Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
Tekur ál, stál og ryðfrí
hnoð upp að 4,8mm.
LED ljós fyrir léleg birtuskilyrði.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem
virkar með öllum Milwaukee®
M12™ rafhlöðum.
Verð 59.900 kr. (með rafhlöðu)
M12 BPRT
Alvöru hnoðbyssa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Mercedes Bens til sölu
Mjög vel með farinn svartur Mercedes Bens CLS 350 Bluetec
til sölu, árg. 2015, ekinn aðeins 44 þús. km. Bíllinn er í topp
standi og hefur verið í reglulegu viðhaldi hjá Öskju. Svart
leðuráklæði, topplúga rafm. & hiti í sætum, „self park“
og margt fl. Verð 7.490 þús.
Áhugasamir hafið samband í síma 896-0747.
TIL SÖLU
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Tveir kunningjar á Akureyri fengu
þá hugmynd fyrir 15 árum að gera
eitthvað skemmtilegt og létu ekki
sitja við orðin tóm heldur stofnuðu
tölvufyrirtæki. Það fékk nafnið
Stefna og er í dag eitt stærsta hug-
búnaðarfyrirtæki á landsbyggðinni
og hagur þess eykst ár frá ári. „Þetta
er alltaf jafn skemmtilegt,“ segir
Matthías Rögnvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Stefnu og annar stofn-
enda fyrirtækisins, en hinn er Róbert
Freyr Jónsson, sölustjóri þess.
Áður en Stefna varð til var Matt-
hías þjónustustjóri hjá Skrín, hýsing-
ar- og ráðgjafarfyrirtæki í tölvugeir-
anum á Akureyri, og Róbert var
verslunarstjóri hjá Radíónausti.
Leiðir þeirra lágu saman vegna
starfa þeirra og þeir fengu sér stund-
um kaffibolla saman. Dag einn spurði
Matthías Róbert hvort þeir ættu ekki
að gera eitthvað skemmtilegt saman
einhvern tímann. „Róbert hafði svo
samband við mig einhverjum mánuð-
um síðar og spurði mig hvort ég hefði
verið að meina þetta. Og við slógum
til,“ rifjar Matthías upp.
Þetta var í apríl 2004 og þeir fengu
fljótlega vinnuaðstöðu í Foldu-húsinu
hjá Sambandsverksmiðjunum,
gömlu Gefjunarbúðinni, og innan tíð-
ar bættist Birgir Haraldsson í hóp-
inn, en hann var þá kerfisstjóri
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Fljótlega hófu þeir félagar rekstur
tölvuskóla, buðu upp á tölvuviðgerðir
og opnuðu verslun með tölvuvörur.
„Við áttum enga peninga og byrjuð-
um hreinlega á að spyrja fólk hvort
það þyrfti ekki að losa sig við eitt og
annað. Margir voru tilbúnir að rétta
okkur hjálparhönd; Guðbrandur for-
stjóri og Jón Hallur fjármálastjóri
hjá Útgerðarfélagi Akureyringa
vissu til dæmis um töluvert af skrif-
borðum og stólum þar á bæ sem ekki
var verið að nota og gáfu okkur. Við
fengum líka borð og stóla í nokkrum
skólum. Við keyptum spónaplötur,
söguðum og settum ofan á borðin, og
máluðum með skipamálningu sem
okkur var gefin,“ segir Matthías.
„Við vorum með eitt gerviblóm, feng-
um eldhúsborðið hennar mömmu,
kaffikönnur, hnífapör og bolla frá
öðrum mömmum og ísskáp frá ömmu
einhvers. Ýmsan tölvubúnað fengum
við svo gefins hér og þar. Þannig
hófst útgerðin.“
Með Norðurlöndin í sigtinu
Ekki leið á löngu þar til starfs-
menn Stefnu hófu að smíða vef-
umsjónarkerfið Moya og í kjölfarið
fór fyrirtækið að bjóða upp á alls
kyns lausnir og heimasíðugerð. Fljót-
lega fékk Stefna viðskiptavini á borð
við Samherja, Háskólann á Akureyri,
Sjúkrahúsið á Akureyri, Heklu og
bílaleiguna Höld.
Öll þessi fyrirtæki eru enn í við-
skiptum við Stefnu.
Núna eru starfsmenn Stefnu 27 og
þeim hefur fjölgað um tvo til fjóra á
hverju ári undanfarið í samræmi við
20-30% árlegan vöxt fyrirtækisins.
Meirihluti starfsmanna er á Akur-
eyri, en auk þess er fyrirtækið með
starfsstöð í Kópavogi og tveir starfs-
menn búa í Svíþjóð og sinna þaðan
fjarvinnu. Spurður hvort til standi að
færa út kvíarnar til annarra landa
segir Matthías að það hafi vissulega
verið rætt. „Okkar markmið er að
sækja á Norðurlöndin og við gerum
það vonandi fyrr en síðar.“
Matthías segir að staðsetningin á
Akureyri sé ótvíræður kostur. Ná-
lægðin við háskólasamfélagið hafi
styrkt fyrirtækið, en um tíma var
tölvunarfræði kennd við HA og tals-
verður hluti starfsmanna Stefnu kom
beint úr því námi. „Stefna væri klár-
lega ekki það sem hún er í dag ef Há-
skólans á Akureyri hefði ekki notið
við,“ segir Matthías.
