Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
Laugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími 551 3033 Flottir
í fötum
Frábært úrval af
herrafatnaði
fyrir útskriftina
frá BERTONI
Skipan skiptastjóra
fyrir þrotabú Wow
air var nýlega gagn-
rýnd af kvenlög-
mönnum sem töldu
gengið fram hjá sér.
Heyrst hefur að
klíkuskapur og jafn-
vel umbun (bein og
óbein) hafi áhrif á
hvaða lögmenn fá
stærri bú til skipta.
Eftirfarandi er dæmi um skipta-
stjóra sem tók sér 6,6 m.kr. fyrir
að skipta einföldu dánarbúi sam-
býlisfólks, sem í ljós kom að er
um þrisvar sinnum hærra en eðli-
legt má telja.
Svo virðist sem umsjón og eftir-
lit með störfum
skiptastjóra sé í formi
sérhagsmuna og
leyndarhyggju.
Dánarbúið
hennar Gunnu
frænku
Guðrún Lilja Magn-
úsdóttir, móðursystir
mín, lést barnlaus árið
2012. Bú hennar var
einfalt dánarbú barn-
lauss sambýlisfólks og
enginn ágreiningur
meðal erfingja sem voru eftirlif-
andi systkin og börn látinna
systkina. Óskað var opinberra
skipta undir árslok 2012. Í janúar
2013 tók Héraðsdómur Reykjavík-
ur búið til opinberra skipta og
skipaði skiptastjóra.
Árið 2015, lauk (fyrri) skiptum.
Eignir Guðrúnar töldust nettó um
21 milljón kr. Þar af reiknaði
skiptastjóri sér rúmar 5 m.kr.
Erfingjum þótti skiptin hafa tekið
óeðlilega langan tíma og skipta-
kostnaður vera óeðlilega hár. Eng-
inn lagði þó fram formlega kvört-
un.
Vorið 2017 boðaði skiptastjórinn
óvænt aftur til skiptafundar því að
„eftir að fyrri skiptum lauk bárust
frá Arion banka upplýsingar um
rúmlega þriggja m.kr. verðbréfa-
eign“. Að sögn skiptastjórans var
ástæða seinkunarinnar klúður
bankans. Skiptastjórinn bætti af
þessu tilefni 1,3 m.kr við skipta-
kostnaðinn og sem varð samtals
(5,3+1,3) 6,6 m.kr. Á þessum síð-
ari fundi var kvörtun yfir háum
skiptakostnaði færð til bókar.
Tveimur dögum síðar upplýsti
Arion banki aðspurður að skipta-
stjórinn hefði fengið vitneskju um
verðbréfaeignina strax í janúar
2013 með tölvupósti á netfangið
sitt hjá lögmannsstofunni. Það var
því yfirsjón skiptastjórans en ekki
bankans að verðbréfaeignin var
ekki tekin með í fyrri skiptunum í
júní 2015. Samt tók skiptastjórinn
sér viðbótarþóknun og laug til um
atvik.
Daginn eftir óskaði erfingi eftir
því við skiptastjórann að hún léti
viðbótarskiptakostnaðurinn, 1,3
m.kr., niður falla. Því hafnaði lög-
maðurinn fjórum dögum síðar og
tilkynnti samdægurs Héraðsdómi
Reykjavíkur að skiptum væri lok-
ið og gat ekki ágreinings.
Af þessu tilefni báru erfingjar
það undir ýmsa lögmenn hvað
þeir teldu eðlilega þóknun til
skiptastjóra fyrir skipti á búi eins
og þessu. Töldu þeir að skipta-
kostnaður hefði í mesta lagi átt að
vera 1,3 til 2 milljónir króna en
ekki 6,6 m.kr.
Þremur dögum síðar kvartaði
erfingi því til Héraðsdóms
Reykjavíkur vegna hins háa
skiptakostnaðar með ítarlegum
upplýsingum um málavexti.
Nokkrum vikum síðar svaraði
Héraðsdómur Reykjavíkur að þar
sem kvörtunin hefði komið meira
en viku eftir að skiptum lauk
„verða aðfinnslur ekki hafðar uppi
gegn skiptastjóra. Erindi þitt
verður því ekki tekið til frekari af-
greiðslu“.
Kjarni máls og
möguleg úrræði
Fyrir lögmenn er verðmætt að
fá gott bú til skipta, ekki síst ef
þeir geta ráðið þóknun sinni sjálf-
ir.
Lögmenn eru misjafnir, sumir
sanngjarnir, aðrir óskammfeilnir
ruddar sem svína á fólki í skjóli
kunnáttuleysis neytenda/umbjóð-
enda sinna í lögum og taka sér
margfalda þóknun og komast
flestir upp með það.
Uppfæra þarf starfsaðferðir
dómstóla varðandi umsjón skipta.
Úthlutun búa þarf að byggjast á
faglegum, gagnsæjum vinnubrögð-
um, þóknun þarf að vera hæfileg
og raunverulegt eftirlit með því að
allt gangi vel fyrir sig.
Þeir sem óska eftir opinberum
skiptum eða sæta þeim ættu að fá
leiðbeiningar hjá viðkomandi dóm-
stóli um ferlið framundan.
Fræða þarf fólk um hvers þarf
að gæta í samskiptum við skipta-
stjóra, hversu langan tíma eðlilegt
er að skipti taki, hverjar eru eðli-
legar þóknanir, hvernig á að bera
sig að við kvartanir.
Hugsanlega ættu dómstólar að
bjóða út slatta af skiptum, öðru
hverju til að fá sanngjarnt verð
sem skiptaþolar fá að njóta.
Útgangspunkturinn þarf að vera
að gæta sanngirni milli allra við-
komandi það er neytenda og lög-
manna.
Eftir Guðjón
Sigurbjartsson
Guðjón Sigurbjartsson
»Umsjón og eftirlit
með störfum skipta-
stjóra virðist vera í
formi sérhagsmuna og
leyndarhyggju.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
gudjonsigurbjartsson@gmail.com
Hvenær ræna skiptastjórar bú?
Það er dálítið skrýtið að páskafrí-
ið skuli oft vera lengra og áhrifa-
meira en sjálf jólahátíðin þar sem
minnst er fæðingar frelsarans.
Páskar ættu að vera, að hluta
til a.m.k., sorgartími vegna kross-
festingarinnar þó að upprisan
komi líka við sögu sem „happy
end“.
En erum við nokkuð að hugsa
um trúmálin þegar páskafríið er
planað og menn þeytast á skíði
landið á enda? Líklega ekki.
Kirkjusókn ekki í hámarki og flest
lokað og læst nema vegasjoppur.
Hagvöxturinn verður út undan
þegar allt dettur svona niður í
heila viku og það á þeim tíma
þegar þjóðin ætti að vera að
vakna af vetrardoðanum og fara
að taka til hendinni. Birtan flæðir
inn um gluggana á morgnana og
kallar á starfandi hendur en ekki
gauf í bústöðum eða skíðabrekk-
um.
Ef við skærum skírdaginn af og
líka annan í páskum, já, þá yrðum
við ríkari þjóð. Er það ekki það
sem allir vilja?
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Eigum við skilið páskafrí?