Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Valin besta nýja
vara ársins,
Nordbygg 2016
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og
framleidd í Svíþjóð.
Eiar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Ég er rosalega ánægð með þetta!
Mér hefur tekist að raungera þá sýn
sem hefur búið í höfðinu á mér síð-
asta árið, nákvæmlega eins og ég sá
sýninguna fyrir mér. Ég gæti ekki
verið þakklátari fyrir að hafa fengið
þetta tækifæri og er montin af því að
vera hér fulltrúi Íslands,“ segir
Hrafnhildur Arnardóttir og kallar
svo glaðlega: „HÁRfram Ísland!“
Hrafnhildur er þekkt undir lista-
mannsnafninu Shoplifter og í kvöld
verður opnuð í íslenska skálanum í
Feneyjum sýningin sem kalla má há-
tind á hennar ferli – og hefur hún þó
notið sívaxandi athygli og sett upp
viðamiklar innsetningar á athyglis-
verðum og virtum sýningarstöðum.
Ég á símafund með Hrafnhildi og
sýningarstjórann Birtu Guðjóns-
dóttur, sem hefur unnið markvisst
með henni að sýningarverkefninu
undanfarið ár, eða síðan tilkynnt var
í júní í fyrra að Hrafnhildur yrði
fulltrúi Íslands á 58. Feneyjatvíær-
ingnum. Margra mánaða undirbún-
ingi og vinnu við skipulagningu og
uppsetningu sýningarinnar er lokið
og síðustu tvo daga hafa fjölmiðla-
menn og safnafólk allsstaðar að
fengið að skoða sýningarskála hinna
ýmsu þjóða í Feneyjum. Þegar ég
ræði við Hrafnhildi og Birtu, þar
sem þær eru staddar í loðnum heimi
listakonunnar, er fyrri blaðamanna-
dagurinn nýhafinn og látlaus
straumur gesta er á sýninguna og
fjölmörg viðtöl hafa verið bókuð.
Verkið „alveg geðveikt“
Þegar spurt er hvort tekist hafi að
ljúka flókinni uppsetningu verksins í
tíma svarar Hrafnhildur að enda-
laust sé hægt að laga eitthvað þegar
um hárgreiðslu er að ræða. „Það er
alltaf hægt að greiða eitt hár til. En
við erum með æðislegt teymi hérna
og það hefur mikið gengið á og verið
mikið fjör.“ Hún þagnar og bætir svo
stolt við: „En ég verð að segja að
mér finnst verkið alveg geðveikt!“
Þær Birta segja flókna uppsetn-
ingu verksins hafa byggst á mjög ná-
kvæmri skipulagningu. „Og verkið
lítur út eins og við lögðum upp með,
okkar A-plan er orðið að veruleika,“
segir Birta. Hrafnhildur og aðstoð-
arfólk hennar er líka í góðri æfingu
við uppsetningu flókinna verka;
þetta er þriðja innsetningin sem
Hrafnhildur setur upp á árinu, hinar
fóru upp í samtímasafninu Kiasma í
Finnlandi og í tengslum við sýningu
tískuhússins Moncler í Mílanó. „Ég
er því „on a roll“,“ segir Hrafnhildur
og hlær. „Efnið er farið að leika í
höndunum á mér og ég veit ná-
kvæmlega hvernig það hagar sér og
hvað ég get gert með það. Svo hefur
mér tekist að finna gott og hæfileika-
ríkt fólk sem hjálpar mér við að
koma sýn minni í raunverulegt form
og þau hef ég þjálfað í að undirbúa
efniviðinn og setja hann saman á
þann hátt sem ég vil. Við höfum til að
mynda þurft að undirbúa hár í marg-
litum knippum fyrir innsetninguna;
þetta er eiginlega 500 fermetra loðið
málverk og handtökin óteljandi. Ég
hef hér með mér margar hendur og
heila sem eru einskonar framlenging
af mér.“
Birta segir að með þeim í Fen-
eyjum sé fólk sem hefur unnið með
Hrafnhildi í mörg ár á vinnustofu
hennar í Brooklyn og eru öll lista-
menn. Þá hafi Hrafnhildur einnig
þjálfað starfsnema sem hafi tekið
þátt í gerð verksins. Og Hrafnhildur
skýtur inní að marglit hárknippin
séu fest á net frá Hampiðjunni og
það finnst þeim fallega viðeigandi.
„Frá HAMpiðjunni,“ endurtekur
Hrafnhildur og vísar í hljómsveitina
sem vann með henni að verkinu.
