Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 66

Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Valin besta nýja vara ársins, Nordbygg 2016 Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. Eiar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Ég er rosalega ánægð með þetta! Mér hefur tekist að raungera þá sýn sem hefur búið í höfðinu á mér síð- asta árið, nákvæmlega eins og ég sá sýninguna fyrir mér. Ég gæti ekki verið þakklátari fyrir að hafa fengið þetta tækifæri og er montin af því að vera hér fulltrúi Íslands,“ segir Hrafnhildur Arnardóttir og kallar svo glaðlega: „HÁRfram Ísland!“ Hrafnhildur er þekkt undir lista- mannsnafninu Shoplifter og í kvöld verður opnuð í íslenska skálanum í Feneyjum sýningin sem kalla má há- tind á hennar ferli – og hefur hún þó notið sívaxandi athygli og sett upp viðamiklar innsetningar á athyglis- verðum og virtum sýningarstöðum. Ég á símafund með Hrafnhildi og sýningarstjórann Birtu Guðjóns- dóttur, sem hefur unnið markvisst með henni að sýningarverkefninu undanfarið ár, eða síðan tilkynnt var í júní í fyrra að Hrafnhildur yrði fulltrúi Íslands á 58. Feneyjatvíær- ingnum. Margra mánaða undirbún- ingi og vinnu við skipulagningu og uppsetningu sýningarinnar er lokið og síðustu tvo daga hafa fjölmiðla- menn og safnafólk allsstaðar að fengið að skoða sýningarskála hinna ýmsu þjóða í Feneyjum. Þegar ég ræði við Hrafnhildi og Birtu, þar sem þær eru staddar í loðnum heimi listakonunnar, er fyrri blaðamanna- dagurinn nýhafinn og látlaus straumur gesta er á sýninguna og fjölmörg viðtöl hafa verið bókuð. Verkið „alveg geðveikt“ Þegar spurt er hvort tekist hafi að ljúka flókinni uppsetningu verksins í tíma svarar Hrafnhildur að enda- laust sé hægt að laga eitthvað þegar um hárgreiðslu er að ræða. „Það er alltaf hægt að greiða eitt hár til. En við erum með æðislegt teymi hérna og það hefur mikið gengið á og verið mikið fjör.“ Hún þagnar og bætir svo stolt við: „En ég verð að segja að mér finnst verkið alveg geðveikt!“ Þær Birta segja flókna uppsetn- ingu verksins hafa byggst á mjög ná- kvæmri skipulagningu. „Og verkið lítur út eins og við lögðum upp með, okkar A-plan er orðið að veruleika,“ segir Birta. Hrafnhildur og aðstoð- arfólk hennar er líka í góðri æfingu við uppsetningu flókinna verka; þetta er þriðja innsetningin sem Hrafnhildur setur upp á árinu, hinar fóru upp í samtímasafninu Kiasma í Finnlandi og í tengslum við sýningu tískuhússins Moncler í Mílanó. „Ég er því „on a roll“,“ segir Hrafnhildur og hlær. „Efnið er farið að leika í höndunum á mér og ég veit ná- kvæmlega hvernig það hagar sér og hvað ég get gert með það. Svo hefur mér tekist að finna gott og hæfileika- ríkt fólk sem hjálpar mér við að koma sýn minni í raunverulegt form og þau hef ég þjálfað í að undirbúa efniviðinn og setja hann saman á þann hátt sem ég vil. Við höfum til að mynda þurft að undirbúa hár í marg- litum knippum fyrir innsetninguna; þetta er eiginlega 500 fermetra loðið málverk og handtökin óteljandi. Ég hef hér með mér margar hendur og heila sem eru einskonar framlenging af mér.