Morgunblaðið - 09.05.2019, Síða 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Klerkastjórnin í Íran kvaðst í gær ætla að
hætta að virða sum ákvæði kjarnorkusamn-
ings landsins við Bandaríkin og fimm önnur
lönd frá árinu 2015 þar til Evrópulönd fyndu
leið til að sneiða hjá viðskiptabanni Banda-
ríkjastjórnar á Íran. Klerkastjórnin hótaði
einnig að hefja auðgun úrans, sem hægt væri
að nota í kjarnavopn, ef viðsemjendurnir
virtu ekki ákvæði samningsins um að aflétta
refsiaðgerðum gegn landinu.
Donald Trump Bandaríkjaforseti ákvað
fyrir ári að draga landið út úr kjarnorku-
samningnum og setti viðskiptabann sem varð
til þess að olíuútflutningur Írans snarminnk-
aði. Með samningnum við Bandaríkin, Bret-
land, Frakkland, Kína, Rússland og Þýska-
land skuldbatt klerkastjórnin í Íran sig til að
takmarka verulega kjarnorkuáform sín gegn
því að viðskiptaþvingunum gegn landinu yrði
aflétt. Stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi,
Kína, Rússlandi og Þýskalandi sögðust ætla
að standa við samninginn og töldu að Íranar
hefðu staðið að fullu við skilmála hans.
Hassan Rouhani, forseti Írans, sagði í gær
að landið myndi ekki selja umframbirgðir sín-
ar af lítt auðguðu úrani og þungavatni ef þær
færu yfir þau mörk sem kveðið væri á um í
samningnum. Forsetinn gaf síðan Bretlandi,
Frakklandi og Þýskalandi tveggja mánaða
frest til að finna leið til að sneiða hjá við-
skiptabanni Bandaríkjastjórnar. Hann hótaði
því að Íranar hæfu auðgun Írans umfram þau
mörk, sem sett voru í samningnum, og hæfu
að nýju framkvæmdir við þungavatns-
kjarnakljúf í Arak í samræmi við kjarn-
orkuáætlun sem klerkastjórnin hafði ákveðið
áður en samningurinn náðist. Samningurinn
kvað á um að Íranar breyttu kjarnakljúfnum
í Arak til að koma í veg fyrir framleiðslu
plútons sem hægt væri að nota í kjarnavopn.
Grípur ESB til refsiaðgerða?
Rouhani lagði þó áherslu á að markmiðið
með því að setja viðsemjendunum úrslita-
kosti væri að bjarga kjarnorkusamningnum.
Javad Zarif, utanríkisráðherra Írans, sagði
að Rússar og Kínverjar hefðu virt samning-
inn en ekki Evrópulöndin þrjú.
Þýska stjórnin hvatti í gær klerkastjórnina
til að virða öll ákvæði samningsins að fullu og
breska stjórnin sagði að ef Íranar virtu ekki
samninginn gæti það leitt til nýrra refsiað-
gerða gegn þeim. Fréttaskýrandi The Wall
Street Journal segir að markmiðið með
ákvörðun Írana um að hætta að virða sum
ákvæði samningsins virðist vera að auka
þrýstinginn á Evrópuríkin, án þess að segja
samningnum upp eða gerast algerlega brot-
legir við hann. Standi klerkastjórnin hins
vegar við hótun sína um að hefja auðgun úr-
ans geti það orðið til þess að Evrópuríkin
samþykki refsiaðgerðir gegn Íran.
Florence Parly, varnarmálaráðherra
Frakklands, sagði í gær að það versta sem
gæti gerst væri að Íranar segðu upp kjarn-
orkusamningnum. Bretar, Frakkar og Þjóð-
verjar hygðust því gera allt sem þeir gætu til
að bjarga honum. Ef Íranar brytu gegn
samningnum kynni Evrópusambandið að
grípa til refsiaðgerða gegn þeim. Öll aðildar-
löndin 28 myndu þurfa að samþykkja refsiað-
gerðirnar og talið er að erfitt yrði að ná sam-
stöðu um þær, að sögn The Wall Street
Journal.