Hangir nánast á engu
Á undanförnum árum hefur
Hrafnhildur unnið að röð innsetn-
inga sem hún kallar Taugafold, Ner-
vescape á ensku, og hefur Birta ver-
ið sýningarstjóri þriggja, þeirra sem
voru settar upp í Listamiðstöðinni í
Boden í Svíþjóð, á Norræna tvíær-
ingnum í samtímamyndlist í Moss í
Noregi og í Listasafni Íslands. Þær
innsetnignar hafa allar farið inn í
safnaumhverfi en nú er verkið
Chromo Sapiens í hrárri vöru-
skemmu. Hver er munurinn?
„Þetta hér er pop-up sýning í
hráu, gömlu rými þar sem ekki má
negla einn einasta nagla í vegg,“
svarar Hrafnhildur. „Við höfum því
sett verkið upp með hálfgerðum
töfratólum og það hangir á nánast
engu! Þetta hefur verið mikil áskor-
un, við útfærðum það strax í byrjun
ásamt Guðna Valberg arkitekt og
svo manninum mínum sem er verk-
fræðingur og það hefur alveg gengið
upp.“ Og hún ítrekar að þar hafi
skipt sköpum að vinna einnig með
góðum arkitekt í Feneyjum, svo og
sérvöldum úrlausnasnillingum.
Birta bætir við að hvað verkfræði-
lausnir og uppsetningu varði hafði
þær „blikkað Leonardo da Vinci að-
eins hvað varðar að verkið er sett
upp eins og bygging inni í byggingu
sem hún snertir varla.“
Ýkt ofur-náttúra
Þátttaka á Feneyjatvíæringi er
eina tækifærið sem íslenskum
myndlistarmönnum gefst til að vera
formlega fulltrúi þjóðarinnar.
Hvernig er sú reynsla?
„Það er geggjaður heiður!“ svarar
Hrafnhildur. „Mig hefur lengi lang-
að til að spreyta mig í þessu hlut-
verki. Nú hef ég verið búsett í New
York í 25 ár, helming ævinnar, og ég
er samt alltaf fyrst og fremst Íslend-
ingur. Ég er ekki mikið fyrir þjóð-
ernisrembing, slíkt getur verið
þreytandi og jafnvel hættulegt, en
ég er mjög íslensk og verkin mín eru
undir mjög miklum áhrifum frá Ís-
landi; frá klisjunni um náttúru Ís-
lands. Ég hef búið hér til ýkta ofur-
náttúru úr öllu þessu gerviefni, litrík
hellagöng. Þetta er einskonar ofur-
raunsætt expressjónískt landlags-
málverk, og eins og að ganga inn í
barnabók eftir Dr. Seuss.“
Birta segir að þótt þær Hrafnhildi
hafi lengi dreymt um að taka þátt í
tvíæringnum sé þetta rétti tíminn
fyrir hana. „Þetta verk hér er í rök-
réttu framhaldi af verkum hennar
undanfarin ár. Þau hafa verið að
stækka og breytast og hér tekst
Hrafnhildur á við umhverfi þar sem
hún vinnur ekki aðeins á staðbund-
inn hátt með rými heldur skapar al-
gjörlega sitt eigið. Það er nýtt í
hennar verkum. Undanfarna tvo
áratugi hefur Hrafnhildur skapað og
mótað feril sem hefur verið á línu-
legri uppleið – nú er rétti tíminn fyr-
ir hana til að sýna hér í íslenska skál-
anum, með þeirri athygli alþjóðlega
listheimsins sem því getur fylgt.“
Og Hrafnhildur bætir við: „Já,
þetta gerist á réttum tíma. Ég hef
þráð að geta gert svona stóra inn-
setningu þar sem gestir eru umvafð-
ir hárinu. Þetta hefur verið óhemju
vinna, að koma saman þessum pönk-
vefnaði – þetta er pönktextíll! Ég er
ofboðslega hamingjusöm yfir því að
hafa einmit núna, á Feneyjatvíær-
ingnum, tekið þetta alla leið. Þetta
er sannkallað lúxusverkefni. Og ég
get ekki beðið eftir því sjá gesti upp-
lifa listaverkið og litadýrðina.“
Innyflanudd og víbrasjón
Íslenskir plötusnúðar munu
skemmta gestum við opnun íslenska
skálans í kvöld en í mörg ár hefur
það verið umtalað meðal safnafólks
og listunnenda sem sækja opnun
tvíæringsins að einhver skemmtileg-
ustu partýin séu við íslensku opnun-
ina. Þá mun hin goðsagnakennda
sveit HAM troða upp en hún samdi
tónverk fyrir verk Hrafnhildar.