“ Birta segir að með þeim í Fen- eyjum sé fólk sem hefur unnið með Hrafnhildi í mörg ár á vinnustofu hennar í Brooklyn og eru öll lista- menn. Þá hafi Hrafnhildur einnig þjálfað starfsnema sem hafi tekið þátt í gerð verksins. Og Hrafnhildur skýtur inní að marglit hárknippin séu fest á net frá Hampiðjunni og það finnst þeim fallega viðeigandi. „Frá HAMpiðjunni,“ endurtekur Hrafnhildur og vísar í hljómsveitina sem vann með henni að verkinu. Hangir nánast á engu Á undanförnum árum hefur Hrafnhildur unnið að röð innsetn- inga sem hún kallar Taugafold, Ner- vescape á ensku, og hefur Birta ver- ið sýningarstjóri þriggja, þeirra sem voru settar upp í Listamiðstöðinni í Boden í Svíþjóð, á Norræna tvíær- ingnum í samtímamyndlist í Moss í Noregi og í Listasafni Íslands. Þær innsetnignar hafa allar farið inn í safnaumhverfi en nú er verkið Chromo Sapiens í hrárri vöru- skemmu. Hver er munurinn? „Þetta hér er pop-up sýning í hráu, gömlu rými þar sem ekki má negla einn einasta nagla í vegg,“ svarar Hrafnhildur. „Við höfum því sett verkið upp með hálfgerðum töfratólum og það hangir á nánast engu! Þetta hefur verið mikil áskor- un, við útfærðum það strax í byrjun ásamt Guðna Valberg arkitekt og svo manninum mínum sem er verk- fræðingur og það hefur alveg gengið upp.“ Og hún ítrekar að þar hafi skipt sköpum að vinna einnig með góðum arkitekt í Feneyjum, svo og sérvöldum úrlausnasnillingum. Birta bætir við að hvað verkfræði- lausnir og uppsetningu varði hafði þær „blikkað Leonardo da Vinci að- eins hvað varðar að verkið er sett upp eins og bygging inni í byggingu sem hún snertir varla.“ Ýkt ofur-náttúra Þátttaka á Feneyjatvíæringi er eina tækifærið sem íslenskum myndlistarmönnum gefst til að vera formlega fulltrúi þjóðarinnar. Hvernig er sú reynsla? „Það er geggjaður heiður!“ svarar Hrafnhildur. „Mig hefur lengi lang- að til að spreyta mig í þessu hlut- verki. Nú hef ég verið búsett í New York í 25 ár, helming ævinnar, og ég er samt alltaf fyrst og fremst Íslend- ingur. Ég er ekki mikið fyrir þjóð- ernisrembing, slíkt getur verið þreytandi og jafnvel hættulegt, en ég er mjög íslensk og verkin mín eru undir mjög miklum áhrifum frá Ís- landi; frá klisjunni um náttúru Ís- lands. Ég hef búið hér til ýkta ofur- náttúru úr öllu þessu gerviefni, litrík hellagöng. Þetta er einskonar ofur- raunsætt expressjónískt landlags- málverk, og eins og að ganga inn í barnabók eftir Dr. Seuss.“ Birta segir að þótt þær Hrafnhildi hafi lengi dreymt um að taka þátt í tvíæringnum sé þetta rétti tíminn fyrir hana. „Þetta verk hér er í rök- réttu framhaldi af verkum hennar undanfarin ár. Þau hafa verið að stækka og breytast og hér tekst Hrafnhildur á við umhverfi þar sem hún vinnur ekki aðeins á staðbund- inn hátt með rými heldur skapar al- gjörlega sitt eigið. Það er nýtt í hennar verkum. Undanfarna tvo áratugi hefur Hrafnhildur skapað og mótað feril sem hefur verið á línu- legri uppleið – nú er rétti tíminn fyr- ir hana til að sýna hér í íslenska skál- anum, með þeirri athygli alþjóðlega listheimsins sem því getur fylgt.“ Og Hrafnhildur bætir við: „Já, þetta gerist á réttum tíma. Ég hef þráð að geta gert svona stóra inn- setningu þar sem gestir eru umvafð- ir hárinu. Þetta hefur verið óhemju vinna, að koma saman þessum pönk- vefnaði – þetta er pönktextíll! Ég er ofboðslega hamingjusöm yfir því að hafa einmit núna, á Feneyjatvíær- ingnum, tekið þetta alla leið. Þetta er sannkallað lúxusverkefni. Og ég get ekki beðið eftir því sjá gesti upp- lifa listaverkið og litadýrðina.