri stöðu er ánægjulegt
að sjá ríkið fjárfesta í hagvexti
framtíðar á næsta ári með áherslu á
menntun, nýsköpun og samgöngu-
innviði. Ríkisfjármálin verða í jafn-
vægi þó líklega hefði verið rétt að
reka ríkissjóð með halla og fjárfesta
enn frekar í hagvexti framtíðar.
Verðmætasköpun hagkerfisins
er drifin áfram af sjálf bærri nýt-
ingu auðlinda, mikilli nýsköpun,
vel menntuðu og hæfileikaríku
vinnuafli, traustum innviðum sem
uppfylla þarfir samfélagsins og
skilvirku, hagkvæmu og stöðugu
starfsumhverfi. Það hlýtur að vera
markmið allra að efnahagsleg vel-
Fjárfest í hagvexti framtíðar
Jack Ma kveður Alibaba með hvelli
Alibaba, verðmætasta fyrirtækið í Kína sem skráð er á hlutabréfamarkað, varð tvítugt í gær. Hinn litríki stofnandi fyrirtækisins, Jack Ma, sagði
við það tilefni af sér sem starfandi stjórnarformaður fyrirtækisins. Sá sem tekur við af honum, Daniel Zhang, er öllu hefðbundnari stjórnandi.
Hlutabréfaverð Alibaba hefur hækkað um níu prósent frá því tilkynnt var um lyklaskiptin í fyrirtækinu fyrr á árinu. NORDICPHOTOS/GETTY
Sigurður
Hannesson
framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins
megun íbúa hér á landi sé mikil, að
Ísland sé eftirsótt land til búsetu
og atvinnurekstrar og að landið
sé vel tengt við umheiminn í efna-
hagslegu og samfélagslegu tilliti. Til
þess þarf öflugt atvinnulíf og fjár-
festingu ríkis í menntun, nýsköpun
og innviðum.
Sókn í menntamálum
Íslensk iðnfyrirtæki skapa um
fjórðung landsframleiðslunnar og
30% gjaldeyristekna þjóðarbúsins.
Mannauður iðnfyrirtækja er ein
af forsendum þessarar verðmæta-
sköpunar en í íslenskum iðnaði
starfa um 40 þúsund manns sem er
um eitt af hverjum fimm störfum í
hagkerfinu. Í ljósi þessa eru umbæt-
ur í menntamálum brýnar. Áhersla
menntamálaráðherra á starfsnám
er því kærkomin enda sárvantar
iðnmenntað fólk á íslenskan vinnu-
markað. Framlög til framhalds-
skólastigsins eru aukin og verða um
36 milljarðar með áherslu á starfs-
nám. Háskólar fá aukið fjármagn
og verður að vona að þeir forgangs-
raði þeim fjármunum til kennslu og
rannsókna í raunvísindum, tækni-
greinum, verkfræði og stærðfræði.
Mikil aukning í nýsköpun
Samtök iðnaðarins vilja að umgjörð
og hvatar til nýsköpunar séu með
því besta sem þekkist í heiminum.
Samtökin vilja að framboð af sér-
fræðingum í hátækni- og hálauna-
störf mæti eftirspurn og íslensk
fyrirtæki sjái hag sínum best
borgið með því að stunda rann-
sóknir og þróun hér á landi, enda
séu aðstæður og skattalegir hvatar
með því sem best gerist. Það er því
fagnaðarefni að í frumvarpi til fjár-
laga fyrir næsta ár séu framlög til
nýsköpunar, rannsókna og þekk-
ingargreina aukin um 11% á milli
ára. Það er hlutfallslega mesta
raun aukningin í útgjöldum allra
málefnasviða á milli ára.
Betri samgönguinnviðir
Of litlu hefur verið varið til sam-
gönguinnviða á síðastliðnum
árum og er svo komið að þörfin
fyrir nýfjárfestingar og viðhald
hefur verið metin á 280 milljarða
króna. Ánægjulegt er að sjá áform
ríkisstjórnarinnar í þessum efnum
í nýframkomnu frumvarpi til fjár-
laga þar sem er rætt um að fjárfram-
lag til málaflokksins verði aukið úr
100 milljörðum í 120 milljarða á
árabilinu 2020-2024. Framlög ríkis-
ins til málaflokksins á þessu tíma-
bili mæta því einungis 43% af þörf.
Traustir og öf lugir samgöngu-
innviðir leggja grunn að verð-
mæt a sköpu n í s a m félag inu .