Fréttaskýrandi breska ríkisútvarpsins
segir að klerkastjórnin í Íran reyni að fara
vandrataðan meðalveg með því að hætta að
virða sum ákvæði kjarnorkusamningsins án
þess að brjóta algerlega gegn honum. Evr-
ópuríkin lendi í mjög erfiðri stöðu ef klerka-
stjórnin brýtur gegn samningnum. „Þau eru
klemmd á milli Írana og Trump-stjórn-
arinnar. Geta þau haldið áfram að styðja
samninginn ef Íranar virða hann ekki að
fullu?“
Íranar hóta að hefja auðgun úrans
Segjast hætta að virða sum ákvæði kjarnorkusamningsins frá 2015 vegna viðskiptabanns Banda-
ríkjastjórnar Evrópuríki hvetja klerkastjórnina í Íran til að virða skilmála samningsins að fullu
Heimildir: IAEA/NTI/ISIS/USNRC/World-nuclear.org
Fækka á skilvindum
úr um 19.000 í
5.060 á 10 árum
Minnka á birgðir Írana
af lítt auðguðu úrani
úr 10.000 kg í 300 kg.
Þær mega ekki vera
meiri í 15 ár
Markmiðið með samningnum er að koma í veg fyrir að Íranar geti framleitt kjarnavopn
Samningurinn kveður
á um aukið eftirlit, m.a.
mögulega með
herstöðvum
Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunin (IAEA) getur
sett upp eftirlitsbúnað í
námum og kjarnorku-
stöðvum
Á að vera eina stöðin
þar sem hægt er
að auðga úran
Kjarnorkusamningurinn við Íran frá árinu 2015
Gashin
FORDO
Þar mega vera 1.044
skilvindur sem ekki má
nota til að auðga úran
Anarak
Karaj
Bushehr
Isfahan
Breyta á kjarnakljúfi til
að koma í veg fyrir
framleiðslu plútons
sem hægt væri að
nota í kjarnavopn
ARAK
Parchin-
TEHERAN
KASPÍHAF
NATANZ
Ardakan
Saghand
Kjarnorku-
úrgangur
geymdur
Verksmiðja þar
sem úrangrýti
er unnið
Þar er búnaður
til að auðga
úran
herstöðin
Helsta kjarnorku-
rannsóknastöðin
Rannsókna-
kjarnakljúfur,
úranvinnsla
Kjarnorku-
ver
SÁDI-
ARABÍA
ÍRAK
AFGANISTAN
TÚRKMENISTAN
PAKISTAN
Hlutfall kjarnkleyfu
samsætunnar 235U er aukið
í skilvindum með því að
skilja hana frá
samsætunni 238U
Auðgun úrans
Samningsákvæði
Kjarnorkustöð Kjarnakljúfur ÚrannámaHelstu stöðvar
Talið er
að Íranar
eigi um
4.400 tonn
af úrani
Í kjarnavopn: Hlutfallið
þarf að vera a.m.k. 90%
til að hægt sé að nota
úranið í vopn
Til orkuframleiðslu:
hlutfall 235U er aukið í
4-5% til að framleiða
eldsneyti í kjarnaofna
Varahlutir í allar
Cummins vélar
Fljót og áreiðanleg þjónusta
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík
Harry Bretaprins og eiginkona
hans, Meghan, sýndu nýfæddan son
sinn opinberlega í fyrsta skipti í
Windsor-kastala í gær, tveimur
dögum eftir að hann fæddist.
„Hann er mjög ljúfur í lund, mjög
rólegur. Hann hefur verið draum-
ur,“ sagði Meghan og brosti með
sofandi soninn í fanginu. „Ég veit
ekki frá hverjum hann fær það,“
sagði þá Harry hlæjandi.
Seinna um daginn fóru þau til El-
ísabetar II Bretadrottningar, lang-
ömmu barnsins, til að sýna henni
nýja erfingjann.
Hjónin greindu ennfremur frá
því að sonurinn fengi nafnið Archie
Harrison Mountbatten-Windsor.
Margir Bretar höfðu veðjað um
hvaða nafn hann fengi og flestir
töldu að hann yrði skírður Alexand-
er eða Spencer.
Flestir fjölmiðlar í Bretlandi
höfðu sagt að barnið hefði fæðst á
heimili Harry og Meghan við Frog-
more Cottage, sem er á landareign
Windsor-kastala, en blaðið Daily
Mail sagði að Meghan hefði verið
flutt með leynd á sjúkrahús fyrir
fæðinguna.
AFP
Sonurinn sýndur og
greint frá nafni hans