Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 63
ekki verið nógu dugleg að láta vita af sér. OMAM gaf sér góðan tíma í að semja og taka upp Fever Dream og segir Nanna að hljómsveitin hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að gera hlutina aðeins öðruvísi en áður. Það hafi verið nauðsynlegt. Raggi segir að hljómsveitin hafi ekki verið alveg sammála í fyrstu um hvaða stefnu skyldi taka. „Við vorum að reyna að byrja eins og við gerðum á fyrstu og annarri plötu og það er bara ekki spennandi. Þetta tók kannski lengri tíma, lögin voru leng- ur með okkur og lengur að þróast og ég held að það sé gott,“ segir hann. Jón sá um myndlistina OMAM hefur alltaf lagt mikið upp úr sjónrænum þætti listar sinnar og myndböndin við lög hljómsveitar- innar hafa vakið athygli fyrir hversu mikið er lagt í þau. Myndbandið við „Alligator“, fyrsta lagið af Fever Dream, er í þeim anda, fljótandi málning í öllum regnbogans litum og hinum ýmsu formum. Og umslag plötunnar er líka litríkt og sýnir gróflega málað verk af auga á bleik- um grunni. Nanna og Raggi eru spurð að því hvort þarna sé plötunni lýst með myndrænum hætti. „Já, ég myndi segja það. Okkur langaði með þess- ari plötu að vera með meiri litagleði, hafa þetta aðeins hrárra og meiri orku,“ segir Nanna. Hljómsveitin hafi viljað að sjónræni þátturinn, myndlistin, endurspeglaði tónlistina og hafi því leitað til Jóns Sæmunds Auðarsonar myndlistarmanns. „Hann málar allt sem þú munt sjá nema vídeóið við „Alligator“, annar listamaður gerði það en allt sem kemur út með þessari plötu er frá Jóni,“ segir Raggi. „Hann er með svo fallega nærveru og það er svo gaman að vinna með honum.“ Raggi segir jákvæða orku að finna á plötunni og Nanna tekur undir þau orð. „Þetta er mjög jákvæð plata fyrir okkur,“ segir hún og að Jón Sæmundur hafi einfaldlega málað á meðan hann hlustaði á lögin af plöt- unni. „Hann var með okkur allt ferl- ið,“ segir Nanna. Meðvirk og kurteis – Nú eruð þið orðin svo þekkt og vinsæl, hversu mikið er verið að stýra ímynd hljómsveitarinnar, t.d. myndatökum? Er einhver stílisti sem segir ykkur að vera í rauðum og svörtum fötum, til dæmis? Nanna hlær að þessu og Raggi segir að hún hafi einfaldlega hringt í stílista sem hún fílaði fyrir mynda- tökuna sem blaðamaður vísar til. „Við höfðum bara samband við hana og unnum svo með henni,“ segir Raggi og Nanna bætir við að liðs- menn OMAM séu of miklir þver- hausar til að láta aðra stjórna sér. – Hvernig er samstarfið milli ykk- ar í hljómsveitinni, ræður eitthvert ykkar meiru en hin eða ríkir algjört lýðræði innan hennar? „Nei, við erum voðalega meðvirk og kurteis,“ segir Raggi og þau Nanna hlæja að þeirri lýsingu. „Það er mikil virðing á milli okkar, við virðum hvert annað mikils og hlust- um vel hvert á annað. Stundum get- um við verið endalaust að hlusta á hvert annað,“ bætir Raggi við og Nanna kinkar kolli því til staðfest- ingar. Hljómsveitin er skipuð fimm tón- listarmönnum sem fyrr segir en á tónleikaferðum bætast nokkrir gestahljóðfæraleikarar við hópinn. „Síðast vorum við níu á sviði, með fjóra „session“-leikara með okkur en núna erum við í miðju ferli að setja saman sjóið og fatta hvernig við ætl- um að hafa þetta,“ segir Nanna. – Finnst ykkur erfitt að finna jafn- vægi milli þess sem listamanns- hjartað vill og þess sem markaður- inn vill? Þið þurfið auðvitað líka að láta fólk fá það sem það biður um. „Ég held við séum ekki mjög upp- tekin af því eða alla vega ekki ég. Þessi plata er drullupoppuð en við erum það bara!