Lykilútf lutningsgreinar eins og
iðnaður, sjávarútvegur og ferða-
þjónusta reiða sig á innviði lands-
ins til að af la þjóðarbúinu tekna.
Hagkvæmir, skilvirkir og áreiðan-
legir innviðir sem þjóna þörfum
atvinnulífs og heimila skila sér í
aukinni samkeppnishæfni þjóðar-
búsins, aukinni velmegun og betri
lífsgæðum fyrir íbúa. Arðsemi inn-
viðafjárfestinga fyrir samfélagið
getur verið mjög mikil ef rétt er
á haldið. Ríkisstjórn sem hefur
mikilvægi innviða að leiðarljósi er
líkleg til að tryggja samkeppnis-
hæft atvinnulíf og góð efnahagsleg
lífskjör.
Með auknum fjárframlögum til
þessara þriggja mikilvægu mála-
f lokka, innviða, menntunar og
nýsköpunar, eru byggðar sterkari
stoðir fyrir verðmætasköpun og
fjárfest í hagvexti framtíðarinnar.
Ríkisstjórn sem
hefur mikilvægi
innviða að leiðarljósi er
líkleg til að tryggja sam-
keppnishæft atvinnulíf og
góð efnahagsleg lífskjör.
Fjölmiðlar eru ekki merkilegri en hvert annað fyrirtæki sem þarf að glíma við þær áskor-
anir sem tækniframfarir hafa haft
í för með sér. Annað má lesa úr fjöl-
miðlafrumvarpinu sem sett hefur
verið á dagskrá.
Í grunninn snýst frumvarpið um
að fjölmiðlar landsins verði bóta-
þegar með því að fá 25 prósent af
launakostnaði við rekstur ritstjórn-
ar endurgreiddan úr ríkissjóði. Eins
og við mátti búast var tillögunum
illa tekið af Sjálfstæðismönnum til
að byrja með og því hefur mennta-
málaráðherra stefnt að því að taka
Ríkisútvarpið af auglýsingamark-
aði.
Útlit er fyrir að stofnuninni verði
að mestu bætt tapið en samkvæmt
nýjum fjárlögum hækka framlög til
RÚV um 190 milljónir og útvarps-
gjaldið hækkar um 2,5 prósent.
Þannig er sótt að skattgreiðendum
úr tveimur áttum. Annars vegar
með því að niðurgreiða einkarekna
fjölmiðla, og hins vegar með því að
bæta Ríkisútvarpinu tekjutapið.
Kjarninn er sá miðill sem virðist
hafa haft hvað mestan áhuga á
frumvarpinu. Í leiðurum sínum
hefur ritstjórinn málað dökka
mynd af rekstrarumhverfi f jöl-
miðla og stillt málinu þannig upp
að framtíð íslenskrar fjölmiðlunar
sé undir. Þess má geta að Kjarninn
og aðrir miðlar af sömu stærð njóta
hlutfallslega meiri ávinnings af
frumvarpinu enda er sett hámark
á niðurgreiðslurnar. En er rekstr-
arumhverfið jafn slæmt og ritstjór-
inn lýsir?
Myllusetur, útgáfufélag Við-
skiptablaðsins, skilaði hagnaði
samfellt á árunum 2010 til 2017.
Stundin hagnaðist um 10 milljónir
króna á síðasta ári og jókst hagn-
aðurinn um 4 milljónir á milli ára.
Bæði Stundin og Viðskiptablaðið
byggja rekstur sinn á áskriftalík-
ani og hafa gert það með farsælum
hætti. Báðir miðlarnir eru dæmi
um að hægt sé að reka metnaðar-
fullan fjölmiðil á Íslandi.
Það er ekki og á ekki að vera
sjálfsagður réttur að halda fyrir-
tæki sínu í rekstri. Ávinningurinn
af frjálsri samkeppni felst einmitt í
því að góðar viðskiptahugmyndir
skila hagnaði og slæmar skila tapi.
Þetta er ein af undirstöðum efna-
hagslegra framfara.
En sumir una ekki niðurstöðu
markaðslögmálanna. Þegar þeir
bregða sér í hlutverk dómsdags-
spámanna í því skyni að fá niður-
greiðslur frá hinu opinbera þá
skaltu halda fast í veskið.
Haltu fast í veskið
1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN
1
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
F
-6
F
3
8
2
3
B
F
-6
D
F
C
2
3
B
F
-6
C
C
0
2
3
B
F
-6
B
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K