Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 51
■ Stuðlað að heilbrigðri hjartastarfsemi og bætir ónæmiskerfið ■ Stutt heila-, húð-, lið-, vöðva- og augnheilbrigði ■ Verndað frumur gegn oxunarskemmdum Astaxanthin Eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunn Astaxanthin frá Algalíf er 100% náttúrulegt hágæða bætiefni, framleitt á sjálfbæran hátt við kjöraðstæður sem tryggja að innhaldið skili sér til neytenda. Astaxanthin er unnið úr örþörungum. Þetta öfluga andoxunarefni getur dregið úr bólgum og verndað gegn sterkum útfjólubláum geislum sólar en aðrir góðir kostir eru m.a. að það getur: Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna ar Læknirinn sagði að ég þyrfti miklu meira D-vítamín DLúx 3000 munnúðinn hækkaði D-vítamín- gildin hjá Rakel Ósk á methraða og kom heilsunni hennar í lag. Einungis 4 vikur þurfti til að ná upp í vel ásættanleg gildi og það með bara einu spreyji á dag.. AUGLÝSING D-vítamín er nauðsynlegtfyrir heilbrigt taugakerfi,heila, hjarta og æðakerfi. Það er nauðsynlegt fyrir húðina, beinin, sjónina og heyrnina svo nokkuð sé nefnt og það ver okkur fyrir alvarlegum sjúkdóm- um. Skortur D-vítamíns þegar kemur á fullorðinsár getur valdið beinþynningu, beinmeyru, vöðvarýrnun og tannskemmdum. Rannsóknir gefa einnig sterkt til kynna að D-vítamín sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og fyrirbyggja sjúkdóma en vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D-vítamínskorti. Magaverkjaköst vegna skorts Rakel Ósk er hress og kát 10 ára fimleikastelpa sem vanalega er heilsuhraust. Í nóvember 2018 byrjaði hún svo að veikjast en það lýsti sér fyrst og fremst í magaverkjaköstum þar sem versta kastið varði í 3 vikur. Hún fór til meltingarsérfræðings sem tók hana í alls kyns rannsóknir og það eina sem kom út úr því var að hún var langt undir mörkum í D-vítamíni. Gildið var aðeins 25 nmól/l en eðlilegt er að vera á bilinu 50 til 150 nmól/l. Gildin ruku upp á 4 vikum Rakel Ósk þurfti því skv. læknisráði að taka sterkan D-vítamínskammt til að ná upp gildunum og mælti læknirinn með 3000 einingum á dag. Rakel Ósk er eins og mörg börn (og jafnvel fullorðnir) með að finnast vont að gleypa töflur þannig að þeim mæðgum var bent á DLúx 3000 munnúðan í apóteki og fannst Rakel ekkert mál að úða upp í sig einu sinni á dag. Fjórum vikum síðar fór hún svo í blóðprufu og læknirinn ætlaði varla að trúa sínum eigin augum. Gildin voru komin í 98 nmól/l og taldi hann þetta örugglega vera met í bætingu og hvatti til þess að passa áfram uppá inntöku til að viðhalda gildunum. Rakel er öll önnur í dag, er sjálfri sér lík og ekki fengið magaverk aftur. D-vítamínskortur á norðlægum slóðum Sérfræðingar við Friedman School of Nutrition Science and Policy hafa birt rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra voru í D-vítamín skorti. Einnig kom þar fram að þeir sem eru í ofþyngd, með dökka húð og/eða lifa á norðlægum slóðum séu oftar í skorti en aðrir. Í framhaldi af þessu var skoðað hvað það þyrfti mikið magn í daglegri inntöku af D-vítamíni til að hækka gildin hjá þeim börnum sem mældust í skorti. Í ljós kom að stærstur hluti barnanna þurfti að taka 2000 a.e. (alþjóðlegar einingar) af D-vítamíni í 6 mánuði til að ná ásættanlegum gildum en hámarksskammtur fyrir 9 ára og eldri er 4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að ef um D-vítamín skort er að ræða, dugir ekki að taka bara ráðlagðan dagsskammt, enda eru eru þeir hugsaðir til að viðhalda þeim gildum sem fyrir eru, ekki til að hækka þau. Hvar fáum við D vítamín Þetta vítamín er ekki eins og önnur vítamín sem getum fengið úr fjölbreyttri fæðu en aðeins um 10% af D-vítamíni kemur úr matnum. Sólin er helsta og besta uppspretta D-vítamíns en það verður til í líkama okkar vegna áhrifa UVB geisla sólarinnar á húðina. Þetta gerist eingöngu þegar hún er mjög hátt á lofti og ef hún skín á stóran hluta líkamans. Því getur verið erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að tryggja sér nægilegt magn nema rétt yfir hásumarið, um hádegið þegar sól er hæst á lofti og þá má ekki nota sólarvörn. Gott ráð er að leyfa sólinn að skína á líkamann í ca 20 mínútur án varnar en þannig er vænn skammtur af D-vítamíni tryggður. Landlæknisembættið hvetur fólk til þess að taka D-vítamín sérstaklega á formi bætiefna því eins og áður kom fram er það okkur lífsins ómögulegt að fá það úr fæðunni eða frá sólinni nema í takmörkuðu mæli. „Mér var mjög illt í maganum og læknirinn sagði mér að ég þyrfti að fá miklu meira D vítamín. DLúx úðinn er ekki vondur á bragðið og ekki sterkur og létt að taka hann, bara eitt sprey á dag undir tunguna. Mér líður miklu betur eftir að ég byrjaði að taka úðann þannig að ég mæli með honum“ . Af hverju DLúx í úðaformi? • Munnúði tryggir hraða og mikla upptöku því vítamínið seytlar gegnum slímhúðina í munninum og beint út í líkamann. • Mörgum finnst erfitt að taka inn töflur og svo getur meltingin verið undir álagi eða ekki alveg í lagi af ýmsum ástæðum en með munnspreyinu förum við framhjá meltingarkerfinu. • DLúx hentar grænmetisætum og sykursjúkum sem og þeim sem eru á glúteinlausu fæði. DLúx munnsprey tryggir hámarks upptöku. Rakel Ósk 10 ára
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.