“ svarar Nanna og Raggi tekur í sama streng. „Mér finnst svolítill misskilningur að tón- listarmenn séu alltaf að reyna að vera eitthvað abstrakt og artí og að það sé meiri list. Stundum vill lista- mannshjartað bara gera eitthvað sem hægt er að dansa við,“ segir hann. Nanna bætir við að þau vilji einfaldlega ná til fólks með sinni list- sköpun. Uppi á svölum í GoT OMAM hefur komið víða við á undanförnum níu árum og meðal annars í vinsælustu sjónvarpsþátt- um heims hin síðustu ár, Game of Thrones. Hljómsveitin lék þar á fornfáleg hljóðfæri og sást rétt svo bregða fyrir uppi á svölum í einu at- riði þáttanna þrátt fyrir að hafa ver- ið á tökustað í þrjá daga. Nanna og Raggi hlæja að þessu skemmtilega ævintýri. „Þetta byrj- aði allt með því að Arnar trommara langaði til að vera statisti í svörtum kufli með spjót og að Jon Snow myndi kannski ganga framhjá hon- um,“ segir Raggi sposkur. Hann segist ekki muna hvernig það kom til að OMAM var svo boðið að koma fram í einum þáttanna en líklega hafi umboðsmaður verið settur í málið. Nanna segir bráðfyndið að þau hafi endað uppi á svölum og aðeins sést í fáeinar sekúndur í þættinum. „Vinnan var svo mikil á bakvið þetta, við vorum öll í svakalegum búning- um og allt var óaðfinnanlegt,“ segir Nanna og Raggi bætir við að Krist- ján hafi verið með rándýra hárkollu á höfði sem hafi svo varla sést þegar á hólminn var komið. Meira stress að spila á Íslandi – Hvernig finnst ykkur tónlistar- bransinn vera nú þegar þið eruð komin með áralanga reynslu af hon- um og hafið farið í marga heimstón- leikaferðina? „Ég held að hann sé að breytast mjög mikið frá því við túruðum síð- ast,“ svarar Raggi, „hljómsveitir eru færri og sólóartistar fleiri, plötusala minni og allir að hlusta á Spotify og Apple Music“. Nanna segir líka for- vitnilegt að skoða aðsókn að tónleik- um og Raggi segist hafa heyrt að því að hún fari minnkandi. En hvernig ætli standi á því? Nanna og Raggi segjast ekki átta sig á þessari þróun og eru sammála blaðamanni í því að ekkert komi í stað tónleika, að vera á staðnum og njóta lifandi tónlistar- flutnings. OMAM heldur í næstu tónleika- ferð í haust og ætlar að æfa hér heima fram að því. Og svo er það Iceland Airwaves í nóvember en ekki hefur enn verið tilkynnt hvaða dag OMAM stígur á svið eða á hvaða tónleikastað. Hvernig skyldi það leggjast í þau Nönnu og Ragga að spila aftur á Íslandi eftir þriggja ára hlé? „Ég get bara ekki beðið eftir að standa aftur á sviði,“ segir Raggi, „maður gerir þetta í mörg ár og ger- ir þetta svo allt í einu ekki í nokkur ár og þá bara vantar eitthvað.“ – Nú heyrir maður tónlistarmenn oft tala um að það sé meira stress að spila í eigin landi en öðrum … – „Já, það er miklu meira stress- andi að spila á Íslandi,“ svarar Nanna og Raggi tekur undir með henni. „Maður týnist ekki jafnmikið í þvögunni hérna,“ segir hann kím- inn. Alltaf gaman – Nú eru elstu lögin ykkar orðin níu ára, eruð þið ekkert orðin leið á að spila sum þeirra, t.d. „Little Talks“? „Mér finnst bara alltaf erfitt að þurfa að gera eitthvað sem ég var að gera fyrir tveimur árum, ég á erfitt með það, vil alltaf bara halda áfram. En nei, nei, við höfum aðeins verið að spila þetta til núna og ég held við setjum þetta bara í nýjan búning og gerum spennandi,“ segir Nanna og Raggi segir að það taki bara um þrjár mínútur að dúndra út einu lagi á tónleikum. „Svo er fólk að öskra með og það er alltaf gaman. Auðvit- að eru alveg textabrot sem maður fær kjánahroll yfir en það er bara eins og það er,“ segir Raggi. Nanna segir alltaf gaman að spila „Little Talks“, einn mesta smell OMAM frá upphafi. „Þegar maður fær viðbrögðin og sér að fólki finnst þetta geggjað og syngur með þá verður maður bara glaður.