Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 7
Við höfum nú þegar lagt af stað í þennan leiðangur og í umhverfisskýrslunni vörðum við næstu áfanga og tímasetjum þá. Á meðal stóru verkfæranna eru notkun lífrænna kolefnisgjafa í stað óendurnýjanlegra, orkuendurvinnsla á glatvarma, klasasamstarf með áherslu á líftækni, þróun nýrra hráefna og plöntun nytjaskógar umhverfis Grundartangasvæðið. Innlegg Elkem Ísland í alþjóðlega baráttu gegn hlýnun jarðar í gegnum framleiðsluvörur sínar er nú þegar verulegt og væntanlega stærsta framlag sem frá Íslandi kemur á því sviði. Um er að ræða háþróaðar tegundir kísilmálms sem draga úr orkutapi við flutning rafmagns. Málminn, sem framleiddur er með vistvænni og endurnýjanlegri íslenskri vatnsaflsorku, er m.a. að finna í nýlegum vindmyllum víða um heim, flestum tegundum rafmagnsbíla á heimsmarkaði og nýjustu heimilistækjum flestra stærstu vörumerkja veraldar með orkunýtingarstuðulinn A+ eða hærra. Með framleiðslunni leggur Elkem Ísland dýrmætt lóð á vogarskálar orkusparnaðar um víða veröld. Þegar við bætist að vinnslan grundvallast á grænni raforku og að kolefnisfótspor framleiðslunnar verði að engu orðið getur íslensk þjóð fagnað þessu framlagi sínu til nauðsynlegrar sáttar mannkyns við nútíð sína og framtíð á sviði umhverfismála. Elkem Ísland hefur gefið loforð sitt um öfluga þátttöku í þeim efnum og sett stefnuna á almenna viðurkenningu sem vistvænn orkusækinn iðnaður. Í nýútkominni umhverfisskýrslu og grænu bókhaldi setur Elkem Ísland sér það stóra markmið að starfsemin verði með öllu orðin kolefnishlutlaus fyrir árið 2040. Um leið yrðum við að öllum líkindum fyrsta kísiljárnverksmiðjan í heimi án nokkurs kolefnisfótspors. Við lítum á það sem skylduverkefni að laga starfsemina að ströngustu umhverfiskröfum og leggja um leið okkar af mörkum til lífsnauðsynlegrar sáttar við framtíðina fyrir komandi kynslóðir. Loforð um sátt Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland Umhverfisskýrslan og niðurstöður umhverfisvöktunar 2018 eru aðgengilegar á vef okkar, www.elkem.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.