Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 62
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Of Monsters and Men
(OMAM) hefur látið lítið fyrir sér
fara á undanförnum mánuðum enda
hefur hún verið önnum kafin í hljóð-
veri við upptökur á þriðju breiðskífu
sinni, Fever Dream, sem kemur út
26. júlí. Fyrsta lagið af þeirri skífu,
„Alligator“, kom út fyrir fáeinum
dögum og í dag tilkynntu skipu-
leggjendur tónlistarhátíðarinnar
Iceland Airwaves að hljómsveitin
myndi koma fram á henni í nóv-
ember en um þrjú ár eru liðin frá því
sveitin kom síðast fram hér á landi.
OMAM fór með sigur af hólmi í
Músíktilraunum árið 2010 og árið
2011 gaf Record Records út fyrstu
breiðskífu sveitarinnar, My Head is
an Animal. Lagið „Little Talks“ af
þeirri plötu náði miklum vinsældum
í Bandaríkjunum líkt og hér á landi
og vakti m.a. athygli ráðamanna
stórfyrirtækisins Universal sem
sömdu við hljómsveitina um útgáfu
fjögurra platna og var My Head is
an Animal sú fyrsta í röðinni.
Hljómsveitin náði þeim stórkost-
lega árangri að koma plötunni í
sjötta sæti Billboard-listans yfir
mest seldu plötur Bandaríkjanna og
hafði engin íslensk hljómsveit náð
slíkum árangri. Um 55 þúsund ein-
tök voru seld af plötunni í fyrstu
viku sölu í Bandaríkjunum og til að
fylgja eftir þessum miklu vinsældum
lék hljómsveitin vítt og breitt um
heiminn og fylgdust Íslendingar
með því mikla ævintýri í gegnum
fjölmiðla. Síðan eru liðin mörg ár,
eins og segir í laginu og hefur hljóm-
sveitin farið í marga tónleikaferðina
um heiminn, leikið í spjallþáttum og
átt lög í sjónvarpsþáttum og kvik-
myndum, m.a. The Hunger Games
og The Walking Dead.
Sveitin sendi aðra breiðskífu frá
sér árið 2015, Beneath the Skin, og
var hún öllu drungalegri en sú
fyrsta. Og ef marka má fyrsta lagið
af þriðju plötunni er sveitin orðin
enn rokkaðri en áður. Eða hvað?
Blaðamaður hitti tvo liðsmenn
OMAM, þau Nönnu Bryndísi Hilm-
arsdóttur og Ragnar Þórhallsson -
Nönnu og Ragga - og ræddi við þau
um plötuna, frægðina, framtíðina og
sitthvað fleira.
Flytja „Alligator“ hjá Fallon
„Við erum að fara út núna að
spila,“ svarar Nanna þegar blaða-
maður spyr hvort hljómsveitin sé
komin í frí. „Við erum að fara í Fall-
on,“ bætir Raggi við og á þar við
spjallþátt Jimmy Fallon en hljóm-
sveitin hefur áður komið fram í hon-
um. Hún mun að þessu sinni flytja
„Alligator“, fyrsta lagið af plötunni
væntanlegu og verður það jafnframt
í fyrsta sinn sem hljómsveitin flytur
lagið opinberlega. „Þetta verður
ógeðslega gaman, spennandi,“ segir
Nanna og hlakkar greinilega til og
Raggi segir hljómsveitina hafa „æft
grimmt“ fyrir þessa uppákomu hjá
Fallon sem er einn vinsælasti spjall-
þáttastjórnandi heims.
OMAM er þekkt hljómsveit og
vinsæl og því eðlilega mikið havarí í
kringum hana og skipulag. Nanna
og Raggi eru spurð að því hversu
miklu þau ráði sjálf, t.d. hvaða lag
ætti að heyrast fyrst af plötunni
nýju og segir Nanna að hljómsveitin
hafi fengið að ráða því sjálf. „Við
vorum sammála með þetta lag, bæði
við og útgáfan, það meikaði rosa
mikinn sens alveg frá upphafi,“ segir
hún og Raggi tekur undir það.
„Þetta var eiginlega fyrsta lagið sem
við vissum að yrði á plötunni. Svo er
orkan í því þannig að þetta er góð
byrjun á ferli,“ segir hann.
Nanna og Raggi segja lagið ekki
dæmigert fyrir plötuna í heild. „Það
er svolítið „in your face“, kemur inn
með látum en er ekkert voðalega góð
lýsing á plötunni,“ segir Nanna,
„platan verður ekkert öll svona“.
– Lagið virkar hrárra og rokkaðra
en fyrri lögin ykkar og er býsna
langt frá fyrstu plötunni þó enn
megi greina ákveðinn samhljóm?
Nanna og Raggi taka undir þetta.
