Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 Krókháls 1 • 110 Reykjavík • S. 567 8888 • www.pmt.is Allt til merkinga & pökkunar Kemur með snertiskjá og WiFi Hægt er að fá ofninn í mörgum litum TURBOCHEF ECO er minnsti og sparneytnasti ofninn frá TurboChef Hentar sérstaklega vel fyrir kaffihús, bensínstöðvar og minni staði sem eru með skyndibita. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er gaman að vera með svona stóran kvennahóp í Þjóðleikhúsinu,“ segir Edda Þórarinsdóttir leikstjóri og höfundur leikgerðar sýningar- innar Dansandi ljóð sem sviðslista- hópurinn Leikhúslistakonur 50+ frumsýnir í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 11. maí kl. 20. Leik- gerðina byggði Edda á ljóðum eftir Gerði Kristnýju. „Gerður Kristný er svo mikil sögukona, enda hefur hún gert heilu ljóðabækurnar sem eru heildstæðar sögur,“ segir Edda og vísar þar til ljóðabókanna Blóðhófnir (sem út kom 2010), Drápa (2014) og Sálumessa (2018). „Mér fannst þær bækur svo áhugaverðar þannig að ég fór að skoða öll ljóðin hennar. Ljóðin henn- ar eru svo myndræn og tímalaus þannig að ég fór að prófa að setja ljóðin saman í heildræna frásögn,“ segir Edda og rifjar upp að ljóðið „Systkini mín“ hafi verið kveikjan að áhuga hennar. „Ég fékk síðan leyfi Gerðar Kristnýjar til að búa til mína eigin sögu úr ljóðunum hennar,“ segir Edda sem valdi ljóðin úr ljóða- bókunum Ísfrétt (sem út kom 1994), Launkofi (2000), Höggstaður (2007) og Strandir (2012). Eru í raun ein og sama konan „Rauði þráður sýningarinnar er íslensk kona, en við fylgjumst með henni frá fæðingu til fullorðinsára. Þar, eins og í lífi okkar allra, gerast alls kyns hlutir, jafnt gleðilegir sem dapurlegir. Í raun getur þetta verið hvaða kona sem er. Leikkonurnar átta túlka líf hennar, ástir og örlög í ljóðum, dansi og tónlist,“ segir Edda, en sviðshreyfingar sömdu Ásdís Magnúsdóttir og Ingibjörg Björnsdóttir og tónlist samdi Mar- grét Kristín Sigurðardóttir sem er betur þekkt sem Fabúla. „Hún spil- ar á píanó í sýningunni og býr til alls kyns leikhljóð ásamt því að syngja frumsamin lög og flytja ljóðin með hinum í hópnum,“ segir Edda, en átta leikkonur fara með hlutverk í sýningunni. Auk Fabúlu leika í upp- færslunni þær Bryndís Petra Braga- dóttir, Helga E. Jónsdóttir, Júlía Hannam, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sólveig Hauksdóttir, Vilborg Hall- dórsdóttir og Þórey Sigþórsdóttir. „Þó átta leikkonur flytji verkið eru þær í raun ein og sama konan. Þannig að þær skiptast á að flytja ljóðin og stundum eiga þær beinlínis í samtali innan sama ljóðsins,“ segir Edda og leggur áherslu á að um sviðsetningu ljóðanna er að ræða en ekki hefðbundinn ljóðaflutning í formi upplesturs. „Auðvitað hefði verið hægt að flytja efnið sem ein- leik, en í samstarfi við danshöfund- ana sáum við fyrir okkur að formið minnti á grískt leikhús þar sem hlut- verk kórsins er stórt og mikilvægt. Þannig skiptast konurnar átta á að stíga út úr kórnum,“ segir Edda og bendir á að allar leikkonurnar beri grímu um sig miðja sem þær geti gripið til eftir þörfum, en gríman vís- ar beint í gríska leikhúsið. „Gríman er svört öðrum megin og hvít hinum megin. Þegar talið berst að dauðanum grípa þær til svörtu grímunnar og fela sig. Þannig nota þær grímurnar af og til í sýningunni þegar verið er að fjalla um erfiða hluti. Þó nálgunin hafi upphaflega verið hugsuð sem grískt leikhús er það það ekki lengur, heldur er þetta íslenskt leikhús með íslenskum kon- um,“ segir Edda kímin og tekur fram að fjöldi flytjenda bjóði líka upp á hópdansa á sviðinu. „Fjöldinn gefur því svo mikla möguleika,“ seg- ir Edda og hrósar leikkonunum í há- stert. „Þetta eru allt mjög reyndar leikkonur sem eiga það sameiginlegt að vera orðnar 50 ára og eldri, þ.e. 50+,“ segir Edda og upplýsir að í sviðslistahópnum Leikhúslistakonur 50+ séu samtals um sextíu konur. Snjóveröld í kjallaranum Helga Björnsson hannar bæði leikmynd og búninga, en rifja má upp að Helga fékk Grímuverðlaunin 2010 fyrir búninga sína í Íslands- klukkunni í uppfærslu