“ Innyflanudd og víbrasjón Íslenskir plötusnúðar munu skemmta gestum við opnun íslenska skálans í kvöld en í mörg ár hefur það verið umtalað meðal safnafólks og listunnenda sem sækja opnun tvíæringsins að einhver skemmtileg- ustu partýin séu við íslensku opnun- ina. Þá mun hin goðsagnakennda sveit HAM troða upp en hún samdi tónverk fyrir verk Hrafnhildar. „Þeir hafa venjulega samið um þriggja mínútna löng rokklög, sem við höfum endurskilgreint sem „hairy mental“ og hafa ómað í vinnu- stofunni minni til margra ára. Ég pantaði hjá þeim ópus, hljóðverk fyr- ir innsetninguna og allt sem hún snýst um. Hljóðheimur HAM hæfir fullkomnlega, er svo stórkostlega „præmal“ og hljóðbylgjutengdur, gefur innyflanudd og víbrasjón, og ég vissi að þetta myndi passa saman. Og þeir voru spenntir fyrir áskorun- inni,“ segir hún um samstarfið við HAM en tónlistin var tekin upp í hljóðveri Lees Ranaldo, eins með- lima hljómsveitarinnar Sonic Youth, undir stjórn Skúla Sverrissonar. Hún segir verk HAM hljóma úr þeim háruga ham sem innsetningin sé. „Hellarnir þrír í Chromo Sapiens heita „Primal Opus“, myrkvuð göng í litasamsetningum eldglæringa sem eru tileinkuð HAM; þá kemur „Ast- ral Gloria“ sem er sækadelísk og trippí litadýrð; og loks er það „Opi- um Natura“ þar sem eru flöktandi og dúnmjúkir litatónar og saklaus sjónræn alsæla,“ segir Hrafnhildur. Tónverkið sem HAM samdi og hljóðritaði er um 20 mínútur og er gefið út á LP-plötu sem er hluti af sýningarskránni; hún kemur út í 1000 eintökum, er hönnuð af graf- íska hönnunarteyminu karlsson- wilker og hver plata er einstök, glær vínylplata með hárlufsum úr verki Hrafnhildar pressuðum inn í hverja plötu. Texta í sýningarskrána skrifa Birta, Hilton Als, JenDeNike, Oddný Eir Ævarsdóttir og Timothy Morton, og þá er birt samtal Hrafn- hildar og Alönnu Heiss. Svakalegt ferli en skemmtilegt Erlendir fjölmiðlamenn hafa safn- ast saman í íslenska skálanum með- an við spjöllum og vilja ná tali af þeim Hrafnhildi og Birtu. Sú síðar- nefnda segir loftið vera orðið raf- magnað í Feneyjum og mikil spenna sé greinilega fyrir íslenska skál- anum sem einhverjir fjölmiðlar hafa valið meðal þeirra mest spennandi. „Verkið vekur áhuga fólks á svo breiðu sviði. Við höfum hitt blaða- menn frá myndlistar-, hönnunar- og lífsstílsmiðlum. List Hrafnhildar spannar vítt svið og nær til margra.“ Og þær viðurkenna að vera lúnar. „Þetta hefur verið svakalegt ferli, en skemmtilegt. Eftir opnun- ina ætlum við hjónin að sigla frá Feneyjum á skútu vinar okkar með krakkana inn í sólarlagið til Króat- íu. Þá nær maður loksins að anda,“ segir Hrafnhildur að lokum. Eins og 500 fermetra loðið málverk  Sýning Hrafnhildar Arnardóttur, sem kallar sig Shoplifter, verður opnuð í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum í kvöld  Loðin insetning sem hún kallar Chromo Sapiens  HAM leikur Ljósmynd/Elísabet Davíðsdóttir Í Chromo Sapiens Sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir og listakonan Hrafnhildur Arnardóttir í innsetningunni. Loðinn heimur „Þetta er pönktextíll!“ segir Hrafnhildur um verkið. Fjöldi manna hefur komið að gerð þess undanfarna mánuði. Sýning Hrafnhildar Arnardóttur, sem kallar sig Shoplifter, verður opnuð í íslenska skálanum á 58. Feneyjatvíæringnum í kvöld en skálinn er í gömlu vöruhúsi á eyjunni Giudecca. Um er að ræða viðamikla innsetningu úr einkennisefni Hrafnhildar, hári, og nefnist hún Chromo Sapiens. „Litir hljóð og aðlaðandi áferð leiða gesti í gegnum þrjú ólík rými sem umlykja þá í mynd- rænum og hljóðrænum sam- runa,“ segir í tilkynningu. Hljómsveitin HAM hefur sam- ið tónverk fyrir Chromo Sapiens og hljómar það um hinn loðna heim listakonunnar. Hljóm- sveitin kemur fram við opnun- ina. Birta Guðjónsdóttir er sýn- ingarstjóri verkefnisins sem fjöldi manns hefur unnið að. Innsetning Hrafnhildar CHROMO SAPIENS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.