Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is „Við fjölskyldan mín á Spáni fáum okkur alltaf churros áður en við förum á laugardagsmarkaðinn í Guadix. Hefðbundið ekta spænskt churros er yfirleitt gert eingöngu úr vatni, hveiti, salti og lyftidufti. Hins vegar má finna alls kyns út- gáfur í dag af churros eins og fyllt churros með vanillukremi, Oreo- churros, súkkulaðihúðað churros og svona mætti lengi telja,“ segir María. „Ég hins vegar ákvað að gera churrosið frekar hefðbundið nema ég bætti í deigið eggi, smjöri og vanilludropum. Við það verður það enn gómsætara og bragðmeira en hið hefðbundna churros. Svo auð- vitað er það algjör skylda að dýfa churrosinu í súkkulaði því annars væri það ekki alvöru churros- máltíð skal ég segja ykkur. Þessu churros er síðan betra að velta að- eins upp úr sykri blönduðum við örlítinn kanil. Þó að churros sé djúpsteikt þurfið þið ekki að hræð- ast því hér nota ég bara djúpa pönnu og olíu svo það er meira eins og maður sé að steikja á pönnu en djúpsteikja. Hér þarf ekki djúpsteikingarpott eða sér- stök áhöld.“ Churros con chocolate 250 ml vatn 55 g ósaltað smjör 1 msk. sykur 1⁄4 tsk. salt 140 g hveiti 1 stórt egg ½ tsk. vanilluextract eða van- illudropar 1 lítri grænmetisolía Sykur til að velta upp úr: ½ bolli sykur 3⁄4 msk. kanill Aðferð: Byrjið á að hræra saman sykur- inn og kanilinn sem á að fara utan á og setja á matardisk. Nú byrjum við á sjálfu churros- inu. Vatn, smjör og sykur er sett saman í pott og látið byrja að sjóða, lækkið þá hitann niður í miðlungshita. Bætið svo hveitinu út í pottinn smátt og smátt og hrærið vel í á meðan, mjög svipað og þegar mað- ur gerir vatnsdeigsbollur. Færið nú deigið yfir í skál og látið kólna í eins og 5-10 mínútur við opinn glugga. Bætið svo vanillu og eggi við í skálina og byrjið strax að þeyta með handþeytara, þar til deigið er orðið silkimjúkt og vel þjappað saman í kúlu. Setjið deigið í sprautupoka með frekar stórum stjörnustút. Mér finnst best að sprauta svo deigi á smjörpappír í lengjur og klippa í kring um hverja lengju svo hver og ein fái sinn pappír. Hitið nú olíuna á djúpri pönnu og setjið smá deig út á til að vita hvort hún sé heit. Þegar hún er orðin heit lækkið þá ögn undir henni, ekki mikið bara aðeins. Setjið nú eins og 3-4 lengjur á smjörpappa út í olíuna og takið pappan með töng strax af, mjög þægilegt að gera þetta svona svo slettist ekki á mann olía. Þið getið farið inn á insta- grammið mitt og séð hvernig ég geri þetta þar. Steikið þar til lengjurnar eru orðnar vel gullinbrúnar og passið að hafa þær nógu lengi svo þær verði ekki hráir innan í. Setjið þá svo á disk með eld- húspappír til að taka af alla aukaolíu. Að lokum er þeim svo velt upp úr sykurblöndunni. Súkkulaðið með churrosinu 100 g 70% súkkulaði 1 dl rjómi klípa af salti Aðferð: Setjið allt saman í pott og hrærið stöðugt í meðan súkku- laðið er að bráðna. Berið svo fram heitt með churrosinu. Churros con chocolate á spænska vísu Það eru örugglega margir sem kannast við að hafa smakkað churros á Spáni en það er varla hægt að fá neitt spænskra en churros og hráskinku. Hér fáum við uppskrift beint frá Maríu Gomez á Paz.is sem þekkir spænska matargerð og hefðir sjálfsagt betur en flestir. María segir að churros sé oftast borðað sem morgunmatur á sparidögum og það sé fátt sem toppi gott churros. Ljósmynd/María Gomez Spænskur draumur Það er ekki hægt að standast svona freistingar enda engin ástæða til. HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Beltone Trust ™
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.