Þjóðleikhúss- ins. „Það er því óhætt að segja að hún kunni til verka, enda eru bún- ingarnir í Dansandi ljóðum ein- staklega flottir. Það mun vafalítið koma mörgum sem þekkja Þjóðleik- húskjallarann vel á óvart að rýmið er ekki svart eins og venjulega held- ur fer mikið fyrir hvíta litnum,“ seg- ir Edda og bendir á að aðeins séu notaðir þrír litir í sýningunni, þ.e. hvítur, svartur og rauður. „Á sviðinu og á gólfinu fyrir framan hefur verið breiddur út hvítur dansdúkur, sem kallast á við myndheim ljóðanna. Gerður Kristný yrkir mjög mikið um snjó og ís og kulda og kvíðann sem fylgt getur því að búa í svona köldu landi. Hvítir kollar leikmyndarinnar eru hluti af þessari snjóveröld sem sköpuð hefur verið í Þjóðleikhús- kjallaranum,“ segir Edda og tekur fram að það fái að glitta í rauðan bakvegg Þjóðleikhúskjallarans gegnum svarta umgjörð. „Rauða rákin í miðjunni er tákn fyrir ástina og blóð konunnar.“ Sviðslistahópurinn Leikhúslista- konur 50+ var stofnaður 2014 í þeim tilgangi að setja á svið áhugaverða viðburði sem gætu haft áhrif og breytt viðhorfum fólks til þátttöku eldri kvenna í listum. Eitt af mark- miðum félagskvenna er að vekja at- hygli á að þroski og reynsla kvenna yfir fimmtugu úr leikhúsheiminum sé sannkallaður fjársjóður sem vert sé að nýta. Félagið hefur staðið fyrir ýmsum leiklestrum og sett á svið sýningarnar Konur og krínólín sem frumsýnd var í Iðnó í júní 2017 og Fjallkonan fríð eða hefur hún hátt? sem frumsýnd var í Þjóðleikhús- kjallaranum í nóvember 2018. „Lengi framan af höfðum við athvarf í Iðnó hjá henni Möggu Rósu,“ segir Edda og vísar þar til Margrétar Rósu Einarsdóttur sem um árabil var staðarhaldari í Iðnó. „Okkur hef- ur verið afskaplega vel tekið í Þjóð- leikhúsinu,“ segir Edda, en gerður var samstarfssamningur til eins árs í fyrra. „Ég bind vonir við að þjóðleik- hússtjóri vilji endurnýja samninginn við okkur, enda gott að vera í Þjóð- leikhúskjallaranum. Ég er orðin það fullorðin að ég man vel þegar Þjóð- leikhúskjallararinn var litla svið Þjóðleikhússins. Þarna sá maður og lék í mörgum frábærum sýningum. Mér finnst gaman að endurvekja þá stemningu í Þjóðleikhúskjallar- anum,“ segir Edda. Þess má að lok- um geta að sýningin Dansandi ljóð er rúm klukkustund að lengd og leikin án hlés. Næstu sýningar verða sunnudaginn 12. maí kl. 16 og mið- vikudaginn 15. maí kl. 20. Morgunblaðið/Hari Skapandi Rósa Guðný Þórsdóttir, Bryndís Petra Bragadóttir, Vilborg Halldórsdóttir, Júlía Hannam, Edda Þórar- insdóttir, Sólveig Hauksdóttir, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Helga E. Jónsdóttir og Þórey Sigþórsdóttir. „Frá fæðingu til fullorðinsára“  Leikhúslistakonur 50+ frumsýna Dansandi ljóð í Þjóðleikhúskjallaranum  Átta leikkonur túlka líf, ástir og örlög einnar konu í ljóðum, dansi og tónlist  „Okkur vel tekið í Þjóðleikhúsinu“ Rússneski píanóleikarinn Nikolai Lugansky leikur píanókonsert eft- ir Edvard Grieg á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eld- borg Hörpu í kvöld kl. 19.30 undir stjórn norska stjórnandans Eivinds Aadland. Á efnisskránni eru einn- ig forleikurinn úr óperunni Á valdi örlaganna eftir Giuseppe Verdi og ballettsvítur úr Rómeó og Júlíu eftir Sergei Prokofíev. „Lugansky vakti gífurlega hrifningu haustið 2016 þegar hann lék þriðja píanókonsert Rakhman- ínovs í Eldborg. Hann snýr nú aft- ur til Íslands og leikur hinn sí- vinsæla píanókonsert Griegs, þar sem tónskáldið sameinar í stóru formi blæbrigði norskra þjóðlaga og tónsmíðahefð þýskrar róman- tíkur. Konsertinn varð umsvifa- laust einn sá vinsælasti sem um getur. Þegar Franz Liszt hafði leikið hann í návist tónskáldsins árið 1870 er sagt að píanistinn frægi hafi hrópað upp yfir sig: „Haltu áfram að semja, í Guðs bænum! Þú hefur það sem til þarf!“ Að vanda hefst tónleika- kynning í Hörpuhorni kl. 18. Morgunblaðið/Hari Eftirsóttur Nikolai Lugansky við flygilinn á æfingu í Hörpu í gær. Lugansky leikur Grieg  Sameinar blæbrigði norskra þjóð- laga og rómantíska tónsmíðahefð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.