“ „Maður á bara að vera ánægður með að hafa samið svona lag,“ bætir Raggi við og hittir þar naglann á höfuðið. Nanna segir það einmitt málið, „Little Talks“ hafi gefið þeim mikið. „Ætlum bara að gera þetta ógeðslega lengi“ – Hafið þið rætt framtíð hljóm- sveitarinnar, hvort þið verðið enn að eftir tíu ár til dæmis? „Þetta eru svo stórar spurn- ingar!“ segir Nanna og skellihlær að blaðamanni sem viðurkennir að stórt sé spurt. „Nei, nei, við ætlum bara að gera þetta ógeðslega lengi,“ segir hún og Raggi segir sveitina ekki hafa rætt þau mál meðvitað. „Á með- an okkur langar að gera þetta þá höldum við áfram,“ segir hann og Nanna bætir við að hana langi ekki að gera neitt annað. „Maður reynir að lifa í núinu í þessu, veit alveg að þetta er ekki sjálfgefið og þetta er brútal bransi. Við erum komin með góðan hóp af aðdáendum og þó að við séum ekki búin að gefa út í lang- an tíma er alltaf verið að hlusta á okkur og við erum alltaf að fá skila- boð. Þannig að við erum spennt að fá að spila aftur fyrir þetta fólk,“ segir Raggi að lokum. Morgunblaðið/Golli Fjölmenni Of Monsters and Men á tónleikum í Hljómskálagarðinum 2012. Auk OMAM léku Lay Low og Mammút. » „Þegar maður færviðbrögðin og sér að fólki finnst þetta geggjað og syngur með þá verður maður bara glaður.“ Ofmonstersandmen.com Icelandairwaves.is. MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 Sjónvarpsmaðurinn Sir David Attenborough, sem orðinn er 93 ára, leitar nú plötusnúðar til að endurhljóðblanda upptöku sem hann gerði á Balí fyrir 70 árum. Attenborough vill að upptakan, sem er þrjár mínútur að lengd, verði gerð að dansvænum smelli, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC en upptakan er af helgum gamelan- leik. Attenborough gerði sínar fyrstu upptökur af slíkum hljóð- færaleik þegar hann var í leit að kómódódreka árið 1954 sem rat- aði í sjónvarpsþáttaröð hans á BBC, Zoo Quest. Attenborough minnist þessa merka hljóðfæraleiks á vef BBC og segir eyjaskeggja hafa leikið af ótrúlega mikilli nákvæmni og fjöri. Þetta hafi verið tónlist veiðimanna sem leikin var á hverju kvöldi í þá daga í þorpum Balí. Vonast hinn síungi Atten- borough til þess að tónlistin verði kynnt nýjum kynslóðum með því að færa hana í nýjan búning. Attenborough leitar að plötusnúði AFP Fróður Sir David Attenborough. Keith Flint, söngvari The Prodigy sem fannst látinn 4. mars síðastlið- inn, hafði neytt kókaíns, áfengis og kódeins áður en hann lést, að því er dagblaðið Guardian greinir frá. Segir í frétt blaðsins að ekki séu næg sönnunargögn fyrir því að Flint hafi svipt sig lífi en hann fannst hengdur á heimili sínu. Blaðið hefur eftir dánardóm- stjóra að mögulega hafi Flint verið að fíflast og að þau fíflalæti hafi endað með hörmungum, þ.e. and- láti hans. Flint öðlaðist frægð með The Prodigy á tíunda áratugnum og var hljómsveitin með vinsælustu raf- tónlistarsveitum þess tíma. Með kókaín, áfengi og kódín í blóði AFP Óhapp? Keith Flint fannst hengdur á heimili sínu og dárnardómstjóri útilokar ekki að um óhapp hafi verið að ræða. Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Iðnaðareiningar í miklu úrvali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.