Raggi 23 ára. „Bara „babies“,“ segir
Nanna brosandi, nýorðin þrítug og
Raggi bendir á að þrátt fyrir ungan
aldur hafi hann verið kominn á síð-
asta séns með að keppa í Músíktil-
raunum sökum aldurs.
Halda mætti að hljómsveitar-
meðlimir byggju allir erlendis vegna
tíðra tónleikaferða um heiminn en
svo er ekki, OMAM býr öll á Íslandi
og hefur gert í tvö ár eða þar um bil.
Auk þess var platan nýja tekin upp
hér á landi, í hljóðveri hljómsveitar-
innar í Garðabæ. „Við fórum bara út
til að mixa plötuna,“ útskýrir Nanna.
Það gangi ágætlega að búa á Íslandi
og halda reglulega í víking til Evr-
ópu og annarra heimsálfa en að vísu
fylgi hljómsveitinni mikið hafurtask,
tæki og alls konar hljóðfæri og ann-
að dót. Raggi tekur undir þetta og
segir helst til mikið hafa fylgt sveit-
inni í síðustu tónleikaferð. „Það var
rosalega mikið dót!“ segir hann með
áherslu.
Alltaf á fullu
Fimm tónlistarmenn skipa
OMAM í dag, auk Nönnu og Ragga
þeir Brynjar Leifsson, Arnar Rósen-
kranz Hilmarsson og Kristján Páll
Kristjánsson en Árni Guðjónsson
sagði skilið við sveitina fyrir nokkr-
um árum. Sá kvittur komst á kreik
eftir síðustu tónleikaferð að hljóm-
sveitin væri hætt því lítið sem ekk-
ert spurðist til hennar en þeir sem
fylgjast með OMAM á Facebook
vita að hún var og er sprelllifandi og
í fullu fjöri.
Nanna segir hljómsveitarmeðlimi
hafa einbeitt sér algerlega að plöt-
unni nýju, Fever Dream og látið lítið
fyrir sér fara á meðan. „Við þurftum
bara aðeins að fá að gleyma okkur,“
segir hún og Raggi bendir á að eftir
að síðasta plata kom út, fyrir fjórum
árum, hafi hljómsveitin verið á ferð
og flugi í um tvö ár. Að ferðalagi
loknu hafi næsta plata tekið við.
„Við erum búin að vera á fullu all-
an tímann en eins og tímarnir eru
núna, fólk að dúndra út lögum, er
hætt við því að maður gleymist,“
segir Raggi kíminn og Nanna hlær
að því að fólk hafi haldið að hljóm-
sveitin væri hætt. „Við erum búin að
vera á milljón!“ segir hún og bætir
við að að ef til vill hafi hljómsveitin
Reyna að lifa í núinu
Of Monsters and Men heldur tónleika á Iceland Airwaves í nóvember Þriðja breiðskífan,
Fever Dream, kemur út 26. júlí Litadýrð og jákvæðni Óhrædd við að prófa eitthvað nýtt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Þetta er nær manni, einhvern veg-
inn,“ segir Raggi, „svolítið mikið
rokk miðað við restina af plötunni en
lagið minnir alveg á lög af fyrstu
plötunni, t.d. „Six Weeks“. Þegar við
spilum þetta „live“ held ég að þetta
passi alveg vel inn í settið“.
Nanna segir hljómsveitina
óhrædda við að prófa eitthvað nýtt
þó að alltaf megi heyra OMAM-
hljóminn góða. „Okkur finnst það
skemmtilegt,“ segir hún.
Ekki lengur lítil og krúttleg
En hvernig er OMAM í dag miðað
við þá sem keppti í Músíktilraunum
fyrir níu árum? „Ég man alltaf eftir
því þegar við komum aftur ári eftir
að við unnum Músíktilraunir og spil-
uðum, þá voru einhverjir að segja að
þetta væri svikin vara, að við værum
ekki sama hljómsveitin ári síðar,“
segir Raggi sposkur og Nanna hlær
að þeim ummælum. „Við vorum svo
lítil og krúttleg þegar við unnum og
svo var bara komið band!“ bætir
Raggi við. Nanna var 21 árs þegar
OMAM keppti í Músíktilraunum en
Litríkt Umslag Fever Dream prýðir
verk eftir Jón Sæmund Auðarson.
Kvintett Hljómsveitin
Of Monsters and Men
gefur út plötu og leikur
á Iceland Airwaves.
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
TAUBLEIUBÚÐIN ÞÍN
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Glæsilegur kaupauki fylgir*
ef keyptar eru vörur frá Clinique
fyrir 7.900 kr. eða meira
CLINIQUE DAGAR
í Urðarapóteki 6.–12. maí
*Á
m
eð
an
b
ir
g
ð
ir
en
d
as
t.