Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 54
Hópurinn Það er mikið af hæfileikaríku fólki sem kemur að tónleikunum.
F.v. Benedikt Brynleifsson, Helgi Reynir Jónsson, Ingi Björn Ingason,
Stefaní Svavarsdóttir, Svenni Þór og Pétur Valgarð Pétursson.
„Þegar ég fór á þessa mynd í bíó
með konunni minni varð ég alger-
lega hugfanginn af tónlistinni í
myndinni og sagði við hana á leið-
inni út að mig langaði ótrúlega að
gera tónleika með þessari tónlist,“
sagði Svenni Þór í samtali við Sigga
Gunnars á K100. „Í kjölfarið á því
heyri ég í Hauki á Græna hattinum
á Akureyri og spurði hvort það væri
eitthvað laust fyrir svona tónleika
en því miður var allt uppbókað.
Hann sagðist þó ætla að setja mig á
lista ef eitthvað myndi losna.“ Það
gerðist og fékk Svenni símtal frá
Hauki um mánuði síðar. „Hann
sagðist eiga laust pláss eftir þrjár
vikur og spurði hvort ég væri klár
með tónleikana. Ég laug aðeins og
sagði bara já, þrátt fyrir að ekkert
væri klárt,“ segir Svenni hlæjandi
en það kom ekki að sök því allir
þeir sem hann vildi fá með í verk-
efnið voru lausir og tilbúnir til þess
að taka þátt í því, þeirra á meðal
söngkonan Stefanía Svavarsdóttir.
Átta klukkutíma ferð
í óveðri með ungbarn
Það var ákveðið að halda norður í
land með allt stóðið en svo óheppi-
lega vildi til að óveður skall á, á tón-
leikadeginum. „Ég var nýbúin að
eignast barn og var búin að ákveða
að taka mér frí frá því að koma
fram nema að ég fengi tilboð sem
ég gæti ekki hafnað og þá hringdi
Svenni með þetta spennandi verk-
efni,“ segir Stefanía Svavars sem
fetar í fótsport Lady Gaga á tón-
leikunum. „Það tók mig átta tíma
þennan dag að komast til Akureyr-
ar. Ég tók þriggja mánaða gamalt
barnið mitt með og honum fannst
það vægast ekki skemmtilegt,“ seg-
ir Stefanía hlæjandi og bætir við að
þetta sé hennar fyrsta barn og að
þetta hafi verið mikilvæg lexía fyrir
hana sem móður. „Það var tvísýnt
um stund hvort við þyrftum að af-
lýsa tónleikunum en sem betur fer
gerðist það ekki og við komum fram
fyrir fullum kofa á Akureyri,“ bætir
hún við.
Nú stendur svo til að halda tón-
leikana aftur í miðborg Reykjavíkur
en þau munu koma fram í Gamla
bíói annað kvöld klukkan 22. Á efn-
isskrá tónleikanna eru öll lögin úr
myndinni og koma þau tvö fram
ásamt hljómsveit sem skipuð er
þeim Benedikt Brynjólfssyni, Inga
Birni Ingasyni, Pétri Valgarði Pét-
urssyni og Helga Reyni Jónssyni.
Svo ætla þau að freista þess að
halda aftur norður í land í júní og
vonandi fara veðurguðirnir mildari
höndum um þau þá.
Græni hatturinn Svenni og Stefanía á tónleikunum á Akureyri.
Tónleikar Svenni og Stefanía heiðra þau Bradley Cooper og Lady Gaga á A Star Is Born-tónleikum annað kvöld.
Heiðra kvikmyndina
A Star is Born
Kvikmyndin A Star is Born sló í gegn í kvikmyndahúsum í fyrra og er það ekki
síst tónlistinni í kvikmyndinni að þakka hversu vel hún fangaði hug og hjörtu
áhorfenda. Tónlistarmaðurinn Svenni Þór fékk þá hugmynd að setja upp tón-
leika með tónlistinni úr kvikmyndinni og munu þeir fara fram annað kvöld.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
Bremsuviðgerðir
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Sálfræðingurinn og einkaþjálfarinn
Ragnhildur Þórðardóttir eða Ragga
nagli sem býr í Danmörku segir að
flestir Danir eigi heilbrigðara sam-
band við mat en Íslendingar. „Mað-
ur sér ekki fólk vel í holdum í
Kaupmannahöfn þar sem ég bý,“
sagði hún meðal annars í áhuga-
verðu viðtali við Ísland vaknar á
dögunum. Ástæðuna fyrir því telur
hún vera þá að Danir séu afslapp-
aðri, njóti hverrar máltíðar og gefi
sér góðan tíma í að neyta hennar.
„Sjálf gef ég mér klukkustund á
hverjum degi í að borða. Þá slekk
ég á símanum og er utan þjón-
ustusvæðis því ég er að borða. Það
skal ekkert trufla mig frá því að
njóta matarins,“ sagði Ragga sem
auk þess að vera sálfræðingur er
einnig einkaþjálfari.
Ragga telur að margir séu ekki í
tengslum við líkamleg einkenni
svengdar og seddu þar sem þeir
séu oft búnir að hrúga í sig of
miklu magni af mat löngu áður en
líkaminn gefur skilaboð um að
hann sé orðinn saddur. Meðal-
maðurinn er um 11 mínútur að
borða matinn sinn að sögn Röggu
sem er allt of stuttur tími að sögn
Röggu. Meðalkarlmaðurinn getur
verið mun sneggri að næra sig eða
jafnvel um 5-6 mínútur.
Fyrir utan heilsubætandi áhrif
þess að borða hægt segir Ragga að
fólk geti jafnframt misst af nautn-
inni sem fylgir því að borða góðan
mat. Fólk fari á flottan veitinga-
stað, panti sér dásamlega góðan
mat, bíði eftirvæntingarfullt eftir
að fá að borða og svo loks þegar
maturinn kemur á borðið borði
sumir á þeim hraða að þeir varla
muni eftir að hafa neytt hans.
Ragga Nagli kemur annað slagið
til Íslands í þeim tilgangi að bjóða
upp á námskeið í þessum málum.
Viðtalið við hana má nálgast á
heimasíðu K100, www.k100.is
islandvaknar@islandvaknar.is
Við eigum að vera lengi að borða
Mikill áthraði eykur
líkur á offitu
Ragga nagli segir að það sé mun heilsusamlegra að
gefa sér góðan tíma í að borða heldur en að gúffa
matnum í sig á stuttum tíma. Líkurnar á ofþyngd
fari til að mynda minnkandi þar sem þeir sem borði
á lengri tíma borði alla jafna minna en hinir.
Skynsöm Ragga nagli lætur ekkert
trufla sig við það að njóta matarins.
Atvinna