Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
AROUNDTHEWORLD.IS
S. 564 2272
Á slóðir íslensku Vesturfaranna
1. – 11. ágúst 2019
Innifalið flug, gisting í 10 nætur með
morgunmat, 1 hádegisverður, 2
kvöldverðir, allar skoðunarferðir í
rútu, íslensk fararstjórn.
Verð í tvíbýli kr. 323.500 á mann.
Kíktu á www.aroundtheworld.is
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Heildarkostnaður við byggingu
fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri í
landi Vífilsstaða í Garðabæ er
áætlaður um 4,3 milljarðar og á
þessu ári er gert ráð fyrir að verja
620 milljónum króna til verksins.
Fyrsta skóflustunga að húsinu var
tekin sl. föstudag og gert er ráð
fyrir að verklok verði í apríl 2021.
Margvísleg nýting
Í lok síðasta árs var undirrit-
aður verksamningur milli Garða-
bæjar og Íslenskra aðalverktaka
um hönnun og byggingu hússins,
en tilboð Íslenskra aðalverktaka
skoraði hæst með tilliti til gæða og
verðs að því er þá kom fram í frétt
frá bæjarfélaginu. Hönnun hófst
síðan í byrjun þessa árs og gert er
ráð fyrir að verklok verði í apríl
2021.
Fjölnota íþróttahúsið verður
með rými fyrir knattspyrnuvöll í
fullri stærð auk upphitunaraðstöðu
ásamt tilheyrandi stoðrýmum. Í
húsinu verður lyftingasalur, svalir
í kringum allan fótboltavöllinn sem
hægt er að nýta sem hlaupa- og/
eða göngubraut. Auk þess er gert
ráð fyrir rými fyrir klifurvegg.
Önnur rými eru einnig á 2. og 3.
hæð viðbyggingar hússins sem á
eftir að ráðstafa. Stærð íþróttasal-
arins verður um 80x120 m, með
anddyri og öðrum stoðrýmum er
flatarmál hússins um 18.200 fer-
metrar.
Markmið deiliskipulags lóðar-
innar er að skapa umgjörð um
raunhæfa og framsýna lausn á
íþróttasvæði í góðum tengslum við
byggð og samgöngur, segir á
heimasíðu Garðabæjar.
Nýtt af yngri og eldri íbúum
Við athöfn er skóflustunga var
tekin að byggingu hússins bauð
Gunnar Einarsson bæjarstjóri
gesti velkomna og þakkaði þeim
sem hafa komið að undirbúningi
málsins. Hann sagði jafnframt frá
því hvernig hann vonaðist til að
íþróttahúsið yrði nýtt í framtíðinni
af yngri sem eldri íbúum Garða-
bæjar. Hann sagði að tilkoma
hússins myndi hafa mikil áhrif til
eflingar líkams- og heilsuræktar í
Garðabæ.
,,Árið 1910 reis Vífilsstaðaspítali,
sem þá var eitt glæsilegasta og
stærsta hús á Íslandi, og markaði
nýja tíma í heilbrigðismálum Ís-
lendinga. Með sama hætti vil ég
horfa á nýja fjölnota íþróttahúsið
að það marki nýja tíma í íþrótta-,
líkams- og heilsurækt okkar
Garðbæinga,“ sagði Gunnar.
Börnin í heiðurshlutverki
Björg Fenger, formaður íþrótta-
og tómstundaráðs Garðabæjar,
ávarpaði einnig viðstadda. Barna-
kór leikskólans Hæðarbóls flutti
nokkur vorlög við athöfnina og
börnin fengu svo það heiðurs-
hlutverk að taka skóflustungu að
nýja íþróttahúsinu. Þeim til að-
stoðar voru bæjarfulltrúar Garða-
bæjar og fulltrúar félaga eldri
borgara í Garðabæ og Álftanesi.
Í notkun eftir tæp tvö ár
Skóflustunga tekin að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri í Garðabæ
Markar nýja tíma í íþrótta-, líkams- og heilsurækt, sagði bæjarstjóri
Tölvumynd/ASK arkitektar
Vetrarmýri Fjölnota húsið rís á hluta þess svæðis þar sem nú er æfingasvæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.
