Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Við fjölskyldan mín á Spáni
fáum okkur alltaf churros áður en
við förum á laugardagsmarkaðinn í
Guadix. Hefðbundið ekta spænskt
churros er yfirleitt gert eingöngu
úr vatni, hveiti, salti og lyftidufti.
Hins vegar má finna alls kyns út-
gáfur í dag af churros eins og fyllt
churros með vanillukremi, Oreo-
churros, súkkulaðihúðað churros
og svona mætti lengi telja,“ segir
María.
„Ég hins vegar ákvað að gera
churrosið frekar hefðbundið nema
ég bætti í deigið eggi, smjöri og
vanilludropum. Við það verður það
enn gómsætara og bragðmeira en
hið hefðbundna churros. Svo auð-
vitað er það algjör skylda að dýfa
churrosinu í súkkulaði því annars
væri það ekki alvöru churros-
máltíð skal ég segja ykkur. Þessu
churros er síðan betra að velta að-
eins upp úr sykri blönduðum við
örlítinn kanil. Þó að churros sé
djúpsteikt þurfið þið ekki að hræð-
ast því hér nota ég bara djúpa
pönnu og olíu svo það er meira
eins og maður sé að steikja á
pönnu en djúpsteikja. Hér þarf
ekki djúpsteikingarpott eða sér-
stök áhöld.“
Churros con chocolate
250 ml vatn
55 g ósaltað smjör
1 msk. sykur
1⁄4 tsk. salt
140 g hveiti
1 stórt egg
½ tsk. vanilluextract eða van-
illudropar
1 lítri grænmetisolía
Sykur til að velta upp úr:
½ bolli sykur
3⁄4 msk. kanill
Aðferð:
Byrjið á að hræra saman sykur-
inn og kanilinn sem á að fara utan
á og setja á matardisk.
Nú byrjum við á sjálfu churros-
inu.
Vatn, smjör og sykur er sett
saman í pott og látið byrja að
sjóða, lækkið þá hitann niður í
miðlungshita.
Bætið svo hveitinu út í pottinn
smátt og smátt og hrærið vel í á
meðan, mjög svipað og þegar mað-
ur gerir vatnsdeigsbollur.
Færið nú deigið yfir í skál og
látið kólna í eins og 5-10 mínútur
við opinn glugga.
Bætið svo vanillu og eggi við í
skálina og byrjið strax að þeyta
með handþeytara, þar til deigið er
orðið silkimjúkt og vel þjappað
saman í kúlu.
Setjið deigið í sprautupoka með
frekar stórum stjörnustút.
Mér finnst best að sprauta svo
deigi á smjörpappír í lengjur og
klippa í kring um hverja lengju svo
hver og ein fái sinn pappír.
Hitið nú olíuna á djúpri pönnu
og setjið smá deig út á til að vita
hvort hún sé heit. Þegar hún er
orðin heit lækkið þá ögn undir
henni, ekki mikið bara aðeins.
Setjið nú eins og 3-4 lengjur á
smjörpappa út í olíuna og takið
pappan með töng strax af, mjög
þægilegt að gera þetta svona svo
slettist ekki á mann olía.
Þið getið farið inn á insta-
grammið mitt og séð hvernig ég
geri þetta þar.
Steikið þar til lengjurnar eru
orðnar vel gullinbrúnar og passið
að hafa þær nógu lengi svo þær
verði ekki hráir innan í.
Setjið þá svo á disk með eld-
húspappír til að taka af alla
aukaolíu.
Að lokum er þeim svo velt upp
úr sykurblöndunni.
Súkkulaðið með churrosinu
100 g 70% súkkulaði
1 dl rjómi
klípa af salti
Aðferð:
Setjið allt saman í pott og
hrærið stöðugt í meðan súkku-
laðið er að bráðna.
Berið svo fram heitt með
churrosinu.
Churros con chocolate á spænska vísu
Það eru örugglega margir sem kannast við að hafa smakkað churros á Spáni en það er varla hægt að fá neitt spænskra en churros
og hráskinku. Hér fáum við uppskrift beint frá Maríu Gomez á Paz.is sem þekkir spænska matargerð og hefðir sjálfsagt betur en
flestir. María segir að churros sé oftast borðað sem morgunmatur á sparidögum og það sé fátt sem toppi gott churros.
Ljósmynd/María Gomez
Spænskur
draumur Það
er ekki hægt að
standast svona
freistingar enda
engin ástæða til.
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust
™