Snjallsímar breyttu miklu
Á þeim 15 árum sem Stefna hefur
starfað hafa orðið miklar breytingar í
vefsíðugerð og öðrum tölvumálum.
Matthías segir að ein helsta breyt-
ingin hafi orðið þegar snjallsímar
urðu almenningseign og aðlaga þurfti
vefi að þessum nýju tækjum. „Vef-
umferð fer að stórum hluta fram í
gegnum símana í dag og vefsíður
verða sífellt mikilvægari þáttur í
rekstri fyrirtækja sem setja meiri
metnað í þær en áður,“ segir hann.
Liðlega 1.000 vefir eru nú í loftinu
á vegum Stefnu. Þegar leitað er til
fyrirtækisins með vefsíðugerð í huga
er byrjað á því að setjast niður, meta
þörfina og hvaða tilgangi síðan á að
þjóna. „Við búum síðan til grind í
samráði við viðskiptavininn og síðan
vefinn sjálfan. Hugsanlega eru ein-
hverjar forritunarlausnir sem þarf að
huga að. Vefurinn er svo afhentur og
við kennum á hann. Hugmyndin á
bak við alla okkar vefi er að þeir séu
sjálfbærir þannig að viðskiptavinur-
inn geti viðhaldið honum sjálfur. En
við erum líka með starfsfólk til að
sinna því fyrir þá sem af einhverjum
ástæðum gera það ekki sjálfir.“ Eitt
af þeim verkefnum sem Stefna hefur
haft með höndum er vefur og tölvu-
kerfi nýopnaðra Vaðlaheiðarganga.
Þar hannaði Stefna svokallað bak-
kerfi til að tengja saman ýmis kerfi
sem eru m.a. innheimtukerfi, gagna-
grunnur Samgöngustofu, gjald-
heimtukerfi og myndavélakerfi.
Matthías segir að það verkefni hafi
verið bæði krefjandi og skemmtilegt.
Ennþá skemmtilegt eftir 15 ár
Spurður hvað sé fram undan hjá
Stefnu segir Matthías að á borðinu
séu mörg og fjölbreytt verkefni, m.a.
í opinbera geiranum sem Stefna hef-
ur fengið eftir útboð en fyrirtækið
þjónustar um helming allra sveitarfé-
laga á landinu. Þá eru nokkrir stórir
vefir á teikniborði Stefnu.
Er þetta ennþá skemmtilegt eftir
15 ár? „Já, þetta er það. Verkefnin
eru skemmtileg og svo erum við svo
heppin að vinna með frábæru fólki,
starfsmannavelta er lítil og mikil
samheldni í hópnum.“
Þrátt fyrir að mikið sé að gera á
skrifstofum Stefnu er reglulega grip-
ið þar í borðtennisspaða, enda alvöru-
borð til iðkunar þeirrar íþróttar á
vinnustaðnum. Engum sögum fer þó
af árangri við borðtennisborðið. Það
sem unnið er við skrifborð starfs-
manna fer hins vegar ekki fram hjá
neinum; það birtist á tölvuskjám þús-
unda landsmanna á degi hverjum.
Stefna á Akureyri stefnir hátt
Eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins er 15 ára Spurningin: „Eigum við
ekki að gera eitthvað skemmtilegt?“ varð örlagarík Njóta góðs af nálægðinni við háskólasamfélagið
Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson
Stefna hátt Matthías Rögnvaldsson og Róbert Freyr Jónsson stofnuðu Stefnu fyrir 15 árum og nú er fyrirtækið eitt
stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Þó er tími til að grípa í borðtennisspaða.
Sendinefnd Evrópusambandsins á
Íslandi, ásamt 15 sendiráðum landa
ESB, bjóða til veislu í dag, fimmtu-
dag, í Ráðhúsi Reykjavíkur frá kl.
17 til 19. Boðið verður upp á mat og
drykk víðsvegar að úr Evrópu, sem
og tónlist og skemmtiatriði, t.d.
ungverska þjóðdansa og búlg-
arskan barnakór. Veislan er öllum
opin, að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá sendinefnd ESB. Tilefni
veislunnar er Evrópudagurinn svo-
nefndi, þar sem samvinnu ríkja í
Evrópu er fagnað.
Í ár verður þess minnst sér-
staklega að aldarfjórðungur er lið-
inn frá því að Ísland hóf fulla þátt-
töku í innri markaði ESB í gegnum
samninginn um Evrópska efna-
hagssvæðið (EES).
Veisla í Ráðhúsinu á Evrópudeginum í dag