Morgunblaðið - 09.05.2019, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
AKUREYRI/VESTURBÆR
Einar Sigtryggsson
Edda Garðarsdóttir
Þór/KA og Fylkir mættust í Pepsi
Max-deild kvenna í gær. Leikurinn
var í 2. umferð og spilaður á Þórs-
vellinum á Akureyri. Heimakonur í
Þór/KA voru stigalausar fyrir leik
en þær innbyrtu góðan 2:0-sigur eft-
ir markalausan fyrri hálfleik.
Ekki var mikið að frétta af sókn-
arleik lengi vel og fátt markvert
gerðist í fyrri hálfleik. Stephany
Mayor og Andrea Mist Pálsdóttir
skoruðu mörk Þórs/KA í hvorum
enda seinni hálfleiksins.
Stephany hefði átt að skora fleiri
mörk en henni voru mislagðir fætur
í öll þau skipti sem hún komst ein í
gegnum vörn Fylkis. Þetta er ný hlið
sem Stephany hefur ekki sýnt til
þessa. Andrea Mist var mjög spræk
á miðjunni en hún gerði allt of mikið
af því að reyna skot lengst utan af
velli. Andrea kemur greinilega mjög
tilbúin til leiks í Pepsi Max-deildinni
eftir að hafa spilað nokkra mánuði í
Austurríki.
Fylkisliðið lítur nokkuð vel út
miðað við þennan leik. Árbæingar
höfðu í fullu tré við heimaliðið og
fengu sín upphlaup og færi. Cecilía
Rán Rúnarsdóttir var örugg í víta-
teignum og greip vel inn í fyrirgjafir.
Stefanía Ragnarsdóttir og Þórdís
Elva Ágústsdóttir voru skæðar fram
á við og vörnin virkaði traust lengi
vel. Það var ekki fyrr en á lokakafl-
anum sem vörnin opnaðist óþægi-
lega mikið en Þór/KA nýtti sér það
aðeins einu sinni.
Lið Akureyringa virkar eilítið
ryðgað sem verður að teljast eðlilegt
þar sem leikmenn eru rétt að koma
saman fyrst núna. Hollendingurinn
Iris Anchterhof byrjaði sinn fyrsta
leik og virkaði ágætlega. Hún á ef-
laust eftir að nýtast liðinu betur í
næstu leikjum.
Margrét og Elín sáu um KR
Valskonur unnu öruggan sigur á
KR í Vesturbænum, eins og búast
mátti við. Margrét Lára Viðars-
dóttir skoraði eina mark fyrri hálf-
leiks sem var afar fjörugur en Vals-
konur hefðu hæglega getað bætt við
fleiri mörkum fyrir hlé. Þær gerðu
það hins vegar ekki fyrr en tæpar tíu
mínútur voru til leiksloka þegar Elín
Metta Jensen setti boltann í netið
eftir þrumuskot Fanndísar Friðriks-
dóttur. Margrét skoraði svo úr víti
sem Elín Metta fiskaði, framhjá
Agnesi Þóru Árnadóttur sem tók
fram markmannshanskana og stóð í
marki KR í leiknum.
Mætir tilbúin en skotglöð
til leiks frá Austurríki
Andrea Mist áberandi í torsóttum sigri Þórs/KA á Fylki Öruggt hjá Val
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Skalli Andrea Mist Pálsdóttir var áberandi í leik Þórs/KA og Fylkis í gær þar sem Akureyringar fögnuðu sigri.
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavíkurslagur Hlín Eiríksdóttir fagnar Margréti Láru Viðarsdóttur
eftir að sú síðarnefnda kom Valskonum yfir í fyrri hálfleik gegn KR.
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Eimskipsvöllurinn: Þróttur R. – ÍR ....19.15
Varmárvöllur: Afturelding – Fjölnir ...19.15
3. deild karla:
KR-völlur: KV – Reynir S. ........................20
Skallagrímsv.: Skallagrímur – Álftanes...20
Í KVÖLD!
Þór/KA – Fylkir 2:0
1:0 Stephany Mayor 46.
2:0 Andrea Mist Pálsdóttir 89.
I Gul spjöldEngin.
I Rauð spjöldEngin.
M
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
(Þór/KA)
Bianca Sierra (Þór/KA)
Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Fylki)
Stefanía Ragnarsdóttir (Fylki)
Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki)
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðas., 6.
ÞÓR/KA – FYLKIR 2:0 KR – VALUR 0:3
KR – Valur 0:3
0:1 Margrét Lára Viðarsdóttir 22.
0:2 Elín Metta Jensen 81.
0:3 Margrét Lára Viðarsd. 83. (víti)
I Gul spjöldElísa Viðarsdóttir (Val)
I Rauð spjöldEngin.
MMM
Engin.
MM
Elín Metta Jensen (Val)
M
Ingunn Haraldsdóttir (KR)
Margrét Lára Viðarsdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Dómari: Helgi Ólafsson, 7.
Sveindís Jane Jónsdóttir, lykilleik-
maður nýliða Keflavíkur í Pepsi Max-
deildinni í knattspyrnu, vankaðist und-
ir lok leiksins gegn ÍBV í fyrrakvöld.
„Aukaspyrna var dæmd undir lokin og
boltinn fór beint í hnakkann á henni.
Hún riðaði öll til þegar hún gekk út af
vellinum. Hún vankaðist og fann til
ógleði. Það verður að fara varlega í
sakirnar í svona höfuðmeiðslum og
mér finnst ekki líklegt að hún verði
með okkur í leiknum á móti Breiðabliki
á mánudaginn,“ sagði Gunnar Magnús
Jónsson, þjálfari Keflavíkur, við mbl.is.
María Þórisdóttir lék á mánudag
sinn fyrsta leik síðan í október þegar
hún lék með Chelsea í 8:0 sigri liðsins
á móti Yeovil. Hún hefur glímt við höf-
uðmeiðsli. Þrátt fyrir meiðslin var
María, sem er dóttir Þóris Hergeirs-
sonar þjálfara kvennalandsliðs Noregs
í handbolta, nýverið valin í norska
landsliðshópinn sem leikur á HM í
Frakklandi í júní.
Körfuknattleiksmaðurinn Kristinn
Pálsson hefur framlengt samning sinn
við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og
gildir samningur út leiktíðina 2019-20.
Kristinn er 21 árs gamall og var með 6
stig, 3,6 fráköst og 1,6 stoðsendingar
að meðaltali í leik í vetur. Njarðvík-
ingar hafa þegar framlengt samninga
við Jón Arnór Sverrisson, Loga Gunn-
arsson og Maciek Baginski.
Eitt
ogannað
60 ÍÞRÓTTIR
Munnsprey sem virka!
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Úðað út í kinn og hámarks upptaka er tryggð
– meiri upptaka en með töflum
Iron: Engin magaónot
þar sem járnið fer beint
út í blóðrásina
(48 skammtar)
DLúx 3000: Taktu
D-vítamín allt árið
(100 skammtar)
B12 Boost: Áhrifaríkur
munnúði sem getur komið
í veg fyrir B12 skort.
(40 skammtar)