„Þeir hafa venjulega samið um
þriggja mínútna löng rokklög, sem
við höfum endurskilgreint sem
„hairy mental“ og hafa ómað í vinnu-
stofunni minni til margra ára. Ég
pantaði hjá þeim ópus, hljóðverk fyr-
ir innsetninguna og allt sem hún
snýst um. Hljóðheimur HAM hæfir
fullkomnlega, er svo stórkostlega
„præmal“ og hljóðbylgjutengdur,
gefur innyflanudd og víbrasjón, og
ég vissi að þetta myndi passa saman.
Og þeir voru spenntir fyrir áskorun-
inni,“ segir hún um samstarfið við
HAM en tónlistin var tekin upp í
hljóðveri Lees Ranaldo, eins með-
lima hljómsveitarinnar Sonic Youth,
undir stjórn Skúla Sverrissonar.
Hún segir verk HAM hljóma úr
þeim háruga ham sem innsetningin
sé. „Hellarnir þrír í Chromo Sapiens
heita „Primal Opus“, myrkvuð göng
í litasamsetningum eldglæringa sem
eru tileinkuð HAM; þá kemur „Ast-
ral Gloria“ sem er sækadelísk og
trippí litadýrð; og loks er það „Opi-
um Natura“ þar sem eru flöktandi
og dúnmjúkir litatónar og saklaus
sjónræn alsæla,“ segir Hrafnhildur.
Tónverkið sem HAM samdi og
hljóðritaði er um 20 mínútur og er
gefið út á LP-plötu sem er hluti af
sýningarskránni; hún kemur út í
1000 eintökum, er hönnuð af graf-
íska hönnunarteyminu karlsson-
wilker og hver plata er einstök, glær
vínylplata með hárlufsum úr verki
Hrafnhildar pressuðum inn í hverja
plötu. Texta í sýningarskrána skrifa
Birta, Hilton Als, JenDeNike,
Oddný Eir Ævarsdóttir og Timothy
Morton, og þá er birt samtal Hrafn-
hildar og Alönnu Heiss.
Svakalegt ferli en skemmtilegt
Erlendir fjölmiðlamenn hafa safn-
ast saman í íslenska skálanum með-
an við spjöllum og vilja ná tali af
þeim Hrafnhildi og Birtu. Sú síðar-
nefnda segir loftið vera orðið raf-
magnað í Feneyjum og mikil spenna
sé greinilega fyrir íslenska skál-
anum sem einhverjir fjölmiðlar hafa
valið meðal þeirra mest spennandi.
„Verkið vekur áhuga fólks á svo
breiðu sviði. Við höfum hitt blaða-
menn frá myndlistar-, hönnunar-
og lífsstílsmiðlum. List Hrafnhildar
spannar vítt svið og nær til
margra.“
Og þær viðurkenna að vera lúnar.
„Þetta hefur verið svakalegt
ferli, en skemmtilegt. Eftir opnun-
ina ætlum við hjónin að sigla frá
Feneyjum á skútu vinar okkar með
krakkana inn í sólarlagið til Króat-
íu. Þá nær maður loksins að anda,“
segir Hrafnhildur að lokum.
Eins og 500 fermetra loðið málverk
Sýning Hrafnhildar Arnardóttur, sem kallar sig Shoplifter, verður opnuð í íslenska skálanum á
Feneyjatvíæringnum í kvöld Loðin insetning sem hún kallar Chromo Sapiens HAM leikur
Ljósmynd/Elísabet Davíðsdóttir
Í Chromo Sapiens Sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir og listakonan Hrafnhildur Arnardóttir í innsetningunni.
Loðinn heimur „Þetta er pönktextíll!“ segir Hrafnhildur um verkið. Fjöldi
manna hefur komið að gerð þess undanfarna mánuði.
Sýning Hrafnhildar Arnardóttur,
sem kallar sig Shoplifter, verður
opnuð í íslenska skálanum á 58.
Feneyjatvíæringnum í kvöld en
skálinn er í gömlu vöruhúsi á
eyjunni Giudecca. Um er að
ræða viðamikla innsetningu úr
einkennisefni Hrafnhildar, hári,
og nefnist hún Chromo Sapiens.
„Litir hljóð og aðlaðandi áferð
leiða gesti í gegnum þrjú ólík
rými sem umlykja þá í mynd-
rænum og hljóðrænum sam-
runa,“ segir í tilkynningu.
Hljómsveitin HAM hefur sam-
ið tónverk fyrir Chromo Sapiens
og hljómar það um hinn loðna
heim listakonunnar. Hljóm-
sveitin kemur fram við opnun-
ina. Birta Guðjónsdóttir er sýn-
ingarstjóri verkefnisins sem
fjöldi manns hefur unnið að.
Innsetning
Hrafnhildar
CHROMO SAPIENS