Ljósmynd/Garðabær/Valdimar Kristófersson.
Upphaf Bæjarfulltrúar, börn og eldri borgarar voru í aðalhlutverkum.
Jóhannsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, umhverfis- og auð-
lindaráðherra og Dagur B. Egg-
ertsson, borgarstjóri.
Hjólað í vinnuna 2019 stendur
dagana 8. maí til 28. maí.
„Verkefnið höfðar til starfsfólks
á vinnustöðum landsins og hefur
þátttakan margfaldast á þeim 16
árum sem liðin eru frá því að verk-
efnið fór af stað. Undanfarinn ára-
Átakið Hjólað í vinnuna 2019 var
sett í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum í Laugardal í gærmorgun.
Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands stendur fyrir Hjólað í vinn-
una. Þetta var í 17. skiptið sem efnt
var til átaksins.
Hjólreiðafólki var boðið að renna
við í Laugardalnum og þiggja bakk-
elsi. Hvatningarávörp fluttu Haf-
steinn Pálsson, formaður almenn-
ingsíþróttasviðs ÍSÍ, Sigurður Ingi
tug hefur orðið gríðarleg vakning á
hjólreiðum sem heilsusamlegum
samgönguvalkosti. Ætla má að
margir þátttakendur hafi tekið
hjólreiðar upp sem lífstíl í fram-
haldi af þátttöku sinni í verkefninu.
ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að
bættri hjólamenningu á Íslandi og
orðið til þess að vinnustaðir og
sveitarfélög hafi bætt til muna að-
stöðu fyrir hjólandi fólk,“ segir í til-
kynningu. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hjólað í vinnuna 2019 Ráðherrar og borgarstjóri brugðu sér á bak hjólhestunum í tilefni setningar átaksins.
Fólk er hvatt til að hjóla
Verkefnið Hjólað í vinnuna 2019 hófst formlega í gær
Reglugerð um bann við veiðum á öll-
um tegundum áls hér á landi tók gildi
í byrjun vikunnar. Allar álaveiðar eru
óheimilar í sjó, ám og vötnum nema
að fengnu sérstöku leyfi frá Fiski-
stofu til álaveiða til eigin neyslu, sem
getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða.
Ef áll veiðist í lax- eða silungsveiði er
skylt að sleppa honum. Sala á íslensk-
um ál og afurðum áls er bönnuð.
Lög um breytingu á lögum um lax-
og silungsveiði voru samþykkt á Al-
þingi fyrir rúmu ári síðan. Inn í eldri
lög var bætt málsgrein þar sem segir
að ráðherra geti með reglugerð sett
reglur um álaveiðar, m.a. um að
banna eða takmarka álaveiðar um allt
land eða á tilteknum svæðum ef það
sé talið nauðsynlegt að mati Hafrann-
sóknastofnunar.
Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
um ál frá því í júní í fyrra kemur fram
m.a. að álastofninn sé í hættu og þoli
illa veiðar. Meðan svo er sé það ráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunar að bann
verði sett á allar álaveiðar hér á landi.
Markmið með setningu reglugerð-
ar nú er að vernda álastofninn hér á
landi gegn ofveiði en samkvæmt
reglugerðinni er gert ráð fyrir að allar
álaveiðar verði óheimilar hér á landi,
með tilteknum undantekningum þar
sem gert er ráð fyrir að hægt verði að
veita leyfi til veiða á áli til eigin
neyslu. Í þeim tilvikum verði afli og
sókn nákvæmlega skráð, en með því
móti fáist upplýsingar um fjölda
þeirra sem hafa stundað álaveiðar,
afla á sóknareiningu, landsvæði og
mögulega sýni af veiddum fiskum til
rannsókna. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
Á veitingahúsi Margir kunna að
meta reyktan, íslenskan ál sem hef-
ur endrum og sinnum verið í boði.
Allar ála-
veiðar eru
bannaðar